NT - 21.11.1984, Blaðsíða 24

NT - 21.11.1984, Blaðsíða 24
 Miðvikudagur 21. nóvember 1984 24 Utlönd Umræður um sameiningu kóreskra Ijölskyldna Punniunjom-Keuier ■ Fulltrúar frá Rauða krossinum í Suður- og Norður-Kóreu hittust í gær í landamæraþorpinu Panmunjom til að ræða sameiningu kóreskra fjöl- skyldna sem skipting landsins hefur sundrað. Það er talið að um 10 milljón fjölskyldumeðlim- ir hafi orðið viðskila í Kóreustríðinu . 1950 til 1953. Flestir þeirra vita ekki hvort ættingjar þeirra eru lífs eða látnir en marg- ir lifa enn í voninni um að þeir eigi cftir að hitta bræður sínar, systur eða foreldra. Kóresk blöð skýra oft frá því á mjög hjartnærhan hátt hvernig fólk fær upplýsingar um ættingja sína. Fyrir rúmum áratug ræddust fulltrúar frá Rauða krossinum í Norður- og Suður-Kóreu stundum við um samcin- ingu fjölskyldna en án mikils árangurs og árið 1973 slitnaði upp úr þeim við- ræðum. Viðræðurnar í gær fóru mjög vinsamlega fram og var ákveðið að næsti fundur skyldi verða í Seoul þótt ekki væri ákveðið hvenær hann yrði. Norður-Kóreumenn lögðu til að menn skyldu koma til fundarins í Seoul í hátíðarskapi og buðust til að skipuleggja dans- og söngsýningar með norður- kóreskum listamönnum sem þá myndu sýna í fyrsta skipti í Suöur-Kór- eu. Bandaríkin: Hagvöxtur og fyrir- tækjagróði minnkar Washinj>ton-Rcuter ■ Bandarísk yfirvöld hafa birt tölur um enfahagsþróun á þriðja ársfjórðungi þessa árs sem sýna að hagvöxtur þar hefur minnkað mjög mikið frá síðasta ársfjórð- ungi. Hagvöxtur á tímabilinu júlí til september var aðeins l,9 prósent á ársgrundvelii saman- boriö við 7, l prósent á síðasta ársfjórðungi og l(),l prósent á fyrsta ársfjórðungi þessa árs. Hreinn hagnaður fyrirtækja eft- ir skatta minnkaði einnig á ársfjórðungnufn um 11 mill- jarða dollara eða 7,3%. Þetta hefur m.a. þau áhrif að nú er því spáð að halli á fjárlögum næsta árs geti orðiö meira en 2(K) milljarðar dollara sem er mikil aukning frá síðasta ári og mun meiri halli en Reagan spáði. Hann hélt því fram að aukin framleiðni .myndileiða til lækkunaráfjárlagahallanum. Það kom mörgum á óvart að þessar slæmu fréttir af efnahags- þróun í Bandaríkjunum skyldu ekki leiða til lækkunar dollar- ans. Dollarinn hækkaði meira að segja í gær miðað við helstu gjaldmiðla. En hugsanlega staf- ar það af því að nú telja margir spákaupmenn ólíklegt, að vext- ir lækki í Bandaríkjunum. vegna hins mikla fjárlagahalla. Evrópuþingið: Afstaða Bandaríkjamanna til Nicaragua gagnrýnd Brussel-Reuter ■ í skýrslu nefndar á vegum Evrópuþings EBE um Nicara- gua og kosningarnar þar fyrir skömmu er afstaða Bandaríkja- Einhell vandaöar vörur manna til Nicaragua og stuðn- ingur þeirra við vopnaða skæru- liða þar gagnrýnd. I nefndinni sem samdi skýrsl- una eiga sæti fulltrúar alira helstu stjórnmálaafla í Efna: hagsbandalagsríkjunum. í henni segir m.a. aðsústaðreynd að 32% af kjósendum í Nicara- gua skyldu greiða stjórnarand- stæðingum atkvæði, sýni að Nic- aragua sé ekki einræðisríki núna. Þar sagði einnig að sú stefna Bandaríkjamanna að styðja vopnaða andstöðu í land- inu gæfi flokkunum ekki nægj- anlegt svigrúm. Höfundar skýrslunnár voru í Nicaragua þegar kosning- arnar fóru fram. Þeirsögðu að stjórnarandstæðingar hefðu ekki haft styrk til að fylgja eftir rétti sínum til að hafa eftirlits- menn á öllum kjörstöðum og það væri uppi orðrómur um tvítalningu sums staðar. Stjórn- arandstæðingar, kirkja og verkalýðsféiög ásökuðu líka landvarnarnefndir sandinista um geðþóttahandtökur og jafn- vel pyntingar í sumum tilvikum. í skýrslunni segir að bein viðurkenning á sjálfsákvörðun- arrétti Nicaraguamanna myndi grafa undan öfgasinnum í röðum sandinista og gefa hóf- sömum öflum innan flokks þeirra möguleika á því að hefja uppbyggjandi viðræður við stjórnarandstæðinga. _ Græningjar í Vestur-Þvskalandi settu upp þennan borða þegar Helmut Kohflíanslari tók til máls á ráðstefnu um trjádauðann í Þýskalandi í gær. A borðanum stendur: „Dauði í stað gjörða, herra Kohl.