NT

Ulloq

NT - 30.03.1985, Qupperneq 16

NT - 30.03.1985, Qupperneq 16
Laugardagur 30. mars 1985 16 Halldór og Megas ræda um Passíusálmana - bitist á um landshlutaútvarp o.s.frv. ■ Sitthvaö áhugavcrt er í þættinum Hér og nú, scm cr á dagskrá útvarps kl. I4. í dag. Það eru þeir fréttamennirnir Atli Rúnar Halldórsson, Giss- ur Sigurðsson og Gunnar E. Kvaran sem sjá um þáttinn í dag. Sumum kann að finnast forvitnilegast að fá þar tækifæri til að hlýða á þá Halldór Lax- ness og Megas ræða saman unt Passíusálmana, en Halldór er nú u.þ.b. að Ijúka lestri þeirra í útvarp og Megas ætlar að flytja þá á sinn máta unt pásk- ana. Þar kemur reyndar í Ijós að þeir eru frændur, en eru nú að hittast í fyrsta skipti. íþróttaunnendur hafa áreið- anlega gaman af að heyra talað við Siglfirðinga beint í sam- bandi við fyrirhugað skíða- landsmót þar um páskana. Og handboltaunncndur láta ekki fram hjá sér fara viðtal við Ragnar Örn Pétursson sem kominn verður til Spánar til að lýsa síðari leik Víkings og Barcelona í Evrópukeppni í handknattleik, en sem kunn- ugt er fór -fyrri leikur liðanna fram hér í Reykjavík s.l. sunnudag og lauk með glæsi- legum sigri Víkinga, 20:13, en því höfðu Spánverjarnir greinilega ekki átt von á enda eru þeir núverandi Evrópu- meistarar. Ekki er ósennilegt að þeir ætli sér að hefna ófar- anna í leiknum á Spáni nú og ætlar Ragnar að gefa útvarps- hlustendum hér aðeins smjör- þefinn af andrúmsloftinu þar rétt fyrir leikinn. Sjálf lýsingin hefst svo kl. 17. Talað verður við helstu for- kólfa í Vestmannaeyjum og á Selfossi en þeir eru þessa dag- ana að bítast á um landshluta- útvarp og telja báðir aðilar sjálfsagt að sitt pláss hljóti hnossið. Sitthvað fleira verður tekið til umfjöllunnar. Sjóræningjar, skylmingar og afbrýðisemi ■ Bræöurnir frá Ballantrae (Master of Balla.urac) luitir laugardagsmynd Sjónvarpsins og er gerð eftir samncfndri skáld- sögu Roberts Louis Stevenson. Sagan gerist á IS. öld og í þessari ævintýramy lá áhorfendur aö líta sjóræmngja. skylmingabar- daga. Indíánabyggöir og atriði sviðseti i París, Indlandi og Skotlandi. Þar segir frá fcðgum sem búa á ættaróðali sínu í Skotlandi, Durie. Faðirinn (John Gielgud) ræður þar ríkjum sem vera ber. en synirnir Henry (Richard Thomas) og James (Michael York), sem eru vægast sagt mjög ólíkir, leggja hug á sömu stúlk- un;i Alison (Finola Hughes). í upphafi myndarinnar fá áhor- fcndur að fylgjast meö Stuart- uppreisninni 1755. Karl prins tekur land i Skotlandi og ætlar sér að ná krúnunni aftur á sitt vald úr höndum Georgs konungs. Duries-fcðgarnir togast á milli hollustu sitinar við Karl og ættar- óðalið. Þaö verður úr að faðir- inn ákveður að James skuli berj- ast'fyrir Karl en Henry sláist i liö með kónginum. Þegar Karl bíður ósigur við Culloden eru allir þeir sem börð- ust við hlið hans lýstir útlagar og þar með cr James gert ókleift að snúa aftur heim. Ilann flýr frá Skotlandi um borö í sjóræningja- skipi. Á Durie er gengið út frá því sem að vísu að James sé dauður bróðir hans gengur að eiga Ali- son. En ekki líður á löngu þar til fjölskyldan fær staðfest að James er enn á lífi og í fjárþröng. Þcgar hann loks snýr aftur heim grípur hann til sinna ráða til að sverta bróður sinn í augum föður þeirra og Alisons. Þýðandi myndarinnar er Kristmann Eiðsson og sýning hennar stcndur í tæpar 3 klst. ■ Þeir Durie-feðgar (t.f.v.) Henry, faðirinn og