NT - 03.01.1985, Side 6
1! Fimmtudagur 3. janúar 1985 6
Vettvangur
Áramótaávarp forsætisráðherra:
Fyrir samstillta þjóð með viljann
að verki verður þúfan engin hindrun
Góðir íslendingar,
■ Oft hefur verið sagt, ekki síst um áramót, að íslenska þjóðin
standi á miklum tímamótum. Mér virðist þó, að svo sé nú fremur
en oftast áður. Sannfæring mín er, að út sé runnið ákveðið skeið
í sögu þessarar þjóðar og annað verði við að taka.
Það ár, sem nú er að líða, hefur að vísu verið viðburða- og
e.t.v. örlagaríkt. Tímamót ákvarðast hins vegar sjaldan af einu
ári. Þeim ráða lengri fortíð og framtíð. Hvort tveggja er því
nauðsyn að skilja. Það sem við eigum og erum er ntargra ára
verk. Síðustu aratugirnir hafa þó verið drýgstir í framfarasókn-
inni. Má í því sambandi minna á byltingu í samgöngumálum með
nýjum og fullkomnum vegum, flugvöllum og höfnum, samtengt
raforkukerfi um landið allt og sjálfvirkan síma á svo að segja
hvern bæ á næsta ári. Nýir skólar, heilsugæslustöðvar og
sjúkrahús hafa verið byggð um allt land. Og slíkar framfarir hafa
ekki eingöngu orðið á ýmsum sviðum samneyslu. Eignir einstakl-
inga í húsnæði, bifreiðum o.fl. hafa einnig margfaldast.
Við íslendingar höfum þannig á fáum árum byggt upp eitt
mesta velferðarríki veraldar, þar sem þegnarnir njóta verulegs
jafnræðis og öryggis.
Þetta hefur verið gert á grundvelli þjóðarframleiðslu, sem frá
stríðsárum hefur vaxið að meðaltali á hvern mann meir en flestar
aðrar þjóðir geta státað af. Að sjálfsögðu hafa allar atvinnugrein-
ar lagt sitt af mörkum. Þó á stöðugt aukinn hlutur okkar
íslendinga í afla af íslandsmiðum stærsta þáttinn. Mikilvægi
sjávarútvegsins verður ekki síst Ijóst, þegar sjávarafli bregst. Þá
hriktir í stoðum efnahagslífsins. Svo hefur verið nú um þriggja
ára skeið.
Um leið og ég fagna hinum miklu framförum, leitar sú spurning
á Ituga minn, hvort ekki Itafi verið farið full geyst í hina fjölmörgu
góðu hluti, án þess að huga að því að styrkja grundvöllinn,
atvinnulífið sjálft. Því verður ekki neitað, að þensla hefur verið
mikil, nánast árlegur viðskiptahalli og vaxandi verðbólga. Ogþað
er þetta tvennt erlendar skuldir og verðbólga, sem setur okkur
nú stólinn fyrir dyrnar, svo ekki verður lengur haldið áfram á
þessari braut. Þetta hefur komið glöggt í Ijós eftir að þorskaflinn
brást 1982. Með það í huga, að ekki er lengur að vænta afla á
íslandsmiðum umfram það hámark, sem þegar hefur náðst,
virðist mér Ijóst, að 40 ára framfaraskeiði sé lokið. Það nýja, sem
við skal taka, verður að byggja á nýjum grunni hagvaxtar. Þessi
breyting markar mikil tímamót.
Með þessu er ég ekki að segja, að hinir gömlu atvinnuvegir
verði ekki áfram mikilvægir, heldur aðeins, að af þeim muni ekki
leiða sami hagvöxtur og verið hefur. Nýjar, og m.a. háþróaðar
atvinnugreinar, verða að koma til liðs.
Ákaflega mikilvægt er, að þjóðin geri sér grein fyrir þessu, sem
og því, að okkur íslendingum eru mjög þröngar skorður settar
með of miklum erlendum skuldum og verðbólgu. Af þessum
staðreyndum verðum við að draga réttar ályktanir og sameinast
um það átak, sem nauðsynlegt er til þess að hefja nýtt skeið
hagvaxtar og framfara.
Að sjálfsögðu hefði undirbúningur nýs framfaraskeiðs þurft að
hefjast fyrir nokkrum árum, þegar svigrúm var meira vegna minni
erlendra skulda og þjóðarframleiðslan enn vaxandi með vaxandi
sjávarafla. Um það þýðir hins vegar ekki að fást lengur, heldur
ber að snúa sér hiklaust að því starfi, sem nauðsynlegt er til að
byggja upp nýjan grundvöll framfara.
