NT - 15.04.1985, Side 2
ÍT
Mánudagur 15. apríl 1985
26. landsfundi sjálfstæðismanna lokið:
„Stillt okkar strengi og
styrkt pólitíska stöðu“
- sagði Þorsteinn Pálsson, sem endurkjörinn var
formaður, í lokaorðum um árangur fundarins
■ Landsfundi Sjálfstæðis-
flokksins, hinum 26. í röðinni,
lauk í gærkvöldi og hverfur
hann inn í söguna sem fundur
lítilla átaka, um menn jafnt sem
málefni. „Við höfum stillt saman
strengi og styrkt okkar pólitísku
stöðu,“ sagði Þorsteinn Pálsson
nýendurkjörinn formaður Sjálf-
stæðisflokksins m.a. í lokaorð-
um sínum og talaði um að á
þessum landsfundi hefði tekist
að snúa hinu póiitíska veðurfari
á þann veg að framundan væri
Full eining
um forystu
- segir Friðrik Sophusson
■ „Það er óhætt að slá því
föstu að það ríkir full eining um
forustu flokksins og þessi lands-
fundur hefur sýnt það svart á
hvítu,“ sagði Friðrik Sophusson
nýendurkjörinn varaformaður
Sjálfstæðistlokksins í samtali
við NT í gær, en fyrir fundinn
voru uppi raddir um það að
forustan hefði ekki staðið sig
nægilega vel og því mætti búast
við mótframboðum.
Verkefnaskrá I40ungrasjálf-
stæðismanna, sem sett var fram
í þingbyrjun, var samþykkt með
litlum breytingum og hlaut góð-
ar undirtektir landsfundarins.
Friðrik var spurður álits á þessu
„uppþoti" unga fólksins í Sjálf-
stæðisflokknum. „Ég vil ekki:
kalla þetta uppþot heldur afar
eðlilegar athafnir ungra manna
sem vilja raða í forgangsröð
verkefnum og sýna og sanna að
þeir hafi áhrif í Sjálfstæðis-
flokknum, eins og þeir hafa
alltaf haft.“
- Það hefur heyrst hér hjá
þeim sem eru óánægðir með
stefnuskrána að Sjálfstæðis-
flokkurinn sé orðinn stærsti
framsóknarflokkur þjóðarinn-
ar. Er stefnuskráin ekki nógu
skelegg?
„Ég held að það hafi komið
fram mjög mörg nýmæli á þess-
um landsfundi, sem hefur verið
fundur málefna. Minna hefur
farið fyrir þeim kosningaslag
sem einkennt hefur fundina á
undanförnum árum og hér hafa
verið snarpar umræður um
grundvallarmálefni. “
- Eru sjálfstæðismenn al-
mennt fylgjandi núverandi|
stjórnarsamstarfi?
„Það er ljóst að þingflokkur-
inn stendur að stjórnarsamstarf-
inu og styður stjórnina heilshug-
ar. Það er hins vegar ekkert
leyndarmál að það eru margir
sjálfstæðismenn sem telja að
við ættum ekki að starfa með
Framsóknarflokknum, nema að
framsóknarmenn séu tilbúnir til
að koma verulega til móts við
okkar sjónarmið. Það hefur
komið fram gagnrýni að undan-
förnu um að við höfum verið
heldur linir í samstarfinu, en
þess ber og að geta að sömu
viðhorfa gætir og innan Fram-
sóknarflokksins. Og það hefur
verið miklu harðari gagnrýni
þar á stjórnarsamstarfið, sem
hlýtur þá að þýða, að við höfum
náð einhverjum af okkar málum
fram.“
gróandi í þjóðlífinu. Að lokum
hylltu fundargestir fósturjörð-
ina með fjórföldu húrrahrópi.
