NT


NT - 03.01.1985, Síða 8

NT - 03.01.1985, Síða 8
Itt: Fimmtudagur 3. janúar 1985 8 Vettvangur Nýársávarp forseta íslands: Það má enginn láta sem svo að sér komi heill þjóðar ekki við - að það sé annarra að sjá um farkostinn Góðir Islendingar. Gleðilegt nýtt ár. ■ Til fortíðar er nú gengið enn eitt ár, sem við höfum kvatt með ljósadýrð á hefðbundinn hátt - ár sem geymist eins og önnur í handraða minninganna og fallið er inn á blöð sögunnar. Því hefur fylgt eins og ótal öðrum árum í aldanna rás bæði gleði og sorg. Að vera á lífi með samtíð sinni fylgir að lifa með henni gleði og hryggð. Það er einatt gott að fá að taka þátt í gleðinni, en þcss skal einnig minnst að það gengur enginn samstiga öðrum mönnum án þess að kynnast áföllum og sorg, sem víða kveður dyra, og þá því hversu mikið átak það er að horfast í augu við það sem orðið er og ekkert fær breytt. íslendingar hafa fengið orð fyrir að vera hjartahlýir menn þótt þeir fh'ki ekki mjög tilfinningum sínum. Djúp samúð allra er með þeim sem búa við harnt og erfiðar stundir. Það eru ekki réttmæli að tíminn lækni öll sár. Tíminn er þó svo líknsamur að hann sefar sárin og hjálpar mönnum til að umbera þau. Liðið ár, hið fertugasta í sögu hins íslenska lýðveldis, verður okkur minnisstætt fyrir margar sakir. í íslensku þjóðfélagi varð árið ekki eins og allir hefðu óskað. Vandi steðjaði víðar ab og í ríkari mæli en landsmenn hafa kynnst unt langt skeið. í sögu allra þjóða sem vilja veg sinn sem bestan er það þó jafnan trú manna að upp birti um síðir. Þjóðarsaga íslendinga ber glöggt vitni þess. Við vitum það á vindasamri eyju í norðurhöfum að veður ganga yfir. Við höfum einnig af þekkingu og visku lært að mæta þeim. Eg trúi því að nú sem fyrr takist að ná áttum. Með samstöðu og einurð öðluðust íslendingar frelsi á sínum tíma og með samstöðu og skynsemi má þjóðinni takast að beita seglum upp í vindinn og komast í trausta höfn. En til þess verða allir að leggjast á eitt og það má ekki hvarfla að neinum að skorast undan. Ábyrgðin er allra, hvers og eins. Það má enginn láta sem svo að sér komi heill þjóðar ekki við, að það sé annarra að sjá um farkostinn. Verri óvin en andvara- og sinnuleysi er varla að finna. Sú hefð hefur skapast að flytja landsmönnum nýárskveðjur héðan frá Bessastöðum í þeirri von að færa þá nær staðnum og staðinn nær þeim. Hann er sameign okkar allra. Sterkur hlekkur milli nútíðar og liðinna tíma. Mikill fjöldi manna kemur árlega til Bessastaða og skoðar staðhætti og kirkjuna sem er öllum opin sérhvern dag árið um kring. Hér er staðarlegt og fallegt heim að líta. Víðsýni er af staðnum til allra átta, yfir stóran hluta landnáms Ingólfs Arnarsonar. Fjöldi manna, íslenskir sem erlendir, hefur einnig notið samverustunda í gömlu Bessastaða- stofu. Hún er meðal elstu húsa á Islandi 220 ára gömul, virðuleg og hlý, án nokkurs prjáls, sem margir erlendir gestir hafa orð á að gefi henni heimilislegan blæ umfram glæsihallir stórþjóðanna. f Bessastaðastofu er jafnan sagan og fortíðin til umræðu. Þar fylgir saga þjóðarinnar mönnum við hvert fótmál. Það er jafnan freistandi að gefa hugarfluginu lausan tauminn á þessum stað. Snorri Sturluson átti Bessastaði á 13. öld. Jörðin er ákaflega gróskurík og grösug og hingað í þetta mikla graslendi hlýtur Snorri oft að hafa átt leið, þó ekki væri