Íslendingaþættir Tímans - 23.02.1983, Blaðsíða 7

Íslendingaþættir Tímans - 23.02.1983, Blaðsíða 7
Guðmundsdóttir, lausakona á Irafelli, eiris og skráð er í kirkjubók. Skafti ólst upp með móður sinni á írafelli til 8 ára aldurs en árið 1910 réðist Guðbjörg ráðskona til Péturs Björnssonar bónda í Teigakoti og þar var Skafti með móður sinni fram yfir tvítugt. Á æskuárum mínum kynntist ég Skafta og urðum við góðir vinir þá þegar. Teigakot er næsti bær við Sveinsstaði en yfir háls að fara, sem Eggjar heita og klst. gangur. Ég var ungur sendur yfir að Teigakoti. Par voru þá Guðbjörg og Skafti og Pétur bóndi og móðursystir hans, Ingibjörg Pétursdóttir. Ég veit að ég var 6 ára þegar ég fór þessa ferð, því ég man eftir Ingibjörgu Pétursdótt- ur, en hún andaðist haustið 1911, nær áttræð að aldri. Baðstofan var þröng, stutt á milli rúma og torfgólf, sem ég man hvergi eftir annarsstaðar. Skafti var glaður og gestrisinn, leiddi mig um hlöð og sagði mér hitt og þetía. Hann var þrem árum eldri en ég og þó vorum við jafningjar. Fundum okkar Skafta bar oft saman á þessum árum og man ég sumt. Pétur Björnsson í Teigakoti var kallaður sérvit- ur en þó merkismaður. Hann hafði stærðfræðigáfu svo mikla að fágætt var talið. Hann reiknaði hitt og þetta sér til gamans og kunni fingrarím utanbókar. Pétur hafði ekki stórt bú en notagott svo ekkert skorti til heimilis. Hann var nákvæmur og vandvirkur við allt. sem hann gerði vandaður til orðs og æðis og vildi í engu vamm sitt vita. Það mun óhætt að segja að Skafti Magnússon átti góðan húsbónda þar sem Pétur var, á æsku- og uppvaxtarárum sínum. Einu sinni kom ég að stekknum í Teigakoti og var þá verið að sýja. Skafti hélt í gemling og Pétur rúði. Svo var því lokið nema hvað eftir var að reita einhverja ullarsneppla af bringukolli. Og þá sleppti Skafti gemlingnum, að yfirlögðu ráði að mér virtist, því hann gat verið glettinn stundum. Pétri mislíkaði því hann vildi vinna öll verk snyrtilega, en sagði fátt því hann blótaði aldrei - og gemlingurinn slapp með sneplana á bringukollin- um. Það mun hafa verið sumarið 1914 að ég fór í ferðalag, sem mér er ennþá mjög í minni. Það var fjárrekstur á fjall, frá Sveinsstöðum og Teigakoti. Á hvorugum bænum var margt fé svo reksturinn var léttur. Frá Sveinsstöðum vorum við feðgar en Pétur og Skafti frá Teigakoti. Við rákum féð vestur á Haukagilsheiði, fórum fram Gilhagadal og rákum vestur yfir fjallið um Tungnaárbotna. Mér er enn í minni hið dýrlega útsýni af Nónfjalli um bjarta sumarnóttina, til suðurs og vesturs yfir sanda og öræfi til jökla. Ég man líka hvað ferðafélagarnir, Pétur og Skafti, voru hugþekkir, þótt ólíkir væru. Það var sannarlega góður félagsskapur. Ario 1V/2 íor Skafti að búa í Teigakoti með móðursinniogvarbóndi þartil 1925. íárslok 1924 andaðist Guðbjörg móðir Skafta, en Pétur Björns- son var dáinn áður, haustið 1923. Vorið 1925 fluttist Skafti að Efra-Lýtingsstaðakoti og var þar lausamaður eitt ár en 1926 keypti hann Þorsteins- staðakot og fór að búa þar, en var þar ekki nema árið, því hann veiktist og varð að fara þaðan þessvegna. Árið 1927 fór Skafti að Mælifellsá til Jóhanns Magnússonar bróður síns og var þar næstu 5 árin, fyrst vinnumaður í tvö ár og síðan lausamaður. •slendingaþættir Jóhann á Mælifellsá hafði löngum mikil umsvif í sínum búskap og á þessum árum unnu þeir bræður við plægingar og voru víða, bæði í sveitinni og annars staðar. Þá voru jarðbætur unnar með hestverkfærum en dráttarvél kom ekki í Lýtings- staðahrepp fyrr en 1930. Gott þótti að hafa Jóhann og Skafta í vinnu. Þeir höfðu góða hesta og afköstuðu miklu verki, en hitt var þó ekki sfður hvað þeir voru skemmtilegir utan vinnutíma, glaðir og kunnu frá mörgu að segja. Á Mælifellsá kynntist Skafti konu sinni, Önnu Sveinsdóttur Sveinbjörnssonar. Móðir hennar var Steinunn Gunnarsdóttir á Mælifellsá, sem nafn- kenndur var fyrir margt á sinni tíð. Auk Skíða- staðaættar var Anna komin af Árna í Stokkhólma og sr. Birni í