NT - 15.04.1985, Blaðsíða 21
Ætlarþú tíl útlanda ísumar?
Einn íslenskra banka býður Búnaðarbankinn Visa ferðatékka í
portúgölskum escudos frá Banco Pinto & Sotto Mayor í Portúgal
og ferðatékka í ítölskum lírum frá Banco di Roma.
Við bjóðum einnig:
Visa ferðatékka í Bandaríkjadollurum,
sterlingspundum, frönskum frönkum
og spönskum pesetum.
Ferðatékka í vestur-þýskum mörkum
frá Bank of America og ferðatékka í
Bandaríkjadollurum frá American Express.
VISA greiðslukort til afnota innanlands og utan.
Verið velkomin í bankann. Starfsfólk gerir sitt ýtrasta til að
veita skjóta og örugga þjónustu í öllum viðskiptum.
BÚNAÐARBANKIÍSLANDS
TRAUSTUR BANKI
Holland:
Ajax efst
Frá Reyni Þór Finnbogasyni, fréttaritara NT í
Hollandi:
■ Forysta Ajax í hollensku 1.
deildinni er enn fjögur stig eftir
leiki 26. umferðar, sem leiknir
voru í gær. PSV, sem er í öðru sæti,
hefur 40 stig og hefur auk þess
leikið einum leik fleira en Ajax.
Go Ahead Eagles-Ajax 0-2
Ajax átti ekki í neinum vandræð-
um með að vinna Go Ahead, þótt
svo liðið væri langt frá sínu besta
og fjóra fastamenn vantaði í liðið.
Fyrstu fimm mínútur leiksins átti
heimaliðið fjölda tækifæra, en síð-
an ekkert hinar 85 mínúturnar.
Strax á 11. mínútu skoraði Bosma
fyrra mark Ajax og de Wid skoraði
hið síðara á 71. mínútu.
PSV-Haarlem 7-1
PSV var búið að búa sig undir
öfluga mótspyrnu, en í hálfleik var
staðan orðin 4-0. Bhomemer skor-
aði tvö, en van der Kerkhof og van
der Pejp eitt. í seinni hálfleik skoraði
Valke og Brylle skoraði tvívegis
fyrir PSV. Inn á milli læddi Kheu
inn marki fyrir Flaarlem.
Önnur úrslit urðu þessi:
Sittard-Nac.....................7-2
Roda JC-Twente .................5-1
Volendam-Zwolle ................2-1
Utrecht-Sparta..................1-0
Groningen-Excelsior.............2-0
Leikjum Feyenoord og Maastricht og den
Bosch og AZ ‘67 var frestað.
Staðan er þá þessi:
Ajax 25 20 4 1 73-26 44
PSV Eindhoven 26 15 10 1 68-23 40
Feyenoord 24 16 5 3 69-33 37
Groningen 25 13 7 5 43-24 33
Sparta 25 11 6 8 35-42 28
■ Atli Eðvaldsson ncfbrotnaði á
fyrstu mínútunum í leiknum gegn
Stuttgart. Atli var þó gallharður eins
og hann er vanur, og lauk leiknum
sem ekkert væri. Verst með þetta
netta nef...
Staðan:
Bayern ... 27 16 7 4 63 34 39
Bremen ... 26 14 8 4 69 40 36
Gladbach . .. 26 13 6 7 64 38 32
Hamborg ... 25 11 8 6 46 36 30
Bochum ,... 26 10 9 7 43 37 29
Köln 13 3 10 49 44 29
Úrdingen .... 26 11 6 9 47 41 28
Stuttgart .... 27 12 4 11 39 47 28
Mannheim .... 25 9 9 7 35 38 27
Schalke . ... 26 10 6 10 49 51 26
Leverkusen ....... .... 27 8 7 10 41 40 25
Frankfurt 27 8 9 10 51 56 25
Kaiserslautern ... .... 24 7 8 8 30 43 23
Dortmund .... 25 10 2 13 39 48 22
Diisseldorf . ... 26 6 7 13 42 57 19
Bielefeld .... 27 4 11 12 32 53 19
Brunschweig .... .... 26 7 2 17 30 61 16
Karlsruher .... 26 3 9 14 34 69 15
Mánudagur 15. apríl 1985 21
íþrattir
V-þýska knattspyrnan:
Bremen í uppsveif lu
Frá Guðmundi Karlssyni fréttamanni NT í Þýska-
landi:
■ 27. leikdagurinn var leikinn hér í
V. Þýskalandi um helgina. Tveir
leikir féllu niður, Dortmund gegn
Mannheim og Urdingen gegn Hamb-
urger, þannig að Lárus fékk frí um
helgina.
Atli Eðvaldsson og félagar færðust
nær botninum og mega nú taka sig á
ef ekki á illa að fara.
Bremen-Gladbach 2-0:
Rudi Völler sem varð 25 ára á
laugardaginn, stóð upp í búnings-
klefanum eftir leikinn, lagði íþrótta-
töskuna á góflið og sagði: „Nú verð-
um við að ná í þrjú stig gegn Köln og
Bochum, þá eigum við möguleika á
titlinum.“ Skömmu áður hafði Brem-
en lagt Gladbach með tveimur mörk-
um gegn engu. Besti maður vallarins:
Rudi Völler. 40.800 áhorfendur sáu
spennandi og skemmtilegan leik.
