NT - 08.03.1985, Síða 2
_________________________Fðstudagur 8. mars 1985 2 ~ Blðð II
Ferðamál
lerra
■ Sigríður Magnúsdóttir
framkvæmdastjórí ferðaskrif-
stofunnnar Terra, - „í sumar
leggjum við mesta áherslu á
ferðir til Ítalíu".
Hópferðir til
ftalíu og irlands
heitir Pietra Ligure. Það er á
Pálmaströndinni, miðja vegu
milli Genúa og Mónakó. Jafn-
framt bjóðum við upp á dvöl
við Gardavatnið.
í>á verðum við með ferðir til
írlands. Þar er boðið upp á
siglingar, þ.e. bátaleigu á
Shannon. Þetta eru ýmist ein-
staklings- eða hópferðir. Við
verðum með tvær slíkar hóp-
ferðir til írlands í sumar. Þær
verða síðari hluta júlímánaðar
og í byrjun ágúst. Þá verðum
við með íslenska leiðsögu-
■ Ferðaskrifstofan Terra er
með þeim yngstu í þessum
„bransa“, hún var opnuð í maí
í fyrravor, og sér nú fram á
annað sumarið í starfsemi
sinni. Sigríöur Magnúsdóttir
er framkvæmdastjóri. Hún var
spurð, hvaða ferðir Terra legði
mesta áherslu á.
-í sumar leggjum við mesta
áherslu á ferðir til Ítalíu. Við
bjóðum upp á ferðir með beinu
leiguflugi til Mílanó, og dvöl á
ítölsku rívierunni, þar sem
■ Vínarferðir Faranda hafa mælst vel fyrír.
■ Ferðaskrifstofan Farandi
er rúmlega fjögurra ára. For-
stjóri hennar er Haraldur Jó-
hannsson. Við spurðum hann
á hvaða mið Farandi hefði
helst róið í ferðamanna-
þjónustunni.
- Fyrst og fremst’ þjónum
við einstaklingsþörfum, sagði
Haraldur. - Við efnum til hóp-
ferða, en okkur finnst
skemmtilegast að þjóna þörf-
um einstakra ferðamanna. Við
erum lítil ferðaskrifstofa og
viljum vera það, - en jafnframt
góð ferðaskrifstofa.
- Hvaða ferðir eruð þið helst
með?
- Við erum alltaf með Aust-
urlönd fjær í kringum jólin. Á
rdldliui
Vínarferð og
Austurlönd
vorin förum við í Vinarferð,
að þessu sinni förum við 24.
maí. Sú ferð stendur í tvær
vikur. Þessar ferðir hafa reynst
afskaplega vel og fólk hefur
verið feikilega ánægt með þær.
- Og fararstjórar, eru þeir
íslenskir?
- Já, að sjálfsögðu. Farar-
stjórar nú verða Helga Páls-
dóttir, sem er búsett í Vín, og
Lis Weishappel. Frá Vín bjóð-
um við upp á tveggja daga
ferðirtil Prag íTékkóslóvakíu,
og til Salzburg. Þá erum við
með eins dags ferðir um Dón-
árdal og í Burgenland, þar sem
er fæðingarstaður Haydns.
- Er farið í áætlunarflugi til
Vínar?
- Nei, það er leiguflug.
- Er farið að panta í þessa
ferð?
Við höfum nú ekki auglýst
hana ennþá, en menn eru farn-
ir að spyrjast mikið fyrir um
þessa ferð. Við bíðum enn
eftir að fá verð á Vínarferð-
inni, en það liggur fyrir mjög
fljótlega.
- Þið eruð ekki með sólar-
landaferðir á sumrin?
- Nei, við látum stóru ferða-
skrifstofurnar um þær. Mér
finnst ekki tilhlýðilegt að vaða
inn á þeirra markað. En við
■ - „Við förum til Filippseyja, Taiwan og Hong Kong, milli
jóla og nýjárs,“ sagði Haraldur Jóhannsson forstjóri ferðaskrif-
stofunnar Faranda.
verðum með Berlínarferð í
byrjun september, það er tíu
daga ferð. Ýmislegt áhugavert
er að sjá í Berlín, þetta er
mikil menningarborg.
- Hvert skal svo halda um
næstu jól?
- Við förum til Filippseyja,
Taiwan og Hong Kong milli
jóla og nýárs.
- Hvernig hefur aðsókn ver-
ið í þessar ferðir?
