NT - 15.04.1985, Blaðsíða 12

NT - 15.04.1985, Blaðsíða 12
DRÁTTARVÉLA DEKK ÝMSAR STÆRÐIR 9 HAGSTÆTT VERD Mánudagur 15. apríl 1985 12 ■ Aðfaranótt laugardags gjöreyðilagðist veitingahús í Madrid í mikilli sprengingu, sem fjöldi hryðjuverkasamtaka hefur lýst sig ábyrgan fyrir. 18 manns létust í sprengingunni sem varð til þess að stór hluti veitingahússins hrundi saman. Það tók lögregluna heilan sólarhring að kanna rústirnar nægjanlega vel til að geta fullyrt um orsök sprengingarinnar en þá staðfestist að hún varð vegna heimatilbúinnar sprengju sem hafði verið komið fyrir á salerni. Símamynd-POLFOTO ÁRMÚLA3 REYKJAVÍK SÍMI 38900 G/obusf (^ém) Áburðardreifarar Allir VICON dreifararnir eru búnir sem hér segír: Stillanleg dreifibreidd, frá 6-12 m. (Dreifir fræi).| Öflugur hrærari'í botni. Hverjum dreifara fylgir reiknistokkurtil nákvæmra útreikninga á áburðarmagni pr. ha. ’Hleðsluhæð er ótrúlega lág, aðeins 90-100 cm. Allir hlutir dreifarans, sem koma í snertingu við. áburðinn eru úr ryðfríu efni. Verð: PS 302 300 lítra kr. 17.700,- PS 602 600 lítra kr. 31.100,- PS 802 800 lítra kr. 34.100.- Hafið samband við sölumenn okkar og tryggið ykkur VICON kastdreifara fyrir vorið. LÁGMCLI 5, SIMI 81555 18 f arast og 82 særast í sprengjuárás á Spáni Hryðjuverkasamtök rífast um ábyrgðina Madrid-Reuter ■ Átján manns fórust og 82 særðust á föstudagskvöld þegar sprengja sprakk í veitingahúsi í Madrid á Spáni. Fjöldi hryðjuvcrkasamtaka hefur lýst ábyrgð á hendur sér vegna tilræðisins en spænska lögreglan telur að líklegustu tilræðis- mennirnir séu samtök öfgasinnaðra mú- hameðstrúarmanna sem kalla sig Jihad (Heilagt stríð) og hafa höfuðbækistöðv- ar í Beirut. Veitingahúsið, sem varð fyrir árás- inni, er vinsælt meðal bandarískra hermanna á Spáni en samtals eru um 12.000 bandarískir hermenn í fjórum herstöðvum á Spáni. Ein þessara her- stöðva er í Torrejon sem er skammt frá veitingastaðnum. Fimmtán Bandaríkja- menn voru meðal þeirra sem særðust en enginn Bandaríkjamaður lést. I yfirlýsingu frá Jihad-samtökunum segir að árásin sé hefndaraðgerð vegna sprengjutilræðis 8. mars síðastliðinn í útborg múhameðstrúarmanna í Beirut Loreío-Reuter. ■ Jóhannes Páll páfi lýsti þeirri skoð- un sinni nú fyrir helgi, einum mánuði fyrir mikilvægar kosningar, að ítalskir kaþólikkar ættu að standa sameinaðir um pólitíska afstöðu sína. Páfinn tilgreindi ekki neinn sérstakan pólitískan fíokk, í þessu ávarpi sínu á fundi með leiðtogum ítölsku kirkjunn- ar, en minntist pólitískrar samstöðu | kaþólikka fyrrum - vísandi til kosning- anna 1948 þegar kristilegir demókratar unnu sigur á kommúnistum og urðu um leið leiðandi afl í ítölskum stjórnmálum. Sagði páfi að kaþólikkum bæri að læra af sögunni og kristnir ítalir yrðu að gera sér Ijósa alvöru þess að þeir tækju ábyrga afstöðu eins og málum væri háttað á Ítalíu í dag. Þessi ummæli páfans fylgja í kjölfar ! deilna innan ítölsku kirkjunnar um það hvort kirkjan eigi að bendla sig opinber- lega við einhvern ákveðinn stjórnmála- flokk. en þá létust að minnsta kosti 92. Lög- reglan einbeitir sér nú að því að rekja símtal talsmanns samtakanna sem hringdi til alþjóðlegrar fréttastofu í Beirut. Áður höfðu spænsk yfirvöld látið í ljós grunsemdir um að sprengjutilræðið kynni að tengjast herferð evrópskra hryðjuverkamanna gegn Nato sem hef- ur komið fram í sprengjutilræðum þeirra í mörgum evrópskum borgum. einingu Þetta eru fyrstu beinu afskipti páfans af ítölskum stjórnmálum síðan kirkjan háði árangurslausa baráttu gegn ítölsku fóstureyðingarlöggjöfinni árið 1981. Eftir að yfirgnæfandi meirihluti ítala kaus að halda fóstureyðingum löglegum hafa páfinn og Vatíkanið haft hljótt um sig á vettvangi ítalskra stjórnmála. Kristilegir demókratar gera sér vonir um að vinna fylgi af vinstri mönnum í væntanlegum borgar- og sveitarstjórn- arkosningum í næsta mánuði og hafa nokkrir kardínálar þegar lagt þeim lið í baráttunni með yfirlýsingum um vanda- mál Rómar og Bologna sem kommúnist- ar ráða. Páfinn sagði að kristin viðhorf hefðu alltaf gegnt miklu hlutverki í ítalskri sögu á Ítalíu nútímans væru ýmsir „af-kristnandi“ þættir orðnir ríkjandi, svo sem fóstureyðingar, skilnaðir og hnignun hinnar hefðbundnu fjölskyldu en breyting á þeirri þróun gæti á hinn bóginn haft kristileg áhrif á pólitíkina. Bangladesh: Froskaútflutningur bannaður Dhaka-Reuter ■ Stjórnvöld í Bangladesh hafa bannað tímabundið allar veiðar og útflutning á froskum í von um að slíkt verði til þess að þeim fjölgi. Froskarnir eru sagðir mikilvægir fyrir landbúnað í Bangladesh þar sem þeir háma í sig skordýr sem leggjast á uppskeru bænda og eyðileggja hana. Náttúruverndarmenn hafa áhyggjur af því að mikill útflutningur á froska- löppum raski náttúrujafnvæginu í Bangladesh. Bangladeshmenn hafa að undan- förnu flutt út froskalappir af um 70 milljón froskum, en nú mun mikil og sívaxandi eftirspurn eftir froskalöpp- um á sælkeramörkuðum heimsins. Ef froskarnir hefðu verið látnir í friði segja náttúrufræðingar að þeir hefðu étið yfir 100 tonn af skordýrum á hverjum einasta degi og þá sérstak- lega moskítóflugum sem froskum finnst einstakt lostæti. Froskaveiðibannið mun gilda í fjóra mánuði og er því ætlað að gefa froskunum frið til að eðla sig og tímgast í friði fyrir veiðimönnum. Páfastóll boðar

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.