James vilja mikið til vinna að halda ættaróðalinu, en þeir bræður eru ólíkir og afbrýðisamir hvor út í annan. Meðal annars keppa þeir um ástir Alison og i þeirri samkeppni er ekki alltaf beitt sem vönduðustum meðulum. ■ Samstarfskona þeirra Þóris (t.v.) og Eiríks (t.h.) Elín Hirst kemur óvænt við sögu í þætti þeirra félaga Dæmalaus veröld, sem er á dagskrá rásar 2 á niorgun. (NT-mynd: Árni Bjarna) ið í fréttum,í vikunni og svo segja frá ýmsu scm ekki hefur komið fram í fjölmiðlunt og má búast við að þar kenni ýmissa furöulcgra grasa og jafnvel gamansamra. Tónlistina ætla þeir félagar að liafa sem fjölbreyttasta og gjarna að cinhverju leyti í tcngslum við þaö sem þeir eru að spjalla um. Verkaskipting þeirra er sú, að Eiríkur ætlar að greina frá því sem gerst hefur innan- lands, en Þórir, sem er víðför- ull ferðamaóur sjálfur, ætlar að skýra frá erlcndum viðburð- um. Sjónvarp laugardag kl. 21.30: Utvarp laugardag kl. 14 Rás 2 sunnudag kl. 15. Öðru vísi frétta- þáttur og músík ■ Nýr þáttur er á dagskrá Rásar 2 á niorgun, sunnudag kl. 15-16. Nefnist hann Dæma- laus veröld og eru stjórnendur hans Eiríkur Jónsson og Þórir Guðmundsson, sem báðir eru blaðamenn við DV. Viö spurð- um Þóri hvers konar þáttur væri hér á ferðinni. „Þetta er þáttur þar sem við ætlum að fara yfir það sem Itefur veriö að gerast í vikunni á undan, ætlum að spjalla um það vítt og breitt í léttum dúr á inilli laga,“ scgir Þórir. Ekki vill hann taka undir að þetta sé fréttaþáttur í venjulegri niynd, hcldur ætli þeir félagar að styðjast viö það sem er að gerast og tengja saman frétt- irnar öðru vísi en venjulega er gcrt. Þeir ætla bæði að fjalla örlítið um það sem hcfur kom- ■ Sonja B. Jónsdóttir ræðir við tvo meðlimi Musica Antiqua í Glugganum annað kvöld. NT-mynd Ari Sjónvarp sunnudag Sýnt úr Hvítum mávum ogrætt við Valgeir ■ Glugginn er á dagskrá sjón- varps annað kvöld kl. 20.55. Þar veroa sýnd atriði úr kvikmynd- inni Hvítum máfum og rætt við Valgeir Guðjónsson. aðstoðar- leikstjóra og aðalhandritshöf- und. Hrafnhildur Schram heimsæk- ir Hallgrím Helgason, myndlist- armann, á vinnustofu hans og ræðir við listamanninn um verk hans. Musica Antiqua flytja verk frá endurreisnartímanum í viðeig- andi búningum með dönsum að hætti þeirra tíma. Sonja B. Jóns- dóttir ræðir við tvo úr hópnum, Camillu Söderberg og Snorra Örn Snorrason. Loks verður litið inn á æfingu í Bæjarbíói íHafnarfirði þarsem Leikfélag Hafnarfjarðar var að leggja síðustu hönd á undirbún- ing frumsýningar á Rokkhjartað slær. Leikstjóri er Þórunn Sig- urðardóttir. Síðan voru leikar- arnir fengnir til að flytja laga- syrpu úr verkinu í siónvarossal. Umsjónarmaður Gluggans er sem tyrr Sveinbjörn I. Baldvins- son og upptöku stjórnar Þrándur Thoroddsen. Laugardagur 30. mars 7.00 Veðurfregnir. Fréttir. Bæn. Tónleikar. Þulur velur og kynnir. 7 20 Leikfimi. Tónlrikar. 8.00 Fréttir. Dagskrá. Morgunorð Astríður Haraldsdóttir talar. 8.15 Veðurlregnir. 8.30 Forustugr. dagbl. rútdr.) Tón- leikar. 8.55 Daglegt mál. Endurt. þáttur Valdimars Gunnarssonar frá kvöldinu áður. 9.00 Fréttir. Tilkynningar. Tónleikar. 9.30 Óskalög sjúklínga. Helga Þ. Stephensen kynnir. (10.00 Fréttir. 10.10 Veöurfregnir.) Óskalög sjúklinga, frh. 11.20 Eitthvað fyrir alla. Sigurður Helgason stjórnar þætti fyrir börn. 12.00 Dagskrá. Tónleikar. Tilkynn- ingar. 12.20 Fréttir 12.45 Veðurfregnir. Til- kynningar. Tónleikar. 