NT - 08.03.1985, Síða 3
Föstudagur 8. mars 1985 3 —Blððll
LlL ÁBÓT Ferðamál
menn á Shannon, fólk sem
þekkir ána og vatnið og er vant
að sigla þarna. Flogið verður
um Glasgow.
Við verðum einnig með
rútuferðir um England, sem
við köllum „í fótspor víkinga
og Rómverja.“ í þeim ferðum
verður lögð áhersla á sögustaði
og annað, sem tengist veru
norrænna manna og róm-
anskra á Englandi.
- Hve langar eru Ítalíuferð-
irnar?
- í>ær eru þriggja vikna.
- Hverjir eru fararstjórar
þar?
- Bjarni Zophoníasson er
fararstjóri við Pietra, og við
Garda-vatn verður Margrét
Laxness fararstjóri.
- Eruð þið með kynnisferðir
frá þessum stöðum?
- Já, til dæmis má nefna, að
frá Pietra á ítölsku rivierunni,
verða ferðir til Frakklands, -
til Cannes og Nice, - til Món-
akó, Monte Carlo, sigling til
Korsíku, og svo verður farið til
Flórens og Pisa, Genúa og siglt
til Porto Fino. Frá Gardavatn-
inu er farið til Feneyja, Flórens
og Innsbruck í Austurríki.
- Eruð þið með einhver
sérstök kjör, til dæmis fyrir
barnafólk?
- Ferðirnar eru á mjög lágu
verði hjá okkur. Við erum
með barnaafslátt, og svo gef-
um við fólki kost á að borga
inn á ferð mánaðarlega og
lánum þá jafn háa upphæð í
jafn langan tíma. Þá erum við
með samvinnu við Landsbank-
ann, þannig að hægt er að
safna þar inn á sparilánareikn-
ing, sem gengur svo upp í
ferðakostnað. Bankinn lánar
síðan mismuninn.
H ll,
Miiaiiiiii
Mallorca, Sviss og
skemmtiferðaskip
■ Ferðaskrifstofan Atlantik
er sjö ára gömul, starfsemin
hófst í ársbyrjun 1978. Böðvar
Valgeirsson hefur verið for-
stjóri Atlantik frá upphafi.
Hann var spurður, hvaða ferð-
ir væru helst á dagskrá ferða-
skrifstofunnar.
- Við höfum lagt megin-
áherslu á Mallorcaferðir, og
erum nú orðnir stærstir þar af
íslensku ferðaskrifstofunum,
þ.e.a.s. við flytjum flesta ís-
lendinga þangað. Þetta hefur
þróast þannig, að við höfum
styrkt okkur í sessi á Mallorca
frá ári til árs, en reyndar hófum
við ekki ferðir þangað fyrr en
árið 1981.
- Hvert fóruð þið áður?
- Áður stóðum við ekki fyrir
skipulögðum hópferðum. Við
byrjuðum með móttöku á er-
Skemmtisiglingarnar eru fastur liður hjá Atlantik.
■ - „Við erum orðnir stærstir á Mallorca af íslensku ferðaskrif-
stofunum,“ sagði Böðvar Valgeirsson forstjóri Atlantik.
lendum ferðamönnum, og
erum í því enn. Atlantik sér
um móttöku 90 prósenta þeirra
skemmtiferðaskipa, sem hing-
að koma.
Böðvar sagði, að Atlantik
væri með beint leiguflug til
Mallorca, og í sumar eru fyrir-
hugaðar ellefu ferðir þangað.
Petta eru svo til eingöngu
þriggja vikna ferðir. Gisting er
á þremur stöðum á eynni,
Playa de Palma, eða Pálma-
iströndinni, Magaluf og Santa
Ponsa. Allar þessar strendur
eru steinsnar frá höfuðborg-
inni, Palma. Fararstjórar eru
íslenskir, þeirra á meðal Re-
bekka Kristjánsdóttir, sem
hefur verið á Mallorca fyrir
Atlantik frá upphafi.
