NT - 15.04.1985, Side 4
Mánudagur 15. apríl 1985 4
■ Kúluhús Kristjáns Bogasonar hefur vakið athygli i Vest-
mannaeyjum bæði fyrir óvenjulegt útlit og merkilega lágan
kyndingarkostnað. Grunnur hússins sem er um 280 fermetrar,
ásamt veggjum upp í 45 til 90 cm. hæð er steyptur. Yfirbyggingin
er úr timbri, klædd vatnsheldum krossvið og síðan gúmídúk yst.
í húsinu eru nú matvöruverslun og bakarí á neðri hæð en uppi er
Kristján að innrétta 160 fermetra íbúð. NT-myndir: Inga Gísla
Kynding ódýr
■ Vestmannaeyingum stóð
að þessu sinni tii boða að
gera páskainnkaupin í tveim
nýjum verslunum sem þar
voru opnaðar rétt fyrir pásk-
ana. Kristján Bogáson opn-
aði þá matvöruverslun í
kúluhúsinu sínu við Vestur-
veg, sem gengur undir nafn-
inu Kúluhúsið, enn sem
komið er a.m.k. og Bergur
Sigmundsson, bakarameist-
ari opnaði nýtt bakarí -
Kökuhús Villberg - einnig í
kúluhúsinu.
Kristján tók raunar kúlu-
húsið í notkun fyrir um 11
mánuðum undir annarskon-
ar starfsemi. Við á NThöfum
haft spurnir af að kunnugir
hafi undrast lágan kynding-
arkostnað í húsinu þetta
tæpa ár. Kristján kvaðst
kannski ekki hafa hárná-
kvæmar tölur, en heitavatns-
notkunin hjá honum hafi
reiknast um 0,6 tonn af vatni
pr. rúmmetra yfir árið, sem
sé aðeins um þriðjungur af
því sem talin sé meðal heita-
vatnsnotkun.
Kúluhúsið við Vesturveg
er um 1.400 rúmmetrar að
stærð, sem skiptist í 280 fer-
metra á verslunarhæð og 160
fermetra íbúð á efri hæð,
sem ekki er alveg fulllokið.
iímsm d læi
Drekkum mjólk
' Mjólk: Nýmjólk, léttmjólk, eða undanrenna.
Til þess að bein líkamans vaxi eðlilega í œsku og haldi styrk
sínum á efri árum þurfa þau daglegan skammt af kalki.
Mjólkin er ríkasti kalkgjafi sem völ er á. Líkaminn framleiðir
ekki kalk sjálfur en verður að treysta á að daglega berist
honum nœgilegt magn til að halda eðllegri líkamsstarfsemi
gangandi.
99% af kalkinu fertil beina og tanna; hjá börnum og unglingum
til að byggja upp eðlilegan vöxt; hjá fullorðnu fólki til að viðhalda
styrknum og hjá ófrískum konum og brjóstmœðrum til viðhalds
eigin líkama auk vaxtar fóstursins og mjólkurframleiðslu f
brjóstum.
Kalkið gegnir því veigamiklu hlutverki og skortur á því getur haft
slœmar afleiðingar. Algengasta einkennið er beinþynning,
hrörnunarsjúkdómur sem veldur stökkum og brothœttum
beinum auk breytinga á líkamsvexti.
Með daglegri mjólkurneyslu má vinna gegn kalkskorti og
afleiðingum hans, byggja upp sterk bein hjá börnum og
unglingum og viðhalda styrknum hjá fullorðnu fólki.
Afleiðingar
beinþynningar
HÆÐ
140
Helstu heimildir: Bæklinqurinn Kalk og beinþynning efír dr. Jón
Óltar Ragnarsson og Nutrition and Physical Filness. 11. úta..
eftir Briggs og Calloway, Holt Reinhardt and
Winston, 1984.