14.00 Hér og nú. Fréttaþáttur í viku- lokin. 15.15 Listapopp Gunnar Salvars- son. 16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veöur- fregnir. 16.20 Bókaþáttur Umsjón Njörður P. Njarðvik. 17.00 Evrópukeppnin í handknatt- leik Ragnar Örn Pétursson lýsir leik Barcelona og Víkings í Barce- lona. 18.15 Tónleikar. Tilkynningar. 18.45 Veöurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar. 19.35 Á hvað trúir hamingjusam- asta þjóð i heimi? Umsjón: Valdis Óskarsdóttir og Kolbrún Halldórs- dóttir. 20.00 Utvarpssaga barnanna: „Grant skipstjóri og börn hans“ eftir Jules Verne Ragnheiður Arn- ardóttir les þýðingu Inga Sigurðs- sonar (14) 20.20 Harmonikuþáttur Umsjón: Sigurður Alfonsson. 20.50 Sögustaðir á Norðurlandi. Hólar i Hjaltadal. Þriðji og siðasti þáttur. Umsjón: Hratnhildur Jóns- dóttir. (RÚVAK) 21.35 Kvöldtónleikar Þættir úr sí- gildum tónverkum.. 22.00 „Hrakningsrímur“ Hjalti Rögnvaldsson les Ijóðaflokk eftir Jóhannes úr Kötlum. 22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá morgundagsins. Orð kvöldsins. 22.35 Uglan hennar Minervu. Fors- endur og tilgangur laga og réttar. Arthúr Björgvin Bollason ræöir við Garðar Gíslason borgar- dómara. 23.15 Óperettutónlist 24.00 Miðnæturtónleikar. Umsjón: Jón Örn Marinósson. 00.50 Fréttir. Dagskrárlok. Næturútvarp frá RÁS 2 til ki. 03.00. Sunnudagur 31. mars Pálmasunnudagur 8.00 Morgunandakt Séra Hjálmar Jónsson prófastur flytur ritningar- orð og bæn. 8.10 Fréttir. j 8.15 Veðurfregnir. Fofustugr. dagbl. (útdr.). 8.35 Létt morgunlög Ýmsir flytjend- ur. 9.00 Fréttir 9.05 Morguntónleikar a. „Ó kom í hátign, Herra minn,“ kantanta nr. 162 á pálmasunnudegi eftir Jo- hann Sebastian Bach. Anna Reyn- olds, Peter Schreier og Theo Adams syngja meö Bach-kórnum og Bach-hljómsveitinni í Munchen; Karl Richter stjórnar. b. Fíölukons- ert nr. 3 í G-dúr K. 216 eftir Woltgang Amadeus Mozart. Josef Suk leikur með og stjórnar Kamm- ersveitinni í Prag. 10.00 Fréttir. 10.10 Veðurfregnir. 10.25 Stefnumót við Sturlunga Ein- ar Karl Haraldsson sér um þáttinn. 11.00Messa i Breiðholtsskóla Prestur: Séra Lárus Halldórsson. Organleikari: Daniel Jónasson. Há- degistónleikar 12.10 Dagskrá. Tónleikar. 12.20 Fréttir.12.45 Veðurfregnir. Til- kynningar. Tónleikar. 13.30 Glefsur úr íslenskri stjórn- málasögu - Stéttastjórnmálin 1. þáttur. Jónas Jónsson frá Hriflu. Sigríður Ingvarsdóttir tók saman. Lesari með henni: Sigriður Ey- þórsdóttir. 14.30 Frá tónleikum Sinfóníu- hljómsveitar íslands í Háskóla- bíói 28. þ.m. (Fyrri hluti). Stjórn- andi: Arthur Weísberg. a. „Inn- gangur og Atoms l“ eftir Magnús Blöndal Jóhannsson. b. „Þrír staðir á Nýja-Englandi“ ettir Charles Ives. Kynnir: Jón Múli Árnason. 15.10 Varadagskrárstjóri i 46 mín- útur og 39 sekúndur Valgeir Guðjónsson stjórnar dagskránni. (Áður útvarpað i október 1983). 16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veður- fregnir. 16.20 Um visindi og fræði. Vindafl og nýting vindorku. Örn Helga- son dósent flytur sunnudagserindi. 17.00 Frá píanótónleikum í Lúð- víksborgarhöll sl. haust. Alfred Brendel leíkur. a. Sónata í A-dúr op. 2 nr.2 og b. Tilbrigði í Es-dúr op. 35 „Eroica" eftir Ludwig van Beethoven. c. Antante úr ófull- gerðri sónötu í C-dúr eftir Franz Schubért. 18.00 Vetrardagar Jónas Guð- mundsson rithöfundur spjallar við hlustendur. 