NT


NT - 23.04.1985, Side 4

NT - 23.04.1985, Side 4
Tveir fórust og þrír slösuðust Flugmaðurvélarinnarleitaðiaðstoðar á Reykjavíkurflugvelli Innbrotið í Gelli: Sökudólgarnir og verðmætin fundin ■ Tveir menn eru nú í vörslu Rannsóknarlögreglu ríkisins vegna innbrots sem framið var í versluninni Gelli nú fyrir nokkru. í fórum mannanna fundust tæki þau sem stolið var í innbrotinu og var verðmæti þeirra svo skipti hundruðum þúsunda króna. í samtali við rann- sóknarlögreglumann kom í ljós að tækin voru ekki skemmd við fyrstu athugun, en ein myndavél og flass með henni hefur enn ekki komið í leitirnar. Mennirnir sem eru 27 ára og 30 ára gamlir hafa áður komið við sögu rannsóknarlögreglunnar. Málið er enn í rannsókn og eru ekki öll kurl komin til grafar. ■ Tveir menn fórust og þrír slösuöust þegar Fokker flugvél nauðlenti á Grænlandsjökli á laugardagskvöld. Vélin inilli- lenti á Reykjavíkurflugvelli og aö sögn Péturs Einarssonar flugmálastjóra leitaöi ilugmaö- ur vélarinnar eftir aöstoð llug- virkja hjá Flugleiðum, þar sem ferjutankar vélarinnar voru í einhverju ólagi. „Við fengum SSseturekki 2. fl. í búðir ■ Matthías Gíslason hjá Sláturfé- lagi Suðurlands hafði samband við NT vegna ummæla í viötali við Jóhannes Kristjánsson formann undirhúningsfélags að stofnun Landssamtaka sauðfjárbænda. í viðtalinu er óbein tilvitnun í Jóhannes þar sem segir; . að sölumál sauðfjárafurða væru í al- gjörum ólestri þar sem fyrsta og annars flokks kjöti væri hrært sam- an cg þarna væri nánast um að ræða svikna vöru hvort sem væri frá Sláturfélaginu eða Samband- inu.“ Benti MatthíasáaðSláturfé- lagið seldi aldrei annars flokks kjöt til verslana heldur færi það allt í vinnslu. Við þetta vill blaðamaður gera þá athugasemd að í nefndu viðtali við Jóhannes er verið að tala um þann vanda að þegar neytandi kaupir kjöt í verslun veit hann ekkert hvaða flokki það tilheyrir og breytir þar engu þó rétt sé að Sláturfélagið sendi allan sinn ann- an flokk í vinnslu, flokkar kinda- kjöts eru mun fleiri. Athugasemd við orð Inga Tryggvasonar: Tíðarfarið var ekkigott1984 ■ Björgvin Guðmundsson bóndi í Vorsahæ, Landeyjum sneri sér til NT vegna viðtals sem birtist í NT föstudaginn 12. apríl við lnga Tryggvason formann Stéttarsam- bands bænda þar sem Ingi segir að tíðarfar hafi verið gott 1984. „Annaðhvort er hann þarna al-, farið fyrir norðan og austan eða á við sprettuna eingöngu. En það þýðir lítiö fyrir bændur að það sé nægileg spretta þegar ekki eru þurrkar. Heyið verður þá bara óþverri," sagði Björgvin en lét þess jafnframt getið að honum pæiti viðtálið við Inga að öðru leyti mjög gott. Útgerðarfélag Hafnfirðinga hf.: Útboðí vikunni ■ Hafnflrðingum verður í vikunni boðið að gerast hlut- hafar í Útgerðarfélagi Hafn- firðinga hf., að sögn Einars I. Ilalldórssonar, bæjar- stjóra. Einnig verður lána- drottnum og viðskiptavinum B.