Bólstaðarhlíð þegar lengra er rakið. Árið 1932 fluttu þau Skafti og Anna til Sauðár- króks með tvo unga drengi og bjuggu þar síðan. Börn þeirra urðu fjögur: Björgvin, Sveinn, Kristín og Svanhildur. Björgvin andaðist 1958 en hin systkinin eru nú búsett sunnan heiða. Anna Sveinsdóttir andaðist fyrir aldur fram, árið 1953. Ég þekkti hana ekki neitt, hef líklega einu sinni komið á heimili hennar, en þeir, sem þekktu hana, söknuðu hennar sárt og hjá þeim fékk hún góða dóma fyrir góðvild oggreiðasemi. Hún var greind kona, gestrisin og vildi öllum gott gera. Ekki mun Skafti hafa verið í skóla eftir fermingu en barnaskóli var góður í Lýtingsstaða- hreppi á öðrum tug aldarinnar. Kennarar voru góðir og börnin lærðu mikið ef þau vildu og gátu, þótt skólinn væri styttri þá en nú. Skólavist og lestur góðra bóka er gott til að öðlast almenna menntun en meðfætt brjóstvit er þó alltaf undir- staða. Þegar Skafti fluttist til Sauða'rkróks var kreppa í landi, atvinnuleysi og naum lífskjör. Engir peningar voru í umferð en ýmsir Sauðárkróksbúar áttu kýr og kindur sér tilTífsbjargar og heyjuðu handa þeim peningi frammi á Eylendi, sem svo er kallað. Skafti átti eitthvað af skepnum á fyrri árum sínum á Sauðárkróki og heyjaði handa þeim á Stóru-Grafarengjum. Skafti gekk í Verkamannafélagið á Sauðárkróki og reyndist þar tilforystu fallinn. Hann var í stjórn þess og formaður um skeið. Árið 1946 var Skafti kosinn í hreppsnefnd Sauðárkróks. Skömmu síðar varð Sauðárkrókur bæjarfélag og var þá kosið í bæjarstjórn. Skafti var kosinn í hrepps- nefnd af vinstri mönnum og náði ekki kosnmgu i bæjarstjórn. Í hugum ýmissa var þá orðið komm- únisti ljótt orð og er það jafnvel ennþá. Síðar var Skafti tvö kjörtímabi! í bæjarstjórn, fulltrúi Al- þýðubandalagsins. Ekki kynntist ég félagsmálastarfi Skafta í Verkamannafélagi og bæjarstjórn, en við vorum nokkuð oft saman á aðalfundum Kaupfélags Skagfirðinga. Ekki talaði Skafti oft á þeim þingum, en þegar hann kvaddi sér hljóðs voru ræður hans stuttar. Hann var raunsær og tillögu- góður og framsögn hans glögg svo að eftir var tekið. Fyrstu 23 árin, sem Skafti var á Sauðárkróki, voru kynni okkar sáralítil, en svo var það eitt sitt er ég gekk eftir Suðurgötunni, að Skafti kallaði á mig og spurði hvort ég ætlaði ekki að líta inn. Jú, ég vildi það og þá var eins og hlið hefði opnast. Eftir þetta kom ég til Skafta í hvert einasta sinn sem ég kom í kaupstaðinn og það var oft, og oft var ég nætursakir. Á annan áratug var það svo að alltaf hlakkaði ég til að fara á fund Skafta og blanda geði við hann. Hann var fljótur að bjóða í bæinn. Gestrisni hans, þessi hlýja gestrisni, var frábær, enda átti hann ekki langt að sækja það. Á þessum árum var gamall bóndi starfsmaður í kaupfélaginu um tíma. Eitt sinn spurði hann mig hvar ég héldi til. Ég sagði honum að ég væri hálfur inni í íhaldinu og gistivinur kommúnista og héldi til hjá Skafta Magnússyni. Þá sagði bóndi þessi í meðaumkunartón: „Ó, hann er rauður". Skafti Magnússon var ekki byltingarmaður. Til þess var hann of mikið góðmenni. Hann var jafnaðarmaður í þess orðs réttu merkinu. Hann vildi veita þeim skjól, sem úti stóðu, sem erfiðast áttu í lífsbaráttunni. Heimili Skafta í Suðurgötunni var friðsælt og gott. Indíana Albertsdóttir bjó þar með honum, ágæt kona, sem hugsaði vel um heimilið. Hún var yfirlætislaus, hrein og bein en ekki málskrafsmikil. Málskrafið var hjá okkur Skafta. Við töluðum alltaf um heima og geima, landsins gagn og nauðsynjar, menn og málefni og oft með kími- Iegum blæ. Við vorum ekkt alltaf sammála, en þá kom það eins og af sjálfu sér að við ræddum ekki þar um. Skafti Magnússon er nú allur. í einrúmi á hljóðri stund er gott að minnast góðra vina, þegar þeir hafa horfið á braut. Björn Egilsson. Þeir sem að skrif a minningar- eða afmælis- greinar í íslendingaþætti, eru vinsamlegast beðnir um að skila vélrituðum handritum

x

Íslendingaþættir Tímans

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.