- Hún hefur verið góð. Þetta
eru náttúrulega langar ferðir,
fjögurra til fimm vikna, og nú
síðast urðum við fyrir skakka-
föllum vegna verkfallsins. En
þátttaka var ágæt og við horf-
um björtum augum fram á
veginn.
reíuaiiiiuáiuum
Benidorm og Bæjaraland
■ Ferðamiðstöðin var stofn-
uð árið 1973. íslaug Aðal-
steinsdóttir framkvæmdastjóri
sagði, að Benidorm á Spáni,
sem skrifstofan hefur sérhæft
sig í, ef svo má segja, væri
alltaf jafn vinsæl. Þangað er
beint leiguflug, ogfyrsta ferðin
verður þriðja apríl og er páska-
ferð.
- Hvaða ferðir er Ferða-
miðstöðin helst með, aðrar en
til Benidorm?
- Við höfum verið með allt
mögulegt, og ekki endilega
eftir ákveðinni áætlun, heldur
„skraddarasaumum" við það
eftir óskum viðskiptavinanna.
Þar má nefna Krít, Rhodos,
Grikkland, Kýpur, Marokkó
og margt fleira.
- Hvernig er flogið í slíkar
ferðir?
- Það er svolítið misjafnt,
yfirleitt fer það eftir því hvar
við fáum bestu kjörin hverju
sinni. Oft er flogið um London
eða Luxemborg. Við höfum
mikið samband við Luxair og
erum söluskrifstofa þeirra hér.
- Eru Benidorm-ferðirnar
þriggja vikna?
- Já, nema páskaferðin
- Einhverjar nýjungar á
döfinni?
- Já, við bryddum upp á
skemmtilegri nýjung. Það eru
ferðir til Madrid, höfuðborgar
Spánar. Þangað verða tvær
ferðir, vor og haust. Þetta er
einskonar lista- og menningar-
ferð. Við bjóðum þarna upp á
mjög góðar skoðunarferðir.
Gert er ráð fyrir vikudvöl í
Madrid og viku í Benidorm.
Fyrri ferðin af þessu tagi er
fimmtánda maí, og þegar eru
farnar að berast pantanir í
han^. Síðari ferðin verður svo
í byrjun október.
Ekki má gleyma því, að við
erum með afar skemmtilegan
stað í Þýskalandi, fyrir einnar
til þriggja vikna sumardvöl.
Það er Oberallgau í Bæjara-
landi. Þarna byrjuðum við í
fyrra og fólk hefur verið geysi-
lega ánægt með dvölina. Það
eru yndisleg hjón, sem reka
þennan orlofsstað, og þangað
hefur ráðist íslensk stúlka, Rut
Gylfadóttir, og hún verður
þeini til aðstoðar fyrir íslend-
ingana. Þarna er mikil náttúru-
fegurð og stutt til Bodensee,
Austurríkis og Sviss, svo
eitthvað sé nefnt.
- Hvernig er farið fil Þýska-
lands?
- Það er flogið til Luxem-
borgar, og síðan ekur fólk í
bílaleigubílum, - þetta er „flug
og bfll,“ í hagstæðum pakka.
- Hefur Ferðamiðstöðin
ekki gengist nokkuð fyrir ferð-
um á kaupstefnur og vörusýn-
ingar?
- Jú, við höfum skipulagt
ferðir á ýmsar helstu vörusýn-
ingar erlendis. Nú fyrir
skömmu fóru hópar á tvær
stórar sýningar í Þýskalandi,
„Frankfurt International," þar
sem er gjafavara og vörur til
heimilisins og margt fleira, og
„ISPO“, sem er sportvörusýn- •
ing. Fljótlega verður svo ferð
á hina árlegu sýningu í Bella
Center í Kaupmannahöfn, og
ýmsar fleiri sýningar eru svo á
næstu mánuðum. Þessar sýn-
ingar standa oftast fram í maí
eða júní, en í júlí og ágúst er
hlé á þeim, og hefjast síðan
aftur í ágústlok. Aðaltíminn
fyrir þessar alþjóða vörusýn-
ingar ef frá janúar til maí. Við
höfum hér mikinn upplýsinga-
banka fyrir þessar sýningar og
hjálpum fólki að finna sýningar1
og kaupstefnur sem það hefur
gagn af.
■ - „Við „skraddarasaumum" ferðir eftir þörfum
viðskiptavinanna," sagði fslaug Aðalsteinsdóttir fram-
kvæmdastjórí Ferðamiðstöðvarinnar.