NT

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

NT - 03.01.1985, Qupperneq 6

NT - 03.01.1985, Qupperneq 6
 1! Fimmtudagur 3. janúar 1985 6 Vettvangur Áramótaávarp forsætisráðherra: Fyrir samstillta þjóð með viljann að verki verður þúfan engin hindrun Góðir íslendingar, ■ Oft hefur verið sagt, ekki síst um áramót, að íslenska þjóðin standi á miklum tímamótum. Mér virðist þó, að svo sé nú fremur en oftast áður. Sannfæring mín er, að út sé runnið ákveðið skeið í sögu þessarar þjóðar og annað verði við að taka. Það ár, sem nú er að líða, hefur að vísu verið viðburða- og e.t.v. örlagaríkt. Tímamót ákvarðast hins vegar sjaldan af einu ári. Þeim ráða lengri fortíð og framtíð. Hvort tveggja er því nauðsyn að skilja. Það sem við eigum og erum er ntargra ára verk. Síðustu aratugirnir hafa þó verið drýgstir í framfarasókn- inni. Má í því sambandi minna á byltingu í samgöngumálum með nýjum og fullkomnum vegum, flugvöllum og höfnum, samtengt raforkukerfi um landið allt og sjálfvirkan síma á svo að segja hvern bæ á næsta ári. Nýir skólar, heilsugæslustöðvar og sjúkrahús hafa verið byggð um allt land. Og slíkar framfarir hafa ekki eingöngu orðið á ýmsum sviðum samneyslu. Eignir einstakl- inga í húsnæði, bifreiðum o.fl. hafa einnig margfaldast. Við íslendingar höfum þannig á fáum árum byggt upp eitt mesta velferðarríki veraldar, þar sem þegnarnir njóta verulegs jafnræðis og öryggis. Þetta hefur verið gert á grundvelli þjóðarframleiðslu, sem frá stríðsárum hefur vaxið að meðaltali á hvern mann meir en flestar aðrar þjóðir geta státað af. Að sjálfsögðu hafa allar atvinnugrein- ar lagt sitt af mörkum. Þó á stöðugt aukinn hlutur okkar íslendinga í afla af íslandsmiðum stærsta þáttinn. Mikilvægi sjávarútvegsins verður ekki síst Ijóst, þegar sjávarafli bregst. Þá hriktir í stoðum efnahagslífsins. Svo hefur verið nú um þriggja ára skeið. Um leið og ég fagna hinum miklu framförum, leitar sú spurning á Ituga minn, hvort ekki Itafi verið farið full geyst í hina fjölmörgu góðu hluti, án þess að huga að því að styrkja grundvöllinn, atvinnulífið sjálft. Því verður ekki neitað, að þensla hefur verið mikil, nánast árlegur viðskiptahalli og vaxandi verðbólga. Ogþað er þetta tvennt erlendar skuldir og verðbólga, sem setur okkur nú stólinn fyrir dyrnar, svo ekki verður lengur haldið áfram á þessari braut. Þetta hefur komið glöggt í Ijós eftir að þorskaflinn brást 1982. Með það í huga, að ekki er lengur að vænta afla á íslandsmiðum umfram það hámark, sem þegar hefur náðst, virðist mér Ijóst, að 40 ára framfaraskeiði sé lokið. Það nýja, sem við skal taka, verður að byggja á nýjum grunni hagvaxtar. Þessi breyting markar mikil tímamót. Með þessu er ég ekki að segja, að hinir gömlu atvinnuvegir verði ekki áfram mikilvægir, heldur aðeins, að af þeim muni ekki leiða sami hagvöxtur og verið hefur. Nýjar, og m.a. háþróaðar atvinnugreinar, verða að koma til liðs. Ákaflega mikilvægt er, að þjóðin geri sér grein fyrir þessu, sem og því, að okkur íslendingum eru mjög þröngar skorður settar með of miklum erlendum skuldum og verðbólgu. Af þessum staðreyndum verðum við að draga réttar ályktanir og sameinast um það átak, sem nauðsynlegt er til þess að hefja nýtt skeið hagvaxtar og framfara. Að sjálfsögðu hefði undirbúningur nýs framfaraskeiðs þurft að hefjast fyrir nokkrum árum, þegar svigrúm var meira vegna minni erlendra skulda og þjóðarframleiðslan enn vaxandi með vaxandi sjávarafla. Um það þýðir hins vegar ekki að fást lengur, heldur ber að snúa sér hiklaust að því starfi, sem nauðsynlegt er til að byggja upp nýjan grundvöll framfara. Eg get ekki látið hjá líða