NT - 23.04.1985, Síða 23
Þriðjudagur 23. apríl 1985 23
íslendingar stóðu sig vel á NM í Finnlandi:
lar í „ All-star “ -liðid
Einar Bollason landsliðsþjálfari:
„Mjög ánægður“
einn af fimm bestu á Norðurlöndum-Webster
tók flest fráköst - Valur þriðji stigahæstur
Frá Gylfa Þorkelssyni fréttamanni NT á
Norðurlandamótinu í körfuknattlcik í Finn-
landi
■ Pálmar Sigurðsson körfu-
knattleiksmaður með íslenska
landsliðinu hér og Haukum
heima, varð þess mikla heiðurs
aðnjótandi í lokahófi Norður-
landamótsins hér í Finnlandi að
vera valinn í úrvalslið mótsins,
lið fimm bestu leikmannanna
sem valdir voru úr öllum hópn-
um sem lék á mótinu. Pálmar
fékk, eins og aðrir leikmenn
sem valdir voru í „All-star“
liðið glæsilegan verðlaunabikar.
í „All-star“-liðið voru valdir
eftirtaldir leikmenn, auk
Pálmars: Haakan Österfjörd
Noregi, Joukko Heikkinen
fyrirliði finnska liðsins, Leif Ytt-
ergren Svíþjóð og Georg Posti
Noregi. Norðmenn voru því
eina þjóðin sern átti tvo leik-
menn í liðinu, og Danir sú eina
sem átti engan. Besti leikmaður
mótsins var einnig kjörinn, og
var það Haakan Österfjord frá
Noregi. Hann fékk stóran bikar
að launum.
Besti leikmaður hverrar þjóð-
ar var einnig kjörinn. Þeir voru:
Pálmar Sigurðsson íslandi, Öst-
erfjörd Noregi, Heikkinen
Finnlandi, YttergrenSvíþjóðog
Henrik Nörre Nielsen Dan-
mörku. -
- Fleiri heiðursverðlaun féllu
íslendingum f skaut ívar We-
bster var sá leikntaður mótsins
sem tók flest fráköst. ívar tók
alls 44 fráköst í fjórum leikjum,
eða að jafnaði 11 í leik sem
þykirntjög gott.
- Valur Ingimundarson varð
þriðji stigahæsti leikmaður
mótsins. hann skoraði 81 stig.
Norðmaðurinn Österfjörd var
stigahæstur.
Aðbúnaður á Norðurlanda-
mótinu í körfuknattleik hér í
Finnlandi var frábær, og til
fyrirmyndar í alla staði. Leik-
menn dvöldu á fyrsta flokks
hóteli, fengu fyrsta flokks mat,
og allt skipulag var til eftir-
breytni. Var þetta almennt mál
leikmanna, bæði íslenska liðsins
og annarra liða.
sérstaklega með leikinn við Dani
■ Páimar Sigurðsson, einn af fimm bestu körfuknattieiksmönnum Norðurlanda. Hann fékk bikar að
launum á NM, sem hann hefur væntanlega hampað. Hér hampar hann bikarnum fyrir Bikarkeppni
KKI á dögunum. NT-mynd: Sverrir
Norðurlandamótið í körfuknattleik í Finnlandi:
Gott gegn Dönum
islendingar í f jórða sæti eftir 84-68 sigur
Frá Gylfa Þorkelssyni fréttamanni NT á
Norðurlandamótinu í körfuknattleik í Finnl-
andi
■ íslendingar tryggðu sér
fjórða sætið á Norðurlandamót-
inu í körfuknattleik hér í Finn-
landi með glæsisigri á Dönum í
næstsíðasta leik mótsins í gær.
Með frábærum lokakafia vannst
góður sigur, 84-68, eftir afar
jafnan og spennandi leik. Stað-
an var 46-43 íslandi í hag í
hálfleik.
Leikurinn fór jafnt af stað, og
liðin skiptust á um að hafa
forystu allan fyrri hálfleikinn.
Barátta var í hámarki hjá báð-
um liðum, og varnirnar leiknar
grimmt. Danir bættu enn við
keyrsluna í vörninni í síðari
hálfleiknum, og náðu heldur
undirtökum framan af. íslenska
liðið lét þó alls ekki brjóta sig
niður, heldur hélt vel haus og
missti Danina aldrei meira en
2-3 stig framúr. í síðari hluta
síðari hálfleiks náði svo íslenska
liðið að jafna og komast yfir.
Þegar þrjár til fjórar mínútur
voru til leiksloka hófu Danir að
leika mjög róttæka „maður á,
mann“-vörn á öllum vellinum.
Þannig réðu Danir þó ekki við
íslenska liðið sem snéri þá af sér
einn af öðrum. íslendingarskor-
uðu þá grimmt á meðan Dönum
gekk lítt eða ekki, og lokatölur
urðu 84-68.
íslenska liðið lék allt mjög
vel. Vörnin var til fyrirmyndar.
Aðaldriffjöðrin í sókninni var
Pálmar Sigurðsson, sem átti
stórleik. Pálmar skoraði 29 stig.