ALDUR
Hvernig beinþynning ieikur útlitið
A. Eðlileg lögun og eðlileg hœð
B. Bogið bak og minni hœð
C. Herðakistill og enn minni hœð
MJÓLKURDAGSNEFND
Doktor í
eðlisfræði
■ Sverrir Ólafsson hefur lokið doktors-
prófi í fræðilegri eðlisfræði við háskólann í
Karlsruhe í Vestur-Pýskalandi.
í doktorsritgerð sinni, sem ber titilinn:
„Supergravity in six dimensions“ beitir
Sverrir stærðfræðilegum aðferðum til rann-
sókna á eiginleikum öreinda er kunna að
gegna mikilvægu hlutverki í skammtasviðs-
kenningum og í þyngdaraflsfræði.
Eftir stúdentspróf stundaði Sverrir nám í
lífefnafræði við háskólann í Túbingen í
Vestur-Þýskalandi, en síðan í eðlisfræði og
stærðfræði við sama háskóla. Hann lauk
Diplóm-prófi árið 1979.
Frá 1980 stundaði hann framhaldsnám
við háskólann í Karlsruhe en er nú lektor í
hagnýtri stærðfræði við Department of Mat-
hematics við Kings College í London.
Samtökin 78
■ Nýlega eru komnar út tvær bækur, sem
Samtökin 78 eiga hlut að í samstarfi við
félög lesbía og homma erlendis.
Fyrra ritið er: Nordisk Bibliografi: Hom-
oseksualitet. Pað er skrá yfir bækur sem
gefnar eru út á Norðurlöndum og varða
málefni lesbía og homma. Hún er gefin út
með styrk frá Norræna menningarmála-
sjóðnum.
Hin síðari er: IGA Pink Book 1985, eða
bleika bókin. Undirtitill bókarinnar er:
Yfirlit um kúgun og frelsi lesbía og homma
í veröldinni. fbókinni er meðal annarsgrein
eftir Guðna Baldursson þar sem hann segir
að félagslegt misrétti á Islandi sé geysilegt
og að Samtökunum 78 sé kunnugt um
fjölda manna sem hafa misst atvinnu eða
leiguhúsnæði vegna þess að kunnugt varð
um samkynhneigð þeirra.
Niðjamót í
Hróarsdal
■ Niðjar Jónasar Jónssonar bónda og
smáskammtalæknis í Hróarsdal halda niðja-
mót í júlí í sumar og eru væntanlegir
þátttakendur beðnir að hafa samband við
einhverja umsjónarmenn mótsins; Pál í
síma 91-82505, Þórarin bónda í Hróarsdal
og er sími um Sauðárkrók eða Sigurð á
Akureyri í síma 22529.
Mótið verður haldið í Hróarsdal og með
svipuðu sniði og mót sömu ættar 1980. Geta
mótsgestir tjaldað í túninu. Aðalhátíðin
verður laugardaginn 27. júlí.
Vímuefni:
Hvað er það?
■ Komnir eru út tveir upplýsingabækling-
ar um vímuefni á vegum Æskulýðsráðs og
Félagsmálaráðs Reykjavíkur.
Annar er ætlaður unglingum en hinn
foreldrum.
í bæklingunum er að finna ítarlegar
upplýsingar um kannabisefni, róandi vím-
uefni, verkjadeyfandi vímuefni, örvandi
vímuefni, skynvilluefni, lífræn leysiefni og
áfengi.
Fjallað er um helstu einkenni þessara
efna, áhrif þeirra, skaðsemi og neysluvenj-
ur.
Þá eru í bæklingunum tilgreindir þeir
aðilar sem veita fræðslu og aðstoð þeim sem
lenda í erfiðleikum vegna eigin neyslu eða
annarra.
Bæklingunum verður komið á framfæri
við grunnskólana í borginni, félagsmið-
stöðvarnar, Félagsmálastofnun og aðra þá
aðila sem sinna ungu fólki og félagslegri
þjónustu.