NT


NT - 23.04.1985, Síða 1

NT - 23.04.1985, Síða 1
Miðstjórnarfundur Framsóknarflokksins: Róttækar tillögur um nýsköpun atvinnulífs - og lausná ■ Niðurfelling aðflutnings- gjalda og söluskatts af stofn- kostnaði, tekjuskatts í 5 ár og uppbygging útflutnings- lánakerfis eru meðal tillagna Framsóknarflokksins um áframhaldandi sókn á sviði nýsköpunar atvinnulífsins, en miðstjórnarfundurflokks- ins var haldinn í Reykjavík um helgina. Nýsköpun atvinnulífsins, húsnæðismál og stjórnarsam- starfið voru meðal helstu um- ræðuefna á fundinum um helgina og er stjórnmála- ályktun fundarins birt á bls. 12 í NT í dag. „Parna komu fram mjög athyglisverðar tillögur um lausn á húsnæðisvandanum,“ sagði Steingrímur Her- mannsson, formaður flokks- ins og forsætisráðherra, á blaðamannafundi í gær. Til- lögur flokksins í húsnæðis- málum eru birtar í heild á bls. 13 í NT í dag. Stjórn flokksins varendur- kjörin á fundinum. Stein- grímur Hermannsson sem formaður, Guðmundur Bjarnason, sem ritari hlaut mjög glæsilega kosningu, og GuðmundurG. Þórarinsson, gjalderi. Varastjórnin var einnig endurkjörin. í framkvæmdastjórn flokksins var ein breyting. Valur Arnþórsson, kaupfé- lagsstjóri, var kosinn í stað Þorsteins Ólafssonar, fram- kvæmdastjóra. Sjá nánar bls. 12-13. Heiti lækurinn: til lögreglu ■ Fjórir ungir menn komu í ar á sunnudagsmorgun fremur húsnæði rannsóknarlögreglunn- illa til reika. Þrír drengjanna voru svo til allsnaktir og sá fjórði var íklæddur gallabuxum einum fata. Þegar farið var að grafast fyrir um aumlegt ástand drengj- anna kom í ljós að þeir höfðu farið í næturbað í heita læknum í Nauthólsvík. Föt sín læstu þeir inni í bílnum til varðveislu á meðan þeir tóku sér baðið. Að afloknu baðinu hugðust þeir fara í fötin aftur en þá hafði afturrúða bifreiðarinnar verið brotin upp og flest allur fatnað- urinn horfið ásamt sambyggðu útvarps- og sterío-tæki. Dreng- irnir lögu því leið sína til lög- reglunnar og sögðu sínar farir ekki sléttar. Eitthvað var meira um þjófaði við heita lækinn um helgina og hurfu veski og annað lauslegt. Togarinn KlakkurVE-103: Fimm tilboð í togarannJúní ■ Borist hafa flmm tilboð í togarann Júní frá Hafnar- firði að sögn Einars I. Hall- dórssonar, bæjarstjóra í Hafnarfirði. „Viðræður eru nú í fullum gangi við tilboðs- aðila og óvist er hvenær endanleg ákvörðun verður tekin um söluna“ sagði Ein- ar. Ekki vildi bæjarstjóri tjá sig um uppá hvað tilboðin hljóðuðu eða hvort þau þættu „góð" eða ekki. „Mál- in eru á viðkvæmu stigi,“ sagði Einar I. Halldórsson. ■ 11.000 Volta spennan var „þeim gráa fress“ ofraun. NT-invnd: Kirhallur ■ ■ ■ U ■ kattar sem var heldur spenntur Staðinn að ólöglegum veiðum á Selvogsbanka Vestmannaeyjatogarinn Klakkur VE-103 var staðinn að meintum ólöglegum togveiðum á lokuðu svæði á Seivogsbanka í gærmorgun. „Ég stóð í þeirri trú að ég væri ekki að ólöglegum veiðum og stend á því enn,“ sagði Haraldur Benediktsson skipstjóri Kollafjarðarstöðin: Skera niður seiði fyrir 8 milljónir ■ Hafinn er niðurskurður á tveimur milljónum seiða sem klakið var í laxeldisstöðinni í Kollafirði fyrir áramót. Verð- mæti seiðanna er í kringum átta milljónir að sögn stöðvar- stjórans Sigurðar Þórðarsonar. Sigurður sagði ennfremur að markaðsverðmæti þeirra seiða