NT - 08.03.1985, Blaðsíða 6

NT - 08.03.1985, Blaðsíða 6
 Föstudagur 8. mars 1985 6 — Bldð II LlL Vide omairl kaður Níels Árni Lund forstöðumaður Kvikmyndaeftirlitsinstekinntali í tilefni af því að ofbeldismyndir voru gerðar upptækar Við þurfum tíma til aðlögunar ■ Þann 1. febrúar sendi dómsmála- ráöuneytiö öllum lögreglustjórum landsins bréf þar sem bent var á aö samkvæmt lögum nr. 33/1983 voru ofbeldiskvikmyndir bannaðar hér á landi. I bréfinu segir m.a.: „Meö lögum nr. 33/1983 fylgdi listi yfir kvikntyndir, sem voru bannaðar. Síð- an hefur Kvikmyndaeftirlit ríkisins skoðaö þúsundir kvikmynda og skýringin á því af hverju myndir, sem áöur fyrr hafa verið sýndar í bíói (t.d. Scanners), eru nú á bannlista. En hvað er ofbeldi? í 1. grein laga nr. 33/1983 segir m.a.: „Bannið tekur ckki til kvikmynda, þar sem sýning ofbeldis telst eiga rétt á sér vegna upplýsingagiidis kvikmyndarinnar eða vegna listræns gildis hennar." kvikmyndum ber innflytjendum skylda til þess að koma nteð mynd- bönd í skoðun til Kvikmyndaeftirlits- ins. Hefur það ekki verið gert sem skyldi að þínu áliti? „Nei, það hefur ekki verið gcrt sem skyldi en þeim fer fjölgandi innflytj- endum sem konta með rnyndir til okkar, sérstaklega eftir þessa rassíu. Nú gera þeir sér betur grein fyrir því að það er allra hagur. - Hvað er það helst sem hefur verið ábótavant hjá innflytjendum? „Aðallega það hversu seint við fáunr myndirnar, efnið þarf að berast strax til Kvikmyndaeftirlitsins, svo við getum merkt þær.“ í sambandi við myndirnar Happy Birthday to me og Confessional Murders, segir Níels að rétthafi, í þessu tilfelli Skífan, hafi merkt spól- urnar sjálfur með miðum frá Kvik- myndaeftirliti ríkisins. - Níels, má ekki ætla að Ríkis- saksóknari muni gefa út kæru á hend- ur Skífunni og láta hann svara til saka þar sem þetta athæfi hans varðar sektum eða varðhaldi allt að 12 mánuðum? brjóta margar þeirra tvímælalaust í bága við lög um bann við ofbeldis- kvikmyndum og hefur Kvikmynda- eftirlitið útbúið lista yfir myndir, sem úrskurðaðar hafa verið sem bann- myndir (alls 67 myndir)." Kvikmyndaeftirlitið sendi dóms- málaráðuneytinu beiðni þess efnis að lögreglan gerði samræmt átak í eftir- liti með kvikmyndum sem eru á myndböndum, en í 3. grein laga um ofbeldiskvikm'yndir segir að barna- verndarnefndir og löggæslumenn skuli hafa eftirlit af þessu tagi með höndum. Lög um bann við ofbeldiskvikmyndum Hér á síðunni eru lögin birt eins og þau hljóða, lesendum NT til fróð- leiks. Lögin eru samþykkt á Alþingi 23. mars 1983 en reglugerð um bann við ofbeldiskvikmyndum var ekki til- búin fyrr en 21. desember 1983. 5. grein reglugerðarinnar er svo- hljóðandi: „Reglugerð þessi, sem sett er skv. lögum nr. 33/1983 öðlast þegar gildi og gildir til ársloka 1987 nema annað verði ákveðið.