NT - 25.08.1984, Qupperneq 2
Laugardagur 25. ágúst 1984
Vitnað í bandarískar leyniskýrslur á friðarráðstefnu á Hótel Loftleiðum:
Innan 10 ára verði unnt
að eyða Sovétríkjunum
- án þess þau geti svarað fyrir sig. Lykilbúnaður í því skyni settur upp
á íslandi, segir Michio Kaku prófessor í kjarneðlisfræði í New York
■ Leynilegar skýrslur sem
hafa verið geröar opinberar í
Bandaríkjunum sýna að Banda-
rísk stjórnvöld áætla að árið
1993 verði Bandaríkin fær um
að gereyða Sovétríkjunum án
þess að eiga á hættu að þau
skaði Bandaríkin á móti. í
þessum áætlunum leikur ísland
stórt hlutverk. Þetta fullyrti
Michio Kaku prófessor í kjarn-
eðlisfræði við New York há-
skóla, en hann hélt erindi í gær
í tengslum við ráðstefnu Friðar-
sambands Norðurhafa. Erindið
snérist að mestu um stcfnu
Bandaríkjanna varðandi notk-
un,kjarnorkuvopna, samkvæmt
nýjum heimildum, sent hafa
verið gerðar opinberar í Banda-
ríkjunum að undanförnu. Sam-
kvæmt þeim varð leynileg áætl-
un til þegar eftir heimsstyrjöld-
ina síðari um að leggja
Sovétríkin í rúst 1954. Þeirri
áætlun var hafnað af Eisenhow-
er þáverandi forseta, þegar Ijóst
var að Sovétmenn höfðu þá
þegar yfir að ráða 200 vetnis-
sprengjum, að því er Kaku hélt
fram.
Kaku sagði að árið 1974 hefði
Umræðuhópur að störfum á ráðstefnunni á Hótel Loftleiðum.
verið horfið aftur
stefnu og heilinn á
hefði verið James
jr-
að þessari
bak við það
Schlesingar
Schlesingar lagði til að fram-
lcidd yrði „ný kynslóð gereyð-
ingarvopna", og þeirri stefnu
sem hann boðaði var fylgt eftir.
„Nýja kynslóðin" er þegar orðin
til eða er í undirbúningi, MX
flaugarnar, Trident kafbátarnir
og geimbúnaðurinn sem verið
NT-mynd Sverrir
hefur til umræðu í fjölmiðlum
undanfarið.
Með samræmdri beitingu
þessara tækja á að vera hægt að
eyða öllum hernaðarmannvirkj-
um með kjarnorkuárás, og þar
með mannvist að mestu eða öllu
leyti. Kaku lýsti áætluninni
þannig að flaugunum væri ætlað
að blinda fórnarlambið, en
geimbúnaðurinn hefði þann til-
gang að granda öllum flaugum
sent hugsanlega entist tími til að
skjóta til baka, auk þess, sern
honum væri ætlað að leita uppi
og eyða öllum sovéskum kaf-
bátum í djúpunum, áðuren þeir
gætu unnið tjón.
En hvar kemur ísland inn í
þessa mynd Michio Kaku? Sá
staður í varnarkerfi Sovétríkj-
anna sem Bandaríkjamönnum
stafar mest hætta af er Barents-
hafið. Því er lykilatriði að hægt
sé að eyða vopnabúri Sovét-
manna þar. Aukinn vígbúnaður
í N-Atlantshafi beinist að því
markmiði. ísland er á því svæði
þar sem úrslitin ráðast og upp-
bygging radarstöðva hérlendis
er liður í því að þessi áætlun geti
orðið að veruleika.
Michio Kaku er japanskur og
er upprunninn í Hírósíma.
Víðidalsá með
stærsta lax
sumarsins
10 laxar koniu á land úr
Víðidalsá í gær en annars
hefur hún verið mjög slök
í sumar. Allt er þetta ríg-
vænn fiskur, meðaltals-
þyngd um 14 pund, og
alveg viðburður ef sntálax
fæst. Hann vantargersam-
lega í ána.
30 punda bolti er stærsti
lax sumarsins og yfirleitt
kemur yfir 20 punda lax í
hverju holli, og mikið urn
15-18 punda fiska. Mjög
lítið er um nýjan fisk í
ánniog þessir lOlaxarsem
fengust í gæreru allirgrút-
legnir.
500 laxar eru komnir á
land úr Víðidalsá í sumar
sem er slakt. Lélegt var
það í fyrra, 1082 laxar en
verra er það núna. Víði-
dalsá komst í tæpa 2000
laxa árið 1979 og oft verið
íum 1800löxumog meira.
Slakt sumar
í Vatnsdalsá
Búið er að veiöa 520
laxa í Vatnsdalsá í sumar
og er það slakasta veiðiár
í fjölda ára. Það þarf að
fara sjö ár aftur í tímann
til að finna svo lélegt ár í
ánni, allt aftur til 1976 en
þá veiddist 571 lax í ánni.
Vantsdalsá komst uppí
tæpa 1500 laxa árið 1978
og 1979 var hún með rúnta
1400 laxa og oft hefur hún
verið í kringum 1000 lax-
ana. f fyrra veiddust í
henni 879 laxar.
