NT - 11.01.1985, Blaðsíða 10

NT - 11.01.1985, Blaðsíða 10
Föstudagur 11. janúar 1985 10 — Blað II Sjónvarp föstudag kl. 21.55: Tekst að drepa herforingjann? ■ Bíómyndin í kvöld er frönsk og hefur verið gefið nafnið Kaldhæðni örlaganna á íslensku, en á frummálinu heit- ir hún L’ironie du sort. Hún er gerð 1973 og leikstjóri er Edo- uard Molinaro, en með aðal- hlutverk fara Pierre Clementi, Jacques Spiesser, Jean Des- ailly, Pierre Vaneck, Hans Rás2föstudagkl. 16.00-17.00: Vinsældalistar frá í „fyrra“ í Listapoppi? Verner og Marie-Helen Breil- lat. Myndin gerist í borginni Nantes í Frakklandi árið 1943, þegar landið var hernumið af þýska hernum. Segir þar frá þremur vinum, tveim piltum og einni stúlku, sem öll eru félagar í sama andspyrnuhópn- um, en þar er mörg hættan á ferðinni. Það sem skiptir sköpum fyrir framtíð þeirra og félaga þeirra er hvort öðrum piltanna tekst að drepa þýska foringjann, sem er á leið til stöðva Gestapo með lista yfir félaga í and- spyrnuhreyfingunni, eða verð- ur að leysa hreyfinguna upp. Svarið fæst í kvöld. Þýðandi er Ólöf Pétursdótt- ir. ■ Unga andspyrnufólkiö á sínar góöu stundir inn á milli, þó að það sé að fást við hættuleg verkefni. ■ Það er ekki ofsögum sagt af því hversu ferskir vinsælda- listarnir eru í Listapoppi, en það er einmitt á dagskrá Rásar 2 í dag kl. 16. Við höfðum samband við Gunnar Salvarsson, stjórn- anda þáttarins, í fyrradag, og þá hafði honum ekki enn borist í hendur vinsældalistarnir frá Bretlandi og Bandaríkjunum, en átti von á þeim í gær. Hann hafði því ekki fengið neinn úrskurð um það hvaða lög væru í efstu sætum listanna, en kvaðst hafa grun um að þar kenndi enn ýmissa grasa frá jólavikunni, listarnir væru sem sagt að miklu leyti til frá því „í fyrra"! Ekki er samt alveg útilokað að einhver plötuútgáfa sé kom- in af stað á nýju ári, en þá er eftir að sjá, hvort cinhver á- kveðin lög hafa náð að festa sig á listunum. í síðustu tveim Listapoppum hefur Gunnar verið að fara yfir vinsældalistana frá síðasta ári, fyrst þann bandaríska og síð- asta föstudag þann breska. Honum finnst því tími til kom- inn að afliðnum jólum að taka aftur upp hið hefðbundna form á Listapoppinu, sem er að kynná „vinsælustu lög síðustu viku“ bæði í Bretlandi og Bandaríkjunum. Útvarp föstudag kl. 10.45: Sagt f rá Kef la- vík á Gjögrum - í Mér eru fornu minnin kær ■ í þætti Einars Kristjáns- sonarfrá Hermundarfelli, Mér eru fornu minnin kær, í útvarpi í dag verður sagt frá Keflavík á Gjögrum. Verður jþar lesin ritgerð eftir Halldór Ólafsson, sem birtist í Árbók Þingeyinga 1965. Gjögur eru nyrst á skagan- um milli Eyjafjarðar og Skjálf- anda, og þegar Iitið er á kortið, er nútímamanninum algerlega óskiljanlegt að þarna skuli nokkurn tíma hafa verið byggð. Þarna var þó einn bær, afskaplega afskekktur, enda má segja að „ófærur séu til allra átta“, eins