Fyrsta háiftímann var Gladbach
sterkara liðið en Bremen varðist vel
og sneri síðan leiknum sér í hag. 44.
mínúta: Fyrirgjöf frá Hermann á
Völler sem skallaði boltann óvaldað-
ur í netið, lfkmark kappans á tímabil-
inu. Úrslitin réðust síðan í seinni
hálfleik er Bremen fékk tvö víti. Pað
var þó sýnd veiði en ekki gefin því
markvörður Gladbach varði þau
bæði. Eftir seinna vítið náði Meyer
hinsvegar frákastinu og skoraði. 2-0
og þar við sat þrátt fyrir góðar
tilraunir Gladbach. Uli Súde mark-
vörður Gladbach var að vonum
svekktur eftir leikinn. Hann hefur
áður varið tvö víti, þá gegn Köln.
Hann sagðist nú vona að Bremen
yrðu meistarar því hann væri orðinn
leiður á geislabaugnum á „Lattek-
klíkunni".
Þjálfari Gladbach hefur hótað að
láta sekta markvörðinn fyrir þessi
ummæli.
Stuttgart-Dússeldorf 5-2:
Frá sjónarhorni Atla Eðvaldssonar
hófst leikurinn vægast sagt illa. Á
fyrstu mínútunum lamdi Maurer með
olnboganum ofaná nefið á Atla svo
það brotnaði. Atli harkaði þó af sér
og lék með allan tímann. Buchwald
náði forystunni fyrir Stuttgart eftir 23
mínútur en Bernd Förster jafnaði
með sjálfsmarki. Bommer átti svo
fjögur dauðafæri fyrir leikhlé en þrjú
þeirra varði Roleder og einu sinm
skaut hann framhjá fyrir opnu marki.
Staðan var 1-1 í hálfleik en sanngjarnt
hefði verið 4-1 fyrir Dússeldorf. í
upphafi seinni hálfleiks átti Dusend
tvö góð færi en Roleder varði vel.
Bernd Förster bætti svo fyrir mistökin
og skoraði með þrumuskoti af 25
metra færi. Buchwald og Reichert
bættu mörkum við og staðan orðin
4-1. Bommer náði að minnka muninn
4-2 en Allgöwer setti punktinn yfir
i-ið með fimmta markinu. Það er
erfitt að segja að úrslitin hafi ekki
verið sanngjörn, með svona miklum
markamun, en ég ætla samt að segja
það með tilliti til fyrri hálfleiksins. í
samtali við NT sagði Atli að hann
væri bara hress þrátt fyrir slæmt gengi
að undanförnu og mikilvægast væri
að halda haus í næstu tveimur leikj-
um, sem báðir eru heimaleikir og ná
þremur stigum út úr þeim. Aðspurður
um næsta leiktímabil sagðist hann
vera opinn og jákvæður fyrir öllum
boðum en línurnar í þessum málum
myndu skýrast um mánaðamótin.
Bayern-Schalke 3-0:
Eftir slakan leik í vikunni gegn
Everton sýndu Bayarar hvað í þeim
býr gegn slöku liði Schalke. Þrátt
fyrir mýgrút af færum voru aðeins
skoruð þrjú mörk en þeir Nachtwih,
Wilmer ogWohlfarthsáuum þau.
Köln-Frankfurt 2-0:
í mjög slökum leik sigruðu Kölnar-
búar gegn áhugalausum leikmönnum
Frankfurt. Mörk Kölnar skoruðu
Bein og Engles.
Braunschweig-Leverkusen 0-2:
Þetta var fyrsti útisigur Leverkusen
á tímabilinu og hann kom á réttum
tíma. Mörkin skoruðu Schlegen og
Waas.
Kaiserslautern-Karlsruher 3-1:
Með mörkum frá Thomas Allofs,
Brehme og Trunk í fyrri hálfleik
gerði Kaiserslautern út um leikinn.
Gúnter skoraði mark Karlsruher.
Bielefeld-Bochum 2-3:
Bielefeld tapaði þarna mikilvægum
stigum í fallbaráttuninni. Mörk Biel-
efeld skoruðu Rautiainen og Foda en
mörk Bochum gerðu Woelk, Beletelli
og Fischer sem nú hefur gert 14 mörk
í deildinni.
Markahæstu menn í Þýskalandi
eru nú þessir:
Rudi Völler, Bremen................... 19
Karl Allgöwer, Stuttgart............ 17
Klaus Allofs, Köln.................... 16
Táuber, Schalke ...................... 15
Urslitin í vestur-þýsku 1. deildinni
urðu þessi:
Brunschweig-Leverkusen................0-2
Bielefeld-Bochum......................2-3
Bayern M-Schalke......................3-0
Köln-Frankfurt........................2-0
Kaiserslautern-Karlsruhe..............3-1
Stuttgart-Diisseldorf.................5-2
Bremen-Gladbach ......................2-0