NT - 19.06.1984, Page 1
Deilur um olíuverð hindra fiskverðsákvörðun:
Líkur á töluverðri
hækkun fiskverðs
■ Samkomulag náðist ekki
um olíuverð í Verðlagsnefnd í
gær og hefur annar fundur
verið boðaður kl. 14 í dag.
Olíufélögin hafa faríð fram á
það að gasolía hækki um 8%
og svartolía um 20%.
Ekki er hægt að ákveða
fiskverð nema olíuverð liggi
fyrir því að olíukostnaður skipt-
ir útgerðina höfuðmáli. Fundi
í yfirnefnd um fiskverðs-
ákvörðun lauk því án ákvörð-
unar í gær, en annar fundur
hefur verið boðaður kl. 11 á
miðvikudag.
Mikið ber á milli kaupenda,
sem eru fiskvinnslustöðvarnai;
og seljenda, sem eru útgerðar-
menn og sjómenn, en sam-
kvæmt heimildum NT er talið
líklegt að Jón oddamaður Sig-
urðsson forstjóri Þjóðhags-
stofnunar snúist á sveif með
seljendum. Það þýðir að fisk-
verð hækkar töluvert.
Samkvæmt útreikningum
Þjóðhagsstofnunar er hagur
vinnslunnar betri en hagur út-
gerðarinnar. Miðað við for-
sendur í júní er talið að frysting
skili rekstrarhagnaði upp á 4-
6%, en af söltun er talið vera
tap sem nemur um 4-5% af
tekjum. Þá hefur verð á freð-
fiski í dollurum lækkað um eitt
og hálft prósent síðan í febrú-
ar. Verð á saltfiski er aftur
0-10% hærra en þá. Hagnaður
af saltfiski kemur þó ekki allur
til tekna fiskvinnslunnar held-
ur rennur hluti hans í verð-
jöfnunarsjóð.
Af útgerðinni er aftur 4-6%
rekstrartap skv. Þjóðhags-
stofnun og greiðslustaðan
erfið. Þó má segja að rfkis-
stjórnin hafi í gær bætt
greiðslustöðu útgerðarinnar
með því að heimila 150 millj-
óna króna erlenda lántöku til
skuldbreytinga í sjávarútvegi.
Ríkisstjórnin heimilar680
millj. kr. erlenda lántöku
féð renni til atvinnuveganna, þar af 150 millj. til nýsköpunar atvinnulífsins
■ Á fundi ríkisstjórnarinnar í
gær var Framkvæmdastofnun
veitt heimild til erlendrar lán-
töku 680 milljónir vegna at-
vinnuveganna, en í lagabálki
ríkisstjórnarínnar, bandormin-
um svokallaða, var gert ráð
fyrir því að ríkisstjórnin gæti
veitt slíka heimild.
Ríkisstjórnin samþykkti lán-
tökuna og ákvað að skiptingin
yrði þannig að 300 milljónir
renni til skuldbreytinga í sjávar-
útvegi, þar af fara 150 milljónir
í Fiskveiðasjóð vegna skuld-
breytinga þar og 150 milljónir
til banka og annarra aðila vegna
skuldbreytinga á þeirra vegum.
80 milljónir til Veðdeildar Bún-
aðarbankans vegna skuldbreyt-
inga í landbúnaði. 150 milljónir
til skipaiðnaðarins, fyrst og
fremst til viðhaldsverkefna á
flotanum, en þó ekki eingöngu
bundið við það. Byggðasjóður
verður beðinn um að lána það
fjármagn. Þá var samþykkt til-
laga frá forsætisráðherra um
það að 150 milljónir renni til
nýsköpunar í atvinnulífinu. Því
verður skipt þannig að 95 millj-
ónir renni til iðnlánasjóðs, með
áherslu á nýja atvinnustarfsemi,
einkum arðvænleg tækifæri til
útflunings. 25 milljónir renni til
loðdýraræktar og á að verja því
fé til þess að auka og treysta
stöðu loðdýraræktar m.a. með
uppbyggingu fóðurstöðva, enda
gert ráð fyrir því að samfara
eflingu loðdýraræktar verði
dregið úr kjöt og mjólkurfram-
leiðslu. Það er Stofnlánadeild
landbúnaðarins sem ráðstafar
þessu fé. Þá er gert ráð fyrir 20
milljónum króna af fénu til
nýsköpunar fari til fiskeldis, en
ekki er enn ákveðið í gegnum
hvaða sjóð það fari, og 10 millj.