og Einar orðar það. Þar við bætist að það er mjög brimasamt þar og sæbratt, björgin þverhnípt og fjaran lítil. Þó var reynt að stunda sjóinn eftir því sem færi gafst, en það var aðeins á blíðviðrisdögum á sumrin, sem það var reynandi. Einar segir sem dæmi um hætturnar samfara sjósókn- inni, að sá atburður hafi gerst seint á síðastliðinni öld, að skyndilega hafi skollið á stór- brim og hríðarveður. Hjónin í Keflavík afréðu að freista þess að ná bátnum lengra inn á land og héldu niður í fjöru ásamt vinnufólki sínu. Þar var ákveð- ið að hreinsa bátinn fyrst af snjó, áður en honum yrði ýtt á öruggan stað. En þá tókst ekki betur til en svo, að báturinn losnaði með hjónin um borð, og drukknuðu þau bæði að vinnufólki sínu ásjáandi. Byggð hefur ekki verið í ■ F.inar Kristjánsson. Keflavík síðustu 70-80 árin, en þar er nú gott og vandað skipbrotsmannaskýli og skammt frá er viti. Halldór Ólafsson, sem rit- gerðina skrifaði, er uppalinn þarna á næstu grösum, í Höfðahverfi, en fluttist þaðan að Gunnarsstöðum í Þistilfirði, þar sem hann gerðist bóndi. Lesari er Steinunn S. Sigurðar- dóttir. Utvarp laugardag kl. 20.50: „Blár fugl, rautt tré“ - konur í myndlist og Ijóðlist ■ Þáttur í útvarpi á laugardags- kvöld kl. 20.50 ber hið forvitni- lega nafn Blár fugl, rautt tré og er í umsjón Hrafnhildar Schram og Geirlaugar Þorvaldsdóttur. Okkur lék forvitni á að vita hvað fælist á bak við þetta skrítna nafn. Hrafnhildur varð fyrir svörum. „Þetta er þáttur sem fjallar um fólk, sem hefur sinnt bæði mynd- list og ritstörfum. Við Geirlaug höfum verið lengi að velta þessu fyrir okkur og höfum vitað af þessu fólki, en þegar við fórum loks að leita að efni, æxlaðist það nú svo, að þetta eru allt konur, sem við höfum dregið fram, ís- lenskar konur," segir Hrafnhild- ur okkur. Fyrstu konurnar, sem komu upp í huga Hrafnhildar og Geir- ■ Geirlaug Þorvaldsdóttir og Hrafnhildur Schram, flytja okkur mvndlist og Ijóðlist nokkurra kvenna í útvarpinu. Föstudagur 11. janúar 7.00 Veðurfregnir. Fréttir. Bæn. Á virkum degi. 7.25 Leikfimi. 7.55 Daglegt mál. Endurt. þáttur Sigurð- ar G. Tómassonar frá kvöldinu áður. 8.00 Fréttir. Dagskrá. 8.15 Veður- fregnir. Morgunorð- Hafdis Hann- esdóttir talar. 9.00 Fréttir. 9.05 Morgunstund barnanna: „Elsku barn“ Andrés Indriðason les sögu sína (5). 9.20 Leikflm! 9.30 Tilkynningar. Tónleikar. 10.00 Fréttir. 10.10. Veðurfregnir. Forustugr. dagbl. (útdr.). 10.45 „Mér eru lornu minnin kær“ Einar Krlstjánsson frá Her- mundarfelll sér um þáttinn. (RÚVAK). 11.15 Morguntónleikar. 12.00 Dagskrá. Tónleikar. Tilkynning- ar. 12.20 Fréttlr. 12.45 Veðurfregnir. Til- kynningar. Tónleikar. 14.00 „Þættlr af krlstniboðum um víða veröld" eftlr Clarence Hall Barátta við fáfræði og hjátrú. Starf Williams Townsend. (Fyrsti hluti). Ástráður Sigursteindórsson les þýðingu sina (8). 