að lýsa þeirri skoðun minni, að í raun ætti okkur íslendingum, sem svo mjög höfum efnast á undanförn- um árum, að vera auðvelt að komast yfir það skeið samdráttar, sem við höfum nú átt við að stríða. Allar tölur um innflutning og einkaneyslu sýna, að í þjóðfélaginu er mikið fjármagn. Það sér reyndar hver maður. Því miður virðist hins vegar sem byrðunum sé misskipt. Líklega er það rétt, sem fullyrt er og stutt fjölmörgum da’mum, að þeir eru margir í þjóðfélaginu, sem ekki taka þátt í því eins og þeim ber að greiða kostnaðinn af hinu mikilvæga Að sjálfsögðu hefði undirbúning- ur nýs framfaraskeiðs þurft að hef jast fyrir nokkrum árum, þegar svigrúm var meira vegna minni eriendra skulda og þjóðarfram- leiðslan enn vaxandi með vaxandi sjávarafla. Um það þýðir hins veg- ar ekki að fást lengur, heldur ber að snúa sér hiklaust að því starfi, sem nauðsynlegt er til að byggja upp nýjan grundvöll framfara. velferðarkerfi. Hvaða Islendingur vill ekki góðar samgöngur, gott menntakerfi, fullkomna heilsugæslu og öryggi öllum til handa? Sú alvarlega meinsemd, sem lýsir sér í því, að forðast með ólögmætum hætti að taka eftir efnum og ástæðum þátt í kostnaðinum við rekstur þjóðfélagsins, er ekki íslendingum eðlileg. í þessu hygg ég, að komi fram mesta meinsemd langvarandi verðbólgu, siðferðisbresturinn. íslendingar hafa fengið orð fyrir að vera hreinskiptnir og heiðarlegir. Ef allir greiða sín gjöld, verður byrðin létt. Þá væri unnt að lagfæra meir en gert hefur verið fyrir þá, sem búa við lökust kjörin, og reyndar eflaust að lækka gjöld þorra landsmanna. Þetta verður að breytast. Flest virðist benda til þess, að í ár hafi þriggja ára samdráttur í þjóðarframleiðslu náð hámarki. Sjór fer hlýnandi, afli vaxandi og hagvöxtur talinn öruggur í viðskiptalöndum okkar. Því má gera ráð fyrir, að á árinu 1985 verði nokkur hagvöxtur einnig hér á landi, loksins, eftir þriggja ára samdrátt. Þetta samdráttarskeið er hið þriðja meiriháttar frá stríðsárum. Öll hafa þau stafað af minni sjávarafla og eru um margt lík. Fyrsta tímabilið var árin 1949-52, annað árin 1967-68 og loks hið þriðja nú síðustu þrjú árin. í öll skiptin varð samdráttur þjóðarframleiðslu 7-8 af hundraði. Það vekur einnig athygli, að á milli þessara tímabila líður svipaður tími, 14-15 ár. Er það tilviljun eða reglubundin sveifla í náttúrunni? ( kjölfar hinna tveggja fyrri samdráttarskeiða varð hagvöxtur mikill, fljótlega eftir, að þjóðarframleiðslan hafði náð lágmarki. Hvað gerist nú? Ekki er spáð miklum hagvexti á árinu 1985. Trú mín er þó, að hann geti síðar aukist ört eins og í hinum tilfellunum báðum. Það mun fyrst og fremst byggjast á vaxandi sjávarafla eins og fyrr að því hámarki, sem áður var náð. Umfram það er hins vegar vart að vænta aukins afla. Vafalaust má þó auka verðmæti þess afla, sem á land berst, en því eru einnig takmörk sett. Þess ber og að gæta, að í sjávarútvegi eigum við (slendingar í vaxandi mæli í erfiðri og óeðlilegri samkeppni við ríkisstyrktan sjávarútveg keppinauta okkar. Eg tel því afar ólíklegt, að hagvöxtur í kjölfar þessarar lægðar geti, á grundvelli sjávarútvegsins eins, orðið jafn mikill og langvinnur og varð eftir fyrri samdráttarskeið. Því dreg ég upp þessa mynd, að ég vil leggja ríka áherslu á þá sannfæringu mína, að næstu árin verði örlagarík fyrir okkur íslendinga. Efnahagsbatann verður bæði að nota til að bæta kjör þeirra, sem við lökust kjör búa, og til að renna nýjum stoðum undir íslenskt atvinnu- og efnahagslíf, nýtt framfaraskeið. Á því ári sem er að líða, var gerð könnun á lífsviðhorfi íslendinga. Niðurstöður eru um margt athygli verðar. Samkvæmt þeim