Þrír laxar hafa komið á
land s.l. einn og hálfan
sólarhring en dágóð
blcikjuveiði hefur bætt
upp laxleysið að hluta og
hefur hún verið mjög væn,
3-4 pund. 28 punda laxinn
er enn sá stærsti úr ánni.
Langá á Mýrum
Lítil veiði hefur verið í
Langá á Mýrum í allt sum-
ar og ekkert hafði ræst úr
því er Veiðihornið hafði
samband við ráðskonuna
í veiðihúsinu í gær. Eng-
inn láx í gær, einn í fyrra-
dag og tv'eir daginn þar
áður. Þessar fréttir eru af
neðsta svæðinu og þar er
veitt á fimm stangir.
Þá ku veiðin einnig vera
rnjög dauf á efri svæðun-
um, þó fékkst þar 18
punda lax um daginn sem
trúlega er stærsti laxinn í
ánni hingað til.
Ekki eru árciðanlegar
aflatölur úr ánni en eftir
því sem næst verður kom-
ist er laxafjöldinn trúlega
eitthvað um 500, sem er
afspyrnulélegt.
A síðasta ári veiddust
960 laxar og árið 1978
veiddust rúmir 2400 laxar
og árið 1979 tæpir 2000
laxar. Svo hrunið er alveg
rosalegt.
Póstkönnun NT:
Eru frímerkjavél-
arnar misnotaðar?
■ Þann 19. ágúst síðastliðinn
birtum við niðurstöður póst-
könnunar NT. Þessi könnun
vakti gífurlega athygli lesenda
og höfðu margir samband við
hlaðið til að láta í Ijósi skoöanir
sínar á póstþjónustunni og starf-
semi hennar. Lesendur blaðsins
drápu á mörgum athyglisverðum
málum, þar með notkun eða
misnotkun frímerkjavéla. Póst-
ur og sími gefa fyrirtækjum og
stofnunum leyfí fyrir téðum
vélum sem setja á bréf stimpil
þess efnis að burðargjald sé
greitt. Á þessum stimpli er dag-
setning sem segir hvenær bréfíð
er frímerkt, en ekki hvenær það
er póstlagt. Það vantar þá eigin-
legan póststimpil.
Samkvæmt reglum um frí-
merkjavélar er leyfishafi ábyrg-
ur fyrir því að dagsetning
stimplunarinnar sé rétt og ef
bréf cr ekki póstlagt sama dag
og vélin stimplar það gefur
stimpillinn rangar upplýsingar,
ef enginn er póststinipillinn.
Við leituðum til Björns Björns-
sonar póstmeistara í Reykjavík
og hann sagði að póstafgreiðslu-
mönnum bæri að handstimpla
öll þessi bréf ef þau koma ekki
samdægurs, til þess að fólk sjái
hvenær þau eru póstlögð. Verði
misbrestur þar á skrifast hann á
reikning viðkomandi póststöðv-
ar. Björn bætti því við að þessi
bréf Ícæmu oft í miklum mæli á
Framleiðsluráð veitir engin ný heildsöluleyfi:
Úrelt verslunarfyrirkomulag
- segir framkvæmdastjóri Kaupmannasamtakanna
sama tíma til póststöðvanna og
þar gæti orsökin legið. Póst-
menn eru ekki óskeikulir og
svona bréf geta einfaldlega farið
fram hjá þeim.
Að lokum skal þess getið að
við fengum rangar upplýsingar
frá Djúpavogi varðandi póst-
könnunina og þar af leiðandi
eru niðurstöður þaðan ómerk-
Leiðrétting
■ Sú meinlega villa slæddist í
baksíðufrétt NT í gær, að
Hermann Guðmundsson, skrif-
stofustjóri Tollgæslu íslands,
var nefndur Hallgrímur Guð-
mundsson og titlaður varatoll-
stjóri. Biðst blaðið velvirðingar
á þessum leiðu mistökum.
■ „Ég lýsi náttúrlega von-
brigðum mínum, með það að
Framleiðsluráðið skuli ennþá
vilja halda sig við það verslun-
arfyrirkomulag sern ég tel
löngu úrelt. Þeini var gcfinn
kostur þarna að aðlaga sig
markaðnum og því verslunar-
kerfi sem við búum við, en
þeir streitast við", sagði Magn-
ús E. Finnsson framkvæmda-
stjóri Kaupmannasamtakanna
í tilefni af því að Framleiðslu-
ráð landbúnaðarins hefur
ákveðið að veita ekki nýjum
aðilum leyfi til heildsöludreif-
ingu kartaflna að svo stöddu.
Þessi ákvörðun Framleiðslu-
ráðsins er byggð á umsöng frá
Landssambandi kartöflubænda
þar sem þeir lýsa eindreginni
andstöðu við að heildverslan-
ir eða aðrar verslanir fái leyfi
til að kaupa kartöflur beint af
bændum og versla með þær.
fþróttamót í Skálatúni
■ íþróttafélagið Gáski,
Skálatúni heldur sitt ár-
lega innanfélagsmót í
frjálsum íþróttum, í dag,
laugardaginn 25. ágúst kl.
13.00. Það er Veitingahús-
ið Laugaás sem gefur verð-
laun til keppninnar.