NT - 08.03.1985, Blaðsíða 14

NT - 08.03.1985, Blaðsíða 14
Föstudagur 8. mars 1985 14-Blaðll Helgin framundan „Algjór draumur“ í Gallerí Langbrók ■ Á morgun, laugardaginn 9. mars, verðuropnuö í Gallerí Langbrók sýning á brúðum eftir súrrealistann Sjón. Brúðurnar eru „Nobody’s Baby Dolls“ og þyggja nöfn sín af frægunr konum úr sögunni. Á sýning- unni verða meðal annarra Ger- trude Stein, Emily Bronté, Flora Tristan og Billie Holly- day. Sjón hefur haldið eina einkasýningu áður, í Skruggu- búð 1982, og svo tekið þátt í ýmsum samsýningum. Sjón er einnig höfundur nokkurra Ijóðabóka'og munu þær liggja til sýnis. Opnun sýningarinnar verður frá kl. 14-18 og eru allir vel- komnir. Sýningin stendur til 24. mars og verður opin kl. 12-18 virka daga en kl. 14-18 um helgar. Kynning á Myndlistaskólanum í Reykjavík Kynningarsýningar úr deild- um skólans standa nú yfir fram í mafmánuð. Kynningar eru fyrir gesti á laugardögum frá kl. 14.00-18.00. Laugardaginn 9. mars er kynning á verkum nemenda úr málaradeildum. Opið verður fyrir gesti, sem fyrr segir, frá kl. 14.00 til 18.00. Sýning Magnúsar í Listmunahúsinu í Listmunahúsinu Lækjar- götu 2 stendur yfir myndlistar- sýning Magnúsar Kjartansson- ar. Á sýningunni eru u.þ.b. 30 verk unnin á sl. tveim árum. Þau eru unnin með ýmis konar tækni s.s. vatns-, þekju- og akrýllitum sem og Ijósnæmum efnum og tækni frá bernsku Ijósmyndunarinnar. Sýningin, serh er sölusýning, er opin virka daga kl. 10-18, laugar- daga og sunnudaga kl. 14-18, lokað mánudaga. Sýningin stendur til 17. mars. Útivistarferðir Góuferð í Þúrsmörk 8.-10. mars Frábær gisting í Útivistar- skálanum. Gönguferðir. Góu- gleði með pottrétti o.fl. Uppl. og farmiðar á skrifst., Lækj- argötu 6a, sími/símsvari: 14606. Tunglskinsganga um Rauð- hóla fimmtudaginn 7. mars kl. 20. Sunnudagsferðir 10. mars Kl. 10.30 Yflr Kjöl á skíðum. Skemmtileg skíðaganga. Verð 350 kr. Kl. 13.00 Kræklingafjara í Hvalfirði. Létt fjöruganga við Hvítanes og Fossá. Tilvalin fjölskylduferð. Kræklingur steiktur á staðnum. Verð 350 kr. Fríttf. börnm. fullorðnum. Brottför frá BSÍ, bensínsölu. Afmælisárshátíð í tilefni 10 ára afmælis Útivistar verður í Félagsheimilinu Hlégarði laug- ard. 23. mars. Allir velkomnir. Fjölbreytt dagskrá. Pantið miða tímanlega. Afmælisganga nr. 1 verður stinnudaginn 24. mars. Frítt. Útivistarfélagar sem enn hafa ekki greitt gíróseðla fyrir ár- gjaldið 1984, vinsamlegastger- ið skil. Sjáumst. Ferðafélagið Útivist. Sunnudagsferðir F.í. Ferðafélag íslands gengst fyrir tveimur dagsferðum sunnudaginn 10. mars: Kl. 10.30 - Gengið um Svína- skarð, en það er skarðið milli Móskarðshnúka og Skálafells. Um Svínaskarð lá fyrrum al- faraleið milli Mosfellssveitar og Kjósar. Skarðið er í 481 m yfir sjó. Kl. 13.00 Meðalfell (363) í Kjós. Létt ganga en góður útsýnisstaður. Brottför í báðar ferðirnar frá Umferðarmiðstöðinni aust- anmegin. Farmiðar seldir við bíl, en frítt er fyrir börn í fylgd fullorðinna. Athugið að Myndakvöld verður miðvikudag 13. mars. Neskirkja Samverustund aldraðra verður á morgun, laugardag. Farið verður í heimsókn til Sambands íslenskra samvinnu- félaga í Holtagörðum. Bílferð frá kirkjunni kl. 15. Pátttaka tilkynnist kirkjuverði í síma 16783 milli kl. 17-18. Séra Frank M. Halldórsson Laugardagskaffi Kvennahúss Laugardaginn 9. mars verð- ur opið hús og „laugardags- kaffi" í Kvennahúsinu. Um- ræðuefni dagsins verður getn- aðarvarnir, og mun Þóra Fis- cher ræða um nýjustu tækni- framfarir á því sviði og rædd verður spurningin hvort hér sé á ferðinni tækni til frekari kúgunar eða frelsis okkar. Ráðsfundir Málfreyja ■ Nú um helgina fara fram ráðsfundir Málfreyja að Hótel Loftleiðum. Á morgun, laugardag, byrj- ar fundur kl. 13. Kl. 17 hefst svo ræðukeppni frá 6 deildum . á íslensku og tveim deildum á ensku. Á sunnudag hefst svo fundur kl. 12 og verður þá fræðsla um dómarastörf og kappræður. Fundirnir eru öllum opnir. ■ Úr leikritinu Rashomon, sem sýnt er á sunndagskvöld kl. 20.30 í Þjóðleikhúsinu. Sýning Jóhönnu Boga- dóttur í Norræna húsinu ■ Jóhanna Bogadóttir opnar sýningu á málverkum og grafíkmyndum í sýningarsal Norræna hússins á laugardag ■ Jóhanna Bogadóttir við eitt verka sjnna. (NT mynd Ari). 9. mars kl. 15.00. Sýningin verður opin frá kl. 15.00-22.00 til 17. mars. Sérstök athygli er vakin á því að sýningin verður einungis opin í rúma viku (9.-17. mars), en opnun sýningarinnar var frestað vegna veikinda lista- konunnar. Flóamarkaður Árnesingakórsins ■ Árnesingakórinn í Reykja- vík lieldur flóamarkað bæði laugardag og sunnudag kl. 14.00 að Borgartúni 3.

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.