sem eftir væru í stöðinni væri í kringum 11.5 milljónir. í samtali við Sigurð Helga- son gerlafræðing, sem hefur yfirumsjón með sjúkdómum í stöðinni kom fram að göngu- seiði þau sem eftir verða í stöðinni verða þar fram á vor. „Það verður fylgst með seiðun- um, og verður mjög forvitnilegt að fylgjast með þróun sjúk- dómsins. Á þessu stigi hafa Klakks í samtali við NT í gær eftir mannaeyjum sagði að rannsókn að rannsókn og yfirheyrslum var væri lokið í málinu og búið væri að lokið í málinu. Jón Ragnar Þor- gefa út kæru á skipstjórann. „Mál- steinsson héraðsdómari í Vest- ið verður formlega tekið fyrir á ákærustigi klukkan tíu í dag.“ Það var Fokker vél Landhelgis- gæslunnar sem stóð togarann að meintum ólöglegum veiðum í gæsluflugi sínu í gærmorgun um sjöleytið. Skipstjóra Klakks var síðan skipað að halda til hafnar í Vestmannaeyjum þar sem mál hans var tekið fyrir klukkan 15 í gær. Samkvæmt heimildum NT hafði Klakkur fiskað um 120 tonn af blönduðum fiski. Fari svo að skip- stjórinn verði fundinn sekur verð- ur afli og veiðarfæri gerð upptæk. Einnig eru háar sektir þar sem skipið er af stærri gerðinni. Klausa birtist í Morgunblaðinu 27. mars þar sem sagt er frá lokun á svæðinu og sagði Haraldur að hann hefði lagt fram úrklippu sem sýndi fram á að veiði væri leyfi- leg. Þá sagði Haraldur að staðfest hefði verið í sjávarútvegsráðu- neytinu að veiði væri leyfð í hólf- ekki fundist seiði með sjúkleg einkenni þó að smits hafi orðið vart,“ sagði Sigurður. Sveinbjörn Dagfinnsson ráðuneytisstjóri sagði í samtali við NT í gær að tekin hefði verið ákvörðun um að ítarlegri rannsókn færi fram á göngu- seiðunum 230 þúsund sem eftir eru í stöðinni. Frá frcUuritara NT á Egikstuftum, Fúrhatii FáLvsyoi ■ Austfjarðakottur varö valdur að tveggja tíma rafmagns- leysi á Stöðvarfirði s.l. fimmtudag og kostnaðarsamri ieif að bilun. Rafmagn fór af um kl. 18:00 og við fyrstu umferð fannst engin bilun í aðveitustöð bæjarins og var því flogið með línunni og hún skoðuð, en án árangurs. Grétar Jónsson, rafveitustjóri staðarins, fann hins vegar hilunina við nánari eftirgrennslan og kom í Ijós að köttur hafði komist ofan í aðalspenni og látist þar sviplcga. Grétar flutti samstarfsmönnum sínum fréttina með eftirfar- andi orðum: Brostnum augum horfir himni mót högni grár, sem oftar mun ei brehna. Menn syrgj’ann ekki nokkurt hætishót og honunt munu sjálfsagt flestir gleyma. En dreymdi glæsta tíma dárann þann, sem dró fram lífið fjarri heimsins glaumi. Ævi sinni lauk þó aumur hann í ellefu þúsund volta rafmagnsstraumi. Kveikti í sumar- bústað með sinu ■ Sumarbústaður í Önguls- staðahreppi í grennd við Akur- eyri brann til kaldra kola í gærdag. Lögreglu og slökkviliði barst tilkynning um eldinn frá bænum Leifsstöðum klukkan 16. Slökkvistarf gekk vel fyrir sig. Eldsupptök urðu þegar eig- andi sumarbústaðarins var að kveikja í sinu t' nágrenni bústað- arins. Síðar þegar eldurinn hafði náð nokkurri útbreiðslu fór að gola af suðri, og skipti þá engum togum að eldurinn magnaðist með fyrrgreindum afleiðingum. Að sögn lögreglu er þetta dæmi til þess að vara við hversu mikil hætta er því samfara að kveikja í sinu í ná- grenni bygginga og annarra verðmæta.

x

NT

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.