NT - 15.04.1985, Page 22
1 !E Mánudagur 15. apríl 1985 22
L í þrótt i r
Franska knattspyrnan:
Nantes dró á
■ Nantes dró heldur á Borde-
aux í baráttunni um franska 1.
deildar meistaratitilinn í knatt-
spyrnu um helgina. Þá sigraði
Nantes Strassborg á útivelli 3-1,
en Bordeaux gerði 1-1 jafntefli
við Sochaux á útivelli.
Jose Toure gerði tvö marka
Nantes og Pierre Morice hið
þriðja en Eric Pecout skoraði
fyrir heimamenn.
Önnur úrslit í 1. deild urðu
þessi:
Laval-Toulon ................... 1-0
Marseilles-Auxerre.............. 1-1
Metz-Tours...................... 1-1
Monako-Lille ... 6-1
Racing-Paris-Brest 3-0
Lens-Bastia 3-0
Toulouse-Nancy . 1-0
Rouen-Paris-S.G. 0-1
Franski landsliðsmaðurinn
Bruno Bellone skoraði þrennu í
sigri Mónakó liðsins, en Daniel
Bravo, Philippe Anziani og
Abdallan Liegeon gerðu eitt
mark hver.
Staða efstu liða er nú þessi:
Bordeaux 32 22 8 3 62-23 61
Nantes 32 20 6 6 52-27 46
Auxerre 32 16 9 8 47-36 39
Toulon 32 17 6 10 39-30 39
Monaco 32 14 10 8 53-26 38
Metz 32 15 8 9 41-40 38
Forskoðun kynbótahrossa á
Suðurlandi, vorið 1985
6. maí Vík í Mýrdal kl. 16.
7. maíKlausturkl. 10 Álftavere.h. Eyjafjöll s.p.
8. maí Hrunamannahreppur kl. 10 Gnúp-
verjahreppur kl. 18.
9. maí Biskupstungur kl. 10 Skeiða-
hreppur kl. 16.
10. maí Bjarnastaðir kl. 10 Laugardalur
kl. 15.
17. maí Gunnarsholt kl. 14
20. maí Rangárvallasýsla austanverð.
21. maí Rangárvallasýsla utanverð Lands-
sveit.
22. maí Stokkseyri, Eyrarbakki frá kl. 10 f.h.
Þorlákshöfn kl. 17.
23. maí Selfoss kl. 09 Hveragerði kl.18
24. maí Kjós kl. 10 Varmá kl. 14.
28. maí Víðidalur kl. 10 Stóðhestar og afkvæma-
hross kl. 17 hryssur 4.v.
29. maí Víðidalur kl. 10 hryssur 5 vetra og
eldri.
30. maí Hafnarfjörður og Garðabær kl. 09.
Keflavík kl. 17.
31. maí Kópavogur kl. 10.
Skráningareyðublöð fylgi hverju hrossi, sem til
forskoðunar kemur, ítarlega og rétt útfyllt og
nafnnúmer séu rituð með mannanöfnum vegna
tölvufærslu. Þau fást hjá formönnum hestamanna-
félaga og á skrifstofum búnaðarsambanda.
Hart verður gengið eftir að þau plögg séu
vandlega færð. Lágmarkseinkunnir til þátttöku
kynbótahrossa á fjórðungsmót (sama gildir fyrir
stóðhesta og hryssur) eru:
6. vetra og eldri aðaleinkunn 7.90
5 vetra aðaleinkunn 7.80
4 vetra aðaleinkunn 7.70
Afkvæmahross aðaleinkunn 7.70.
Atriði er varða hópsýningu ræktunarbúa:
1. Hver hópur telji 8-10 hross
2. Þau séu öll iðjar sama forföður eða formóður
3. Þau hafi öll fæðst á sama búi, sem telji minnst 30
hross þar af 10 hryssur tamdar og góður hluti af
kynbótahrossum hafi verið ættbókarfærður.
Hrossin þurfa síðan ekki að vera öll í eigu sama
ræktunarmanns þegar þau eru sýnd.
