Íslendingaþættir Tímans - 20.07.1983, Síða 3
E NG
Jón E. Ragnarsson,
lögmaður
Fæddur 24. des. 1936
Dáinn 10. júní 1983
Með djúpum söknuði og trega er mætur vinur,
Jón E. Ragnarsson, hæstaréttarlögmaður, kvadd-
ur hinstu kveðju. Vordagar lífs hans voru bjartir
og fagrir og stórmerki á lofti og fyrirheit, en
sumarið leið alltof fljótt. Áður en varir er ævinnar.
dagur að kveldi. Þeim dómi verður ekki áfrýjað.
Á sorgarstund við dánarbeð æskuvinar er hollt að
hugleiða Ijóðlínur frænda hans Einars Benedikts-
sonar skálds.
„Og því er oss erfitt að dœma þaim dóm,
að dáuðinn sé hryggðarefni,
þó Ijósin slokkni og blikni blóm. -
Er ei bjartara land fyrir stefni?"
Jón Edwald Rágnarsson fæddist í Reykjávík á
aðfangadag jóla árið 1936, en lést að heimili sínu,
föstudaginn 10. júní s.l. langt um aldur fram á
fertugasta og sjöunda aldursári. Hann hafði átt
við erfiðan heilsubrest að stríða síðustu tvö ár, en
aldrei brást baráttuviljinn og hugrekkið. Nafni
kom af sjúkrahúsi að morgni miðvikudags og var
honum þá mikið brugðið. Hann var við málflutn-
ing í Hæstarétti íslands þann dag og eins á
föstudeginum. Ekkert dró hann af sér og flutti
málin af djúpri lögfræðilegri skarpskyggni en brá
útaf venju sinni og vék nokkrum háttvísum orðum
að öðru, er úrlausnarefni málsins varðaði ekki.
har kom hann fram þakklæti sínu til stéttarbræðra
sinna fyrir málefnalega rökræðu og ánægjulegt
samstarf. Að kvöldi þess dags var hann allur.
Slíkur eldhugi hlaut að falla að hætti hetjunnar að
fornum sið, enda var nafna alls fjarri að öðlast
langlífi með því að lifa rólega. Höfundir Háva-
mála meitlar þetta svo:
„Glaðr ok reifr
skyli gumna hverr
unz sinn bíðr bana"
Á þessari stund reikar hugurinn að hugljúfum
minningum um æskuheimili hans að Frakkastíg 12
- Grettisgötumegin, hér í borg. Það heimili var
orðlagt fyrir gestrisni, rausn og myndarskap og
viðmót húsráðenda mótaðist af slíkri velvild og
höfðingsskap, að við skólafélagar Jóns E. urðum
Þar tíðir gestir. Foreldrar Jóns E. voru hjónin
Ragnar H.B. Kristinsson. forstjóri, og Matthildur
Eðvaldína Edwald. Ragnar var kjörfaðir Jóns, en
hann lést 16. mars 1963. Ragnar var sonur
hjónanna Þuríðar Guðmundsdóttur ættaðri frá
Seli í Landeyjum og hins þjóðkunná athafna-
tnanns Kristins Jónssonar vagnasmiðs. Fyrri kona
Ragnars, Ruth Friðfinnsdóttir ættuð úr Vopna-
firði, lést 1937. Hún og Ragnar eignuðust tvær
dætur, Þuríði Kristínu, sem gift er Guðbirni
Snæbjörnssyni og Ruth, gift SigurþóriTómassyni,
verkfræðingi, og eru þau nú við störf í Kenya.
íslendingaþættir
Móðir Jóns, sem jafnan var nefnd Ína Edwald, var
fædd 16. mars 1909 á Gestsstöðum í Steingríms-
firði. Móðuramma Jóns var Matthiidur Lýðsdótt-
ir, bónda í Skriðnesenni í Bitru, Jónssonar. Lýður
langafi Jóns E. var sagður mikill fyrir sér, en svo
vinsæll, að hann var lengi allt í senn; hreppstjóri,
oddviti og sýslunefndarmaður sveitar. sinnar.
Kona hans var Anna Magnúsdóttir, bónda í Hlíð
í Þorskafirði, Jónssonar alþingismanns Bjarna-
sonar, frá Eyhildarholti. Matthildur Lýðsdóttir
var fríð kona, vel gefin og vinsæl, en lést 1918 í
blóma aldurs síns. Móðurafi Jóns E. var Jón
Edwald Samúelsson, bónda Guðmundssonar,
bónda að Gilsbrekku í Geirdalshreppi og seinna
í Búð í Hnífsdal. Kona Samúels var Þuríður
Ormsdóttir, bónda í Miðgröf í Steingrímsfirði.
Móðurafi Jóns E. og nafni átti heima á ísafirði frá
1912 til æviloka, en hann lést 1935. Hann var
duglegur kaupsýslumaður, í stjórn margra at-
vinnufyrirtækja og aðalræðismaður Norðmanna.