nema til að líta eftir nautgripastofni sínum. Hér hlýtur hann að hafa alið kálfa til að eignast skinn. Má vera að eitthvað af ritum Snorra hafi verið skrifað á kálfskinn héðan frá Bessastöðum. Bókmenntir þurfa með sér veraldlegt efni, það sem á er ritað. Þegar Snorri var veginn árið 1241, margslunginn maður í sinni samtíð, stóðu eftir hann ódauðleg verk hans, í orðum rituðum á kálfskinn. Jarðneskur auður hans gekk undir erlendan konung, - og þar með einhver besta kostajörð á íslandi, Bessastaðir. Hið erlenda konungsvald sent réði fslandi í sjö aldir gerði staðinn að höfuðbóli sínu á Islandi. Hér voru á löngum og erfiðum öldum oft og einatt teknar mikilvægar ákvarðanir um ýmsa þá atburði sem hvað örlagaríkastir hafa orðið fyrir íslensku þjóðina og þá ekki ætíð henni til heilla. Síðan var það einmitt hér, þegar birta tók til í íslensku þjóðlífi á öndverðri 19. öld að Lærði skólinn, æðsta menntastofnun íslendinga, hafði aðsetur um 40 ára skeið í Bessastaðastofu eins og hún stendur nú. Skólahaldi hér eru tengdar bjartar minningar í skólastofum og vistarverum skóla- sveina. Hér voru þeir saman í skóla Fjölnismenn og aðrir hugsjónamenn og skáld okkar sem tendruðu kyndla sjálfstæðis- baráttu íslendinga, stórgáfaðir menn með framtíðarsýn sem örvuðu íslendinga til samstöðu og dáða og leiddu þjóðina til þess lýðræðis og sjálfstæðis, sem hún hefur nú notið til fullnustu í fjóra áratugi. Margir aðrir merkisberar íslensks þjóðernis svo sem Grímur Thomsen þjóðskáld og Skúli Thoroddsen og Theódóra hafa einnig búið hér á Bessastöðum. Því er þessi saga rifjuð upp hér - saga sem svo ótal margir þekkja mætavel, að hún er saga framfara og þjóðarsigurs, þess sigurs að eignast aftur eftir langa biðlund sjálfsforræði og full umráð yfir landi okkar og gæðum þess. Hún er sagan um lægðir og hæðir hins íslenska þjóðlífs í aldanna rás sem má aldrei fyrnast svo að hún gleymist ungum kynslóðum sem taka við af hinum eldri og kunna að líta á sjálfstæði okkar sem sjálfsagt mál. Það er afrakstur þrotlausrar baráttu ótal manna, kynslóð eftir kynslóð, sem vissu fullvel að þeir fengju ekki sjálfir að lifa það að ná markinu, en þorðu þó að vona og berjast og létu aldrei undan síga. Af sama toga er hvert það átak sem íslendingar hafa beitt sér fyrir á árinu sem liðið er með það að markmiði að stuðla að betra mannlífi í landinu. Af fyrirhyggju er hugsað langt fram í tímann. Þar á meðal er hvatning til aukinnar árvekni í umgengni Við gróður landsins, að vernda viðkvæmt land, „njótum lands - níðum ei“, örvun til skógræktar og síðast en ekki síst ríkar umræður um stöðu íslenskrar tungu og aðhald í öllu því er hana varðar svo hún verði varðveitt sem best. „Land, þjóð og tunga, þrenning sönn og ein, þér var ég gefinn barn á móðurkné". Þessar hendingar í sonnettu skáldsins góða, Snorra Hjartarsonar verða aldrei of oft hafðar yfir. Land, þjóð og tunga eru og verða samtvinnuð heild. Án þess að eiga saman land og tungu væru íslendingar ekki þjóð. Málvernd og landvernd eru greinar á sama meiði. Að vaka yfir orðinu og að vaka yfir gróðrinum, að vaka yfir lífríkinu öllu, hvort sem er á landi eða í sjó er ljúf skylda. Skáld yrkja nteð orðum sem lifa, jarðræktar- ntenn yrkja jarðargróður sem lifir, fiskifræðingar vara við þeirri léttuð að hrifsa meir úr sjónum en þar nær að lifa og hafið