Ú.H. boðið að gerast hluthafar í félaginu svo og ýmsum félagasamtökum. Langur aðdragandi hefur verið að stofnun hlutafélags- ins og er Hafnarfjarðarbær reiðubúinn til að kaupa 51% hlutabréfa, að sögn Árna Grétars Finnssonar, forseta bæjarstjórnar. Kísilmálmverksmiðjan: Lifnar yfir viðræðunum - tveir fundir í næsta mánuði ■ Fulltrúar úr samninganefnd um stóriðju halda til Austurríkis í næsta mánuði til þriðja fundar- ins við austurríska fyrirtækið Voest Alpine um hugsanlega þátttöku þess í byggingu kísil- málmverksmiðju á Reyðarflrði. Á þeim fundi verða væntanlega einnig fulltrúar annars fyrirtæk- is, sem Austurríkismennirnir hefðu áhuga á að fá með sér í stóriðjufyrirtækið. Austurríkismennirnir voru á fundum í Reykjavík fyrir helg- ina.þarsemskipst varáupplýs- ingum um áætlanir og fleira. Áð sögn Birgis ísleifs Gunnarsson- ar formanns stóriðjunefndar, eru Austurríkismennirnir já- kvæðir og þeir vilja að sá mögu- leiki verði ræddur, að þeir verði meirihlutaeigendur í fyrirhug- aðri kísilmálmverksmiðju. Ákveðin viljayfirlýsing um það liggur þó ekki fyrir. Þá hefur verið ákveðinn fund- ur með norska fyrirtækinu Elk- em þann 9. maí næstkomandi, en Elkem, sem er meðeigandi í járnblendiverksmiðjunni á Grundartanga hefur lýst áhuga sínum á að kannaður verði mis- munur kostnaðar við að reisa kísilmálmverksmiðjuna á Grundartanga annars vegar og austur á Reyðarfirði hins vegar. Það hefur komið fram hjá Norð- mönnunum, að verði byggt á Reyðarfirði, þrátt fyrir mikinn kostnaðarmun, verði einhverjir aðrir en þeir til að bera þann kostnað. Birgir ísleifur sagði, að sá munur, sem kynni að verða á byggingarkostnaði á Grundar- tanga og Reyðarfirði ætti fyrst og fremst við Elkem, ef þeir kæmu inn í kísilmálmverk- smiðjuna, þar sem hægt væri að samnýta ýmsar eignir, sem fyrir eru á Grundartanga. Slíkt kæmi óháðum 3. aðila ekki til góða. Lífeyris- og launakjör bankastjóra: Heildarúttekt gerð og til- lögur um framtíðarskipan Bankastjórar greiða ekki í lífeyrissjóð en fá eftirlaun ■ Viðskiptaráðherra, Matthías Á. Mathiesen, hefur fengið Baldur Möller, fyrrverandi ráðuneytisstjóra, til að gera greinargerð um launakjör bankastjóra í heild og semja tillögur um hvernig þeim málum verði háttað í framtíðinni. Þetta kom fram hjá viðskiptaráðherra í umræðum á Alþingi í gær um frumvarp um viðskiptabanka og umræður um launaauka og lífeyrissjóðskjör banka- stjóra, sem NT og Heigarpósturin hafa haft forgöngu um að fletta ofan af. Sagði viðskiptaráðherra í svari sínu til Guðmundar Ein- arssonar og Jóhönnu Sigurðar- dóttur um lífeyrismál banka- stjóra að gilt hefðu reglur allt fram að síðustu áramótum sern hefðu verið grundvallaðar á eld- gömlum forsendum þar sem ekki hefði verið talið eðlilegt að bankastjórar væru aðilar að líf- eyrissjóði bankamanna. Sú ákvörðun hefði hins vegar verið tekin á síðasta ári af bankaráði Seðlabankans að nýir banka- stjórar sem ráðnir væru yrðu aðilar að lífeyrissjóði starfs- manna Seðlabanka íslands. Kvaðst viðskiptaráðherra fús að veita Alþingi allar upplýsingar um þetta mál þegar Baldur Möller hefði skilað greinargerð , sinni um launakjör bankastjóra. Kvað hann málið þess eðlis að Alþingi ætti að taka afstöðu til þess og væri eðlilegt að sú um- fjöllun yrði samhliða untræðu um frumvarp um viðskipta- í banka. í ræðu Guðmundar Einars- sonar kom fram að það tæki ekki nema 12 ár að ná fullum eftirlaunaréttindum sem banka- stjóri Seðlabankans á meðan