Hann var og seinustu ár ævinnar atkvæðamaður í
bæiarstjórn. •
Ina, móðir Jóns E., giftist Ragnari Kristinssyni
árið 1940. Eignuðust þau tvö börn, Rögnu Láru,
íþróttakennara, gifta Brynjólfi Björnssyni, versl-
unarmanni og Kristin, arkitekt og formann sam-
takanna Líf og Land, kvæntan Huldu Ólafsdóttur.
ína varð ekkja 1963 og starfaði eftir það sem
blaðamaður. Árið 1971 giftist fna Ragnari Þor-
steinssyni, er kunnur er af ritstörfum og forystu
sinni um slysavarna- og björgunarmál, en ína lést
22. ágúst 1975. ína var einstaklega skemmtileg
kona, vönd til orðs og æðis. Hún var víðlesin og
margfróð einkum á sviði sígildra bókmennta. Var
mjög kært með þeim mæðginum og var hún
sérstakur vinur og velunnari okkar kunningja
Jóns E. og bast við vini barna sinna heilsteyptri
framtíðarvináttu.
Faðir Jóns E. var Agnar Norðfjörð, hagfræð-
ingur, er lést 19. janúar 1982. Föðurafi Jóns E.
var Jóhannes Jóhannesson Norðfjörð, úrsmíða-
meistari, ogföðuramma kona hans Ása Jónsdóttir
frá Ásmundarstöðum á Sléttu af svonefndri
Lónsætt. Eiginkona Agnarsvar Jóhanna Ingibjörg
Bernhöft og áttu þau 4 börn: Sverrir, arkitekt,
kvæntur Alenu Anderlovu, arkitekt tékkneskrar
ættar, Kristín, lögfræðingur, gift Þorvaldi Búa-
syni, eðlisfræðingi, Ingibjörg Nanna, flugfreyja,
og Agnar Óttar, viðskiptafræðingur, er starfað
hefir við fyrirtæki föður síns, Agnar Norðfjörð &
Co. hf. í Reykjavík. Mjög náin vinátta var með
Jóni E. og föðurbróður hans, Hilmari Norðfjörð.
Að Jóni E. Ragnarssyni, hrl., stóð ættstofn
styrkur. Jón var líkt og frændi hans Pétur
Zophaníusson ættfróður, enda vel að sér í sögu
lands og þjóðar, en af frændum hans má. m.a.
netna til Jónas Hallgrímsson, skáld, Fjalla-Eyvind
og Árna Magnússon, prófessor og assessor.
Jón E. Ragnarsson kvæntist 3. maí 1969 Sigríði
Ingvarsdóttur Vilhjálmssonar, útgerðarmanns í
Reykjavík, og konu hans Áslaugar Jónsdóttur frá
Hjarðarholti í Stafholtstungum. Jón E. og Sig-
ríður slitu samvistir.
Nafni varð stúdent frá MR 1957 og cand. juris
frá Háskóla íslands í janúar 1966 með fyrstu
einkunn. Hafði hann einnig verið við nám við
Kölnarháskóla í þýsku og réttarheimspeki og sótti
nokkur námskeið- í félagsfræði og þjóðasam-
skiptum í Svíþjóð og Bandaríkjunum 1961-1965.
Á námsá'runum og síðar starfaði hann mikið fyrir
Sjálfstæðisflokkinn og var blaðamaður á Morgun-
blaðinu. Hann varð héraðsdómslögmaður 17.
mars 1966 og hæstaréttarlögmaður 27. febrúar
1973. Hann starfaði sem fulltrúi borgarstjórans í
Reykjavík 1966-1969, var framkvæmdastjóri
Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar 1969-
1970, en opnaði lögmannsstofu í Reykjavík 1969
og starfaði eingöngu við lögmanns- og málflutn-
ingsstörf frá mars 1970 til æviloka. Hann tók mjög
virkan þátt í störfum Lögmannafélags íslands og
var m.a. í stjórn félagsins. Þar var hann mjög
virkur fundarmaður og þátttakandi í samskipum
við erlenda stéttarbræður. Þá gegndi hann og
fjölda trúnaðarstarfa s.l. í stjórn og varaform.
SUS 1962-1969, í flokksráði Sjálfstæðisflokksins
1964-1970, form. norræna æskulýðsmótsins í
Reykjavík 1969, form. og varaformaður
Varðbergs, félags um vestræna samvinnu, 1970-
1972, varaforseti og landsforseti Junior Chamber
of Commerce 1971-1973, í rannsóknanefnd al-
þjóðasamtaka stúdenta (ISC/cosec) í kynþátta-
mismunun í Suður-Afríku 1962-1964, í fram-
kvæmdastjórn Atlantic Association of Young-
Political Leaders 1971-1974. Hann var nú forrnað-
ur ráðs sjálfstætt starfandi háskólamanna. Þegar í
menntaskóla var hann mjög virkur í félagslífi
nemenda, enda skemmtilegur og mælskur vel og
rithagur. Fór hann þá einnig með hlutverk í
Herranótt. Varð hann þjóðsaga þegar á stúdents-
3