NT


NT - 15.04.1985, Síða 10

NT - 15.04.1985, Síða 10
Mánudagur 15. apríl 1985 10 LkX Minning Arngrímur Jóhann Ingimundarson Odda í Bjarnarfirði Fæddur 25. júlí 1920 ' Dáinn 9. mars 1985. Síminn hringdi upp úr hádeg- isverði laugardaginn 9. mars. „Þaö hafa orðið snöggar breyt- ingar hér á heimilinu. Bróöir þinn er ný látinn.“ Með þessum hógværlegu og æðrulausu orðum lét Dísa í Odda mig vita, að maður sinn, hann Addi í Odda, væri allur. Hafði látist af hjartaslagi í örm- um þeirra mæðgna fyrir stundu. Undanfarandi ár var honum að aukast brjóstþyngsli og vanlið- an, en var orðið mun léttara eftir þriggja vikna sjúkrahúss dvöl syðra fyrir nærri mánuði og virtist vera að ná sér að veruleg- um mun. Foreldrar hans voru hjónin á Svanshóli, Ólöf Ingimundar- dóttir og lngimundur Jónsson, og þar ólst Itann upp. A fjórða ári missti hann föður sinn, en móðirin lést 1952. Hún hélt búskap áfram til vorsins 1942 meö aðstoð hálfbróður síns, Ingimundar Grímssonar, er hætti búskap í Reykjafirði til þess aö aðstoða systur sína við að koma börnunutn hennar 7 á legg- Þegar minnast skal bróður síns kemur svo ótal margt upp í hugann. Ekki hvað síst þegar leiðir hafa aldrei skilið til fulls. Eins og viö systkinin öll ólst hann Addi upp við venjuleg sveitarstörf áður en vélaöldin rann upp hér um slóðir. Frameftir aldri var hann létt- ur til gangs og engan sntala- mann þekki ég honum fremri við að yfirvinna fjallafálur í fjárleitum. En eftir langa véla- vinnu og bílaakstur fóru honum að bila fætur auk þess að hann gerðist feitlaginn með aldrinum og þyngdi fyrir brjósti. Gekk þó til allrar vinnu þótt hann hlífði sér nokkuð í vetur. Sem ungur maður var hann með bestu sundmönnum hér um slóðir og tvímælalaust aðal hvatamaður skíðaíþrótta um langan tíma. Var í byrjun árs 1944 á Skíðaskólanum á ísa- firði. Kenndi svo á skíðum og þjálfaði keppendur um áratuga skeið. Var ávallt fararstjóri Strandamanna á skíðamót utan héraðs. Þeir frændur og vinir, Jóhann Jónsson „Strandamað- ur" voru kcppnisfélagar í sundi og á skíðum. Einhver mesta gleðistund lians við íþróttir var þegar hann fór á Skíðalandsmótið á Kolvið- arhóli áriö 1947 er hófst 22. mars með aöeins tvo göngu- keppendur. I 16 km. skíöagöngu hafði Jóhann „Strandamaður" rás- númer 13, en kom langfyrstur í rhark og sigraði auðveídlcga. Ingibjörn Hallbertsson gerði það heldur ekki endasleppt í dagblöðum: „Strandamenn áttu daginn". Síðar á mótinu stóðu þessir tvímenningar sig vel í öðrum keppnisgreinum. Þar syðra voru þeir á vegurn þingmanns Strandamanna, Hermanns Jónassonar, er gladdist yfir árangri þeirra fé- laga og veitti þeim ýmissa fyrir- greiðslu eins og t.d. að láta aka þeim upp að Heklu, sem var þá að taka eina léttasóttina. Þessu stórfenglega undri eld- drottningarinnar sagðist Addi aldrei gíeyrna. Við bræðurnir unnum lengi saman við margvís- leg landbúnaðarstörf og í félags- rnálum. Hann var um tíma suð- ur í Kjósasýslu til að læra rneð- ferð jarðvinnslu á fyrstu árum jarðýtu-innflutnings. Enda var hann einka laginn við véltæki og fyrsti jarðýtustjórinn hér um slóðir og starfaði iengi við slíkt auk þess að aka vörubíl allt fram á liðið sumar. Það var ekki ónýtt að geta leitað