-Eruð þið með einhverjar
nýjungar í sumar?
- Já, í sumar verða ferðir til
Sviss, þar sem við höfum íbúð-
ir fyrir ferðamenn. Þaðan er
stutt til nærliggjandi landa og
hægt að fara í dagsferðir til
Austurríkis, Ítalíu, Þýskalands
og Frakklands. í Sviss verður
íslenskur fararstjóri. Flogið
verður í áætlunarflugi með
Arnarflugi. Fyrsta ferðin verð-
ur um páskana og má heita
uppselt í hana.
Loks má nefna skipsferðirn-
ar. Það má kallast fastur liður
hjá okkur, að vera með tvær til
þrjár skipsferðir fyrir íslend-
inga á sumri. Nú bjóðum við
Miðjarðarhafsferð í apríl, siglt
verður frá Genúa á Ítalíu um
austurhluta Miðjarðarhafs og
inn í botn hafsins. Þar verða
skoðaðir helstu sögustaðir, í
Egyptalandi og Grikklandi.
- Hvað kostar svona ferð?
- Hún kostar um 70 þúsund
krónur. Það er tuttugu daga
ferð með tólf daga siglingu og
dvöl á Mallorca hinn hluta
ferðarinnar. Innifalið er fullt
fæði á siglingunni, gisting á
Mallorca og flug fram og til
baka.
- Hafa þessar ferðir verið
vinsælar?
- Já, aðsókn í þær hefur
frekar aukist. Þessar ferðir
með skemmtiferðaskipum eru
kannski fyrst og fremst fyrir
fólk, sem er komið yfir efna-
hagsörðuleikana, og þá komið
af léttasta skeiði. í október er
svo fyrirhuguð skemmtisigling
um Karíbahaf. Þá verður flog-
ið til Flórída og siglt þaðan í
tveggja vikna ferð um Karíba-
hafið.
-Hvernig ganga pantanir?
-Það er búið að panta þó
nokkuð. Við erum með mikið
af föstum viðskiptavinum, sem
panta yfirleitt snemma, vitandi
það að ákveðnir tímar sumars
seljast fyrr upp en aðrir.
-Bjóðið þið upp á einhver
greiðslukjör?
-Já, að jafnaði getur fólk
skipt greiðslu til helminga,
borgað helming út og afgang-
inn á ákveðnum tíma, allt að
fimm mánuðum. Þetta eru
meginlínurnar, en ef sérstak-
lega stendur á, er stundum
unnt að sveigja út frá þeim.
LOKSINS MEÐ ,
ÍSLENSKUM TEXTA
Nú gefst karate-áhugafólki einstakt tækifæri til
aö kynna sér íþróttina á myndböndum með
íslenskum texta. Fyrsti hluti fjallar um Kata:
Heian Sandan og Heian Yodan. Annar hluti
fjallar um Kata: Heian Sandan, Heian Yodan,
Heian Godan, Tekki Shodan og Bassai dai.
Þriðji og síðasti hluti fjallar svo um Kata: Jion,
Kanku dai, Bassai Sho og Niju Shiko.
Vinsamlegast sendið mér:
. . . stk. Shotokan, Karate-do, 1. hluta □ VHS □ Beta kr. 1990,- jj
. . . stk. Shotokan, Karate-do, 2. hluta □ VHS □ Beta kr. 1990,- I
. . . stk. Shotokan, Karate-do, 3. hluta, væntanlegur fljótlega. J
Myndimar eru sem sagt þrjár, hver um sig 55
mín. að lengd.
Frábærar fræðslumyndir fyrir karate-áhuga-
menn og íþróttafólk almennt.
SHOTOKAN KARATE-DO
□ Ávísun fylgir. □ Póstkrafa.
Visa nr. □□□□□□□□□□□□□□□□□□□
Nafn:
Heimilisf.:
Póstnr.:
I
I
I
I
i
1
I
z
Siurbj örnlícmssonS Co.h.f
. Hafnarstræti 4
Box 1131 Reykjavík
Sími14281