18.20 Tónleikar. Tilkynningar 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar. 19.35 Fjölmiðlaþátturinn Viðtals- og umræðuþáttur um fréttamennsku og fjölmiðlastört. Umsjón: Hall- grímur Thorsteinsson. 20.00 Um okkur Jón Gústafsson stjórnar blönduðum þætti fyrir ung- linga. 20.50 Hljómplöturabb Þorsteins Hannessonar. 21.30 Útvarpssagan: „Folda" eftir Thor Vilhjálmsson Höfundur les (9). 22.00 Tónleikar 22.15 Veöurtregnir. Fréttir Dagskrá morgundagsins. Orð kvöldsins 22.35 Galdrar og galdramenn Umsjón: Haraldur I. Haraldsson. (RÚVAK) 23.05 Djassþáttur Tómas Einars- son. 23.50 Fréttir. Dagskrárlok. Laugardagur 30. mars 14:00-16:00 Léttur laugardagur Stjórnandi: Ásgeir Tómasson. 16:00-18:00 Milii mála Stjórnandi: Helqi Már Baröason. HLE 24:00-24:45 Listappopp Endurtek- inn þátlur frá rás 1. Stjórnandi: Gunnar Salvarsson. 00.45-03.00 Næturvaktin Stjórnandi: Kristín Björg Þorsteinsdóttir. Rásirnar samtengdar að lokinni dagskrá rásar1. Sunnudagur 31. mars 13:30-15:00 Krydd í tilveruna Stjómandi: Ásta Ragnheiður Jó- hannesdóttir. 15:00-16:00 Dæmalaus veröld Stjórnendur: Eiríkur Jónsson og Þórir Guðmundsson. 16:00-18:00 Vinsældarlisti hlust- enda rásar 3 20 vinsælustu lögin leikin. Stjórnandi: Ásgeir Tómas- son. Laugardagur 30. mars 16.30 íþróttir Umsjónarmaður: Bjarni Felixson. 18.30 Enska knattspyrnan. 19.25 Þytur í laufi Fjórði þáttur. Breskur brúðumyndaflokkur i sex þáttum. Þýðandi: Jóhanna Þráins- dóttir. 19.50 Fréttaágrip á táknmáli. 20.00 Fréttir og veður. 20.25 Auglýsingar og dagskrá. 20.35 Við feðginin Ellefti þáttur. Breskur gamanmyndaflokkur í þrettán þáttum. Þýöandi: Þrándur Thoroddsen. 21.05 Kollgátan Fimmti þáttur spurn- ingakeppninnar - undanúrslit: Aðalsteinn Ingólfsson og Ólafur Bjarni Guðnason. Umsjónarmaö- ur: lilugi Jökuisson. 21.30 Bræðurnir frá Ballantrae (Master of Ballantrae) Ný banda- risk sjónvarpsmynd gerð eftir sam- netndri skáldsögu eftir Robert Lou- is Stevenson. Leikstjóri: Dougias Hickox. Aöalhlutverk: Richard Thomas, Michael York, John Gi- elgud, Finola Hughes og Timothy Dalton. Myndin gerist á 18. öld og er um deilur tveggja skoskra bræöra og ævintýralega atburði sem þær leiöa af sér. Þýðandi: Kristmann Eiðsson. 00.15 Dagskrárlok. Sunnudagur 31. mars 17.00 Sunnudagshugvekja. 17.10 Húsið á sléttunni 19. Sylvía- seinni hluti Bandarískur fram- haldsmyndaflokkur. Þýðandi: Ósk- ar Ingimarsson. 18.00 Stundin okkar Umsjónar- menn: Ása H. Ragnarsdóttir og Þorsteinn Marelsson. Stjórn upp- töku: Andrés Indriðason. 18.50 Hlé. 19.50 Fréttaágrip á táknmáli. 20.00 Fréttir og veður. 20.25 Augiýsingar og dagskrá. 20.40 Sjónvarp næstu viku Umsjón- armaður: Magnús Bjarnfreösson. 20.55 Glugginn Þáttur um listir, menningarmál og fleira. Umsjónar- maður Sveinbjörn I. Baldvinsson. Stjórn upptöku: Þrándur Thor- oddsen. 21.45 Rigolettó ópera í þremur þátt- um eftir Giuseppe Verdi. Ný upp- færsla flutt á ensku af Bresku þjóðaróperunni undir stjórn Jon- athans Millers. Hljómsveitarstjóri: Mark Elder. Hér er sögusvið óper- unnar hverfi ítalskra innflytjenda í New York um miðbik 20. aldar. I stað aðalsmanna í Mantúa á 16. öld, koma mafíuforingjar en Rígo- letto er barþjónn. Aðalhlutverk: John Rawnsley, Marie McLaughl- in, Arthur Davies. John Tomlinson og Malcolm Rivers. Þýðandi: Ósk- ar Ingimarsson. Sjónvarpið hefur tvivegis sýnt Rigólettó áður i hefð- bundnum búningi, 1975 og 1981. 00.15 Dagskrárlok.

x

NT

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.