NT - 09.02.1985, Blaðsíða 19
Laugardagur 9. febrúar 1985 19
tilkynningar
Hryssa í óskilum
Jarpskjótt hryssa er í óskilum í Grímsneshreppi.
Mark blaðstýft framan biti aftan vinstra. Upplýs-
ingar í síma 99-4070.
Hreppsstjóri.
H| Verkamanna-
bústaðir
Stjóm verkamannabústaða í Mosfellshreppi aug-
lýsir eftir umsóknum í húseignina Arnartanga 47,
Mosfellshreppi sem er til sölu sem verkamanna-
bústaður.
Húsið er 100 fermetra raðhús, 4 herbergja.
Húsinu verður úthlutað samkvæmt reglum um
verkamannabústaði.
Umsóknareyðublöð liggja frammi á skrifstofu
Mosfellshrepps. Umsóknarfrestur er til 4. mars
n.k.
Sveitarstjóri.
Arshátíð
Húnvetningafélagsins verður haldin í Domus
Medica laugardaginn 16. febrúar og hefst með
borðhaldi kl. 19.30.
Dagskrá: Ávarp formanns.
Ræða Pálmi Jónsson alþ.
Háskóla-kvartettinn syngur.
Danssýning.
Æsir leikur fyrir dansi.
Veislustjóri Páll Hannesson.
Aðgöngumiðar verða seldir í Domus Medica
miðvikudaginn 13. febr. og fimmtudaginn 14.
febr. kl. 18-21. Sími 21896.
Stjórnin.
Verðkönnun
w á strætisvögnun
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar fyrir hönd Strætisvagna
Reykjavíkur óskar eftir upplýsingum um framboð og verð á
strætisvögnum.
Um er að ræða kaup á 20 vögnum til afgreiðslu á 3-4 árum.
Óskað er eftir upplýsingum um stærð, gerð, búnað og verð
þeirra vagna sem boðnir eru. Nánari leiðbeinandi upplýsingar
liggja fyrir á skrifstofu vorri að Fríkirkjuvegi 3, Reykjavík.
Tilboðum ber að skila á skrifstofu vora að Fríkirkjuvegi 3,
Reykjavik eigi síðar en 12. mars n.k.
INNKAUPASTOFNUN REYKIAVÍKURBORGAR
Frikirkjwv*)! 3 — Simi 25800
til sölu
Rýmingarsala
Nýir vörubílahjólbarðar
ýmsar tegundir 25% af-
sláttur
900x20 nylon frá kr. 6.975.-
1000x20 - - kr. 8.160.-
1100X20 - - kr. 9.300.-
1200X20 - - kr. 10.350.-
1100X20 radial - kr. 11.363.-
1200X20 - - kr. 13.425.-
Lítið notaðir vörubílahjólbarðar
1100x20 frá kr. 3.375.-
Einnig 1200x20 og 1400x20
radial.
Gerið kjarakaup. Sendum um
allt land.
BARÐINN HF.
Skútuvogi 2, Reykjavík
Sími 30501 og 84844
til sölu
Datsun 220C
diesel árgerð 1977. Ný vetrar- og sumar-
dekk. Skoðaður 1985. Skipti möguleg. Upp-
lýsingar á kvöldin í síma 99-6645.
Rýmingarsala
Rýmingarsala á hjólbörðum,
bæði fyrir fólksbíla og vörubíla,
sólaðir og nýir. Afsláttur: 25%.
Notið tækifærið. Gerið kjara-
kaup. Sendum um allt land.
Barðinn hf. Skútuvogi 2,
Reykjavík, símar 30501 og
84844.
Vélsleði til sölu
Yamaha vélsleði EC 540 60 ha. árgerð 1983)»
óskráður, ekinn aðeins 800 km til sölu. Uppl.
í síma 91-74403.
Til sölu
Yamaha C-35N rafmagnsorgel.
Upplýsingar í símum 91-685761 og 91-74721.
tilboð - útboð
iri
'I'
Tilboð
Óskast í eftirtaldar bifreiðir, sem verða til sýnis, þriðjudaginn
12. febrúar 1985, kl. 13-16 í porti bak við skrifstofu vora
Borgartúni 7, Reykjavík og víðar.
Saab99GLi fólksbifreið árg. 1981
Int. Scout 4x4 - 1980
GMC yfirbyggður 4x4 - 1978
GMCpic-up 4x4 - 1977
Mercedes Benz pallbifreið - 1974
Lada Sport 12 stk. 4x4 - 1979-82
Lada Sport skemmdur eftir árekstur - 1984
Land Rover 4x4 - 1975
Range Rover 4x4 - 1978
Mitsubishi pic-up - 1981
IsuzuTrooper 4x4 - 1982
Chevrolet Blazer 4x4 - . 1974
Int. Scout 4x4 - 1979
VolvoLapplander 4x4 - 1966
Ford Bronco 4x4 - 1978
Til sýnis hjá Tilraunastöðinni Skriðuklaustri N-Múlasýslu
Ursus dráttarvél árg. '77.
Til sýnis hjá Vegagerð rikisins Borgartúni 5 Reykjavík
Mercedes Benz fólksflutningabifreið árg. 72.
Tilboð verða opnuð sama dag kl. 16:30 að viöstöddum
bjóðendum. Réttur áskilinn að hafna tilboðum sem ekki teljast
viöunandi.
INNKAUPASTOFNUN RIKISINS
BORGARTÚNI 7 SÍMI 26844
FLUGMÁLASTJÓRN
Útboð
Flugmálastjórn óskar eftir tilboðum í innréttingu flug-
stöðvar á Húsavíkurflugvelli.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri annarri hæð
í flugturninum á Reykjavíkurflugvelli frá þriðjudeginum
12. febrúar n.k. gegn 5000.- kr. skilatryggingu.
Tilboðin verða opnuð á sama stað 5. mars n.k. kl. 11.00.
Áskilið er að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum.
Flugmálastjórn
tilboð - útboð
m
Útboð
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar fyrir hönd byggingar-
deildar borgarverkfræðings óskar eftlr tilboðum í að Ijúka
framkvæmdum við aðalbyggingu Seljahlíðar, dvalarheimili
fyrir aldraða, að Hjallaseli 23, Reykjavík. Útboðsgögn eru
afhent á skrifstofu vorri að Fríkirkjuvegi 3, Reykjavik gegn kr.
25.000,00 skilatryggingu.
Tilboðin verða opnuð á sama stað þriðjudaginn 5. mars 1985
kl. 14 e.h.
INNKAUPASTOFNUN REYKIAVÍKURBORGAR
Frikirkjuvcgi 3 - Simi 2S800
Útboð
Vegagerð ríkisins óskar eftir tilboðum í efnisvinnslu á
Snæfellsnesi og í Dalasýslu
(Malarslitlag 34.500 m3, klæðingarefni 2.100 m3 og sprenging
og mölun á burðarlagsefni 5.600 m3).
Verkinu skal lokið 20. júní 1985.
Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerð rikisins í Borgarnesi
og i Reykjavík frá og með 11. febrúar.
Skila skal tilboðum fyrir kl. 14:00 þann 25. febrúar 1985.
Vegamálastjóri.
ö
ENDURSKINS-
MERKI ERU
NAUÐSYNLEG
FYRIR ALLA
Umferðarráð