NT - 19.01.1985, Blaðsíða 21
f % '*
»? t
Utl
Laugardagur 19. janúar 1985 21
Ariel Sharon keniur hér úr réttarsalnum í New York ásamt konu sinni Lili.simamvnd poi.foto
Sharon gegn Time:
Skrif Time dæmd ósönn
New York-Reuter
■ Dómstóll sem fjallar um 50
milljón dollara skaöabótakröfu
Ariels Sharon gegn tímaritinu
Time felldi úrskurð Sharon í vil
í gær.
Sharon höfðaöi meiðyrðamál
gegn tímaritinu sem hafði birt
greinar þar sem fullyrt var að
fjöldamorð líbanskra falangista
á Palestínumönnum hafi verið
gerð með samráði og vilja
Sharons.
Atburðirnir gerðust 1982 í
Beirut en Sharon var þá varn-
armálaráðherra ísraels.
Samkvæmt niðurstöðu dóms-
ins í gær voru greinaskrifin ekki
á rökum reist og fullyrðingar
tímaritsins um ábyrgð og vitund
Sharons um atburðina ekki
Dómurinn á eftir að úrskurða
hvort tímaritið hafi haft vit-
neskju um að greinarnar voru
ósannar en dómurinn komst að
þeirri niðurstöðu á miðvikudag-
inn s.l. að skrif Time hafi verið
ærumeiðandi.
Sharon vinnur málið ef dóm-
urinn úrskuröar að ritstjórnin
hafi haft vitneskju urn að grein-
arnar voru ósannar.
Bandaríkin:
70% verðlækkun í
innanlandsflugi
New York-Rvuter.
■ Prjú stærstu flugfélögin í
Bandaríkjunum hafa lækkað
fargjöld á innanlandsflug-
leiðum um allt að 70%. Það
er talið að þetta fargjalda-
stríð bandarískra flugfélaga
á innanlandsflugleiðum
kunni einnig að nú til alþjóð-
legra flugleiða.
Flugfélögin United Airlin-
es og Northwest Airlines til-
kynntu strax að þau myndu
lækka sín fargjöld jafn mikið
og American Airlines.
Fjármálaspekingar í Wall
Strect sögðu að þessar miklu
fargjaldalækkanir hefðu
komið mjög á óvart og spáðu
því að þær myndu leiða til
þess að rekstrarhagnaður
flugfélaganna minnkaði.
Verðbréf í öllum helstu
flugfélögum í Bandaríkjun-
um lækkuðu strax mikiö viö
þessar fréttir.
Talsmenn American Airl-
ines segja að þcir hyggist láta
verðlækkanirnar ná til allra
flugleiða félagsins. Flugfélög
í öðrum löndum geta því
neyðst til að lækka fargjöld
sin líka á næstunni til sam-
ræmis við lækkanir hjá Am-
erican Airlines.
V-Þýskaland:
26 slösuðust
í sprengingu
Köln-Reuler
■ Gífurleg sprenging varð í
olíuhreinsunarstöð í nágrenni
Kölnar í gær. 26 slösuðust þar
af tveir alvarlega. Eldtungurog
reykmökkur teygðu sig hundruó
metra í loft upp og tugirslökkvi-
bíla og sjúkrabíla komu á slys-
staö sögðu sjónarvottar.
Lögreglan taldi að efnagevm-
ir liafi sprungið í loft upp.
Kona gerir
keisaraskurð
á sjálfri sér
Peking-Reutcr
■ Konanokkurí Suð-
ur-Kína greip til þess
ráðs að gera keisara-
skurð á sjálfri sér vegna
þess hvað fæðingin
gekk illa að sögn Pek-
ing-kvöldblaðsins.
í frétt, sem blaðið
birti um þennan atburö
í gær. segir að konan
hafi notað eldhúshníf
til að hjálpa dóttursinni
í heiminn þann 25. des-
ember á síðasta ári.
Þetta var annað barn
konunnar sem var flutt
á sjúkrahús daginn eftir
ásamt dótturinni. Að
sögn heilsast mæðgun-
um vel þrátt fyrir |
ótrúlegu fæðingu.
Sprengingin varð í þeim hluta
oiíuhreinsunarstöðvarinnar
sent framleiðir ethylene.
Smærri sprengingar áttu sér
stað í langan tíma eftir aðal
sprenginguna.
Öll umferð um helstu hrað-
brautina til Bonn stöðvaðist. en
hraðbrautin liggur gegnum at-
hafnasvæði hreinsunarstöðvar-
innar.
Síðasta meiriháttar sprenging
í olíuhreinsunarstöð átti sérstað
í Mexíkóborg í nóvember s.l.
Pá létust um 400 manns og 300
heimili lögðust í rúst.
■ 26 slosuöust í sprengingu í v-þýskri olíuhreinsunarstöð í gær.
Gífurlegur reykniökkur teygðis sig í um km lueð yfir athaln-
svæði Reinische Olienwerke. símamymt roi.Fo ro
Aukinn
hagnaður
hjá IBM
New * ork-Rculcr
■ Hagnaðut hjá
bandaríska stórfyrir-
tækinu ÍBM jókst um
20% á síðasta ári og
talsmcnn fyrirtækisins
segja að hagnaðurinn
hefði orðið enn meiri ef
gengi dollarans hefði
ckki hækkað svona
mikið.
IBM er stærsta tölvu-
fyrirtæki heims. Hagn-
aöur þess árið 1984 var
6,58 milljarðar dollara
sem er betra en fjár-
málaspekingar liöföu
almennt búist viö. Á
þessu ári mun IBM
leggja aðaláhersluna á
stórar tölvur frekar en
litlar heimilistölvur sem
fyrirtækið seldi mikiö
af á síðasta ári.
Indverskir embættismenn
handteknir fyrir njósnir
Nvja Dclhi-Rcutcr
■ Sjö embættismenn á Ind-
landi voru handteknir vegna
gruns um njósnir samkvæmt
frásögn indversku fréttastof-
unnar UNI.
Samkvæmt fréttastofunni
unnu að minnsta kosti þrír
hinna handteknu fyrir ráðuncyt-
isskrifstofu forsætisráðherrans.
Rajivs Gandhi og tveir voru
aðstoðarráðuneytisstjórar og
tveir ráðherraritarar.
Rajiv Gandhi skýrði þing-
heimi sjálfur frá handtökunum
scm kornu mjög á óvart. Hann
sagði að hinir handteknu væru
grunaðir um starfsemi sem bryti
gegn hagsmunum Indverja og
að sérhver ríkisstjórn yrði aö
leggja áherslu á varðvcislu ríkis-
leyndarmála.
Samkvæmt UNl fundust
lcyniskjöl heima hjá sumum
hinna ákæröu en ekki hefur enn
verið skýrt frá því hvaöa ríki
þeir eru ákærðir fyrir að hafa
starfað fyrir.
Upp komst um mennina i
kjölfar rannsóknar á öryggis-
málum ríkisins.
■ Rajiv Gandlii skýrði indverska þinginu sjálfur frá liandtöku
njósnaranna.