Honum gekk mjög vel að fara
upp með boltann, setja upp og
ógna þrátt fyrir gífurlega
pressu. Það var fyrst og fremst
liðsheildin sem vann þennan
leik, með mjög samstilltum
varnarleik, og féll vel saman í
sóknarleiknum sem drifinn var
áfram af Pálmari, og svo Val
Ingimundarsyni sem einnig
skoraði grimmt.
Stig íslenska liðsins skoruðu
Pálmar 29, Valur 24. ívar We-
bster 10, Guðni Guðnason 6,
Jón Kr. Gíslason 6, Birgir Mik-
aelsson 4, Tómas Holton 3, og
Gylfi Þorkelsson 2.
Frá Gylfa Þorkclssyni fréltamanni
NT í Finnlandi:
■ „Eg er mjög ánægður með
þétta mót, og þá sérstaklega
síðasta leikinn gegn Dönum.
Þegar liðið nær upp slíkri
stemmningu sem í dag þá getur
maður ekki annað en trúað því
að hlutirnir séu á réttri leið.
Þetta datt vissulega niður gegn
Finnum, og á kafla gegn Norð-
mönnum, en það að liðið lék
svo vel í dag bætir það upp,“
sagði Einar Bollason landsliðs-
þjálfari eftir leikinn gegn Dön-
um á Norðurlandamótinu í
körfuknattleik hér í Finnlandi.
„Það hefur alltof oft viljað
brenna við þegar íslensk lið í
körfuknattleik eiga í hlut, að
þegar þau eru pressuð stíft fer
allt í vitleysu. Það gerðist ekki
hér í dag þrátt fyrir að íslenska
liðið væri pressað eins og mögu-
legt var, hélt það alltaf haus.
Leikmenn náðu að vera rólegir
og setja upp, og þá geta hlutirnir
gengið,“ sagði Einar Bollason.
Frá Gylfu Þorkelssyni fréttamanni NT á
Norðurlandamótinu í körfuknattleik
í Finnlandi:
■ Eftir stífa dagskrá á Norður-
landamótinu hér í Finnlandi,
þar sem íslenska landsliðið í
körfuknattleik hefur leikið fjóra
landsleiki á jafnmörgum
dögum. er ekki afslöppun fram-
■ ívar Webster, tók flest frá-
köst allra í NM.
undan. Viku eftir síðasta leik-
inn hér í Finnlandi mun liðið
hafa leikið fjóra landsleiki í
viðbót.
Liðið átti að fara heim til
íslands á mánudag (í gær), æfa
á þriðjudag og miðvikudag, og
leika síðan landsleiki gegn Lúx-
emborg á fimmtudag, föstudag,
laugardag og sunnudag.
Norðmenn geta nagað sig í handabökin eftir NM:
Svíar Norðurlandameistarar
Frá Gylfa Þorkclssyni fréttamanni NT á
Norðurlandamótinu í körfuknattleik í Finn-
landi
■ Norðmenn geta nagað sig í
handabökin eftir Norðurlanda-
mótið í körfuknattleik hér í
Finnlandi. Þeir áttu einn leik
mjög slakan, töpuðu þá fyrir
Svíum með 19 stigum. Þeir
lögðu svo Finna örugglega að
velli á laugardag, og erkivóvinir
þeirra, Svíar töpuðu með aðeins
tveimur stigum fyrir Finnum.
Þeir urðu þar með Norður-
landameistarar, með hagstæð-
ast stigahlutfall úr innbyrðis-
leikjum þriggja efstu liðanna.
Þökk sé 19 stigunum sem þeir
höfðu fram yfir Norðmenn.
Finnar lögðu Svía að velli í
miklum spennuleik á drama-
tískan hátt hér á sunnudag,
76-74. Sigurkarfan var skoruð á
lokasekúndum leiksins. Leikur-
inn var mjög jafn frá upphafi.
Með þessum sigri stungu Finnar
sér upp í annað sætið, og
Norðmenn, sem af mörgum
voru taldir með besta liðið á
mótinu, duttu niður í þriðja
sæti.
Eins og sagt hefur verið frá í
NT, sigruðu Svíar Norðmenn
95-75 á fimmtudag. Þeir lentu
svo í basli með bæði íslendinga,
sem þeir sigruðu 74-69, og Dani
sem þeir unnu á laugardag 88-
81. Norðmenn lögðu Finna að
velli 85-76 á laugardag, en síðan
sigruðu Finnar Svía 76-74.
Úrslit urdu þessi ó laugardag og
sunnudag:
Svíþjód-Danmörk............... 88-81
Finnland-Noregur............... 76-85
Ísland-Danmörk................. 84-68
Finnland-Svíþjód............... 76-74
Lokastaðan varð þessi:
Svíþjóð............. 4 3 1 330-301 7
Finnland............ 4 3 1 340-293 7
Noregur............. 4 3 1 353-313 7
ísland ............. 4 1 3 279-293 5
Danmörk............. 4 0 4 300-372 4
Eins og sjá má fengu Finnar, gestgjaf-
arnir, besta stigahlutfall þriggja efstu
liðanna. En það dugði ekki til, reglurnar
eru á þann veg að það lið sem hefur besta
stigahlutfall þeirra liða sem eru efst og
jöfn að stigum úr innbyrðis leikjum
þeirra skuli sigra.
Engin afslöppun
- framundan hjá körfuknattleikslandsliðinu