NT - 15.04.1985, Qupperneq 1
Allir sem einn!
■ „Hífum í brædur allir
sem einn“ gætu verið
einkunnarorð þessarar
myndar af nýkjörnum for-
manni og varaformanni
Sjálfstæðisflokksins, en
bæði Þorsteinn Pálsson
og Friðrik Sophusson
voru endurkjörnir án telj-
andi mótstöðu á 26. lands-
fundi Sjálfstæðisflokks-
ins. Davíð Oddsson fékk
næst flest atkvæði, bæði
við kjör formanns og
varaformanns, staðreynd
sem e.t.v. gefur til kynna
hver sé erfðaprinsinn á
sjálfstæðisheimilinu. Sjá
fréttir af landsfundi á bls.
2.
NT-mynd: Ámi Bjama
107 ára
■ í gær lést á V ífilsstaða-
hæli Jenný Guðmunds-
dóttir frá Vestmannaeyj-
um, en hún var elst íslend-
inga, 107 ára gömul.
Jenný var fædd í Land-
eyjum en fluttist ung til
Vestmannaeyja og bjó þar
allt til eldgossins 1973. Þá
flutti hún til Reykjavíkur
og átti ekki afturkvæmt til
Vestmannaeyja.
Ölvaður ökufantur:
■ Þó áburðarverð liggi fyr-
ir nú á næstu dögum hefjast
flutningar á áburði til bænda
ekki fyrr en samið hefur
verið um greiðslur og er
staða margra þeirra svo slæm
að mönnum er til efs að þeir
geti lagt fram greiðslutrygg-
ingu fyrir áburðinum. Þá er
staða Kaupfélaganna víða
slæm en þau hafa keypt
áburðinn af Áburðarverk-
smiðjunni og selt bændum.
„Við erum ekki búnir að
semja við Áburðarverk-
smiðjuna og ég þori ekki að
segja til um hvernig það
gengur. Það getur svo farið
að sumir bændur fái áburð
og aðrir ekki. Við þurfum að
fá okkar greiðslutryggingu,"
sagði Olafur Sverrisson
kaupfélagsstjóri í Borgar-
nesi, þegar NT innti hann
eftir áburðarkaupum. Ólaf-
ur kvaðst álíta að þeir bænd-
ur sem svo illa væru stæðir
að þeir gætu ekki lagt fram
greiðslutryggingu skiptu
tugum en alls er hálft
fimmta hundrað bænda á
svæði Kaupfélags Borgfirð-
inga. Samkvæmt heimildum
NT er ástandið svipað víðast,
hvar um landið.
Aðspurður kvaðst Ólafur
ekki muna eftir eins slæmri.
stöðu bænda á 27 ára starfs-
ferli sínum hjá Kaupfélög-
um, fyrst á Blönduósi og
síðan í Borgarnesi síðustu
17 árin. Þó hefðu árin 1967
til ’69 verið slæm. í sama
streng tók Þorsteinn Sveins-
son kaupfélagsstjóri á Egils-
stöðum í samtali við NT en
hann á að baki 36 ára feril
hjá Kaupfélögum þar eystra.
Þorsteinn sagði að hann
sæi ekki hvernig kaupfélögin
gætu verið milliliðir í áburð-
arkaupunum við óbreytt
kjör frá í fyrra.
Enn er því óvíst hvenær
áburðarflutningar geta hafist
að einhverju marki en víst er
að margir vildu þegar vera
byrjaðir.
■ Vigdís Finnbogadóttir
forseti íslands á afmæli í
dag. Vigdís er fædd fimm-
tánda apríi árið 1930 og
verður hún því fimmtíu og
fimrn ára í dag.
Lést í gær
Óvíst hvort þeir geti lagt fram greiðslu tryggingu fyrir áburði
Húná
afmæli
Akureyri:
Fimm á
slysadeild
■ Harður árekstur varð á
Drottningarbraut á Akureyri í
gærdag, þegar rákust saman
tvær fólksbifreiðar. Fimm
manns voru í bílunum, og voru
allir fluttir á slysadeild. Ekki er
vitað hversu alvarleg meiðsli
fólksins voru. Bílarnir munu
báðir vera ónýtir, eða hauga-
matur eins og lögreglan orðaði
það.
Stakk af
eftir fjórar
ákeyrslur
■ Ölvaður ökumaður á
tveggja tonna amerískri
drossíu kom víða við í
Reykjavík aðfaranótt
sunnudags því áður en yfir
lauk hafði hann valdið fjór-
Vestmannaeyjar:
Tví-kjálka-
brotinn
eftir árás
■ Maður varð fyrir líkamsárás
í Vestmannaeyjum aðfaranótt
laugardags, þegar hann var að
koma af skemmtistað. Um þrjú
leytið um nóttina fékk lögreglan
tilkynningu um að maður lægi í
götunni á Strandveginum. Þeg-
ar lögreglan kom á staðinn var
maðurinn mjög illa farinn í
andliti, tvíkjálkabrotinn og
blóðugur. Maðurinn var fluttur
til Reykjavíkur til læknismeð-
ferðar á laugardag. Málið er í
höndum lögreglu og er unnið að
rannsókn þess.
um árekstrum og lent í elt-
ingaleik við lögreglu og aðra
ökumenn.
Lögreglunni barst fyrst
vitneskja um manninn þegar
hann lenti í árekstri við
Miklatorg. Maðurinn ók í
burtu af slysstað en annar
ökumaður elti hann og barst
leikurinn vestur í bæ, og var
hraðinn á bílunum allt upp
undir hundrað km. á klst.. í
vesturbænum tókst lögreglu
að króa ökumanninn af í
nágrenni heimilis hans.
I ljós kom að bílstjórinn
var mikið ölvaður og bíllinn
var töluvert skemmdur. Að
sögn lögreglu var hægt að
rekja þrjá árekstra við kyrr-
stæða bíla til bíls þess ölv-
aða, og einn af þílunum,
bílaleigubíll frá Flugleiðum,
má heita ónýtur.
Útlitið er dökkt í íslenskum landbúnaði:
Getur hluti bænda ekki
borið á tunin í sumar?
Ægisíða:
Ung stúlka
fyrir bíl
■ Átta ára stúlka varð
fyrir bíl fyrir utan heimili
sitt á Ægisíðu s.l. laugar-
dagskvöld. Stúlkan var.
flutt á slysadeild þar sem
meiðsli hennar voru at-
huguð, en hún reyndist
lítt meidd. Stúlkan var að
elta hund sem hafði slopp-
ið úr vörslu hennar út á
götuna, og varð hún þá
fyrir bifreiðinni sem kom
akandi úr vesturátt.