NT - 23.04.1985, Blaðsíða 13

NT - 23.04.1985, Blaðsíða 13
■ Stjórn Framsóknarflokksins var öll cndurkjörin: Halldór Ásgrímsson, varaformaður. Guðmundur Bjarnason, sem var endurkjörinn ritari með glæsilegu atkvæðahlutfalli, er hér á myndinni í þungum þönkum undir ræðu formannsins. Ályktun miðstjórnarfundarins um húsnæðismál: Áhersla lögð á ný við- horf í húsnæðismálum ■ Aðalfundur miðstjórnar Framsókn- arflokksins haldinn 19.-21. apríl 1985 leggur áherslu á eftirfarandi í húsnæðis- málum: 1.0. Umbætur í tíð núverandi ríkisstjórnar Sérstök athygli er vakin á nokkrum mikilvægustu umbótum sem fram- kvæmdar hafa verið í húsnæðismálum í tíð núverandi félagsmálaráðherra, Alex- anders Stefánssonar: 1.1. Samþykkt hefur verið ný hús- næðislöggjöf sem felur í sér marg- þættar endurbætur á eldri löggjöf og ýmsar nýjungar í húsnæðismál- um. 1.2. Ríkissjóði er nú skylt að leggja fram eigi lægri fjárhæð en 40% af samþykktri útlánaáætlun Bygg- ingasjóðs ríkisins viðkomandi ár. 1.3. Lánstími húsnæðislána hefur ver- ið lengdur verulega. Lánstími ný- byggingalána var lengdur úr 26 í 31 ár. Lán til kaupa á eldra húsnæði voru lengd úr 15 í 21 ár. 1.4. Húsnæðislánin hækkuðu um 50% frá ársbyrjun 1984. 1.5. Veitt voru 50% viðbótarlán til þeirra sem fengu lán árin 1982 og 1983. 1.6. Biðtími útborgunar á lánum til þeirra sem eru að eignast sína fyrstu íbúð hefur verið styttur um helming. 1.7. Lán til þeirra sem eru að byggja í fyrsta sinn eru nú greidd út í tvennu lagi en voru áður greidd í þremur áföngum. 1.8. Á árinu 1983 fór fram skuld- breyting á lánum þeirra sem áttu í erfiðleikum vegna skammtímal- ána í bönkum og sparisjóðum. Lánstíminn var lengdur og mörg smærri lán voru sameinuð í eitt. 1.9. Á árinu 1983 var fólki gefinn kostur á 25% frestun á greiðslum af húsnæðislánum ársins 1983. 1.10. Komið hefur verið á ráðgjafar- þjónustu fyrir húsbyggjendur í grciðsluerfiðleikum. Ráðgjafar- þjónustan hefur veitt viðbótarlán og skuldbreytt lánum. 1.11. Utborguð lán úr Byggingarsjóði ríkisins hækkuðu milli áranna 1983-84 um rúmlega 124% eða 84% hækkun miðað við fast verðlag. 2.0. Brýnustu verkefni í húsnæðismálum Framsóknarflokkurinn telur brýnt að leggja nú þegar áherslu á eftirfarandi: 2.1. Til viðbótar þeirri ráðgjöf sem nú er fyrir hendi, skal veita fyrir- byggjandi ráðgjöf. Áður en fólk kaupir eða byggir íbúð geti það fengið upplýsingar og ráðgjöf til að auðvelda rétta ákvörðunar- töku. Ráðgjafaþjónustan verði veitt um allt land. 2.2. Tryggja þarf að greiðslubyrði af lánum aukist ekki frá því sem hún er þegar lán eru tekin. I því skyni ber tafarlaust að samþykkja frum- varp félagsmálaráðherra um greiðslujöfnun vegna misgengis lánskjara og launa. 2.3. Tekinn verði upp fastur skatta frádráttur fyrir húsbyggjendur og kaupendur. 2.4. Lán til þeirra sem kaupa húsnæði í fyrsta sinn hækki verulega frá því sem nú er. Veitt verði tvisvar sinnum fullt lán til öflunar eigin húsnæðis. Lýst er stuðningi við reglur um stærðarmörk íbúða sem félagsmálaráðherra hefur nýlega samþykkt. 2.5 Almenningi verði gefinn kostur á að stofna sérstaka bundna sparir- eikninga með skattaafslætti við innlánsstofnanir, í þeim tilgangi að það fé sem þannig sparast, verði notað til öflunar eigin íbúð- arhúsnæðis. Innlánsstofnunum verði gert skylt að ráðstafa hluta af því fé sem þannig sparast til Byggingasjóðs ríkisins. 2.6 Fjármögnun hins opinbera hús- næðiskerfis verði tekin til endur- skoðunar. M.a. verði lögðu áhersla á að tryggja hæfilegt fjár- streymi frá lífeyrissjóðum og inn- lánsstofnunum með reglubundn- um verðbréfakaupum þeirra af byggingasjóðnum. 