NT - 03.01.1985, Page 4
■ „Við vorum bara að toga á
jólanótt, - auðvitað fengum við
gott að borða en það fær maður
nú alltaf. Nú og svo var reynt að
gera jólalegt með kertljósi og
litlu jólatré.“ Þannig lýsti Einar
Jónsson skipstjóri á Ogra jóla-
haldinu á liafi úti en togarinn
var einn af a. m. k. 10 sem voru
á veiðum yfir jólin. Ögri var
einnig úti yfir áramótin og siglir
þvi næst með aflann.
Aðspurður hvort skipverjar
söknuðu þess ekki að geta eytt
jólunum meö fjölskyldum sín-
um sagði Einar. „Það þarf nátt-
úrlcga ekki að spyrja að því en
það verður að gera fleira cn gott
þykir. Skipið er alltaf úti a
jólum og áramótum en skipverj-
ar eru mikið afleysingamenn".
Aðspurður um jólagjafir kvaðst
Einar halda að margir hefðu
haft með sér sendingar frá fjöl-
skyldum, og þá helst bækur sem
menn líta í milli vakta.
„Ég sé ekkert kaldranalegt
við þetta,“ sagði Gísli Jón Her-
mannsson framkvæmdastjóri
Ögurvíkur sem gerir togarana
Ögra og Vigra út en þeir eru
háðir úti fyrir hátíðirnar og hafa
vcrið síðastliðin 12 ár. „Ef við
ætlum að vera fiskimannaþjóð
Fimmtudagur 3. janúar 1985 4
Vorum að toga
á jólanóttina
- segir Einar Jónsson skipstjóri á Ogra
Á Ögra voru skipverjar að toga alla jólanóttina enda verður
þá verðum við að vera það. Sem
betur fer höfum við oft getað
látið alla hafa frí sem hafa beðið
unt það og það fer yfirleitt
svona helmingur af skipshöfn-
inni í land. Það hefur aldrei
staðið á að manna þessa túra
með skólafólki og komast færri
en vilja." Þá sagði Gísli að ef
stöðva ætti alla stóru togarana
yfir jól og nýár þá þýddi það
mánaðarstöðvun eða meira fyrir
frystihúsin. Fyrsti togarinn yrði
þá að koma inn fyrir miðjan
desember og kæmist ekki út fyrr
en einhverntíma á nýárinu.
Stærstur hluti þeirra togara
sem eru úti yfir hátíðir eru af
,að gera fleira en gott þykir“.
höfuðborgarsvæðinu en ein-
hverjir þeirra sem voru úti á
jólum koma inn nú milli hátíða
og verða inni yfir áramótin. Þeir
togarar sem voru úti um jólin og
landhelgisgæslunni var kunnugt
um voru Engey, Viðey, Vigri,
Ögri, Maí, Júní, Arinbjörn,
Þorlákur Jónsson, Ýmir og Ak-
ureyri.
I kjarasamningum er kveðið
á um að litlu togararnir skuli
vera í landi yfir hátíðirnar en
þeir stærri mega vera úti annað-
hvort um jól eða áramót. Ætli
þeir að sigla með aflann í er-
lenda höfn mega þeir vera úti
allar hátíðirnar.
Akranes:
Stefnir í
atvinnuleysi
-rætistúrsíðar
■ Allt bendir til þess að
dauft verði yfir atvinnu
fiskvinnslufólks á Akra-
nesi í byrjun janúar.
Samkvæmt upplýsing-
um frá Ingibjörgu Jóns-
dóttur, sem sér um að skrá
atvinnulausa á Akranesi,
voru á fjórða hundrað
manns komnir á skrá 28.
desember og von á fleir-
um.
Ástæðan er sú að allur
fiskifloti Skagamanna er í
höfn yfir hátíðirnar. Þrír
togarar munu halda til
veiða eftir áramótin og
hefst þá vinnsla í frystihús-
um Hafarnar og H.B. og
co. um miðjan janúar,
þegar skipin koma úr
fyrstu veiðiferð ársins.
Togskipið Skipaskagi er
í vélaskiptum í skipa-
smíðastöð Þorgeirs og ÉII-
erts á Akranesi og lýkur
því verki trúlega um niiðj-
an febrúar. Er því einsýnt
að hraðfrystihúsið Heima-
skagi verður án hráefnis
fram eftir vetri.
Fjögur loðnuskip hafa
verið gerð út frá Akranesi
og hefur afli þeirra verið
góður.
Vertíðarbátum hefur
fækkað hér og eru nú líkur
á að aðeins tveir bátar
verði gerðir út til línuveiða
í ársbyrjun.
Saumastofa Henson
mun taka til starfa
snemma á árinu og veita
20-30 manns vinnu. Útlit
er því fyrir að atvinnuleysi
verði að mestu úr sögunni
er hjól atvinnulífsins taka
að snúast að nýju.