erum við sáttir við lífið og hamingjusöm þjóð. Við höfum að vísu áhyggjur af þeim fjárhagserfiðleikum, sem að steðja, en erum bjartsýn á framtíð í landi sem okkur er kært. Við metum þjóða mest frelsi til að taka sjálfstæðar ákvarðanir og teljum, að við fáum best ráðið eigin málum sjálf. Stjórnarflokkarnir verða að sam- einast um markvissa stefnu, þar sem vandamálin eru viðurkennd og á þeim tekið. Án slíkra aðgerða má vænta nýrrar kollsteypu á næsta ári með enn alvarlegri af- leiðingum fyrir íslensku þjóðina. Að því mun þessi ríkisstjórn ekki standa. Slíkir eiginleikar eru mikils virði. Það sér Einar Benediktsson og hvetur þannig í (slandsljóði landsmenn til dáða: „reistu í verki viljans nierki vilji er allt sein þarf. Trúðu á sjálfs þín hönd en undur eigi. Upp með plóginn. Hér er þúfa í vegi.“ Það er rétt, fyrir samstillta þjóð með viljann að verki verður þúfa engin hindrun. Sundruð er þjóðin hins vegar veik, hver sem vilji og trú einstaklingsins er. Samstaða er nauðsyn. Sem betur fer eru mögujeikarnir miklir. Landið er auðugt og landsmenn hugvitssamir. Öllu atvinnulífi. bæði nýju og gömlu, er hins vegar mikil hætta búin í óstöðugleika verðbólgunnar, og öllu framtaki er þröngur stakkur sniðinn af miklurn erlendum skuldum. Á næstu árum er því mikilvægt að vanda hvert skref. í því skyni ákvað ríkisstjórnin um síðustu áramót að hrinda af ■ Steingrímur Hermannssou, forsætisráðherra. stað svonefndri framtíðarkönnun. Var valinn allmikill fjöldi framsýnna einstaklinga til þess að spá um þróun mannlífs hér á landi næsta aldarfjórðung. Að slíkum athugunum vinna nú fjölmargar þjóðir. Það er talið mikilvægt vegna þeirra miklu og öru breytinga, sem framundan virðast. Ef dæma má af viðbrögðum sumra, virðist ekki hjá öllum skilningur á þessu verki. Ef svo er, þykir mér það leitt. Áreiðanlega er orðið tímabært fyrir okkur íslendinga að hverfa af stigi veiðimannsins, en leggja í staðinn áherslu á að hafa áhrif á þróun eigin þjóðfélags og umheimsins. Til þess þarf þjóðin að skilja bæði fortíð og framtíð og setja sér markmið. Eg hef fylgst með þessu starfi og hrifist af áhuga og framsýni þeirra.sem í því taka þátt. Ég kann þeim þakkir fyrir. Sannfæring rnín er, að þetta verk geti orðið mjög til góðs fyrir framtíð þessarar þjóðar, ef á því verður byggt en niðurstöðurekki látnar rykfalla í skúffum. Ef til vill er slíkt mat á framtíðinni og markmið, sem eru á góðum rökum reist, einna mikilvægast til þess að bjartsýni Islendinga fái staðist. Því verður ekki neitað, að endurvakin verðbólga nú og á fyrstu mánuðum næsta árs, er mikið áfall. Það er áfall fyrir ríkisstjórnina og efnahagsstefnu hennar. en þö fyrst og fremst fyrir þjóðarbúið og þjóðina í heild. Það er vinsæl íþrótt að finna sökudólginn. Hans mun ég þó ekki leitaLeflaust eiga margir sök. Ég skorast ekki undan að mínurn hluta. Mikilvægast er að læra af reynslunni, rétta þjóðarskútuna við og taka á ný stefnu á stöðugleika heilbrigðs efnahagslífs og nýtt framfaraskeið. Ríkisstjórnin mun ekki hlaupa frá borði, þótt skipið hallist. Stjórnarflokkarnir munu endurskoða stefnuna á öllum sviðum og leita samstöðu við þjóðina um farsæla framkvæmd. Flvað sem á gengur, er það skylda stjórnvalda að viðhalda þjóðfélagi jafnræðis og öryggis. Það er aðalsmerki okkar lands og reyndar Norðurlandanna allra. Tryggja ber öllum rétt til Því verður ekki neitað að endur- vakin verðbólga nú og á fyrstu mánuðum næsta árs, er mikið áfall. Það er áfall fyrir ríkisstjórn- ina og efnahagsstefnu hennar, en þó fyrst og fremst fyrir þjóðarbúið og þjóðina í heild.

x

NT

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.