3.0 Framtíðarmarkmið - Ný viðhorf Framsóknarflokkurinn leggur áherslu á ný viðhorf í hús- næðismálum. í framtíðarstefnu- mörkun verði áhersla lögð á eftir- talin atriði: 3.1 Lagður verði meiri þungi á „húsn- ýtingastefnu" meðal annars með hærri lánum til kaupa á eldra húsnæði. 3.2. Könnuð verði hagkvæmni í stofn- un sérstaks húsnæðisbanka, er taki yfir sem flesta þætti húsnæðis- mála, þ.á.m. Byggingasjóð ríkis- ins, Byggingasjóð verkamanna og Veðdeild Landsbanka íslands. 3.3. Framsóknarflokkurinn vill stuðla að því að sem flcstir geti búið í eigin húsnæði af hæfilegri stærð. Húsnæðismálum þeirra sem ekki vilja eða hafa fjármagnslegt bol- magn til þess að byggja eða kaupa húsnæði, þarf að sinna betur. Gera þarf öflugt átak í byggingu ódýrra leiguíbúða. Bygging fé- lagslegra íbúða hefur ekki náð að fylgja eftir örum breytingum þjóðfélagsins. Því þarf að auka verulega byggingu félagslegra íbúða fyrir aldraða, fólk í lang- skólanámi, öryrkja o.fl. 3.4. Styðja þarf betur bygginga- samvinnufélögin sem eru í raun tengiliður milli almennra íbúða- bygginga og félagslegra bygginga. Byggingasamvinnufélög byggja ódýrustu íbúðirnar á markaðnum í dag. Auka þarf verulega lánveit- ingar til þeirra sem þannig vilja leysa húsnæðismál sín. 3.5. Sveitarfélögum ber að taka tillit til mikillar eftirspurnar eftir minni íbúðum strax á skipulagsstigi. Minni íbúðir henta mjög vel ungu fólki sem er að hefja búskap, svo og öldruðum. Leysa þarf þá þörf sem skapast hefur fyrir íbúðir af þessari stærð. 3.6. Byggingasjóði verkamanna þarf að styðja en æskilegt væri að fara þar inn á nýjar brautir m.a. með því að kaupa eldri íbúðir á al- mennum fasteignamarkaði inn í félagslega íbúðakerfið. 3.7. Staðið verði myndarlega að bygg- ingu íbúða fyrir aldraða með þjónustuaðstöðu og þannig reynt að leysa vanda þess stóra hóps sem nú býr í óhagstæðu húsnæði. 3.8. Vinna þarf markvisst að því að útborgun í fasteignaviðskiptum lækki verulega frá því sem nú er. Er greiðslujöfnunarleiðin álitleg- ur kostur í þessu efni og mun án efa stuðla að slíku. 3.9. Endurskoða verður reglur um veðhæfni eigna. Sú viðmiðun við brunabótamat, sem notuð er al- mennt í dag tekur ekki mið af markaðsástæðum og er því vafa- söm. 3.10. Endurskoða þarflög um fasteigna- sölu með það fyrir augum að bæta þjónustu fastaeignasala, auka ábyrgð þeirra, bæta upplýsinga- miðlun þeirra og veita viðskipta- ntönnum þeirra rneira öryggi. 3.11. Viðskiptabankar veiti byggingar- iðnaði aukin framkvæmdalán. 3.12. Lögð verði áhersla á nýjungar í byggingariðnaði er gætu leitt til aukinnar hagkvæmni og lækkunar byggingarkostnaðar. Aðilum sem vinna að slíku verði veittur styrk- ur eða hagkvæm lán úr húsnæðis- kerfinu. Aukin áhersla verði lögð á lciðir til þess að lækka bygginga- kostnað, meðal annars með lækk- un aðflutningsgjalda á bygginga- refni og lækkun launaskatts og aðstöðugjalds. Þriðjudagur 23. apríl 1985 13 JOKER u ng I i ngaskrif boröin Tilvalin fermingargjöf Verð kr. 4.450.- Ennfremur vandaðir skrifborðsstólar Verðfrákr. 1.780.- HÚSGÖGN OG '** bA. INNRÉTTINGAR eo cq OH ^■^JI^^SUÐURLANDSBRAUT 18 Oö Oí7 UU HenWaM m Það er ekkert gamanmál ef hemlabúnaður bílsins svíkur þegar á reynir. Gegn slíkri skelfingu, er aðeins ein vörn: Láta yfirfara hemlakerfi bílsins reglulega, svo það sé ávallt í fullkomnu lagi. Hjá okkur fást original hemlahlutir í allar tegundir bifreiða á ótrúlega lágu verði. Sérverslun með hemlahluti OBtilling

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.