NT - 09.02.1985, Blaðsíða 2

NT - 09.02.1985, Blaðsíða 2
 Laugardagur 9. febrúar 1985 „Grunur að „Eiríkur“ sé bakari“, segir FÍI: Ekki hirt um inn heimtu 200 M á ári - segir Víglundur Þorsteinsson ■ „Það skýtur skukku við aö á sama tima og rætt cr um mjög aukið og hcrt cftirlit mcð allri skatthcimtu hcfur löghoðinni innhciintu vörugjalds af framleiðsluvörum bakara ckki verið sinnt í mörg ár, þrátt fvrir ótvíræð ákvæði í lögum frá 1978. Hcr cru vcrulegar fjárhæðir í húfi - líklega um 150-200 millj. á ári, eða um einn milljarður frá árinu 1978 á núverandi verögildi,“ sagði Víglundur Þorstcinsson, form. Félags ísl. iðnrekcnda í gær. Það sem nú hafi gcrt þróunina óþolandi mcð öllu, sc hin sí- aukna framleiðsla bakaranna á ivermg verour aru) Djá hník Hann rðurörugglc sviösljósinu sælgæti, sem keppi viö framleiðslu sælgætisvcrksmiöjanna í landinu. Munurinn sc sá að á sælgætið frá verksmiðjunum sé lagt samtals 31 % vörugjald og síðan 24% sölu- skattur í vcrslunum á mcðan engin gjöld séu greidd af sælgæti bakar- anna, þótt allt sé jafn gjaldskylt samkvæmt lögum. Það er óbolandi að bessi mis- muni skuli látin viðgangast árum saman. Jafnframt sýnist það furðu- legt af fjármálaráðuneytinu að vera að auglýsa eftir pcningum en hirða svo ekki um þcssar milljónir sem þeir eiga mcð réttu," sagði Víglundur. I framangrcindum tölum - 150- 200 millj. króna á ári - miðar Fll viö óinnheimt vörugjald af brauð- um og kökum sem lögum sam- kvæmt eigi að bera 30% vörugjald. Ótalinn sé síðan söluskatturinn af sælgætinu sem bakarar framleiði nú í síauknum mæli. Borgarstjórnarfundur stóð til 9 í gærmorgun: Leiðinlegur og lítt alvarlegur - að sögn Sigurjóns Péturssonar fulltrúa Alþýðubandalagsins ■ „Þetta var með leiðin- legri fundum, sem ég hef setið á, og voru fulltrúar meirihlutans hver með sinn heimaskrifaða stíl um sína málafiokka þannig að lítil alvöruumræða átti sér stað um einstaka málaflokka,“ sagði Sigurjón Pétursson, borgarfulltrúi Alþýðubanda- lagsins, um afgreiðslu fjár- hagsáætlunar Reykjavíkur- borgar. Sagði Sigurjón að engar af tillögum minnihlutans hefðu náð fram að ganga, eins og reyndar var búist við, þó hefði fengist hækkað framlag til Félags einstæðra foreldra úr 320 þúsundum í 500 þúsund. Að öðru leyti var frumvarp meirihlutans með breytingartillögum sam- þykkt á fundi sem stóð fram til kl. 9 í gærmorgun. Frétt iðnrekenda röng í aðalatriðum - segir Landssamband iðnaðarmanna ■ Fjármálaráðuneytið hefur verið að biðja um hjálp við að hafaupp á „Kiríki“ — við tcljum okkur hafa fundið „Eirík“ - grunar að hann sé bakari, sagði Víglundur Þorsteinsson. Kókosbollan lengst til hægri á myndinni er framleidd af sæl- gætisgerð og keypt í sjoppu fyrir 16 krónur hvar af 5 krónur hafa farið til ríkisins í skatta. Hinar tvær eru keyptar í bakarí- um fyrir 25 kr. og 22 kr. sem bakarinn heldur öllum sjálfur að sögn FÍI-manna. ■ „Frétt“ Fll er röng í öllum veigamiklum atriðuin, en villandi í öðrum, Skýringin hlýtur að vcra sú, að ekki hefur verið liirt um að afia sannra upplýsinga um málið. Hið sanna er, að bakaríin greiða nú af þeim framlciðsluvörum, scm jafnað verður til framlciðslu sælgætisgerða, öll hin sömu gjöld og sælgætisgerðirnar, bæði vörugjöld og söluskatt," segir í frétt frá Landssamhandi iðnaðarmanna í gær, vegna Iréttamannafundar FII fyrr umhelgina. Að mati Ll eru vinnubrögð FÍI mcð endemum. Fyrirsvarsmönn- um fyrirtækja í stórri atvinnugrein sc brigslað um stórfcllt skatt- undanskot í formi „fréttár" sem sérstkalega hafi veriö tilrcidd fyrir fjölmiðla, jafnframt því'sem mál- svarar FÍÍ hafi gengið á fund ráðherraog alþingismanna vegna þessa máls. „Hver sé tilgangurinn með öllu þcssu brambrolti FÍI, verður hins vegar trauðla ráðið," segir LI. „Þeir scgjast „nú" greiða... Það er orðaleikur í þessu máli," sagði Víglundur Þorsteinsson, er fram- ansagt var borið undir hann. Hjá yfirmanni söluskattsdeildar