14.30 Á léttu nótunum Tónlist úr ýmsum áttum. 15.30 Tilkynningar. Tónleikar. 16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veður- fregnir. 16.20 Síðdegistónleikar. a. Konsert í B-dúr fyrir flautu eftir Johann Melchior Molter. Gunilla von Bahr leikur með Kammersveitinni i Stokkhólmi. b. Fiðlukonsert í D-dúr, op. 35, eftir Tsjaíkofsky. Kyung Wha Chung leikur með Sinfóníu- hljómsveitinni í Montréal; Charles Dutoit stj. 17.10 Síðdegisútvarp Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Kvöldfréttlr. Tilkynningar. 20.00 Lög unga fólksins. Þóra Björg Thoroddsen kynnir. 20.40 Kvöldvaka a. Frá safnamönn- um Gufuvaltarinn Briet. Guðný Gunnarsdóttir segir frá. b. f kaupa- vinnu i Húnavatnssýslu Alda Snæhólm Einarsson flvtur frum- saminn frásöguþátt. c. Ágústdag- ur 1957 Guðrún Jakobsdóttir á Víkingavatni i Kelduhverfi segirfrá I samtali við Þórarin Björnsson. (Þáttur þessi var hljóðritaður á vegum safnahúss Húsavikur). Umsjón: Helga Ágústsdóttir. 21.30 Tónleikar 22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá morgundagsins. Orð kvöldslns, 22.35 „Óður Ameríku" Stiklað á stóru í sögu bandarískrar þjóð- lagatónlistar. Fyrri þáttur. Umsjón: Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir og Áskell Þórisson. 23.15 Á sveltalínunnl Umsjón: Hilda Torfadóttir. (RÚVAK). 24.00 Fréttir. Dagskrárlok. Næturútvarp frá Rás 2 til kl. 03.00. Laugardagur 12. janúar 7.00 Veðurfregnir. Fréttir. Bæn. Tónleikar. Þulur velur og kynnir. 7.25 Leikfimi. Tónleikar. 8.00 Fréttir. Dagskrá. Morgunorð - Guðmundur Ingi Leifsson talar. 8.15 Veðurfregnir. 8.30 Forustugr. dagbl. (útdr.). Tón- leikar. 9.00 Fréttir. Tilkynningar. Tónleikar. 9.30 Óskalög sjúklinga. Helga Þ. Stephensen kynnir. (10.00 Fréttir. 10.10 Veðurfregnir). Óskalög sjúk- linga, frh. 11.20 Eitthvað fyrlr alla Sigurður Helgason stjórnar þætti fyrir börn. 12.00 Dagskrá. Tónleikar. Tilkynning- ar. 12.20 Fréttlr. 12.45 Veðurfregnir. Til- kynningar. Tónleikar. 13.40 íþróttaþáttur Umsjón: Her- mann Gunnarsson. 14.00 Hér og nú Fréttaþáttur í viku- lokin. 15.15 Úr blöndukútnum - Sverrir Páll Erlendsson (RÚVAK). 16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veður- fregnir. 16.20 fslenskt mál Guðrún Kvaran flytur þáttinn. 16.30 Bókaþáttur Umsjón: Njörður P. Njarðvík. 17.10 Oktett ( F-dúr eftlr Franz Schubert „Ensemble 13“ leikur. (Hljóðritun frá tónleikum Tónlistar- félagsins í Austurbæjarbíói 4. nóv. sl). 18.10 Tónleikar. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar. 19.35 „Dagur ei meir“ Matthias Johannessen skáld les með undir- leik úr Ijóðabók sinni sem ort var á þjóðhátíðarárinu 1974. 20.00 Útvarpssaga barnanna: „Ævintýri úr Eyjum" eftlr Jón Sveinsson Gunnar Stefánsson les þýðingu Freysteins Gunnars- sonar (16). 20.20 Harmonikuþáttur Umsjón: Högni Jónsson. 20.50 Blár fugl, rautt tré Þáttur um skáld og myndlistarmenn. Umsjón: Hrafnhildur Schram og Geirlaug Þonraldsdóttir. 