NT - 11.02.1985, Síða 9
w
Mánudagur 11. febrúar 1985
9
Margir keyptu dýrari íbúðir en þeir ætluðu:
Um 10% leyniverðhækk
un fasteigna í fyrra
Kaupendur vanmeta verðtryggðu skuldirnar
■ Taliðeraðfjöldifasteigna-
kaupenda hafi á síöasta ári
keypt íbúðir sínar á verulega
hærra raunverði en þeir hafi
gert sér grein fyrir. Felst það
bæði í minni rýrnun afborgana
í kjölfar hjaðnandi verðbólgu,
sem talið er að numið hafí 10%
verðhækkun eigna. En einnig í
mörgum tilfellum vegna þess
að kaupendur hafí tekið við
verðtryggðum áhvílandi iánum
á jafn háu verði og ef um
óverðtryggð lán var að ræða.
Haldi kaupendur áfram að
taka við verðtryggðum bréfum
sem jafnvirði óverðtryggðra í
fasteignakaupum, telur Fast-
eignamatið Ijóst að margir
kaupendur komi til með að
tapa umtalsverðum fjárhæð-
um, í þessum viðskiptum á
næstu árum, þar sem áhvílandi
verðtryggðum lánum fjölgar
nú óðfluga.
Samkvæmt útreikningum
Fasteignamats ríkisins hækk-
aði nafnverð fasteigna (sölu-
verð í kaupsamningi) um 15%
frá 1983 til 1984 (miðað við
okt.-okt.). Raunverulegt sölu-
verð er hins vegar talið hafa
hækkað uni 10% meira, þannig
að alls hafi fasteignaverð
hækkað um 25% að meðaltali
á árinu. Samkvæmt því hækk-
aði fasteignamat eigna um
25% nú unt áramótin. Benda
má á, að byggingarvísistala
hækkaði aðeins um 13% á þvt'
tímabili sem hér er miðað við.
Það sem þarna um ræðir er
að síðari greiðslur útborgunar
(t.d. 6-12 mán eftir að kaup
eru gerð) hafa stóriega aukist
að verðgildi með nrjög minnk-
andi verðbólgu og það sama á
við um óverðtryggð skuldabréf
fyrir eftirstöðvum kaupverðs.
Þessa tvo þætti metur Fast-
eignamatið til 10% raunveru-
legrar verðhækkunar, og vafa-
samt að kaupendur hafi áttað
sig nægilega á gerbreyttum
forsendum frá því að verð-
bólga var 60-80%.
Auk þessa telur Fasteigna-
matið að svo virðist sern lítill
greinarmunur sé gerður á því í
fasteignaviðskiptum unt hvers
konar kjör er að ræða, en þau
geti verið gífurlega mismun-
andi. Þannig sé t.d. 5. hver
eign seld með engurn verð-
tryggðum lánuni, en aftur á
móti 7. hver eign með ein-
göngu verðtryggðum lánum.
Á þeini síðartöldu sé að nieðal-
tali 32% söluverðsins greidd
með yfirtöku verðtryggðra
lána, og útborgunin fari því.
niður í 68% að meðaltali.
Dærni sé um það mikil áhvíl-
andi verðtryggð lán að útborg-
un hafi farið allt niður í 30% af
söluverði.
Fleiri bækur
í Kópavogi
■ Út er kornið fjölrit frá
bókasafni Kópavogs, sem
gerir grein fyrir öllum nýj-
um aðföngum scm safnið
bætti við sig á síðastliðnu
ári. Þar kennir ýmsra
grasa, og má m.a. nefna
myndbönd, kort, nótur,
plötur, snældur og firnin
öll af skáldsögum og fræði-
ritum.
í ritinu er gerö grein
fyrir hverjum llokki fyrir
sig og er um að ræða
umtalsvert magn sem talið
er upp í þessu tuttugu og
tveggja síðna fjölriti.
C/- ]>u e/cuií UFATT. . .
\ V' -yi,,; -x V,
v- ^
*... ú-' '• - y.\ 'M \{
■ . . xeMsru ry/e/z
í '
A AFA/JáASTA&
Heilræði fyrir ökumenn
Framkvæmdastjóri og kynningarfulltrúi Samvinnuferða, þeir Helgi Jóhannsson og Gunnar Steinn
Pálsson fylgjast með Unni Helgadóttur sem þarna situr við skerminn og fiskar út nöfn þeirra
viðskiptavina sem rétt eiga á „arðgreiðslu“. NT-mvnd: Róbcn.