til hans þegar heimilisdráttarvélaöldin rann upp. Hann kvæntist 30. des. 1944 Þórdísi Loftsdóttur frá Skarði, en foreldrarhennarvoru Loftur Bjarnason á Hólmavík og seinni kona hans, Helga Jónsdóttir. í fyrstu voru þau á Svanshóli, en 1946 stofnuðu þau úr Svans- hólslandi nýbýliö Odda, þar sem þau hafa búið síðan . Hey- skap hefur fjölskyldan sótt víða t.d. alla leið norðan úr Kald- baksvík og hefur slíkt kostað mikinn aksturogárvekni meðan taðan var þurrkuð. Annars er votheysverkun orðin alls ráð- andi hér um slóðir og þar með nokkuð leikið á þurrklevsis veðurfar. Börn Odda hjóna urðu sex, eða: Erna fædd 11.5 ’45, maður Baldur Sigurðsson. Baldurshaga. Jón fæddur 30.9 '46, kona Þorsteinsína G. Gestsdóttir, Hólmavík. Jóhann Björn fæddur 23.5 '54, sambýliskona Sólveig H. Hall- dórsdóttir, Framnesi. lngi- mundur fæddur 8.10’57, sam- býliskona Þorbjörg H. Haralds- dóttir Garði. Guðjón Hjörtur fæddur 1.8 '63, sambýliskona Signý Hermannsdóttir, Garði. Helga Lovísa fædd 11.1 ’66 unnusti, HaraldurV. Ingólfsson Bæ. Barnabörn Adda og Dísu eru orðin 12. Raunar hafa Erna og Baldur verið í sambýli með Odda-hjónum þótt þau byggðu íbúðarhúsið Baldurshaga í túp- inu í Odda. Addi var um lengri tíma um- sjónar- og afgreiðslumaður við útibú K.S.H. að Kaldrananesi, og einnig hafði hann á liendi mjög lengi umboðssölu í Odda á olíu og bensíni fyrir BP. Við þcssi störf kynntist hann fólki um land allt, sem þarna fór urn til að brynna fararskjótunum, rétta úr bakinu og draga að sér ferskt sveitarloftið. Segja mátti, að heimilið í Odda væri um þjóðbraut þvcra. Þaðan var veitt ýmis þjónusta og t'yrir- greiðsla, auk ríkulegra veitinga án þess að um greiðslu væri að ræða eins og tíðkast ennþá, sem betur fer, víða í hinum af- skekktari sveitum. Er gömul hefð og sterkur menningarþátt- ur. Ekki mun bróöir minn hafa saínað að sér „klinki" né banka- auð. Trúlcga munu þó æðimarg- ir telja sig eiga honuni skuld að gjalda vegna ýmissrar hjálpar og Ijúflegrar fyrirgreiðslu. Hann var íhugull og virtist kotna fátt á óvart. Mjög eftir- tektarsamur og sjóngóður, þaö er að segja fjarsýnn, þótt hann væri farinn að nota gleraugu við skriftir og lestur. Lokadægri sínu skildist manni að hann byggist við innan tíðar, og sterkasta þrá hans var, að slíkt yrði heirna, en ekki á sjúkrahúsi, eða fjarri heimilinu. Þeirrar náðar naut hann eins og upphaflega var greint frá. Hann var mikill félagsmála- maður. Duldi ekki skoðanir sínar, en allra manna sáttfúsast- ur. Ungur gekk hann í Sundfé- lagið Gretti og var í stjórn þess á fjórða áratug og í stjórn H.S.S. um nokkurt skeið. í stjórn K.S.H. í 8 ár, deildar- stjórn og fulltrúi á aðalfundum. Þá var hann all lengi í stjórnum Lestrarfélags Bjarnarfjarðar og Bala og Veiðifélags ' Bjarnar- fjarðarár. Einnig í sóknarnet'nd Kaldrananeskirkju. Um langa hríð og til dauða- dags var hann í stjórnum eftir- greindra samtaka: Búnaðarfélags og Ræktunar- svæðis Kaldrananeshrepps. Sauðfjárræktarfélags Kaldrana- neshrepps. Bílstjórafélags Strandasýslu. Skólanefnd Klúkuskóla og formaður frá 1970. Hann var ávallt fljótur að tileinka sér ýmsar tækninýjung- ar, stundum urn efni fram. Það var aldrei nein lognmolla í kringum hann