21.30 Tónllstarþáttur Þættir úr si- gildum tónverkum. 22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá morgundagsins. Orð kvöldsins. 22.35 „Skýjað með köflum" Jón S. Gunnarsson les Ijóð eftir Pétur önund Andrésson. 22.45 Loftárás á Selfoss Jón R. Hjálmarsson ræðir við Guðmund Kristinsson á Selfossi. 23.15 Óperettutónlist 24.00 Miðnæturtónleikar Umsjón: Jón örn Marinósson. 00.50 Fréttir. Dagskrárlok. Næturútvarp frá Rás 2 til kl. 03.00. Sunnudagur 13. janúar 8.00 Morgunandakt Séra Jón Ein- arsson flytur ritningarorð og bæn. 8.10 Fréttir. 8.15 Veðurfregnir. Forustugr. dagbl. (útdr.). 8.35 Létt morgunlög 9.00 Fréttir. 9.05 Morguntónleikar 10.00 Fréttir. 10.10 Veðurfregnir. 10.25 Stefnumót við Sturlunga Ein- ar Karl Haraldsson sér um þáttinn. 11.00 Messa í Hallgrímskirkju Prestur: Ragnar Fjalar Lárusson. Organleikari: Hörður Áskelsson. Hádeglstónleikar. 12.10 Dagskrá. Tónleikar. 12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir. Til- kynningar. Tónleikar. 13.30 Hlnir dásamlegu Essenar Ævar R. Kvaran tók saman dagskrána og flytur ásamt Jónu Rúnu Kvaran. 14.30 Frá tónleikum Sinfóníu- hljómsveltar fslands í Háskóla- bfól 10. þ.m. (Fyrri hluti) Stórn- andi: Jean-Pierre Jacquillat. Sin- fónía nr. 41 i C-dúr „Júpíter" eftir Wolfgang Amadeus Mozart. Kynnir: Jón Múli Árnason. 15.10 Með bros á vör Svavar Gests velur og kynnir efni úr gömlum spurninga- og skemmtiþáttum út- varpsins. 16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veður- fregnir. 16.20 Um vísindi og fræðl Bitmý I Laxá, Suður-Þingeyjarsýslu. Dr. Gísli Már Gislason dósent flytur sunnudagserindi. 17.00 Sfðdegistónleikar: Frá tón- llstarhátíðinni f Schwetzingen f fyrra a. „Scherzo“ í b-moll op. 31 nr. 2, „Noktúrna" í F-dúrop. 15 nr. 4 og Ballaða nr. 1 i g-moll op. 23 eftir Chopin. b. „Carnaval" op. 9 eftir Schumann. Cécile Licad leikur á píanó. 18.00 Á tvist og bast Jón Hjartarson rabbar við hlustendur. 18.20 Tónleikar. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Kvöldfréttlr. Tilkynningar. 19.35 „Maður lifandi" Guðrún Guð- laugsdóttir ræðir við Þórð Run- bólfsson í Haga. 20.00 Um okkur Jón Gústafsson stjórnar blönduðum þætti fyrir ung- linga. 20.50 Tónlist 21.05 Evrópukeppni meistaraliða í handknattleik Hermann Gunn- arsson lýsir síðari hálfleik FH og Herschi frá Hollandi í 8 liða úrslit- um í Laugardalshöll. 21.45 Útvarpssagan: Grettis saga Óskar Halldórsson lýkur lestrinum (21). 22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá morgundagsins. Orð kvöldins 22.35 Kotra Umsjón: Signý Pálsdótt- ir. (RÚVAK). 23.05 Djassþáttur - Jón Múli Árna- son. 23.50 Fréttir. Dagskrárlok. vln Föstudagur 11. janúar 10.00-12.00 Morgunþáttur Stjórn-. endur: Páll Þorsteinsson og Sig- urður Sverrisson.

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.