BLAÐBERA VANTAR
Ægisíða, Kaplaskjólsvegur, Nesvegur, Sörla-
skjól, Frostaskjól, Birkimelur, Grenimelur,
Hagamelur.
Vesturgata, Ránargata, Mýrargata, Bakkastíg-
ur, Nýlendugata, Norðurstigur, Bræðraborgar-
stigur, Garðastræti, Tryggvagata.
Álfhólsvegur, Melheiði, Fagrabrekka
Þvervegur, Bauganes, Fáfnisnes, Skildinganes,
Skeljanes.
Síðumúli 15. Sími 686300
Bankamönnum fjölgaði
um 250% á átján árum
- meðan sjómönnum og iðnaðarmönnum fjölgaði um 45%
■ í bönkunum sýnist sífellt
þurfa fleiri og fleiri til að telja
færri og færri krónur, þrátt fyrir
nýja tækni í tölvum og tækjum.
A árunum frá 1971 til 1981
fjölgaði unnum ársverkum í
bönkum landsins, sparisjóðum
og fjárfestingarsjóðum úr 1.600
í 3.361, eða um rúm 110%,
samkvæmt riti Framkvæmda-
stofnunar „Mannfjöldi, mann-
afli og tekjur“. Þetta er einhver
mesta fjölgun sem átt hefur sér
stað í nokkurri atvinnugrein á
þessu tímabili. Unnin ársverk í
landinu voru samkvæmt sömu
heimild um 108 þús. árið 1981,
þannig að meira en 3 af hverjum
100 hefur verið skilað í banka-
stofnunum. Elstu tölurnar í rit-
inu ná aftur til 1963, en þá voru
bankastarfsmennirnir aðeins
963, eða aðeins um 28,6% af
núverandi mannafla í peninga-
umfjölluninni.
Til samanburðar má geta þess
að hjá ríkisstofnuninni Pósti og
síma fækkaði starfsmönnum á
fyrrnefndum áratug (1971-1981)
úr 1.626 í 1.571, eða um 3,4%,
þrátt fyrir sífellt meiri síma-
notkun.
Á þessum sama áratug hefur
t.d. ársverkum við fiskveiðar
aðeins fjölgað um 7,7%, starfs-
mönnum í iðnaði fjölgað um
rúm 21% (þrátt fyrir miklar
umræður um eflingu iðnaðar),
starfsmönnum við samgöngur
og flutningastarfsemi um tæp
8%, og starfsmönnum í verslun,
veitinga- og hótelrekstri fjölgað
um tæp 24%.
Eina atvinnugreinin að kerf-
inu (opinberri þjónustu) undan-
skildu sem kemst í nokkurn
samjöfnuð við bankana hvað
aukinn mannafla varðar, er
þjónusta við atvinnurekstur.
Þar hefur unnum ársverkum
fjölgað úr 1.170 í 2.147 eða um
84% á fyrrgreindum áratug.
Hér er átt við starfsemi eins og
lögfræðiþjónustu og fasteigna-
sölu, bókhald, fjölritun og vél-
ritun, auglýsingar og teiknun,
tæknilega þjónustu og inn-
heimtu. í sumum þessara greina
hefur fjölgunin orðið vel yfir
100%, mest á auglýsingastofun-
um um 141%, enda hefur þess
vissulega orðið vart í fjölmiðl-
unum okkar. Framangreindar
upplýsingar falla alveg saman
við ummæli eins íslensks iðnrek-
enda í NT nú í vikunni, að hann
verði að byggja starfsemina upp
í bæjarfélögum úti á lands-
byggðinni til þess að fá starfs-
fólk - á höfuðborgarsvæðinu
sogist það allt inn í bankana og
kerfið.
Olíu- og bensín-
verð óvenju lágt
■ í verðbólguspá OECD
er nú gert ráð fyrir að verð
á olíu muni haldast
óbreytt í dollurum talið
fram á mitt árið 1986 að
því er fram kemur í nýrri
þjóðhagsspá Þjóðhags-
stofnunar. Snemma á
þessu ári var skráð verð á
olíu nálægt 29 dollarar á
tunnu, en það var hæst
31-40 dollarar árið 1981.
Skráð olíuverð á Rotter-
dammarkaði hefur verið
mjög lágt á þessu ári og
horfur á að skráð verð í
dollurum á bensíni og gas-
olíu í Rotterdam verði
8-9% lægra að meðaltali á
yfirstandandi ári en í fyrra
og um 20% lægra en í
hitteðfyrra.
Svartolíuverð hefur
hins vegar hækkað og er
talið verða 7% hærra að
meðaltali í ár en í fyrra.
Ujn þessar mundir er
bensínverð 8% lægra en
áætlað meðalverð ársins,
gasolíuverð 5% lægra en
svartolíuverð hins vegar
2-3% hærra.