Hafið hrossin rétt og eðlilega járnuð og hófhlífar
notist ekki nema þegar leggja skal til skeiðs.
Búnaðarfélag íslands.
Hrossaræktarráðunautur.
■ Atli Erlendsson, sigurvegari í kata karla og kumite karla í 73 kg flokki ábúðarmikill í keppninni um helgina. Menn þurfa
líka að taka hlutina alvarlega til að vinna tvenn gullverðlaun á íslandsmóti. NT-mynd: Róbcrt
Fyrsta íslandsmótið í karate:
Atli sigraði tvöfalt
■ Fyrsta íslandsmeistaramótið í kar-
ate var haldið á laugardag í íþróttahús-
inu Ásgarði í Garðabæ. Atta félög
sendu keppendur til mótsins, þar af tvö
í fyrsta skipti. Karatedeildin á Hvols-
velli og á Álftanesi. Keppendur voru
um 60 og var þetta því stærsta og
veglegasta karatemót, sem haldið hefur
verið á Islandi. Fjöldi áhorfenda fylgd-
ist með mótinu, eða vel á þriðja
hundrað.
í karate er keppt í tveimur flokkum,
kata og kumite. Kata eru skylduæfing-
ar, þar sem keppendur keppa ekki hvor
við annan heldur sýna æfingar. í kumite
er aftur á móti um keppni í bardaga að
ræða.
Úrslit mótsins urðu þessi:
Kata unglinga
1. Narfi Stefánsson, Þórshamar 18,8
2. Móris Jochumsson, Þórshamar 18,0
3. Kristjana Sigurðardóttir, Gerpla 16,2
Kata kvenna
1. Jónína Olesen, KFR 22,6
2. Krístín Einarsdóttir, Gerpia 21,4
3. María Stefánsdóttir, Stjarnan 18,9
Kata karla
1. Atli Erlendsson, KFR 24,6
2. Árni Einarsson, KFR 24,4
3. Karl Gauti Hjaltason, Þórshamar 23,4
Kumite kvenna
1. Jónína Olesen, KFR
2. Elín Eva Grímsdóttir, Þórshamar
3. Sigrún Guðmundsdóttir, Þórshamar
Jónina sigraði með yfirburðum, en að öðru leyti
var barátta jöfn og tvísýn í þessum flokki. Þurfti
að framlengja tvær keppnir vegna jafnteflis.
Kumite karla, þyngdarflokkar.
Undir 65 kg.
1. Árni Einarsson, KFR
2. Karl Sigurjónsson, Þórshamar
3. Vincente Carrasco, KFR
Undir 73 kg.
1. Atli Erlendsson, KFR
2. Sigurjón Gunnarsson, KFR
3. Bjarni Kristjánsson, KFR
Undir 80 kg.
1. Jóhannes Karlsson, KFR
2. Víkingur Sigiu-ðsson, Þórshamar
3. Gísli Klemensson, Þórshamar
Sigur Jóhannesar kom allmjög á óvart.
Yfir 80 kg.
1. Ævar Þorsteinsson, Breiðablik
2. Karl Gauti Hjaltason, Þórshamar
3. Magnús Blöndal, Þórshamar
Opinn flokkur (óháð þyngd).
1. Ævar Þorsteinsson
2. Atli Erlendsson
3. Árni Einarsson
Þessir þrír, ásamt Karli Gauta Hjaltasyni, eru
keppnisreyndastir og kom frammistaða þeirra á
mótinu þvi ekki á óvart.
Dómarar á mótinu voru Stefán Al-
freðsson, Helgi B. Magnússon. Sigþór
Markússon og Andrés Hafliðason.
Reynsluleysi háði dómurunum nokkuð
og hlýtur það að vera eitt af forgangs-
verkefnum Karatesambands íslands að
þjálfa upp dómara.