“ Símamynd:-POLFOTO Vestur-þýskir græningjar: Slíta samvinnu við Barbie vörur Barbie snyrtistofa á kynningarverði. BARBIE: Dukkur 12 teg. Ken 3teg. Nuddpottar - Hús - Verslanir - Bíll - Sundlaug - Húsgögn - Hestur. LEIKFANGAHUSIÐ Skólavörðustíg 10. S. 14806. LEIKFANGAHÚSIÐ JL Húsinu v/Hringbr. s. 621040 o. '%t eH % Costa Rica: 700 vopnalausir uppreisnarmenn sækjaumhæli San Josc-Reuter ■ Um 700 stuðnings- menn uppreisnarforingj- ans, Eden Pastora, sem berst gegn stjórninni í Nicaragua, hafa sótt um hæli í Costa Rica. Um 4000 uppreisnar- menn, sem tilheyra hóp Pastora, hafast nú við í námunda við landamæri Nicaragua og Costa Rica. En foringja þeirra hefur ekki tekist að útvega þeim öllum vopn svo að hluti þeirra ákvað að sækja um hæli í Costa Rica. sósíal- demokrata Pólverjar flýja ferða- mannaskip í Hamborg Wiesbaden-Reuter ■ Græningjar í Vestur-Þýskalandi komu á stjórnar- kreppu í Hesse með því að slíta samstarfi sínu við sósíaldemokrata þar vegna þess að kratarnir ákváðu að leyfa áframhaldandi geymslu á úraníum 235, i kjarnorkuveri í ríkinu. Græningjar hafa myndað meirihluta í Hesse með sósíaldemokrötum eftir kosningarnar 1983. An þeirra hafa kratar misst meirihluta sinn á þinginu þar'. Flokkur græningja hefur stöðugt unnið á í Vestur- Þýskalandi að undanförnu. Skoðanakannanir og bæjarstjórnarkosningar benda til þess að þeir muni koma í staðinn fyrir Frjálsa demokrata sem þriðji stærsti flokkurinn í vestur-þýskum stjórnmálum. íhaldsmenn eru hræddir um að sósíaldemókratar og græningjar geti náð meirihluta í þingkosningunum 1987 og mynda með sér.svokallaða „rauða-græna" samsteypustjórn. Hamborg-Reuter ■ 192 pólskir ferðamenn sneru ekki aftur til skips síns að lokinni skoðunarferð um Hamborg í gær. Margir þeirra hafa þegar beðið um hæli í Vestur-Þýskalandi og öðrum löndum sem pólitískir flótta- menn. Aldrei fyrr hafa jafnmargir Pólverjar flúið í einu úr pólsk- um skipum á síðari tímum. Margir Pólverjanna sögðust ætla að búa hjá ættingjum eða kunningjum sínum í Vestur- Þýskalandi, Bandaríkjunum, Kanada eða annars staðar. En aðrir höfðu engar aðrar áætlanir en þær að flýja land. Margir flóttamannanna skildu fjöl- skyldur sínar eftir en þeir sögðu að þeir vonuðu að þær gætu komið síðar. Sumir sögðu að þeir hefðu ákveðið að flýja eftir morðið á föður Jerzy Popieluszko. Borgaryfirvöld í Hamborg hafa lofað að útvega flótta- mönnunum dvalarstað og greiða fyrir þá hótclkostnað ef með þarf. Samtök Pólverja í Hamborg, sem í eru um 7000 manns. hafa einnig lýst því yfir að þau séu tilbúin til að veita fólkinu húsaskjól. Þjóðverjar selja ríklsfyrirtæki Bonn-Reuter ■ Ríkisstjórn Vestur-Þýskalands het’ur að undanfömu selt allnokkuð af hlutabréfum í fyrirtækjum þar sem ríkið réði ferðinni með meirihluta eða stóran minnihluta hlutafjár. Fjár- málaráðuneyti Vestur-Þýskalands segir að stjórnin hafi nú þegar skilað um helming þeirra fyrirtækja, sem ríkið stjórnaði með hlutafjáreign, aftur til einkaaðila. Heildarhlutafjáreign ríkisins í einkafyrirtækjum hefur samt ekki minnkað mjög mikið. Hún er nú um 2,12 milljarðar marka sem er aðeins 220 milljóna marka samdráttur. Fjármálaráðherra Vestur-Þýska- lands, Gerhard Stoltenberg, hefur lagt til að ríkið minnki hlutabréfaeign sína í átta stórfyrirtækjum fyrir árið 1987. Volkswagen bílaverksmiðjurn- ar og flugféiagið Lufthansa eru meðal þessara fyrirtækja.

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.