getur gefið. Allt er þetta líf þjóðar okkar. Á undanförnum árum hafa Sameinuðu þjóðirnar einnig haft forgöngu um að tileinka einstök ár sérstökum málstað, sem ástæða hefur þótt til að vekja á athygli. Árangur hefur verið sem erindi; einarðari umræða og markvissari afstaða til ýmissa málefna. í nokkrum tilfellum hefur verið hugsað til lengri tíma en eins árs. Á þessu ári lýkur til að mynda kvennaáratugnum, sem hófst með kvennaári 1975. Það verður varla véfengt að hér um slóðir hefur nokkur árangur náðst en enn er mjög á brattann að sækja, enda „löng leið frá íslandi til himnaríkis" eins og kerlingu varð að orði þegar hún loksins komst að hinu gullna hliði. Ár aldraðra og ár fatlaðra urðu hvort tveggja til að auka skilning manna á stöðu þessara þjóðfélagshópa. Ár barnsins verða öll ár framtíðar. Umhyggja fyrir þeim ætti hverja stund að vera ómæld. Þá verða ekki heldur umferðaröryggismál nokkru sinni of mikið til umræðu. Þegar nú nýtt ár gengur í garð er komið að alþjóðaári æskunnar. Því hafa verið valin einkunnarorðin: Þátttaka - þróun - friður. Engin þjóðareign er dýrmætari en heilbrigð æska. Á velferð æskunnar veltur framtíðarheill allra samfélaga. Eitt helsta einkenni þess að vera ungur er eftirvænting. Að vænta þess að Sjálfstæði og kjarkur eru tveir eigin- leikar sem nauðsynlegir eru til að losna úr viðjum ótta og bölsýni. Sjálfstæði til að standast þegar reynt er að leggja á okkur annarlega fjötra, sem þjóð eða sem einstaklinga, og kjark til að lifa með sverð tortímingar hangandi yfir höfðum okkar framtíðin verði björt og ánægjuleg. Slík jákvæð eftirvænting hefur sennilega alltaf einkennt flesta á æskuárum. Við gerum okkur háleitar vonir um að framtíðin færi okkur hamingju en einnig tilbreytingu og ævintýri. Því miður á þetta ekki við um alla. Ávallt er til nokkur hópur þeirra er kallast ungir, sem ekki finnst vera bjart fram undan. Sumir alast upp í gráma fátæktar og erfiðra heimilisaðstæðna, aðrir í svartnætti fíkniefna og óreglu. Enn öðrum finnst framtíðin óviss í ljósi þeirrar þekkingar sem tortímt getur öllu lífi á jörðinni. Kannski er bjartsýnin sem oft er eignuð æskunni, nú um stundir minni en áður. Vandamálin sem steðja að sýnast ef til vill óyfirstíganlegri. Sagt hefur verið að besta uppeldisaðferðin gagnvart unglingum sé að alasjálfan sig uppsamtímis. Áminning- ar komi að litlu haldi, heldur hitt að þeir sjái að við gerum það sjálf sem við vildum áminna þá um að gera. Það verður sennilega erfitt að ala hina ungu upp til friðar nema þeir fullorðnu hafi fyrir þeim friðinn. Verk okkar og athafnir sem fulltíða teljumst eru sannarlega misgóð og ekki er allt til eftirbreytni. Því er fátt mikilvægara en að ungt fólk temji sér sjálfstæði og dómgreind til að lesa gott frá illu, og áræði til að ákveða í samræmi við sjálfstæði sitt. Sjálfstæði og kjarkur eru tveir eignleikar sem nauðsynlegir eru til að losna úr viðjum ótta og bölsýni. Sjálfstæði til að standast þegar reynt er að leggja á okkur annarlega fjötra, sem þjóð eða sem einstaklinga, og kjark til að lifa með sverð tortímingar hangandi yfir höfðum okkar. Einn er sá vandi sem ungt fólk í landi okkar þarfnast bæði sjálfstæðis og kjarks til að glíma við, vandi sem við höfum fram að þessu helst lesið um í erlendum blöðum, en virðist nú vera að færast nær okkar ströndum en áður. Það