NT - 19.03.1985, Page 4

NT - 19.03.1985, Page 4
Þriðjudagur 19. mars 1985 Frárennslismál Reykvíkinga: „Óskiljanlegt af heil- brigðisyfirvöldum að láta þetta viðgangast“ - umsögn heilbrigðisráðuneytisins um ástandið í fjörum borgarlandsins ■ „Að okkar mati er hér um mjög aivarlegt mál að ræða,“ sagði Jón Ingimarsson, skrif- stofustjóri í heilbrigðisráöu- neytinu, er NT innti hann eftir umsögn heilbrigðisráðuneytis- ins um ástandið í frárennslismál- um höfuðborgarinnar sem sent var ríkissaksóknara, fyrir skömmu. Eins og lesendur NT rekur e.t.v. minni til, fór NT fram á opinbera rannsókn vegna frá- gangs á skólpræsum í fjörum borgarlandsins, í desember síð- astliðnum. Höfðu fróðir aðilar lýst því yfir í NT að Reykja- víkurfjörur væru heilsuspillandi og í sumum tilfellum lífshættu- legar þeim sem þar eiga leið um. Málið var sent ríkissaksókn- ara sem sendi það til umsagnar í heilbrigðisráðuneytið. Sú um- sögn liggur nú fyrir, og eins og fram hefur komið, staðfestir hún ummæli viðmælenda NT um ófremdarástand í þessum efnum. „Af myndum ogöðrum gögn- um sem málinu fylgdu, er Ijóst að það er alls ekki rétt gengið frá frárennslislögnum og óskiljanlegt að heilbrigðisyfir- völd skuli láta þetta viðgang- ast,“ sagði Jón Ingimarsson og bætti því við að víða mætti bæta ástandið verulega með litlum tilkostnaði ef vilji væri fyrir hendi. Jón gat þess að frárennsl- islagnirnar ættu að ná út fyrir stórstraumsfjöruborð, en í mörgum tilfellum væri skólpið látið renna beint fram af sjávar- kantinum. Samkvæmt þeim upplýsing- um sem fengust hjá ríkissak- sóknaraembættinu, þá hefur mál þetta ekki verið tekið til frekari meðferðar enn. Pétur Guðgeirsson, fulltrúi hjá ríkis- saksóknara kvaðst ekki geta sagt um það hvað yrði gert næst í málinu enda væru mörg önnur mál til meðferðar. „Málin verða bara að hafa sinn gang,“ sagði hann, en tjáði sig ekki frekar. ■ Samkvæmt heilbrigðisreglugerðum þá eiga frárcnnslislagnirnar að ná út fyrir stórstraumsfjöruborð, en eins og þessi mynd ber með sér, þá er víða pottur brotinn í þeim efnum.Ni-mvnd: Arni Bjama ■ Jón Óttar Ragnarsson matvælafræðingur. Athugasemd vegna Tarkovskí- málsins ■ Vegna einstaklega villandi ummæla Magnús- ar Ólafssonar ritstjóra, í NT vil ég taka fram eftir- farandi: 1. Háskólabíó hefur keypt og greitt fyrir sýningarrétt á þeim fjórum myndum Tark- ovskís sem rússneska sendiráðið reyndi að stöðva sýningu á. 2. Rússneska sendiráðið véfengir þennan rétt þótt hann sé keyptur með fullkomlega lög- legum hætti eftir hefð- bundnum leiðum án þess þó að framvísa svo mikið sem blað- snifsi máli sínu til stuðnings. 3. Rússneska sendiráðið útilokaði þegar í upp- hafi þann möguleika að Tarkovskínefndin gæti fest kaup á sýningar- réttinum af Rússunum í tæka tíð fyrir hátíðina ef svo ótrúlega vildi til að réttur Háskólabíós yrði véfengdur. Að öllu samanlögðu hefur framkoma rússn- eska sendiráðsins verið með slíkum endemum í þessu máli að það gegnir mikilli furðu að ritstjóri virts dagblaðs skuli reyna að bera í bætifláka fyrir það. Jón Óttar Ragnarsson framkvæmdastjóri Tarkovskínefndarinnar Húsavík: Frumsýndu gleðileik inn „Ástin sigrar" - við mikinn fögnuð áhorfenda Frá fréttaritara NT í Húsavík, Hafliða Jó- steinssyni. ■ Á föstudag frumsýndi Leik- félag Húsavíkur gleði- og gam- anieikinn „Ástin sigrar“ eftir Ólaf Hauk Símonarson undir leikstjórn Þórhalls Sigurðs- sonar, en Þjóðleikhúsið sýndi Leikfélagi Húsavíkur þá velvild og skilning á 85 ára afmæli LH að gefa Þórhalli frí til að leik- stýra verkinu. Það mætti vera steindauð manneskja sem ekki hlær og hrífst með undir tveggja klukkustunda fyndnu og bráð- skemmtilegu verki. Þótt „Ástin sigrar" sé fyrst og fremst gert til að leikhúsgestir geti gefið hlát- urkitlunum lausan tauminn þá e'r ýmislegt alvarlegt sem býr að baki spaugilegu aðhlátursefninu sem stanslaust streymir frá hin- um ýmsu persónum leikritsins. Jón Friðrik Benónýsson fer með eitt stærsta hlutverkið af mikilli innlifun og gerði þessum yfirmáta ástfangna furðufugli ágæt skil. Lofaði öllu fögru í einu orði en var svo tilbúinn að gleyma öllum Joforðum í næstu andrá. Skemmtileg persóna í öllu því ástaupplifelsi nútímans. Einn af þeim sem fer með veigamikið og