Eg get ekki látið hjá líða að lýsa þeirri skoðun minni, að í raun
ætti okkur íslendingum, sem svo mjög höfum efnast á undanförn-
um árum, að vera auðvelt að komast yfir það skeið samdráttar,
sem við höfum nú átt við að stríða. Allar tölur um innflutning og
einkaneyslu sýna, að í þjóðfélaginu er mikið fjármagn. Það sér
reyndar hver maður. Því miður virðist hins vegar sem byrðunum
sé misskipt. Líklega er það rétt, sem fullyrt er og stutt fjölmörgum
da’mum, að þeir eru margir í þjóðfélaginu, sem ekki taka þátt í
því eins og þeim ber að greiða kostnaðinn af hinu mikilvæga
Að sjálfsögðu hefði undirbúning-
ur nýs framfaraskeiðs þurft að
hef jast fyrir nokkrum árum, þegar
svigrúm var meira vegna minni
eriendra skulda og þjóðarfram-
leiðslan enn vaxandi með vaxandi
sjávarafla. Um það þýðir hins veg-
ar ekki að fást lengur, heldur ber
að snúa sér hiklaust að því starfi,
sem nauðsynlegt er til að byggja
upp nýjan grundvöll framfara.
velferðarkerfi. Hvaða Islendingur vill ekki góðar samgöngur,
gott menntakerfi, fullkomna heilsugæslu og öryggi öllum til
handa? Sú alvarlega meinsemd, sem lýsir sér í því, að forðast
með ólögmætum hætti að taka eftir efnum og ástæðum þátt í
kostnaðinum við rekstur þjóðfélagsins, er ekki íslendingum
eðlileg. í þessu hygg ég, að komi fram mesta meinsemd
langvarandi verðbólgu, siðferðisbresturinn. íslendingar hafa
fengið orð fyrir að vera hreinskiptnir og heiðarlegir.
Ef allir greiða sín gjöld, verður byrðin létt. Þá væri unnt að
lagfæra meir en gert hefur verið fyrir þá, sem búa við lökust
kjörin, og reyndar eflaust að lækka gjöld þorra landsmanna.
Þetta verður að breytast.
Flest virðist benda til þess, að í ár hafi þriggja ára samdráttur
í þjóðarframleiðslu náð hámarki. Sjór fer hlýnandi, afli vaxandi
og hagvöxtur talinn öruggur í viðskiptalöndum okkar. Því má
gera ráð fyrir, að á árinu 1985 verði nokkur hagvöxtur einnig hér
á landi, loksins, eftir þriggja ára samdrátt.
Þetta samdráttarskeið er hið þriðja meiriháttar frá stríðsárum.
Öll hafa þau stafað af minni sjávarafla og eru um margt lík.
Fyrsta tímabilið var árin 1949-52, annað árin 1967-68 og loks
hið þriðja nú síðustu þrjú árin. í öll skiptin varð samdráttur
þjóðarframleiðslu 7-8 af hundraði. Það vekur einnig athygli, að
á milli þessara tímabila líður svipaður tími, 14-15 ár. Er það
tilviljun eða reglubundin sveifla í náttúrunni? ( kjölfar hinna
tveggja fyrri samdráttarskeiða varð hagvöxtur mikill, fljótlega
eftir, að þjóðarframleiðslan hafði náð lágmarki.
Hvað gerist nú? Ekki er spáð miklum hagvexti á árinu 1985.
Trú mín er þó, að hann geti síðar aukist ört eins og í hinum
tilfellunum báðum. Það mun fyrst og fremst byggjast á vaxandi
sjávarafla eins og fyrr að því hámarki, sem áður var náð. Umfram
það er hins vegar vart að vænta aukins afla.
Vafalaust má þó auka verðmæti þess afla, sem á land berst, en
því eru einnig takmörk sett. Þess ber og að gæta, að í sjávarútvegi
eigum við (slendingar í vaxandi mæli í erfiðri og óeðlilegri
samkeppni við ríkisstyrktan sjávarútveg keppinauta okkar. Eg
tel því afar ólíklegt, að hagvöxtur í kjölfar þessarar lægðar geti,
á grundvelli sjávarútvegsins eins, orðið jafn mikill og langvinnur
og varð eftir fyrri samdráttarskeið.
Því dreg ég upp þessa mynd, að ég vil leggja ríka áherslu á þá
sannfæringu mína, að næstu árin verði örlagarík fyrir okkur
íslendinga. Efnahagsbatann verður bæði að nota til að bæta kjör
þeirra, sem við lökust kjör búa, og til að renna nýjum stoðum
undir íslenskt atvinnu- og efnahagslíf, nýtt framfaraskeið.
Á því ári sem er að líða, var gerð könnun á lífsviðhorfi
íslendinga. Niðurstöður eru um margt athygli verðar.
Samkvæmt þeim erum við sáttir við lífið og hamingjusöm þjóð.