Argentína
ÖLLU FRESTAÐ
- vegna morðs á áhorfendapöllum
Lattek gegn
Beckenbauer
Frá Guðmundi Karlssyni, fréttamanni NT í
V-Þýskalandi:
■ Eftir leik Bayern gegn
Everton í Evrópukeppni bikar-
hafa um daginn sagði Franz
„keisari“ Beckenbauer lands-
liðsþjálfari Vestur-Þjóðverja að
þaö hefðu verið rnistök að leika
með aðeins tvo menn á miðj-
unni, það hefði einfaldlega ver-
ið of lítið gegn Everton. Þegar
Lattek var spurður um þessi
ummæli landsliðsþjálfarans,
sagði hann: „Beckenbauer hlýt-
ur að hafa verið á öðrum leik,
því við lékum með þrjá menn á
miðjunni. Þó v-þýska landsliðið
hafi unnið Möltu 6-0 þá þarf
hann ekki að vera svona stór
uppá sig. Hann gerir okkur
þjálfurum í deildinni erfitt fyrir
með sífelldum yfirlýsingum
sínum. Hann ætti að hugsa fyrst
hvað hann segir því fólk trúir
honum eins og nýju neti.
Kanada lagði Haiti
■ Kanada sigraöi Haiti 2-0 í milliriöli
undankeppni HM í knattspyrnu á laug-
ardag. Igor Vrablic skoraði fyrra mark-
ið á 30. mínútu, hans sjötta mark í níu
landsleikjum. Rótt fyrir hálfleik bætti
Ken Garroway síöara markinu við.
Brighton vann County
■ Tveir lcikir fóru fram í ensku
dcildakcppninni í gær. Noits Cuunty
tapaði 1-2 fyrir llrighlon á hcimavclli í
2. dcild, og í þcirri 3. sigraöi Doncastcr
York 3-0.
■ Öllum knattspyrnuleikjum í fyrstu
deildinni í Argentínu var frestað um
helgina vegna mikilla átaka milli áhang-
cnda tveggja liða fyrir viku. 14 ára
gamall drengur var þá skotinn til bana
er hann var að yfirgefa leikvöll Inde-
pendiente og 20 særðust í átökunum.
Um 500 manns voru handteknir.
Nágrannaliöin Independiente og
Boca Juniors áttust þá við og var
heimaliðið yfir 1-0 er knettinum var
spyrnt upp í áhorfendastæðin. Ungur
áhangandi Boca neitaði að kasta knett-
■ Heimsmethafinn Calvin Smith frá
Bandaríkjunum varð að láta sér lynda
annað sæti í 100 m hlaupi á frjáls-
íþróttamóti í Port of Spain í Trínidad
á laugardag. Smith hlaut tímann 10.29
sek., og var þremur hundruðustu úr
sekúndu á eftir Kanadamanninum Ben
Johnson. Desai Williams, landi John-
sons varð þriðji á 10.34 sek.
Joaquim Cruz frá Brasilíu sigraði í
1500 m hlaupi á 3:36,81 mín. Steve
inum aftur inn á völlinn og trylltist þá
lýðurinn. Leiknum var aflýst er sex
mínútur voru til loka hans.
Öðrunt leik í deildinni var frestað
þennan sama dag vegna óláta fyrir
leikimi. Dómari aflýsti leiknum er í ljós
kom að girðingar í kringum völlinn
höfðu sums staðar verið brotnar niður.
Áhorfendur undu úrskurði dómarans
illa og grýttu hann, en dómarinn meidd-
ist ekki. Þar skarst einnig í odda milli
áhorfenda, en enginn meiddist né var
handtekinn.
Scott, Bandaríkjunum varð annar og
Mike Boit frá Kenya þriðji.
Bandaríski grindahlauparinn Edwin
Moses hætti við þátttöku á síðustu
stundu og bar við að hann væri í svo
lélegri þjálfun. „Ég þori ekki að keppa
svona illa á mig kominn, þar sem ég
hefði auðveldlega getað meiðst,“ sagði
Moses. „Væri ég tvítugur en ekki 29
ára hefði ég hins vegar eflaust verið
með.“
Frjálsar íþróttir:
Smith aðeins annar