“ Fyrir gildistöku þessara laga var ekki hægt að banna mynd alfarið á íslandi, aðeins hægt að banna þær innan 16 ára aldurs. Nokkrar þeirra mynda, sem eru á bannlistanum, voru fluttar inn áður en lögin tóku gildi og fengu blessun Kvikmyndaeft- irlitsins til sýninga í bíói meðan engin lög bönnuðu eldri en 16 ára að horfa á ofbeldismyndir. Hér er því komin Þeir sem ákveða hvað er ofbeldi og hvað telst ekki ofbeldi er Kvikmynda- eftirlitið. Kvikmyndaeftirlitið er skip- að til 5 ára í senn af Menntamálaráð- herra að fenginni umsögn frá Barna- verndarráði. Í Kvikmyndaeftirlitinu eiga sæti sex menn, fjórir aðalmenn og tveir til vara. Níels var fyrst spurður hvort hon- um fyndist það óeðlilegt þótt kvartað væri yfir því að sumar myndanna ættu ekki heima á bannlistanum? „Vissulega orkar mat okkar á því hvaða myndir teljast ofbeldismyndir alltaf tvímælis, en um allar þær myndir, sem bannaðar voru í þessari lotu, var algjör samstaða hjá okkur í Kvikmyndaeftirlitinu. Ég vil að það komi fram að þessar 67 myndir, sem birtust á listanum 18. febrúar, teljasi ólöglegar til sölu, dreifingar og sýn- inga á íslandi frá og með deginum sem listinn birtist.“ - Hvert er helsta viðmið Kvik- myndaeftirlitsins þegar verið er að meta ofbeldismyndir? „Nú, mynd sem hefur engan raun- verulegan söguþráð, aðeins ofbeldi á ofbeldi ofan, taumlaust blóðbað án listræns tilgangs, teldist „ofbeldis- mynd.“ - Hefur komið upp ágreiningur, Níels, um það hvort leyfa eigi mynd til sýningar eður ei? „Svo sem áður hefur komið fram höfurn við verið sammála í dómum okkar hingað til.“ - Níels, frá gildistöku laganna (21.12.83) um bann við ofbeldis- Stj.tíð. A, 33/1983. um bann við ofbeldiskvikmyndum. Forseti Íslands gjörir kunnugt: Alþingi hefur fallist á lög þessi og ég staðfest þau með samþykki rnínu: 1. gr. Bannað er að framleiða í landinu eða flytja til landsins ofbeldiskvikmyndir, sbr. 2. mgr. Sala, dreifing og sýning mynda af þessu tagi er bönnuð í íslenskri lögsögu frá gildistöku laganna. ..Olbeldiskvikmynd" merkir í lögum þessum kvikmynd, þar sem sérstaklega er sósf eftir að sýna hvers kvns misþyrmingar á mönnum og dýrum eða hrottalegar drápsaðferðir. Bannið lekur ekki til kvikmynda, þar _sem_ sýning ofbeldis telst eiaa rétt á sér vcuna upplýsingagildis kvikmyndarinnar eða vegna listræns gildis hennar. Ekki tekur bann heldur til kvikmynda, sem hlotið hafa viðurkenningu skoöunarmanna, sbr. VI. kafla laga nr. 53/1966. Ef ástæða þykir til, er skoöunarmönnum þó heimilt að meta að nýju sýningarhæfni kvikmynda, sem áður hafa veriö metnar. „Kvikmynd" merkir í lögum þessum myndefni af hvaða tæknibúnaði sem er, hvort sem ætlað er til sýningar í kvikmyndahúsum. sjónvarpi eða öðrurn myndflutningstækjum. 2. gr. Skoðunarmenn kvikmynda, sbr. VI. kafla laga nr. 53/1966, leggja mat á sýningarhæfni kvikmynda. Skulu innflytjendur, framleiðendur eða dreifingaraðilar og sýnendur kvik- mynda kveðja skoðunarmenn til þess að skoða kvikmyndir áður en þær eru teknar til sýningar og greiða kostnað við skoðun þeirra, skv. reglum sem ráðherra setur. 3. gr. Barnaverndarnefndir og löggæslumenn skulu hafa eftirlit meö því, að aðeins sé'u sýndar kvikmyndir, sem kvikmyndaeftirlit hefur leyft, eða slíkt efni selt eða leigt á myndböndum eða myndplötum. 4. gr. Brot gegn ákvæðum þessara laga varðar sektum eða varöhaldi allt að 12 mánuðum. Gera skal upptækar ólöglegar k\ikmyndir samk\. lögum þessum. 5. gr. Menntamálaráöherra skal setja reglugerð um framkvæmd laga þessara. 6. gr. Lög þessi öðlast þegar gildi og gilda til ársloka 1987. Cljört í Reykjavík, 23. mars 1983. Vigdís Finnbogadóttir. (L. S.) lngvar Gtslason.

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.