kr. fari til nýjunga í sjávarútvegi
og Fiskimálasjóður ráðstafi
þeim. Það er Framkvæmda-
stofnun sem annast lántökuna
og endurlánar til viðkomandi
sjóða.
Flugvél frá
Flugfélagi
Norðurlands
Hlekktist
áí
lendingu
■ Tveggja hreyfla flug-
vél frá Flugfélagi-
Norðurlands hlekktist á
í lendingu á Bíldudal á
tíunda tímanum í gær-
morgun. Óhappið bar að
með þeim hætti að niður-
streymi við enda flug-
brautarinnar mun hafa
komið flugmanninum að
óvörum og kom vélin
niður rétt utan við braut-
arendann. Brött brekka
er niður frá brautarend-
anum og rakst annað
lendingarhjólið í brekku-
brúnina og brotnaði af.
Flugvélin rann síðan á
vængnum og hinu lend-
ingarhjólinu inn eftir
flugbrautinni og stað-
næmdist á henni miðri.
Átta manns voru með
vélinni að flugmanninum
meðtöldum og sakaði
engan. Flugvélin er af
gerðinni Piper Chieftain
og tekur níu farþega.
Hún er talin allmikið
skemmd en Jóhannes
Fossdal hjá Flugfélagi
Norðurlands, kvaðst þó
í gær ekki vita með vissu
hversu mikið tjón þarna
hefði orðið.
Milljónaekkjan
orðin stúdent
■ Ekkja Símon Spies, Janni er brosmild á þessari mynd enda er
ástæða til. Hún lauk nefnilega stúdentsprófí í gær með ágætis-
einkunn , 9,5.
Janni ætlar nú að bregða sér í mánaðarfrí til Sviss en að því loknu
tekur hún við starfi í Spies-fyrirtækinu. símamynd-i'OLFOTO
Dró bátinn
áleiðis upp
í Hvalfjörð
■ Á laugardaginn kom
heldur betur á færið hjá Jóni
Jónassyni starfsmanni hjá
Grænmetisverslun iandbún-
aðarins er hann var á hand-
færum úti á Sviði á 2 tonna
trillu ásamt bróður sínum
Stefáni og Helga Stefánssyni.
Hann fékk stórlúðu sem
reyndist vera 72 kg. að
þyngd, 1,50 á lengd og 60 cm.
á breidd.
„Hún tók mikið viðbragð
þegar hún kom á færið“ sagði
Jón og fyrr en varði var
báturinn kominn af stað* og
stefndi upp í Hvalfjörð.
Hún tók í sömu átt og
báturinn sneri. Þetta gekk
svona í tæpan klukkutíma og
tvisvar dró hún færið út, næst-
um áttatíu metra, þrátt fyrir
það að hún drægi bátinn.
Smám saman dró af henni og
hún fór að rykkja minna og
eftir tæpan klukkutíma fór-
um við að strekkja og hífa
hana upp settum í hana tvær
ífærur og drógum hana upp
og það gekk vel, enda vorum
við þrír og það veitti ekki af
því.“
Það er bróðir Jóns, Stefán
sem á trilluna og Jón sagði að
nokkuð fengist af meðal ýsu
og þorski. Einstaka sinnum
fengju þeir 10-15 punda lúðu,
en hlutir eins og þessi gerðust
ekki á hverjum degi.
■ Jón Jónasson með stórlúðuna, eins og sjá má er búið að skera af henni sporðinn. Lúðan dró
triíh a í átt að Hvalvirði í tæpan klukkutíma áður en þeir félagamir náðu að innbyrða hana.
NT*mynd Ámi Bjarna