Arngrím í Odda. Kæri bróðir. Við Inga getum aldrei fullþakkað þér og ykkur margvíslega aðstoð og gott ná- býli. Það var ekki ósjaldan að hringt var uppeftir og spurt hvort við vissum hvað væri á bæjarburstinni. En þar sátu klofvega tveir smásnáðar bað- andi út örmum af stolti yfir að hafa getað skriðið upp bratt járnþakið. Eða þá þegar þú snaraðist í veg fyrir þessa sömu tvíbura, sem ætluðu að sjá hestana hans Jóa á Bakka cr hann var að hýsa, cn Bjarnarfjarðará var í vexti af vorleysingum. Já, svona atvik, og önnur hliðstæð, voru ótal mörg. En verða ekki frekar rakin hér. Við óskum þér Guðs blessun- ar og öllu þínu fólki vottum við innilega samúð. Mundi á Ilóli. Þann 8. mars síðastliðinn fór ég í heimsókn niður í Odda. Skólavikan var liðin oggottsem ■ Margir telja, að heilbrigð- iskerfið verði til þess að ríða velferðarþjóðfélögum Vestur- landa á slig. Sumir sjá þann grænstan, til að sporna við óheillaþróun undangenginna áratuga, að taka upp kerfi einkaspítala og einka-sjtikra- samlaga við hlið ríkiskcrfisins, og muni blessun samkeppninnar þá leiða til ráðdeildar í rekstri án þess að þjónustu Itraki. Þeir hinir sömu gleyma því þá gjarnan, svo sem háttur er ósk- hyggjumanna, að tilraun af þessu tagi hefur verið og er „í gangi" í Bandaríkjunum: Þar lifir einkakerfið á því að ræna hið opinbera; fyrir bjargálna- fólk getur það verið allt að því fjárhagslegur banabiti að fá botnlangakast, eða jafnvel eign- ast barn, og hvergi í veröldinni (nema kannski hér á landi) er gert jafnmikið af sjálfkrafa óþörfum „rannsóknum” á sjúkl- ingum sem leggjast inn á sjúkra- hús með vel-skilgreinda niein- semd sem ekki kallar á annað en staðlaða aðgerð. Sóunin, í þágu læknastéttarinnar, er sem- sagt hvergi meiri en einmitt þar sem samkeppnin er sögð vera mest. Heilsuhringurinn. sem gefur út tímaritið Hollefni og heilsu- rækt, fylgir annarri stefnu: Að gera heilbrigðiskerfið ódýrara með því að fyrirbyggja sjúk- dóma með heilbrigðu lífi og „náttúrlegum" læknisráðum. 1 tímaritinu hafa á undanförnum árum birst margar athyglisverð- ar greinar, sem a.m.k. sumar hverjar hafa vafalaust haft mikil sannindi fram að færa, þótt aðrar kunni að vera vafasamari. Enda um flókin mál að ræða, svo flókin, að læknar og tann- læknar eru yfirleitt engu færari um að ræða þau en leikmenn, nema sérstakir sérfræðingar séu á einstökum sviðum. Enda stendur það enn, sem Vilmund- ur Jónsson landlæknir sagði í frægri grein fyrir 50 árum: „Með allri hógværð verðum við læknar að játa, að gagnvart níu tíundu sjúkdóma stöndum við eins og veðurfræðingar gagnvart veðr- inu,” og „læknar eru á kafi í sjúkdómum, trúa á sjúkdóma, spekúlera í sjúkdómum, rækta jafnvel sjúkdóma og lifa á sjúk- dómum- og hvar stæðu lækn- endranær að setjast niður á þessu gestrisna og veitula heim- ili. Arngrímur var tiltölulega nýkominn af Vífilsstaðaspítala og hann virtist hress og ræðinn. Talið barst að liðnum tíma og hann sagði mér frá frægri för á bílum þvert yfir Trékyllisheiði síðla hausts árið 1961. Þar var fjallagarpurinn Guðmundur Jónasson í fararbroddi en Arn- grímur og fleiri Bjarnfirðingar voru með í för. Hann rifjaði líka upp skíðaferðir um óbyggðir sem hann hafði farið fyrr