NT - 15.04.1985, Page 5

NT - 15.04.1985, Page 5
fíT? Mánudagur 15. apríl 1985 5 lltlí Fréttir Ungir íbúðakaupendur streyma í Gamla- og Vesturbæinn: Yf ir helmingur íbúðakaup- enda undir 33ja ára aldri Fólk yfir 50 ára kaupir nú miklu minni íbúðir en áður ■ Meira en helmingur - 52% - allra íbúðakaupenda á höfuð- borgarsvæðinu á s.l. ári var ungt fólk, 32ja ára eða yngra. Athygli vekur að 4% af öllum seldum íbúðum voru keypt af bráðungu fólki, þ.e. 21 árs og yngra og hafði það hlutfall tvöfaldast hvort sem borið er saman við árið 1982 eða 1980. íbúðakaup- endur í þessum yngsta aldurs- flokki eru hlutfallslega álíka margir eða jafnvel fleiri en í hópi fólks yfir 40 ára að aldri þegar tekið er tillit til fjölda í hverjum aldursárgangi. Petta kemur fram í skýrslu nefndar þeirrar sem unnið hefur að könnun á fasteignamarkaðinum á vegum félagsmálaráðherra. Þá kemur fram að um 4 af hverjum 10 kaupendum í Reykjavík, 32ja ára og yngri hafa keypt íbúðir sínar í Gamla bænum eða Vesturbænum í Reykjavík, en í hópi þeirra sem eldri voru var þetta hlutfall aðeins um 19%. í eldri hópnum völdu aftur á móti 42% að kaupa í Breiðholti og Hraunbæ, jafnframt því sem hverfi eins og: Tún, Teigar, Kleppsholt, Sund, Vogar og Heimar njóta mikilla vinsælda. Stærð íbúða sem fólk kaupir er mjög misjöfn eftir aldri kaup- enda. Athyglisvert er að kaup- endur yfir fimmtugt kaupa sér í auknum mæli litlar íbúðir. Um 70% fólks á þessum aldri sem keypti í fyrra festu sér 3ja herbergja íbúð eða minni, en aðeins 2% einbýlis- eða raðhús, samanborið við um 15% 4 árum áður. Kaupendur á aldrinum 33ja til 50 ára voru hins vegar stórhuga - uni 62% þeirra keyptu 4ra herbergja íbúðireða stærri, en það hlutfall var unt 45% árið 1980. Úr þessum hópi komu og kaupendur að 2 af hverjum 3 einbýlis- og raðhús- um sem seld voru, en afganginn af þeim má segja að keyptur hafi verið af fólki í kringum þrítugt. í hópi 26 ára kaupenda og yngri voru það hins vegar yfir 9 af hverjum 10 sem keyptu 3ja herbergja íbúð eða ntinni, en það hlutfall var 75% árið 1980. Aðeins 1% af þessum ungu kaupendunt keypti sérbýli. Af seldunt íbúðurn á höfuð- borgarsvæðinu á s.l. ári voru um 81% í Reykjavík, urn 11% í Kópavogi og tæp 8% í Hafnar- firði. Athygli vekur að einungis 0,6% af öllum sölunt voru íbúð- ir í Garðabæ eða Seltjarnarnesi, en þar eru þó um 5% allra íbúða á svæðinu. Kaupmannasamtökin and- víg virðisaukaskattinum ■ Fulltrúaráð Kaupmannasam- opinbera, auk þess sem innheimta taka íslands varar við þeim hug- skattsins verði kostnaðarsamari myndum sem uppi eru um að taka fyrir öll fyrirtæki í landinu. upp virðisaukaskatt hér ý landi. Jafnframt telur fulltrúaráð M.a. erbentáaðinnheimtaskatts- Kaupmannasamtakanna að ins muni verulega auka þa þegn- endurskoða beri lög um söluskatt skylduvinnu sem kaupmönnum er með það fyrir augum að einfalda gert að inna af hendi fyrir hið framkvæmd þeirra. ■ Hanna Gunnarsdóttir við eitt verka sinna. NT-mynd: Ami Bjama. Hanna Gunnarsdótt- ir í Ásmundarsal ■ Hanna Gunnarsdóttir