NT - 13.08.1984, Blaðsíða 27
Mánudagur 13. ágúst 1984 27
KR-Liverpool KR-Liverpool...
■ Pessar myndir tók Sverrir ljósmyndari NT á Laugardalsvellinum í gær og sýna þær annarsvegar
jöfnunarmark Liverpool sem gert var úr óbeinni aukaspyrnu á markteig og hinsvegar fyrra mark
Gunnars Gíslasonar. Gunnar fékk mjög góöa sendingu frá Ágústi Má og þrumaði í markið án
þess að Grobbelaar í Liverpoolmarkinu kæmi nokkrum vörnunt við. KR-ingar spiluðu vel í leiknum
og voru ekkert síðri en snillingarnir frá Liverpool og má segja að Evrópumeistararnir hafi sloppið
með skrekkinn.
Júgóslavar
hirtu gullið
Júdó á ÖL:
Var meiddur en
sigraði samt
■ Júgóslavar unnu V-Þjóð-
verja 18-17 í úrslitaleik hand-
knattleikskeppninnar á Ólymp-
íuleikunum og náðu þar með
að endurheimta ólympíutitil-
inn, sem þeir unnu í Múnchen
árið 1972. í hálfleik var staðan
8-7 fyrir Júgóslava. Rúmenar
höfnuðu í þriðja sæti, unnu
Dani 23-19 í leiknum um
bronsið.
Leikur Júgóslava og V-Þjóð-
verja var lengstum jafn, en
Júgóslavar þó oftast yfir. Er
þrjár mínútur voru til leiksloka
var staðan 18-15 fyrir Júgó-
slava, en Þjóðverjargáfustekki
upp og skoruðu tvö síðustu
mörk leiksins. Wunderlich það
seinna er einungis 29 sekúndur
voru eftir af leiknum.
Júgóslavar töpuðu aðeins
einu stigi í keppninni á ÓL,
gegn íslendingum í fyrsta leik
sínum, er þeir voru þrælheppn-
ir að ná jafntefli.
Úrslit í handboltíinum á ÓL um
helgina voru þessi:
Júgósl.-V-Þýskal. . . . 18-17 (8- 7)
Rúmenía-Danmörk . . 23-19
Ísland-Svíþjóð ....... 24-26 (9-14
Sviss-Spánn 18-17 (9- 9)
Bandaríkin-Japan . . . 24-16 (9- 5)
S-Kórea-Alsír.. 25-21 (9-10)
Lokastaða á ÓL varð þessi:
1. Júgóslavía
2. V-Þýskaland
3. Rúmenia
4. Danmörk
5. Svíþjóð
6. Island
7. Sviss
8.Spánn
9. Bandaríkin
10. Japan
11. S-Kórea
12. Alsír
■ Þótt hann væri meiddur á
fæti lét Japaninn Yasuhiro
Yamashita það ekki hafa áhrif
á sig í úrslitaviðureigninni í
opnum flokki í júdó á ÓL.
Hann sigraði mótherja sinn,
egypska bisnessmanninn Moh-
amed Rashwan, og hreppti þar
með loks Ólympíugullið, sem
hann hefur svo lengi þráð en
aldrei náð fyrr en nú. Hins
vegar hefur Yamashita þrívegis
orðið heimsmeistari og átta
sinnum Japansmeistari í júdó,
fimm sinnum ol'tar en nokkur
annar.
Yamashita meiddist í viður-
eign við Arthur Schnabel,
V-Þýskalandi, í annarri umferð
og haltraði mjög er hann hóf
glímuna við Rashwan. „Ég var
heppinn, að þurfa ekki að ícasta
honum og geta unnið hann á
mottunni," sagði Yamashita
eftir keppnina.
Árið 1976 var hann of ungur
til að taka þátt í ÓL í Montréal
og Japanir tóku ekki þátt í
leikunum í Moskvu vegna inn-
rásar Sovétmanna í Áfghan-
istan. „Ég var viss um að þetta
myndu vera mínir fyrstu og
síðustu Ólympíuleikar og ég
gat ekki hugsað unt neitt annað
en úrslitaviðureignina," sagði
Yamashita á blaðamannafundi
að keppni lokinni.
■ Hér fagna Júgóslavar ógurlega eftir að hafa unnið V-Þjóðverja
í úrslitaleiknum í handknattleik á ÓL. Júgóslavar töpuðu aðeins
einu stigi á leikuaum og það var gegn íslendingum.Þeir áttu reyndar
að tapa tveimur þar. símamjnd: poitoio