NT - 23.04.1985, Síða 15
Frank Sinatra
heimtarskaðabætur
■ Frank Sinatra fer sínar eigin leiöir, eins og hann
syngur um í einu laginu sínu. En hann er viðkvæmur
fyrir því sem kemur fram í fjölmiðlum um hann sjálfan,
og ætti hann þó á langri leið að vera farinn að venjast
ýmsu.
En hann varð alveg öskureiður þegar bandaríska
blaðið The National Enquirer skrifaði í leikarafréttum,
„að söngvarinn með bláu augun (en það var viðurnefni
Franks hér áður fyrr) hefði nú nýverið dvalist í Sviss í
yngingarkúr. Nú hefði hann sem sagt látið yngja sig upp
eins og hægt væri.
Sinatra sagði þetta uppspuna frá rótum og krafðist
stórra skaðabóta fyrir. Bæturnar áttu að nema sem næst
milljarði íslenskra króna!
■ Frank Sinatra er kominn hátt á sjötugsaldur, - en
hann ncitar því að hafa verið í yugingarkúr: „Ég er bara
svona unglegur," sagði hann hinn hressasti.
urnar ætluðu að tæta fötin utan af Sinatra á 5. áratugnum, og ekki voru
á sitt besta.
reyna að passa að dömumar ríii ekki jakkann hans, en allar vilja þær fá
igrip.
Þriðjudagur 23. apríl 1985 15
Trevor Horn:
m allan heim og efstir á vinsældalistum: Peter Gili, 20 ára trommuleikari, Paul Rutherford,
eitarinnar, Mark og Brian Nash gítarleikari. Trevor Hom....kom hljómsveitinni á framfærí.
[lýsingabrellunum.Paul Morley....blaðamaðurínn sem svífst einskis í kynningu á Frankic
■ Catherine Deneuve á skartgripasýningu.
„Ég er gull
og gersemi“
■ Faö eru fleiri en Sölvi Helgason sem geta
sagt svo. Catherine Deneuve hefur um árabil
verið talin ein af fegurstu leikkonum heims.
En nú hefur hún snúið sér aö öðru efni. Nú
fæst hún við að hanna gull- og demanta-gers-
emar og þykir takast bað mjög vel. Og þá er
hún ekki síður tilvalinn til að bera djásnin.
Hér er gersemin hún Catherine Deneuve
með skartgripi sem hún hefur sjálf hannað og
sýnir.
t .., . , •■li_ .
■ Leikkonan Brooke Shields og fallegi
pilturinn úr næsta húsi, Michael Ives, að fara
út á lífið.
Hvílík
aðdáun!
■ Marga unga menn dreymir um að fá að
skemnita sér með hinni ungu Brooke Shields,
en vita að þeir verða að láta við drauminn
sitja - og síðan ekki söguna meir.
En Michael Ives, hinn fallegi ungi niaður,
sem við sjáum hér á myndinni, er svo heppinn
að vera nágranni Brooke Shields, og liann
herti upp hugann og bauö dömunni út. Hann
gat varla trúað sínum eigin eyrum, þegar
Brooke sagði brosandi já, ogspurði hvert þau
ættu að fara. Auövitað nefndi pilturinn fín-
asta staðinn sem hann mundi eftir í augnablik-
inu - og þarna eru þau uppábúin að koma á
skemmtistaðinn.
Aðdáunin lýsir af Michael sem horfir svo
hrifinn á stúlkuna, að það er mcst hættan á
að hann reki í tærnar og falii flatur að fótum
hennar.