NT - 03.01.1985, Blaðsíða 1
Vísitala
hækkar
um 4,9%
frá des.
■ Lánskjaravísitalan í janú-
ar 1985 er 4,9% hærri en hún
var í desembermánuði. Sam-
kvæmt útreikningum Seðla-
bankans er lánskjaravísitala
janúarmánaðar 1006 stig, en
er 959 stig í desember. Láns-
kjaravísitalan tók gildi árið
1979 og hefur því hækkað úr
100 í 1006 stigsemfyrr segir.
Akranes:
Reynt að kveikja
í flugeldamarkaði
- brotist inn og rakettu skotið á lagernum
Frá Stefáni Lárusi Fálssvni, fréttarit-
ara NT á Akranesi.
■ Aðfaranótt 29. des-
ember braust ungur
maður inn í flugelda-
markað Kiwanis-
klúbbsins Þyrils á Akra-
nesi og gerði tilraun til
íkveikju. í innbrotinu
var skiptimynt stolið.
Hann var síðar hand-
tekinn og játaði verkn-
aðinn eftir yfirheyrslur.
„Ég þori varla að
hugsa þá hugsun til
enda, hvað skeð hefði,
ef eldur hefði náð að
læsa sig í allar vörurnar
sem þarna voru geymd-
ar,“ sagði Sigursteinn
Hákonarson, einn Þyr-
ilsmanna.
Brotin var rúða í
aðaldyrum og farið þar
inn. Síðar hafði verið
skotið flugeld í aðal-
lager markaðarins.
Hafnaði hann úti í
horni, undir stól þar
sem á var hlaðið miklu
magni flugelda í lokuð-
um pakkningum.
Framar á gólfinu var
stór lager flugelda í
kössum.
Þegar að var kornið
var reykur í húsinu og
komin glóð í þil, sem
varð að rjúfa til að
slökkva. Ekki varð af
annað tjón.
Sovéskri kjarnaflaug skotið
yfir Norður-Noreg á Finnland
Mistök við heræfingar sovéska flotans?
Osló-Heisinki-Reuter.
■ Sovésk stýriflaug flaug yfír Norður-Noreg og Ienti á
iinnsku landsvæði síðastliðinn föstudag. Ekki er vitað
hvort flaugin var búin kjarnavopnum.
Stýriflaugin sást á radar
norska hersins klukkan 11:30
að íslenskum tíma föstudaginn
28. desember. Hún kom frá
Barentshafi og flaug skammt
fram hjá norska bænum Pasvik-
dalen en hvarf síðan inn yfir
finnsku landamærin. Talsmaður
norska varnarmálaráðuneytis-
ins segir að samkvæmt upplýs-
ingum norska hersins hljóti
flaugin að hafa komið niður í
Finnlandi.
Finnar segjast ekki hafa haft
hugmynd um þennan atburð
fyrr en Norðmenn skýrðu þeim
frá honurn. Finnar hafa að
undanförnu unnið að því að
bæta radarkerfi við norður-
landamæri sín. En flaugin virð-
ist samt ekki hafa komið fram á
radar finnska hersins.
Mauno Koivisto, forseti
Finnlands, fjallaði einmitt um
hættuna af stýriflaugum í nýárs-
boðskap sínum til finnsku þjóð-
arinnar. Hann benti á að flestar
stýriflaugarnar virtust ætlaðar
til notkunar á norðlægum slóð-
unr og hvatti til að þær yrðu
bannaðar.
Svíar skýrðu frá því í sept-
ember á síðasta ári að flugher
þeirra hefði gert velheppnaðar
tilraunir með að skjóta niður
stýriflaugar.
Talsmaður norska varnar-
málaráðuneytisins segir að
menn hallist einna helst að þ\ í
að sovéska flaugin hafi villst út
af braut sinni fyrir mistök og
þannig lent inn í flughelgi
Norðmanna og Finna. Sovét-
menn halda nú miklar heræfing-
ar í Barentshafi og er talið að
sovéskur kafbátur þar hafi skot-
ið flauginni á loft.
Ástæðulaust að
óttast influensu
- breiðist ekki út
- sjá bis. 2
Rússar að kikna
undan kostnaði við
einvígið
- sjá bls. 2
Spurs trónir á toppnum
- sjá íþróttir bls. 18 og 19
■ Stjörnuljósahátíðin er nú liðin og nýtt ár gengið í garð. Enn lifa fjórir dagar eftir af jólum og þau verða væntanlega kvödd með öllum
þeim stjörnuljósum og álfabrennum sem ekki inátti brenna á gamlárskvöld sökum ofviðris. NT-mynd: An.
Valt, lenti á hjól-
l l
um og keyrði áfram
■ Ölvaður ökumaður
skipti um akrein um helg-
ina með þeim sérstæða
hætti að velta bíl sínum
yfir umferðareyju og
hafna á hjólunum á gagn-
stæðri akrein. Bíllinn
hafði þá rúllað á toppinn
en ekki skemmst meira en
svo að ökumaður gat ekið
leiðar sinnar til þess tíma
að lögreglu var nóg boðið.
Atburður þessi átti sér
stað síðdegis á laugardag.
Ökumaður ók vestur
Hringbraut þegar hálkan
og ef til vill slæleg frammi-
staða við aksturinn þeytti
honum yfir á gagnstæða
akrein. 1 veltunni hrundi
ýmislegt lauslegt úr bíln-
um en ökuþórinn veitti
því enga athygli heldur
hélt rakleiðis leiðar
sinnar. Lögregla fylgdist
með tilburðunum og
stöðvaði brátt manninn
sem reyndist þá allmikið
ölvaður.
Leit að
12ára
þjófum
■ Þrír tólf ára drengir
stálu í gærkvöld einni
flösku af Vodka af Hót-
el Esju. Síðast þegar
fréttist leitaði lögreglan
enn flöskuþjófanna
ungu.