á árum t.d. niður í Veiði- leysufjörð um svokallað Strýtu- skarð. Það leyndi sér ekki að Arngrími var Ijúft að rifja upp þessa liðnu tíma ekki síst þegar skíðamennskuna bar á góma en á skíðum hefur hann eflaust átt margar sínar bestu stundir. Um hádegisbil daginn eftir var Arngrímur allur. Minning- arnar hrannast upp hjá okkur sem eftir lifum. Ég minnist þessa síðasta fundar okkar. Ég man líka vel þegar hann tók á móti okkur hjónunum hér á hlaðinu í Klúkuskóla fyrir hálfu öðru ári síðan. Þá fannst mér ar og lyfjafyrirtæki ef obbinn af sjúkdómum aðrirenellihrörnun hyrfu af sjónarsviðinu? Að vísu ekki svo illa, því bandarískar kannanir sýna að helmingur sjúkrakostnaðar einstaklings verður að meðaltali á síðustu 3 mánuðum ævi hans. í nýjasta hefti Hollefna og heilsuræktar, sem er nýkomið út, er „bornban" grein Ævars Jóhannessonar um ný viðhorf til sveppasýkingar, sem mjög hefur magnast í kjölfar notkun- ar fúkalyfja. Efni greinarinnar er í stuttu máli það, að fúkalyf drepa allan gerlagróður í melt- ingarfærum manna, bæði góða gerla og slæma, og í kjölfar slíkra lyfjakúra siglir oftar en ekki gersveppurinn Candida al- bicans sem lifir næstum því alls staðar í náttúrunni þar sem hæfilegur raki og hiti er, en uppáhaldsviðurværi hansersyk- ur og sterkja. C. albicans mynd- ar eiturefni í þörmunum, sem berast út í blóðið og geta valdið margvíslegum kvillum - sumir fræðimenn hafa jafnvel leitt að því getum, að eiturefni þessi 52 luku ■ í upphafi haustmisseris hafa eftirtaldir 52 stúdentar lokið prófum við Háskóla íslands. Embættispróf í guðfræði (1) Guðmundur Guðmundsson Embættispróf í lögfræði (4) Bergsteinn Georgsson Georg Kr. Lárusson Gunnar Jónsson Una Þóra Magnúsdóttir Kandidatspróf í viðskiptafræð- um Baldur Pétursson Benóní T. Eggertsson Eyþór Tómas Heiðberg Hallgrímur Tómas Ragnarsson Hjalti H. Hjaltason Jón Grímsson Jón Þorkelsson Margrét Guðjónsdóttir Ólafur Ólafsson Óskar Þórðarson Ottó Leifsson Pétur Vilhjálmsson Sigurður Ingi Margeirsson Skúli Bergmann Garðarsson Þóra Þorvarðardóttir hann strax vera traustvekjandi, hlýlegur og hjálpfús og sú skoð- un mín breyttist ekki á þeim tíma sem okkar leiöir lágu saman. Hann var fæddur á Svanshóli 25. júlí 1920 og þar ólst hann upp. Árið 1944 kvæntist hann eftirlifandi konu sinni Þórdísi Loftsdóttur. Þau stofnuðu ný- býli úr landi Svanshóls sem þau nefndu Odda. Alla tíð hefur verið gestkvæmt í Odda og margir dvalið þar í lengri cða skcmmri tíma ekki síst börn og unglingar. Samheldni fjölskyld- unnar hefur ætíð verið mikil og þar átti Arngrímur ekki minnst- an þáttinn. Þau hjónin eignuð- ust sex börn, sem eru: Erna f. Kandídatspróf í sagnfræði (1) Valdimar Unnar Valdimarsson Kandídatspróf í ensku (1) Neil McMahon B.A.-próf í heimspekideild (7) Anna Soffía Svavarsdóttir Edda Möller Friðný Guðrún Pétursdóttir Ólína Þorvarðardóttir Sigríður G. Björnsdóttir Sigríður Birna Guðjónsdóttir Veturliði Óskarsson Verkfræði- oe raunvísindadeild (14) Lokapróf í rafmagnsverkfræði (3) Óskar B. Hauksson Valur Knútsson Vignir Bjarnason B.S.-próf í tölvunarfræði (3) Björgvin L. Gunnlaugsson Gunnar Halldórsson Trausti Leifsson B.S.-próf í eðlisfræði (1) Birgir Jóhannesson B.S.