stórt hlutverk er Arnar Björnsson. Þar kemur fram óvenju fyndin persóna sem undirritaður hló sig alveg mátt- lausan af að sjá og heyra. Það mætti segja mér að LH hafi fundið þarna leikara sem eigi eftir að láta meira að sér kveða á fjölum gamla samkomuhúss- ins okkar. Þorkell Björnsson fer með nokkuð veigamikið og skemmti- legt hlutverk sem hann gerir lifandi og hressilegt sem hans var von og vísa. Kvenþjóðin á þarna sína fulltrúa sem skila hlutverkum sínum með sæmd og sóma. Snædís Gunnlaugsdóttir fer að mínu mati á kostum í sínu hlutverki; mátulega yfirdrifin í ástarfuna sínum og vingjarn- leika. Jákvæð persóna sem virð- ist ekki bera kala til nokkurs manns. Anna Ragnarsdóttir er ágæt í hlutverki sínu sem sýnir okkur konu sem er að rífa sig lausa frá fyrrverandi manni sínum en er þó svolítið veik fyrir honum. En vinnur samt að lokum sigur í þessum átökum. Margar aðrar skemmtilegar persónur komu fram í þessum gleðileik og gerðu sínum hlut- verkum góð skil. Að lokinni frumsýningu ætl- aði lófatakinu aldrei að linna, sem sýnir að leikhúsgestir vildu á verðugan hátt sýna þakklæti sitt til þeirra er gáfu okkur kost á að hlæja rækilegajtessa kvöld- stund í gamla samkomuhúsinu okkar. Er frumsýningu lauk voru höfundur og leikstjóri kallaðir upp á sviðið og færð blóm. Megi þeir báðir hafa þakkir fyrir sitt framlag á 85 ára afmæli LH. Að lokum þetta. Megi Leikfé- lag Húsavíkur hér eftir sem hingað til halda uppi öflugu og jákvæðu leikstarfi sem hluta af mannlegri tilveru okkar á Húsa- vík. Atkvæðagreiðslu um sóknargjöld frestað í efri deild: Fjármálaráðherra boðar athugasemd' ir í 2. umræðu! ■ Atkvæðagreiðslu var frestað í efri deild Alþingis í gær um frumvarp til laga um sóknargjöld, þar sem fjár- málaráðherra lýsti því yfir að fjármálaráðuneytið hefði ýmsar athugasemdir við frumvarpið. Engar athugasemdir komu fram við frumvarpið hjá ráð- herra við fyrstu umræðu en minni hluti menntamála- nefndar Ragnar Arnalds, hefur sent frá sér nefndarálit þar sem lýst er yfir samþykki við þá meginstefnu frum- varpsins að sóknargjöld verði ekki lengur nefskattur án tillits til tekna manna eins og verið hefur, heldur tiltek- inn hundraðshluti af útsvars- stofni hvers gjaldskylds manns. í frumvarpinu er lagt til að sóknargjald skuli vera 0,2-0,4% af útsvarsstofni hvers gjaldanda en hægt er með heimild sóknarnefndar að hækka gjöld allt að tvö- földu, með samþykki kirkju- málaráðherra. I nefndaráliti Ragnars Arnalds er lagt til að þetta ákvæði verði fellt brott en í stað þess skuli 10% af innheimtum sóknargjöld- um lögð í jöfnunarsjóð sem skal einkum ætlaður sóknar- kirkjum þar sem tekjur hrökkva ekki fyrir nauðsyn- legum útgjöldum. ■ Verðandi stúdentar í Verzlunarskóla íslands kepptu í maraþonknattspyrnu 8. mars síðastliðinn. Var þetta einn liður í fjáröflunarskyni fyrir utanlandsferð þeirra í vor. Keppnin fór fram í Ármannsheimilinu í Reykjavík og stóð keppnin yfir í samfleytt 20 klukkustundir. Til gamans má geta þess að staðan í leiksiok var 375 gegn 335. Atvinnumála- nefndfylgjandi ríkismati sjávarafurða ■ Atvinnumálanefnd hefur sent frá sér nefndarálit um til- lögu til þingsályktunar um að leggja niður starfsemi ríkis- mats sjávarafurða. Er lagt til í nefndarálitinu að tillögunni verði vísað frá þar sem einungis séu liðnir rúmir sjö mánuðir síðan að lög um ríkismat sjávarafurða tóku gildi og því hafi ekki fengist nægileg reynsla af framkvæmd hinna nýsettu laga. Betri horfur í iðnaði eftir slakt síðasta ár Framleiðsla síðasta árs minni en árið á undan ■ Fyrsti ársfjórðungur þessa árs ætti að verða iðnaði betri en síðasti ársfjórðungur síðasta árs. Samkvæmt Hag- sveifluvog iðnaðarins, sem eru samandregnar niðurstöð- ur könnunar á ástandi og horfum í iðnaði. Hagsveifluvogin spáir betri framleiðsluhorfum, betri söluhorfum og auknum fjölda starfsmanna við iðnað. Þá kemur einnig fram í Hagsveifluvog iðnaðarins, að framleiðsla og sala var minni á síðasta ársfjórðungi síðasta árs, en á samsvarandi tíma 1983, en hins vegar meiri en á þriðja ársfjórðungi síðasta árs.

x

NT

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: NT
https://timarit.is/publication/305

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.