NT - 11.01.1985, Blaðsíða 6

NT - 11.01.1985, Blaðsíða 6
Föstudagur 11. janúar 1985 6 — Bldð II ABOT Hvað er vinsælast? ■ Égvilnúbyrjaáþv'íaðóska lesendum myndbandasíðunnar gleðilegs árs og vona að ekki komi aftur svona langur tími án þess að síðan komi út. Eins og sést á vinsældalistanum í þessari viku eru framhaldsþættirnir Falcon Crest og Dynasty í efstu sætunum. Ég hef orðið var við að ekki cr æskilegt að hafa framhaldsþætti inn á listanum, aöallega vegna þess að þeir myndu t.d. einoka fyrstu sætin og því. aldrei vera hreyfing á þeim svo heitið gcti. Nú svo cru t.d. 5. 6. 7. og 8. spóla af Dynastyekki lengur vinsælaren biðlisti eftir 15. þætti og þar af leiðandi fer Dynasty ofarlega, sama má segja um Falcon Crest. Eins má geta þess að suntar ntyndbandaleigurnar hafa bara Dynasty aðrar bara Falcon Crest og sumar hvörugan þátt- inn. Mér finnst því rétt að sleppa framhaldsþáttum og hafa hámark sex spólur (t.d. Ange- lique 5 spólur). En ég fnun halda áfram að dænta fram- haldsþætti komi einhverjir fleiri. Snúum okkur að hreyfingunt þeim sent eru á listanum frá því síðast (2l.l2.’84) og þarber helst að geta Educating Rita sem sýnd var í Stjörnubíói og nýtur nú mjög mikilla vinsælda á myndbandaleigunum og mér skilst að hún sé uppseld hjú dreifingaraðilanum (Skífan). Nú myndirnar í 8. og 10. sæti eru mjög góðar og þeir sent misstu af Silkwood þegar hún var sýnd í Bíóhöllinni hafa nú tækifæri til þess að sjá hana textaða núria. Celcbrity færist ncöar, nýlegar myndir eru koínnar inn á listann og mér finnst vera að færast meira líf í innkaupin hjá mynd- bandaleigunum og búast má við toppmyndum á leigurnar núna í janúar og því miklum hræring- um á listanum eins og gefur að skilja. Þess má geta að íslensku myndirnar Húsið og Með allt á hreinu eru komnar á myndbönd. Nú Bennv Hill Show sem tafðist í textun hjá Texta hf. fyrir jól, engin furða því álagið á þeim var gríðarlegt (vanir ntennj.Benny kemur á myndbandaleigurnar fimmtu- daginn 17. janúar, alvegöruggt. Nóg í bili og góða helgi lesendur góðir. J.Þór Zapped Leikstjóri: Robert J. Rosenthal Aðalleikarar: Scott Baio og Willie Aames. ■ Ungum háskólanemy, sem vinnur að mikilvægri uppgötvun, verður á mistök sem leiða til sprengingar. Sprengingin veldur því að hann fær ntikla hugarorku og getur því t.d. látið hluti hreyfast, snúast hraðar o.s.frv. Vinur hans vill að þeir notfæri sér þessa hæfi- leika hans í fjárhættuspilum og sér til skemmtunar. Ungi uppfinningamaðurinn verð- ur auðvitað ástfanginn af einni blómarósinni í skólanum en hún veit að hann býr yfir þeim hæfileik- um að nota hugarorkuna og vill fá að skrifa um það í skólablaðið en hann biður hana að gera það ekki. Margt spennandi á svo eftir að gerast og sumt ansi fyndið. Á skólaballi tekur vinur okkar svo upp á því að klæða stúlkurnar úr fötunum með því að beita hugarorkunni og ætti það að gleðja karlpeninginn. Nóg urn það, á heildina litið er hér um þokkalega gamanmynd að ræða. J.Þór. Blue Thunder Leikstjóri: John Badham Aðalleikarar: Roy Scheid- er, Warren Oates, Candy Clark og Malcolm McDowell. ■ Bláa þruman er rnjög fullkomin þyrla sem hönn- uð var sérstaklega fyrir lög- reglumenn stórborganna. Þyrlan er vel vopnum búin, svo sem 20 nnn fallbyssum með sex hlaupum. Skotheld, með innfarauða upptökuvél sem gerir flug- mönnunum kleift að sjá fólk í gegnum veggi, full- kominn hljóðnema og svo mætti lengi telja. Frank Murphy (Roy Scheider) er þyrluflugmaður hjá lögregl- unni og. er valinn til að reynslufljúga Bláu þrum- unni. Honum er boðið á sýningu út í eyðimörkinni, þar sem verið er að sýna hæfni þyrlunnar. Sá sem þá ílýgur þyrlunni er gamall kunningi Murphy frá því í Viet Nam. Þegar svo Frank Murphy og starfsfélagi hans komast að tilveru THORS, leynilegs félagsskapar sem myrðir óæskilega stjórn- málamenn fer gamanið að kárna. Murphy tekur til sinna ráða þegar félagi hans er drepinn og stelur Bláu þrumunni og hefst þá æðis- gengið þyrluatriði. Allar myndir sem Roy Scheider leikur í eru góðar og þessi er engin undantekning frá þeirri reglu. Þeir sem hafa haft gaman af Air Wolf ættu einnig að sjá þessa mynd. J.