-próf í jarðeðlisfræði (1) Sigurður Erlingsson 1945, Jón f. 1946, Jóhann Björn f. 1954, Ingimundur f. 1957, Guðjón Hjörtur f. 1963, Helga Lovísa f. 1966. Arngrímur hafði mikil af- skipti af félagsmálum en þau verða ekki öll tíunduð hér. Ég get þess þó að hann var um lengri tíma í stjórn Búnaðarfé- lagsins og Ræktunarsambands- ins hér í hreppnum. Hann var gjaldkeri í Sundfélaginu Gretti um árabil. Hann sat lengi í skólanefnd Klúkuskóla og var formaður nefndarinnar sam- fleytt frá 1970. I skólanefndinni lá hann ekki á liði sínu enda var honum sérlega annt um skólann. Nú er komið að leiðarlokum. Ættingjar og vinir kveðja og syrgja tryggan förunaut. En vor- ið er framundan og „vorið kem- ur að hugga": Blessað veri grasið sem grær kríngum húsin bóndans og les mér Ijóð hans. þrá og sigur hins þögula manns. Blessað veri grasið sem grær yfir leiðin. felur hina dánu friði og von. S.H. Við hjónin vottum öllum að- standendum sarnúð okkar. Bjarki og Þóra B.S.-próf í matvælafræði (1) Elín Guðmundsdóttir B.S.-próf í líffræði (1) Steingrímur P. Stefánsson B.S.-próf í jarðfræði (2) Guðmundur H. Guðfinnsson Viðar Karlsson B.S.-próf í landafræði (2) Elín Erlingsdóttir Kristján M. Baldursson Kandídatspróf í tannlækningum (1) Ingimundur Kr. Guðjónsson B.A.-próf í félagsvísindadeild (8) B.A.-próf í bókasafnsfræði (2) Auðbjörg Guðjónsdóttir Ragna Hafdís Stefánsdóttir B.A.-próf í sálarfræði (2) Reynir Harðarson Valgerður Magnúsdóttir B.A.-próf í uppeldisfræði (1) Hrafnhildur Skúladóttir B.A.-próf í félagsfræði (2) Auðbjörg Nanna Ingvarsdóttir SveinbjörgJ. Svavarsdóttir B.A.-prófístjórnmálafræði (1) Friðrik Þór Guðmundsson Hollefni og heilsurækt geti ruglað ónæmiskerfi líkam-1 ans, en afleiðing slíks er skari alvarlegra sjúkdóma sem menn vita lítil skil á ennþá, jafnvel AIDS og krabbamein. I grein- inni er ítarlega gerð grein fyrir mörgum þáttum þessa máls, þar er skrá yfir einkenni, sem benda til sveppasýkingar, skrá um sjúkdóma, sem læknast hafa við meðferð gegn sveppasýk- ingu, og fáeinar sjúkdómasögur. Mér er persónulega kunnugt um það, að margir læknar van- rækja fullkomlega að mæla með sérstöku mataræði í framhaldi af fúkalyfjakúrum, og einn læknir hefur sagt við mig að það sé „helvítis bábilja" að gagn sé í því eða ástæða til að huga að slíku. Ennfremur þekki ég dæmi. í framhaldi af þessari Hollefna- og heilsuræktargrein. um fólk sem fengið hefur bata af krónískri vanheilsu, astma, harðlífi, exemi, o.fl. eftir að hafa tekið nystatín eða önnur sveppalyf - ég efast því ekki eitt augnablik urn réttmæti margs þess, sem í greininni segir frá. í þessu hefti Hollefna og ■ Vilmundur Jónsson: „Með allri hógværð verðum við lækn- ar að játa, að gagnvart níu tíundu sjúkdóma stöndum við eins og veðurfræðingar gagn- vart veðrinu.“ heilsuræktar (3.-4. tbl. 1984) er margt annað efni, t.d. hring- borðsumræða um lífræna fæðu (makróbíótík), sögur um dásamlegar lækningar með holl- efnum, hnykklækningum og þátttöku í Dale Carnegie- námskeiði, og verður ekki rakið hér. Ritstjóri Hollefna og heilsuræktar er Sigurður Herlufsen, en sími blaðsins er 51775. Sigurður Steinþórsson háskólaprófi

x

NT

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.