Við höfum að vísu áhyggjur af þeim fjárhagserfiðleikum, sem að
steðja, en erum bjartsýn á framtíð í landi sem okkur er kært. Við
metum þjóða mest frelsi til að taka sjálfstæðar ákvarðanir og
teljum, að við fáum best ráðið eigin málum sjálf.
Stjórnarflokkarnir verða að sam-
einast um markvissa stefnu, þar
sem vandamálin eru viðurkennd
og á þeim tekið. Án slíkra aðgerða
má vænta nýrrar kollsteypu á
næsta ári með enn alvarlegri af-
leiðingum fyrir íslensku þjóðina.
Að því mun þessi ríkisstjórn ekki
standa.
Slíkir eiginleikar eru mikils virði. Það sér Einar Benediktsson
og hvetur þannig í (slandsljóði landsmenn til dáða:
„reistu í verki
viljans nierki
vilji er allt sein þarf.
Trúðu á sjálfs þín hönd en undur eigi.
Upp með plóginn. Hér er þúfa í vegi.“
Það er rétt, fyrir samstillta þjóð með viljann að verki verður
þúfa engin hindrun. Sundruð er þjóðin hins vegar veik, hver sem
vilji og trú einstaklingsins er. Samstaða er nauðsyn.
Sem betur fer eru mögujeikarnir miklir. Landið er auðugt og
landsmenn hugvitssamir. Öllu atvinnulífi. bæði nýju og gömlu,
er hins vegar mikil hætta búin í óstöðugleika verðbólgunnar, og
öllu framtaki er þröngur stakkur sniðinn af miklurn erlendum
skuldum. Á næstu árum er því mikilvægt að vanda hvert skref.
í því skyni ákvað ríkisstjórnin um síðustu áramót að hrinda af
■ Steingrímur Hermannssou, forsætisráðherra.
stað svonefndri framtíðarkönnun. Var valinn allmikill fjöldi
framsýnna einstaklinga til þess að spá um þróun mannlífs hér á
landi næsta aldarfjórðung. Að slíkum athugunum vinna nú
fjölmargar þjóðir. Það er talið mikilvægt vegna þeirra miklu og
öru breytinga, sem framundan virðast.
Ef dæma má af viðbrögðum sumra, virðist ekki hjá öllum
skilningur á þessu verki. Ef svo er, þykir mér það leitt.
Áreiðanlega er orðið tímabært fyrir okkur íslendinga að hverfa
af stigi veiðimannsins, en leggja í staðinn áherslu á að hafa áhrif
á þróun eigin þjóðfélags og umheimsins. Til þess þarf þjóðin að
skilja bæði fortíð og framtíð og setja sér markmið.
Eg hef fylgst með þessu starfi og hrifist af áhuga og framsýni
þeirra.sem í því taka þátt. Ég kann þeim þakkir fyrir. Sannfæring
rnín er, að þetta verk geti orðið mjög til góðs fyrir framtíð
þessarar þjóðar, ef á því verður byggt en niðurstöðurekki látnar
rykfalla í skúffum.
Ef til vill er slíkt mat á framtíðinni og markmið, sem eru á
góðum rökum reist, einna mikilvægast til þess að bjartsýni
Islendinga fái staðist.
Því verður ekki neitað, að endurvakin verðbólga nú og á fyrstu
mánuðum næsta árs, er mikið áfall. Það er áfall fyrir ríkisstjórnina
og efnahagsstefnu hennar. en þö fyrst og fremst fyrir þjóðarbúið
og þjóðina í heild.
Það er vinsæl íþrótt að finna sökudólginn. Hans mun ég þó
ekki leitaLeflaust eiga margir sök. Ég skorast ekki undan að
mínurn hluta. Mikilvægast er að læra af reynslunni, rétta
þjóðarskútuna við og taka á ný stefnu á stöðugleika heilbrigðs
efnahagslífs og nýtt framfaraskeið. Ríkisstjórnin mun ekki
hlaupa frá borði, þótt skipið hallist. Stjórnarflokkarnir munu
endurskoða stefnuna á öllum sviðum og leita samstöðu við
þjóðina um farsæla framkvæmd.
Flvað sem á gengur, er það skylda stjórnvalda að viðhalda
þjóðfélagi jafnræðis og öryggis. Það er aðalsmerki okkar lands
og reyndar Norðurlandanna allra. Tryggja ber öllum rétt til
Því verður ekki neitað að endur-
vakin verðbólga nú og á fyrstu
mánuðum næsta árs, er mikið
áfall. Það er áfall fyrir ríkisstjórn-
ina og efnahagsstefnu hennar, en
þó fyrst og fremst fyrir þjóðarbúið
og þjóðina í heild.