Þór Hanover Street Leikstjóri: Peter Hyams Aðalleikarar: Harrison Ford, Lesley-Amie Down og Christ- opher Plummer. ■ Þegar vinur okkar Har- rison Ford er annarsvegar þá er alltaf um góða mynd að ræða, þ.e.a.s. mynd með spennu og húmorinn til staðar. Myndin gerist í London á stríðsárum seinni heimsstyrjaldar. Harrison leikur David hugrakkan bandarískan sprengju- flugmann sem lendir í ást- arævintýri með breskri hjúkrunarkonu. Hún sam- þykkir að hitta hann aftur, þótt hún sé gift. Maðurinn hennar, Paul, er háttsettur í bresku leyniþjónustunni og eitt kvöldið er því komið í kring að sér flugferð er farin yfir Frakkland til að varpa Paul niður. David er flugmaðurinn en vélin er skotin niður og saman stökkva þeir David og Paul út í fallhlíf og lenda í ýmsu saman en spurning er hvort þeir nái að snúa aftur til konunnar sem þeir báðir elska. Þrælgóð mynd með þrem mjög góðum leikur- um. J.Þór. í,Aí VHmm IAME5 BC NDOO^ Neversay Neveragain Lcikstjóri: Irvin Kerchner Aðalleikarar: Sean Conn- ery, Barbara Carrera, Max von Sydow og Klaus Maria Brandauer. ■ Það var mörgum gleði- efni er það fréttist að Sean Connery tæki aftur upp á því að leika Jarnes Bond, eftir langa hvíld. Sumir áttu erfitt með að sætta sig við Roger Moore í hlutverk- inu. Báðir finnst mér þeir frábærir hvor á sinn liátt og vil ekki gera upp á milli þeirra. Myndin sjálf er byggð lauslega á eldri Bond | mynd, Thunderball. í byrj- un myndarinnar er okkur sýnt fram á það að snerpa er enn fyrir hendi hjá Sean og hann frelsar stúlku með banvænunt afleiðingum. Yfirmaður Bonds er á því að hressingarhæli sé ágætis- staður fyrir Bond og þang- að er hann sendur. Jamesj mundi þó eftir því að smygla með sér smá nesti og hjúkrunarkonurnar eruj ekki látnar í friði af kvenna- gullinu. Spectra, sérstök stofnun fyrir gagnnjósnir, hryðjuverk, hefndir og fjár- kúgun nær að stela 2 kjarn- orkuflaugum og færist nú spenna í leikinn og leitað er | til 007. Leikurinn í mynd- inni er góður hjá Sean Connery, Barböru og þó sérstaklega hjá Max von Sydow. Mikil spenna, hraði og fallegar stúlkur í kring- um harðjaxlinn. í lok myndarinnar er ógeðslegt hestaatriði, þ.e.a.s. þegar hestur er látinn stökkva fram af þverhníptum hamri. Sorglegt í annars mjög góðri mynd. Vinsældalistinn: 1. (1) Falcon Crest (framhaldsþ.) 2. (2) Mistral’s Daughter (3 spólur) 3. (6) Dynasty (framhaldsþ.) 4. (3) Angelique (5 spólurj 5. (12) Educating Rila 6. ( -) Manions (3 spólur) 7. j -) Silkwood 8. j -) Maður, kona og barn 9. (16) 1922 (3 spólur) 10. j -) Star Chamber 11. j 8) Celebrity (2 spólur) 12. j -) Hanover Street 13. í 7) Sara Dane (2 spólur) 14. j -) Mutant 15. j -) Winter of discontent 16. Í -) Whywouldllie? 17. (17) Thetoy 18. í -) This man stands alone 19. j 5) Stripes 20. j -) Paris, Texas Þeirsemdæma: Stúdíó, Keflavik Myndbandaleiga kvikmyndahúsanna, Hafnarfirði Videokjallarinn, Óðinsgötu 5 Nesvídeo, Melabraut 57 Videó-Markaðurinn, Hamraborg 10 Grensásvideó, Grensásvegi 24 Myndbandalagið, Mosfellssveit Vídeó Björninn, Hringbraut 119D Videóklubburinn, Storholti 1 » Tröllavídeó, Eiðistorgi 17 West End videó, Vesturgötu 53

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.