Íslendingaþættir Tímans - 21.12.1983, Qupperneq 6
Magðalena Össurardóttir
Pingeyri 90 ára
Þann 14. desembersíðastliðinnvarðMagðalena
Össurardóttir, fyrrum húsfreyja í Neðri-Hjarð-
ardal í Dýrafirði, 90 ára. Hún býr nú á Þingeyri
og hrósum við undirrituð því mikla happi að hafa
kynnst henni er við fluttum þangað fyrir rúmum
tveim árum. Þau eru ófá börnin á Þingeyri sem
klæðast fallegu ullarsokkunum og vettlingunum
frá henni Lenu. Og ekki bara börnin, heldur líka
þeir fullorðnu. Þær eru orðnar margar hlýlegu
sendingarnar frá henni til okkar hjónanna og
barna okkar síðan við komum hingað til Þingeyr-
ar. Og þegar langt er til afa og ömmu er ekki
amalegt að eiga svolítinn part í henni Magðalenu,
sem er amma svo margra. Á þessum merku
tímamótum streyma til hennar hlýjar þakklætis-
kveðjur og hamingjuóskir frá mörgum sem eiga
þessari sístarfandi góðu konu gott að gjalda.
Á fyrsta tug þessarar aldar var ung stúlka að
alast upp í Kollsvík í Rauðasandshreppi í Vestur-
Barðastrandasýslu. Hún var elst tólf alsystkina,
aðeins Hildur, hálfsystir hennar, var eldri. Því
þurfti hún snemma að taka til hendi og fjórtán ára
gömul var hún farin að róða með föður sínum úr
Kollsvík upp á hálfan hlut á móti bróður sínum
Valdimar, tólf ára gömlum. Þessi stúlka var
Magðalena Össurardóttir. Á þessum árum var
margmennt í Víkinni, áttatíu manns, og á annað
hundrað manns stundaði útræði þaðan. Þarna reri
Magðalena í fimm sumur eða uns hún fer í vist út
í Breiðarfjarðareyjar, Hergilsey og Flatey. í
Hergilsey gekk hún að öllum störfum, sló og
rakaði, og reri út í eyjar til heyfanga á sexæring
með bóndanum, Hafliða Snæbjarnarsyni. Eftir
það fór hún að Skálmarnesi með Hergilseyjar-
Guðbjörg
Eiríks-
Fædd 20. desember 1903
Dáin 20. nóvember 1982
í gær hefði hún orðið 80 ára. Okkar voru tæp
70 ára kynni, sem aldrei bar skugga á, gaman var
að hittast, þá lesið hafði ég góða sögu, henni gat
ég sagt frá, þá var hún ekki lengi á mig að skella
kvæði, sálmi eða smellri vísu. Oft ég ságði hún
ætti í útvarpið að tala, því margur myndi af því
hafa gaman.
Hjartans þakkir fyrir hinstu kveðjuna þegar þú
fórst á spítalann.
Vinkonan sem alltaf var kölluð Systir.
Sveina
hjónum og þaðan á Bæ á Rauðasandi. Síðan er
hún heima við um tíma, móður sinni til aðstoðar.
Foreldrar Magðalenu, þau Össur Guðbjartsson af
Kollsvíkurætt og Anna Guðrún Jónsdóttir frá
Hnjóti í sama hreppi, voru nú tekin að lýjast og
árið 1927 kemur boð frá Valdimar bróður Magða-
legnu, sem þá var kennari á Núpi í Dýrafirði.
Segist hann hafa hug á því að taka helmingi
jarðarinnar Mýrar þar í sveit á leigu og hvort þau
vilji ekki koma norður þangað.
Það varð úr, að öll fjölskyldan, nema þau sem
voru gifit í burtu, fluttist búferlum að Mýrum og
var þarð í tvö ár. Og forlögin höfðu víst ætlað
Magðalenu að setjast að í Dýrafirði, því að 27.
apríl 1929 giftist hún Kristjáni Davíðssyni í
Neðri-Hjarðardal og fluttist þangað. Þar bjuggu
þau í 41 ár, fyrst með bróður Kristjáns, Jóhannesi,
og síðar auk þess með syni sínum, Bjarna, og hans
fjölskyldu. Kristján lést 21. október 1970. Þau
Kristján og Magðalenda eignuðust fjögur börn
sem upp komust: Davíð flugvallarstjóra á Þing-
eyri, f. 20.3. 1930, Valgerði, húsfreyju á Blöndu-
ósi, f. 19.6. 1931, Kristínu, húsfreyju á Þingeyri,
f. 4. 12. 1932, og Guðmund Bjarna, fyrrverandi
bónda í Neðri-Hjarðardal, nú birgðavörð á
Þingeyri, f. 19.11. 1934. Barnabörn Magðalenu
eru 19 og barnabarnabörnin orðin 14. Magðalena
bjó hjá syni sínum í Neðri-Hjarðardal til ársins
1980, en þá fluttist hún á öldrunardeild sjúkraskýl-
isins á Þingeyri og býr þar nú.
Kynni okkar af Magðalenu hófust sem fyrr segir
fyrir rúmum tveim árum í byrjun vetrar, að okkur
barst vænn poki fullur af yndislega fallegum
sokkum og vettlingum á börnin okkar og þáð
leyndi ég ekki að sú er prjónað hafði vissi gjörla
aldur ogstærð þeirra er njóta skyldi. Við komumst
brátt að því frá hverjum sendingin var og við
værum ekki þau einu sem nytu þeirra forréttinda
að vera tekin undir verndarvæng hennar Magða-
lenu á skýlinu." Og þótt afmælisbarnið standi nú
á níræðu er það enn að gleðja umhverfi sitt með
sínum góðu og fallegu gjöfum, sem við erum svo
lánsöm að fá að njóta en getum í fáu endurgoldið
sem Skyldi. Magðalena er fulltrúi þeirra kynslóðar
sem vann þjóðina upp úr aldagömlúm vinnu-
brögðum og lífskjörum til nútímasamfélags vél-
væðingar og neyslu. En hún heldur tryggð við
hugsunarhátt þann er hún ólst upp við og mótaði
allt hennar líf, en það var vinnusemin, nýtnin og
ósérhlífnin. Við sem yngri erum mættum sannar-
lega læra margt af henni og hennar líkum.
Við biðjum Guð að blessa Magðalenu Össurar-
dóttur er hún nú heldur ótrauð á tíunda áratuginn
með prjónana sína og heillaóskir ættingja og vina
í farangrinum. Dýrfirðingum öllum og ættingjum
og vinum Magðalenu annars staðar óskum við til
hamingju með sæmdarkonuna Magðalenu Öss-
urardóttur á þessum tímamótum á ævi hennar.
Henni sjálfri sendum við okkar innilegustu þakkir
og hamingjuóskir í tilefni afmælisiní og vonumst
til að mega njóta samvista við hana enn um langt
sinn.
Kristín og Torfi
Þingeyri
íslendingaþættir