Borga „kúnnanum"
gróðann til baka
Samvinnuferðir með 5 milljón króna auglýsingu
■ Þeir sem fóru í ferð með
Samvinnuferðum Landsýn í
sumar mega eiga von á glaðn-
ing næstu daga. Húsbændur á
þeirn bænum uppgötvuðu við
uppgjörársins 1984aðarðuraf
ákveðnum ferðum var langt
umfram það sem eðlilegt gat
talist og hafa því ákveðið að
senda viðskiptavinum sínum
hluta af greiðslu sinni til baka.
En böggull fylgir skammrifi
ef einhver er blankur núna á
útmánuðum þá fær hann greiðsl-
una samt ekki út núna. Reikn-
að er með að þessar greiðslur
komi til frádráttar á farseðlin-
um næsta sumar. Ef svo ein-
hver færi nú ekki í frí með
Samvinnuferðum næsta sumar
á hinn sami kost á því að leysa
féð út á tímabilinu frá 1. sept-
ember til áramóta. Er ekki
búist við að greiðslan veröi á
vöxtum á tímabilinu.
Um er að ræða 1000 króna
greiðslu fyrir fullorðna og 500
fyrir börn og alls talið að milli
5 og 6 þús. farþegar eigi rétt á
greiðslunni. Samtals mun féð
nema 4-5 milljónum króna.
Þær íerðir sem taldar eru hafa
skilað svona miklum hagnaði
eru hópferðir til Rimini,
■ Verslunin Manila hefur
opnað nýja verslun á Klappar-
stíg 44, þar sem áöur var
Sportvöruverslun Ingólfs Ósk-
arssonar.
í versluninni á Klapparstíg
Grikklands, Dubrovnik í Júg-
óslavíu, sumarhúsa í Danmörku
og sæluhúsa í Hollandi.
„Ef aö þetta er auglýsing þá
er þetta allavega langdýrasta
auglýsing sem gerð hefur
verið,“ sagði Gunnar Steinn
Pálsson kynningarfulltrúi Sam-
vinnuferða Landsýn aðspurður
hvort hér væri ekki um auglýs-
ingu að ræða.
vcrða aðallega á boðstólum
kryddvörur og te, en gjafa- og
byggingavörur verða áfram í
verslúninni á Suðurlandsbraut
6.
Ný kryddverslun
Stytta fyrir mánaðarlaun
■ Margar konur eru í
saumaklúbb m.a.s. ég.
Saumaklúbburinn minn
samanstendur.af
bráðmyndarlegum konum.
sem allar eru gæddar hinum
ýmsu kvenlegu dyggðum og
líta á húsmóðurstörf sem
hugsjón þ.e.a.s. allarnemaég.
Samt finnst mér bráðgaman
í klúbbnum. Það er alveg
makalaust, hvað þær geta talað
lengi um einhverjar
postulínsstyttur eða
silfurmunstur.
„Guð. stelpur vitið þið hvað
ávaxtaskeiðin hjá Norðfjörð
kostar núna?" Svo er nefnd
einhver geigvænleg tala og ég
skelli upp úr. Ég hef engar
áhyggjur af hvað einhver
silfurskeið kostar og finnst það
drepfyndið. að einhver skuli
gera sér rellu út af því.
Einhvern tíma sagði ég við
manninn minn fyrrv., að tæki
einhver upp á því að gefa mér
svona dýra postulínsstyttu,
rnyndi ég brjóta hana strax,
svo að ég hefði ekki eilíflega
áhyggjur út af því að hún kynni
að brotna. Maðurinn tók mig
á orðinu og næst þegar hann
kom heim að utan, færði hann
mér pakka vandlega vafinn í
bylgjupappa. Ég opnaði
pakkann varlega og við mér
blasti ein frægasta og dýrasta
postulínsstytta okkar tíma.
„Ætlarðu ekki að brjóta
liana?" sagði hann og hló.
Vitanlega skorti mig áræði
til að brjóta annan eins
dýrgrip, og lagði hann
ofurvarlega frá mér hátt upp á
skáp. Þá sýndi maðurinn mér
reikninginn fyrir styttunni og
svaraði upphæðin nokkurn
veginn mánaðarlaunum
verkamanns.
„Þetta er nú dýrasta spaug,
sem ég hef tekið þátt í."
Það hnussaði í mér, ég hefði
heldur viljað eyða þessum
aurum á annan hátt.
Þessi stytta mín er búin að
brotnaþrisvarsinnum. í hvert
skipti legg ég á mig gífurlega
nákvæmnisvinnu við að líma
hana aftur. Hún stendur enn
hérna uppi á skáp með bresti
þvers og kruss. Eiginlega er
hún hálfgerður húskross á mér.
Nú er ég ákveðin í að pakka
henni vandlega inn í plastpoka
og laumast með hana út í
ruslatunnu að næturþeli.