Stjórnmálaályktun lands-
fundarins var samþykkt af meg-
inþorra fundarmanna og náðist
full samstaða um innihald henn-
ar en nokkur átök urðu um
ýmsa málaflokka, svo sem land-
búnaðarmál, húsnæðismál og
vaxtamál. Meðal þess sem lagt
er til í ályktuninni er að reynt
verði til þrautar í samstarfi við
samtök launafólks og vinnuveit-
enda að koma í veg fyrir átök á
vinnumarkaði næsta haust og
tryggja þann stöðugleika í efna-
hagslífi sem sé forsenda heil-
brigðrar atvinnustarfsemi. Er-
lend skuldasöfnun verði stöðv-
uð og náð hallalausum utanrík-
isviðskiptum sem fyrst. Áfram
verði dregið úr umsvifum hins
opinbera og stefnt að hallalaus-
um ríkisbúskap og haldið verði
fast við áform um að fella niður
tekjuskatt af almennum launa-
tekjum. Lagt er til að verð-
myndunarkerfi landbúnaðarins
verði endurskoðað frá grunni
og búvöruframleiðslan verði
löguð að markaðsaðstæðum á
næstu árum. Er lagt til að bænd-
um verði auðvelduð sú aðlögun
með uppbyggingu nýrrar arð-
samrar atvinnu og verði varið til
þess hluta fjár sem nú rennur til
útflutningsbóta. Lagt er til að
afnumdar vcrði hömlur á út-
flutningi landbúnaðarvara og
innflutningur á grænmeti og
garðávöxtum verði gefinn frjáls
þegar að innlend framleiðsla
fullnægir ekki eftirspurn. Sigur-
laug Bjarnadóttir frá Vigur
gerði að umtalsefni í tengslum
við stjórnmálaályktunina að þar
væri ekki minnst á þróunina í
launamálum og það misrétti
sem væri við lýði. Vildi hún láta
taka ákvæði um það efni inn í
stefnuskrána en tillögunni var
vísað til miðstjórnar.
140 ungir sjálfstæðismenn
lögðu fram verkefnaskrá fyrir
Sjáifstæðisflokkinn og var hún-
samþykkt óbreytt, eftir að
minniháttar breytingar höfðu
verið gerðar á henni í stjórn-
málaályktuninni en þó er kveðið
fastar að orði um helstu baráttu-
mál flokksins og meðal þpss
sem uneir sjálfstæðismenn vilja
ifá framgengt er að frjálsræðisþró-
un á fjármagnsmarkaði verði
haldið áfram, Ián til kaupa á
eldra húsnæði verði a.m.k. 70%
af nýbyggingarlánum, einka-
rekstri í heilbrigðisþjónustu
verði veitt aukið svigrúm, verk-
takafyrirtæki sitji við sama borð
með varnarliðsframkvæmdir,
einkarekstri í skólakerfi verði
gefið aukið svigrúm og einka-
rekstur Pósts og síma á breið-
bandskerfinu verði afnuminn.
Þá er lagt til að stuðlað verði að
frjálsri verðmyndun með lög-
bundnu banni við hvers kyns
hringamyndun, einokun eða
■ Atkvæðagreiðslan um formannsembættið var aldrei í tvísýnu á
landsfundi Sjálfstæðisflokksins og þegar upp var staðið hlaut
Þorsteinn Pálsson 892 atkvæði af 955 greiddum. Næstur kom Davíð
Oddsson með 20 atkvæði. NT-mynd: Árni Bjama.
samkeppnishömlum en í stjórn-
málaályktuninni segir: Lög
verði sett gegn einokun og
hringamyndun.
í umræðum um atvinnumál
gerði Hörður Einarsson harða
hríð að „einokunarfyrirtækjum
í sölu sjávarafurða“ eins og
hann nefndi þau og beindi eink-
um spjótum sínum að SH og
SÍS. Bar hann fram tillögu um
að frelsi í útflutningi sjávar-
afurða yrði stóraukið, en tillagan
hlaut ekki samþykki landsfund-
arins og mátti heyra á mörgum
þá að þeim þætti lítið fara fyrir
hugsjónum flokksins, um frelsi
einstaklingsins, þegar á hólminn
væri komið.
Kjördæmisþing framsóknarmanna í Reykjavik:
Vaxtalækkun og úrbæt
ur í húsnæðismálum
- meðal áhersluatriða í stjórnmálaályktun
■ Atvinna fyrir alla, dag-
vinnutekjur sem nægi tii fram-
færslu, endurbætur í húsnæðis-
málum, vaxtalækkun, efling
samvinnuhreyfingarinnar og
eyðing tortryggni milli þéttbýlis
og dreifbýlis eru meðal þess
sem sérstök áhersla er lögð á í
stjórnmálaályktun kjördæmis-
þings Framsóknarflokksins í
Reykjavík, sem jafnframt var
aðalfundur framsóknarfélag-
anna í Reykjavík.