skatt- stjórans í Reykjavík sagði Víg- lundur þær upplýsingar hafa feng- ist að skýrslur vegna vörugjalda og söluskatts - hafi verið sendar til bankanna í des. s.l. Hann hafi hins vegar ekki viljað staðfesta að sú innheimta væri farin að skila árangri. Þessi framleiðsla hafi enda staðið yfir í áraraðir. Landssamband iðnaðarmanna segir mega ráða af lögum að innheimta beri 30% vörugjald af brauði. Það hafi á hinn bóginn ekki verið gert, sem stjórnvöldum sé fullkunnugt um, og sé sjálfsagt pólitísk ákvörðun. . ■ Jóhannes Nordal virðir fyrir sér eina af verðlaunatillögunum ásamt einum vinningshafanna í hugmyndasamkeppninni. NT-mynd: ah „Bæjarhóll höfuðborgarinnar“ ■ Sex tillögur hlutu verðlaun á fyrra þrepi í hugmyndasamkeppni Reykjavíkurborgar og Seðlabank- ans um hlutverk og mótun Arnar- hóls og umhverfis hans og eiga því þátttökurétt á síðara þrepi. Verð- launaupphæðin fyrir hverja tillögu var 150 þúsund. Vonir standa til að útfærslu hugmyndanna sex verði lokið í vor og þá verður ein þeirra valin til endanlegrar úrvinnslu. Standa vonir til að fyrsti áfangi verði tilbúinn fyrir afmæli Reykjavíkur- borgar 1. ágúst 1986, að sögn Jóhannesar Nordal seðlabanka- stjóra.semásæti ídómnefndinni. Fjallið flutt til Múhameðs ■ Félagið Skeifan á Selfossi hefur nokkuð sérstök félags- lög, og meðal annars segir í lögunum, að komi upp deilur milli félagsmanna, skuli deil- an leyst við Apavatn. Mikið virðist vera um misklíð milli félagsmanna, þar sem þeim leiddust eilífar ferðir til Apa- vatns. Á gamlársdag síðastliðinn tóku nokkrir framtakssamir félagar Skeifunnar sig til og ákváðu að bæta úr þessu slæma ástandi. Gerður var út leiðangur til Apavatns, og vatnið sett á nokkrar flöskur, með tilheyrandi merkingum. Nú er vatnið í höfuðstöðvum þeirra félaga sem er Gjáin á Selfossi. Það er vonandi að auð- veldara verði fyrir þá Skeifu- menn að leysa sínar deilur í framtíðinni þegar búið er að færa hluta af sáttavatninu Apavatni til Selfoss. Hvort Apavatn hefur yfir einhverjum duldum yfirnátt- úrulegum kröftum að ráða er ekki vitað, en sú trú virðist vera meðal þeirra Skeifu- manna. Verður heilsað aðsið Hildibranda ■ Hildibrandarnir í Vest- mannaeyjum sem síðast komust í fréttirnar vegna hæstaréttardóms um rassa- sýningar hafa nú komið nafn- inu sínu í sjálfan Lögbirting. Þar segir frá því framtaki þeirra félaga að kaupa spila- tækjasalinn Mexikanann og ætla væntanlcga að snúa sér að arðbærari atvinnuveg en málavafstri. Eins og kunnugt er voru þeir félagar kærðir fyrir að sýna á sér óæðri endann út um bílrúðuglugga á götu í Vestmannaeyjabæ. Þeir höfnuðu allri dómsátt, voru dæmdir í fé- sektir í héraði og keyrðu þá málið upp í hæstarétti. Þar fór málið á sama veg og eru málalokin talin áfall fyrir kveðjusiði Hildibranda. En nú vaknar spurningin hvort gestum spilavítis þeirra félaga í Eyjum verður heils- að að sið Hildibranda þegar þeir líta þar inn. Og enn- fremur hvort slík kveðja sé í bága við lög á nieðan þeir iðki sýningar sínar inni í eigin sal. Forvitnirdropatelj- arar bíða spenntir eftir svör- um við þessum spurningum. Engir grænir fingur í Hafnar- fjarðarbæ! ■ Vill enginn fara grænum fingrum um opinbera reiti Hafnarfjarðarbæjar? Sú spurning læðist að manni þegar gluggað er í fundar- gerðir bæjarráðs. Hafnarfjarðarbær hefur fyrir nokkru auglýst stöðu garðyrkjumanns en enginn hefur enn sótt um starfið, svo vitað sé. Hver ástæðan er fyrir því þorir dropateljari lítið að tjá sig um en þó læðist sá grunur óneitanlega manni að hér spili hinir „heimsfrægu" Hafnarfjarðarbrandarar inn í. Eða sagt á annan hátt. Það er varla nokkurn grænan blett að sjá svo heitið geti í þessu bæjarfélagi í hrauninu og því þykir eflaust garð- yrkjumönnum lítt fýsilegt að binda sig þar við störf. enda „grasið miklu grænna í ná- lægum bæjarfélögum..." Ég vona bara að þeir viti um leyfið okkar Lucy.

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.