að það tæki 15 ár í öðrunt bönkum. Spurðist hann fyrir um hvað kæmu miklar launagreiðslur fram í dagsljósið ef farið yrði ofan í saumana á risnureikning- um bankanna og varpaði fram þeirri spurningu hvort Alþingi væri að búa til sérhagsmunapot með lögunum um viðskipta- banka. Jóhanna Sigurðardóttir gerði að umtalsefni að nema ætti úr gildi með þessum nýju lögum ákvæði um upplýsingaskyldu um bílakostnað bankastjóra, risnu og ýmis hlunnindi en Ijóst væri í Ijósi nýliðinna atburða að full þörf væri á að hafa eftirlit með þessum málum. Páll Pétursson lagði áherslu á að frumvarp um viðskiptabanka yrði ekki afgreitt frá fjárhags- og hagsýslunefnd fyrr en nefnd- in hefði fengið til umfjöllunar væntanlegt frumvarp ríkis- stjórnarinnar um Seðlabanka íslands. síöan skeyti frá flugmanninum þegar hann var farinn héðan þar sem hann sagði að ferjutankarn- ir virkuöu ágætlega.“ Þá sagði Pétur að flug- umferðarstjórn vissi ekki mikið um ntálið þar sem slysið átti sér stað á ööru yfirráðasvæði. Hins vegar mun þó vera Ijóst að vélin nauðlenti á Grænlandsjökli eftir vélarbilun. Vélin var í eigu samgöngumálaráðuneytisins í Nicaragua. Fimm menn voru í vélinni. Bandaríkjamaður, Ind- verji, Filipseyingur og tveir Jór- danir. Vélin var að koma frá Yemen á leið til Nicaragua. ■ Fokker vélin frá Nicaragua sem nauðlenti á Grænlandsjökli um helgina. Pétur Johnson tók þessa mynd þegar leitað var aðstoðar flugvirkja vegna bilun- ar í ferjutönkum vélarinnar. Ritstjóri NT sigurvegari - á fjölmennasta bridgemóti sögunnar á íslandi ■ Hluti spilaranna 220 sem tóku þátt í undankeppni ís- landsmótsins í tvímenning um helgina. NT-mynd: Róbcrt. ■ Fjölmennasta bridgemót sem sögur fara af á íslandi, var haldiö í Tónabæ um helgina þegar 110 pör kepptu um þátttökurétt í úrslitum Islandsmótsins í tvímenning sem fram fara eftir hálfan mánuð. Alls komust 24 efstu pör úr undan- keppninni áfram í úrslitin, og af þeim voru 22 pör af Reykjavíkursvæðinu, eitt frá Akrueyri og eitt frá Selfossi. Sigur- vegarar í undankeppninni urðu Magnús Ólafsson ritstjóri NT og Jónas P. Erl- ingsson. í öðru sæti urðu Guðlaugur R. Jóhannsson og Örn Arnþórsson og í því þriðja Jón Baldursson og Sigurður Sverrisson. Þó undankeppnin væri svona fjöl- menn röðuðust pörin í úrslitin nokkurn veginn „eftir bókinni". Þó vakti athygli að nýbakaðir íslandsmeistarar í sveita- keppni, Guðmundur Pétursson og Hörður Blöndal, komust ekki áfram, en Hörður er jafnframt núverandi íslands- meistari í tvímenning ásamt Jóni Bald- urssyni. Hurðin af TF-Rán: Rannsókn bíður fram yfir helgi ■ Rannsókn á hurð þyrl- unnar TF-Rán sem fannst síðastliðinn föstudag, fer ekki fram fyrr en eftir næstu helgi, þar sem þeir menn sem eru kunnastir þyrlunni eru ekki staddir á landinu. í samtali við Skúla Sigurðsson hjá Loft- ferðaeftirlitinu sagði hann að við fyrstu skoðun virtist sem ekkert nýtt hefði komið fram, en hann tók fram að endanleg rann- sókn yrði ekki framkvæmd fyrr en eftir næstu helgi. Skúli benti einnig á að ekki væri nein ástæða til þess að flýta rannsókn eins og málin hefðu þróast fram til þessa.

x

NT

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.