í ályktuninni er lögð áhersla
á að launþegar á íslandi beri allt
of lítið úr býtum, þrátt fyrir að
landið sé auðugt og bjóði upp á
gnótt möguleika. Fagnað er til-
lögum félagsmálaráðherra um
úrbætur í húsnæðismálum en
um leið lýst vilja til að ganga
lengra. Lánakerfi verði að
byggja upp þannig að launþegar
þurfi aldrei að verja nema hóf-
legum hluta tekna sinna til að
standa undir húsnæðiskostnaði.
Þá segir að okurvextir sogi til
sín mikinn hluta af tekjum
margra launþega og geri at-
vinnufyrirtækjum ókleift að
greiða mannsæmandi laun.
Var bölvað
klúður...
■ Mikið hefur allaböllum
verið vorkunn þegar launaauki
bankastjóranna komst fyrst á
dagskrá. Hér hafði gamli guð-
faðirinn frá Neskaupstað,
Lúðvík Jósepsson bankaráðs-
maður í Landsbanka gengið á
undan bitlingamönnum ann-
arra flokka í bankaráðum og
gefið stjórum sínum þessar
krónur. Ef frá er talinn Garðar
Vestmannaeyingur Sigurðsson
þá er ekki að sjá að aðrir
fulltrúar alþýðunnar og sósíal-
ismans hafi séð neitt athuga-
vert við framtak Lúlla.
Og svo þefaði NT málið
uppi. Þar á eftir fylgdu öll hin
blöðin fast á eftir, nema eitt.
Þjóðviljinn þurfti heila páska-
helgi til þess að þenkja hvernig
skyldi nú klipið af skömminni,
og komst hjá að móðga guð-
föður sósíalismans í austri.
Loks var birt frétt þar sem
Lúðvík var leyft að komast að
með komment um að þetta
væri nú ekki svo slæmt þó
þetta sé slæmt og margt annað
verra, eða að minnsta kosti
jafn slæmt. Eins og flokks-
bróðir Lúðvíks orðaði það á
Alþýðubandalagsfundi í síð-
ustu viku; „ég rýndi mikið í
einhverja þvælu eftir Lúðvík
Jósepsson bankaráðsmann
sem ég skildi hvorki upp né
niður í.“ Sá sami allaballi var
þá að leita að áliti þingflokks-
ins en í þeim efnum upplýstist
á sama fundi að þingflokkurinn
kom saman vegna þessa strax
laugardaginn fyrir páska og
ræddi málið en hafði ekki kom-
ist að niðurstöðu fyrr en á
mánudag, á annan í páskum.
„Þetta var bölvað klúður,
það vitum við,“ sagði flokks-
formaðurinn þegar hann
skýrði frá vandræðunum.
Nefnd fjallar
um eigin störf
■ Að vísa tillögum til ríkis-
stjórnarinnar er af mörgum
talið það sama og að það eigi
að „svæfa“ þær. Sama mun
vera upp á teningnum með
tillögur sem er vísað til mið-
stjórnar Sjálfstæðisflokksins,
þær fara sjaldnast lengra.
Því þótti það nokkuð skond-
Nú getið þið fengið að vera með líka, strákar
ið á nýafstöðnum landsfundi
Sjálfstæðisflokksins að tillaga
sem góð og grandvör útgerðar-
kona á Akranesi lagði fram,
um að miðstjórn yrði gerð að
virkara stjórnarafli innan
flokksins, var einmitt vísað til
miðstjórnar til umfjöllunar!
Kona þessi vildi einnig sjá hinn
nýkjörna formann í embætti
forsætisráðherra sem fyrst, án
þess að efnt yrði til kosninga
og þá um leið ættu sjálfstæðis-
menn að taka yfir stjórnun
sjávarútvegsmála. Að lokum
taldi hún eðlilegt að þingmenn
Sjálfstæðisflokksins yrðu
skikkaðir í upphafi hvers þings
til að fara í 1/2 mánuð á sjó, til
að kynnast vanda útgerðarinn-
ar, og síðan væri hæfilegt fyrir
þá að vinna í annan 1/2 mánuð
í frystihúsi!
r