er fíkniefnavandinn. Sá sem hefur slík efni innan seilingar þarf á öllu sjálfstæði sínu að halda til að taka afstöðu - og kjark til þess að hafna þegar lagt er að honum. Forseti íslands, Vigdís Finnbogadóttir. Enn sem fyrr er sjálfstæði og áræði það veganesti sem æskan þarf mest á að halda þegar að því kemur að erfa landið. Ekkert er of gott fyrir æskuna og einlæg er sú ósk að það megi lánast að tryggja henni öryggi friðar svo hún fái litið björtum augum til framtíðar sinnar. Ofar öllu ber að tryggja æsku okkar menntun og upplýsingu, eftir því sem hugur hvers og eins stendur til. Meðal nútímaþjóða, er hætt við að íslendingar framtíðar lendi úti í mýri, sé menntun og þekking ekki sem víðtækust og víðsýnust og veitt öllum sem vilja þiggja. Það skal ítrekað að mikil ábyrgð hvílir á herðum þróskaðra manna að leiða æskufólki fyrir sjónir hættu og tortímingarmátt eiturlyfja. Þeim skelfilega. flótta frá raunveruleikanum, sem fer eins og faraldur um heimsbyggðina og hefur í för með sér heilsuleysi og dauða, má líkja við ógnir styrjaldar. Óskiljanlegast alls siðleysis er að nokkur skuli geta fengið sig til að flytja í blóra við lög eiturlyf til landsins og að ota í auðgunarskyni því að mönnum sem hætt er á að geri þá að reköldum. Það er mesta mannfyrirlitning sem hugsast getur. Það lesefni sem dýpst áhrif hafði á mig á liðnu ári er bók sem nefnist „Ekkert mál“. Þar er sögð reynslusaga sonar og föður af þeirri skelfilegu áþján ogóhamingju sem leiðir af eiturlyfjaneyslu, uggleysi foreldra áður en þeim verður ljóst hvernig komið er, bók um djúpa örvæntingu en jafnframt um mikla skynsemi um hvernig taka eigi á málum og reyna að bjarga. Það þarf mikinn kjark til að skrifa slíka játningabók, kjark sem í felst mikil ábyrgðartilfinning og mannúð, því með henni er öllum öðrum veitt leiðbeinandi viðvörun. Mér er í mun á þessum áramótum að beina enn þeim óskum til æskunnar og allra þjóðfélagsþegna í landinu að staldra ávallt við og hugleiða afleiðingar, þegar freisting verður á vegi sem kann að leiða til óláns. Lög og reglur hafa verið settar til þess að þjóðin geti lifað saman í öryggi og leit að sameiginlegri hamingju. Lögbrot eru ekki einkamál neins einstaklings. Þau velta oftar en ella óhamingju yfir fjölda saklauss fólks, og fyrnast seint í lífi þess sem valdur er. Ljóst er að mjög mörg óhæfuverk í samfélaginu eru framin undir annarlegum áhrifum þar sem dómgreind afbrotamanns er skert. Góðir landsmenn. Sérhvert smáatriði í framferði okkar skiptir máli, orð, athafnir, samstaða. Fyrir skömmu birtist í erlendu stórblaði viðtal við eitt af öndvegisskáldum okkar, Ólaf Jóhann Sigurðsson. Fyrirsögnin hljóðaði á þennan veg: „Ég heyri til mannkyninu og vil bæta líf rnanna". Það stafar birtu af slíkum orðum og þeirri lífsafstöðu sem í þeim felst. Hvernig fáum við bætt líf manna? Við því hygg ég að aðeins sé eitt svar. Með réttlætiskennd og góðmennsku og tillitssemi og hógværð í orðum og lífsháttum. Með hækkandi sól skal birta og bjartsýni höfð í stafni okkur öllum til örvunar. Séu þeir sem eru heilbrigðir og sterkir á besta aldri með óskert vinnuþrek þjakaðir af bölsýni, hvernig er þá unnt að gera sér vonir um betri tíma? Ég óska öllum landsmönnum árs og friðar. Megi farsæld fylgja landi voru og þjóð.

x

NT

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.