opnaði sýningu um helgina á 38 vatnslita- ntyndum í Ásmundarsal, Freyjugötu. Flestar myndirnar eru landslagsmyndir. Eftir nám við Myndjistarskólann í Reykjavík nant Hanna við listaskóla í Bretlandi og Þýskalandi og 1978 lauk hún burtfararprófi í innanhússhönnun frá Cuyahoga College í Ohio. Hún hefur tekið þátt í nokkrum samsýningum erlendis og sýning hennar nú er þriðja einkasýning hennar á íslandi. Verkalýðsfélagið Rangæingur: 10 nýjar íbúðir fyrir aldraða ■ Verkalýðsfélagið Rangæingur hefur ákveðið að láta hanna og skipu- leggja 10 íbúðir fyrir aldraða félags- menn sína á Hvolsvelli og hefur verið sótt um byggingarlóðir í því skyni. Áætlað er að fyrstu húsin verði reist næstkomandi sumar. Verkalýðsfélagið ntun fjármagna íbúðirnar og selja þær fullfrágengnar að utan og innan ásamt lóðum og miðað verður við byggingarkostnað- arverð þeirra. Þá er fyrirhugað að íbúðunum fylgi hagstæð lán. í fréttatilkynningu frá Verkalýðsfé- laginu Rangæingi segir m.a. að gert sé ráð fyrir að íbúðirnar verði seldar einstaklingum og þeir einir hafi heim- ild til þess að kaupa íbúðirnar og búa í þeim sem eru fullgildir félagsmenn Rangæings og orðnir 63 ára. Félagið gerir ráð fyrir frávikum varðandi aldur ef um öryrkja er að ræða. ■ Myndin var tekin við afhendingu heiðursskjalsins. Félag matvörukaupmanna: Heiðruðu Mjólkur- samsölu Reykjavíkur ■ Félag matvörukaupmanna heiðraði nýlega Mjólkursamsöluna í Reykjavík fyrir eindæma góða þjónustu Mjólkur- samsölunnar við kaupmenn. Ólafur Björnsson, formaður Félags matvörukaupmanna, afhenti Guðlaugi Björgvinssyni, forstjóra Mjólkursams- ölunnar, heiðursskjal félagsins með þökkum fyrir góða þjónustu, aukið vöruval og vandaða framleiðslu. í fréttatilkynningu frá Félagi mat- vörukaupmanna kemur fram að aðeins tvö fyrirtæki hafi áður hlotið þessa viðurkenningu, Osta og smjörsalan sf. og Síld og fiskur. Eldvarnafræðslumynd ■ Tveir af starfsmönnum fyrirtækisins 1. Pálmasonar hafa geTt fræðslumynd á myndbandi, þar sem fjallað er um eldvarnir. Meðal þess semmyndintekur á er meðferðhandslökkvitækja,eldvarn- arteppa, reykskynjara og komið er inn á flest það sem almenningur þarf að vita um eldvarnir. Myndin er einkaframtak þeirra Höskuldur Blöndal og Sigurðar Ás- mundssonar. I samtali við NT sögðu þeir félagar að lengi hefði verið á döfinni hjá ýmsum aðilum, að gera mynd sem þessa, en aldrei orðið úr fyrr en nú að þeir tóku af skarið. Ætlunin með gerð myndarinnar er að hún konii til sýningar sem víðast út um land og verði um leið til þess að bæta úr þeirri brýnu þörf sem hefur verið á mynd til fræðslu um eldvarnir fyrir almenning. Myndin tekur um tuttugu mínútur í sýningu. ■ Sigurður t.v. og Höskuldur t.h. hafa gert mynd um eldvarnir upp á eigin spýtur. NT mynd Ari. Heit vínarbrauð beint úr ofninum kl. 14.30 O O afsláttur ÁiV /U millikl. 14.30 og 16.00 Bakaríið Krínglan Stanmri 2

x

NT

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: NT
https://timarit.is/publication/305

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.