NT - 23.04.1985, Síða 26
Maraþonhlaup í Rotterdam og London:
Lopez og Kristiansen
með bestu tíma heims
Enska knattspyrnan:
Luton lagði United
- með marki á síðustu
Frá Heimi Berjjssyni fréttaritara NT í Lnj;-
landi:
■ Luton vann sanngjarnan
sigur á Manchester United er
liðin áttust við á heimavelli
Luton Kenilworth Road í
hattaborginni frægu. Leik-
ntenn Luton spiluðu mjög vel
og þá sérlega í fyrri hálfleik og
sýndu að það var engin tilviljun
að liðið var nærri búið að
mínútu - Sanngjarn sigur
leggja Everton að velli í bikar-
keppninni um síðustu helgi.
Sigur Luton kom þeim vel í
botnbaráttunni en United get-
ur nú endanlega afskrifað von
um meistaratign í vor að öllum
líkindum.
Leikurinn var harður og
nokkuð skemmtilegur í fyrri
hálfleik og þá voru leikmenn
Luton aðgangsharðari. Mátti
Gary Bailey taka á honum
stóra sínum til að afstýra marki
í ein tvö eða þrjú skipti í fyrri
hálfleiknum. Luton átti t.d.
ein 10 markskot á móti 3 hjá
United. Staðan í hléi var þó
0-0.
í síðari hálfleik hresstust
leikmenn United heldur og
sóttu til jafns við Luton. Það
var þó Luton sem náði forystu
er Bailey felldi Stein innan
vítateigs og Hartford skoraði
aðeins tveimur mínútum
seinna og þannig var staðan
allt þar til á lokamínútunni. Þá
fékk Luton aukaspyrnu sem
Steve Foster tók. Hann þrum-
aði í slána og Hartford kom
svííandi á móti tuðrunni og
skallaði inn, 2-1 fyrir Luton og
ekki tími fyrir United að reyna
að jafna.
________________Þriéjudagur 23. april 1985 26
íþróttir
■ Sergei Gusev vann.
Lopes sigraði í Rotterdam og Kristiansen í London
mínútu er hún sigraði í London-
maraþoninu. Bæði þessi hlaup
voru á sunnudaginn.
Lopez bætt tíma Bretans
Steve Jones sem hann setti í
Chicago-maraþoninu í október
síðastliðinn. Jones sigraði hins-
vegar í karlaflokki í London-
maraþoninu um helgina.
Það voru mörg þúsund þátt-
takendur í London-maraþoninu
og af þeim sem hófu keppnina
þá höfðu 251 eftirnafnið Smith
- sem sagt nokkrir Bretar meðal
þátttakenda. Jones sigraði eins
og áður segir í karlaflokknum á
tímanum 2 klst. 8 mín. og 16
sek. Annar í röðinni varð landi
hans Charlie Spedding á tíman-
um 20:21,06 en Sarah Rowell
varð önnur á 2:28,06. Hún er
frá Englandi.
f Rotterdam-maraþoninu
voru þátttakendur á þriðja þús-
und og Lopez kom í mark á
besta tíma í heiminum í mara-
þonhlaupi, 2:07,11. Annar varð
Bretinn John Graham á 2:09,58.
Fimleikar í London:
Gusev sigraði
- í karlaflokki en Silivas hjá konunum
■ Sergie Gusev frá Sovétríkj- hörkukeppni við Pepa Krazak-
unum bar sigur úr býtum í
keppni í karlaflokki í „All-
Champions“ mótinu í fimleik-
um sem haldið var í London um
síðustu helgi. Hann hlaut 55,45
stig samanlagt, en Tang Zhi-
gang frá Kfna varð annar með
54,80 stig. Hutov frá Búlgaríu
varð þriðji og Morris frá Bret-
landi fjórði.
1 kvennaflokki sigraði Dani-
ella Silivas frá Rúmeníu eftir
ovu frá Búlgaríu. Fyrir síðustu
greinina, gólfæfingar, voru þær
jafnar að stigum, en sú búlg-
arska náði sér ekki á strik í þeim
og Silivas hrósaði sigri. Hún
hlaut 38 stig, Krazakova hlaut
37,65 og datt niður í þriðja
sætið, en Ricna frá Tékkó-
slóvakíu nældi í silfrið með
37,85 stigum. Bandaríska stúlk-
an Navity varð fjórða með 37,10
stig.
■ Hcimsmetin í karla og
kvcnnaflokki í maraþonhlaupi
féllu bæði um hclgina. Að vísu
er ekki hægt að tala um heims-
met án þess að gera sér grein
fyrir því að maraþonhlaup er
alltaf hlaupið við misjafnar að-
stæður í hvert skipti og á það
bæði við um brautina og veður.
Því er venjulega talað um besta
tímann í heiminum í maraþon-
hlaupi. Þessir tímar féllu báðir
um helgina.
Portúgalinn Carlos Lopez
bætti besta tímann sem náðst
hafði í karlaflokki um nálægt
eina mínútu er hann sigraði í
Rotterdam-maraþoninu og Ing-
rid Kristiansen frá Noregi bætti
tímann í kvennaflokki um rúma
■ Carlos Lopes sigraði á besta tíma í heimi í maraþonhlaupi í Rotterdam og Kristiansen náði líka
besta tíma í heimi í London.
Gullskórinn:
McGaughey og
Gomes berjast
■ Það eru írski vöru-
bílstjórinn Martin
McGaughey og Portúgal-
inn Gomes sem berjast
um það þessa dagana að
verða markahæstu leik-
menn Evrópu í 1. deildar-
knattspyrnu. Ólíklegt
verður að telja að aðrir
blandi sér í þessa baráttu.
Báðir hafa kapparnir
skorað 34 mörk, og annar
hvor hreppir gullskó Adi-
das.
McGaughey, sem
leikur með Linfíeld, skor-
aði tvö mörk um síðustu
helgi, og náði þar með
Portúgalanum sem var
einu marki yfír lýrir helg-
ina. Gomes skoraði eitt
mark fyrir Portó þá, og
því eru þeir nú jafnir.
Næstur er Júgóslavinn
Halilhodzic sem leikur
með Nantes í Frakklandi,
með 27 mörk. Aðrir
standa alllangt að baki.
Everton er orðið lang-
efst í liðakeppni Adidas,
enda ekki skrýtið eins og
allt gcngur upp hjá liðinu.
Evcrton hefur nú 20 stig,
næst koma Manchester
United frá Englandi og
Bordeaux í Frakklandi
með 15 stig hvort.
Knattspyrna:
■ Sameinuðu arabísku
furstadæmin, sem Brass-
inn Carlos Alberto Parr-
eira þjálfar, slógu stóra
bróður út úr undan-
keppni HM nú um helg-
ina. Stóri bróðir er í þessu
tilviki Saudi-Arabar.
Leikurinn um helgina
endaði 1-0. Fyrri leikur-
inn fór 0-0 svo nú fara
SAF í milli-Asíu riðil.
Frakkland:
Chalana skoraði
- sitt fyrsta mark fyrir Bordeaux
Molar úr undankeppni HM í knattspyrnu:
Jafntefli á Möltu
- er Tékkar komu í heimsókn - Margir Afríkuleikir
■ Portúgalinn FernandoChal-
ana skoraði sitt fyrsta mark fyrir
franska félagið Bordeaux á
laugardaginn en Bordeaux vann
sigur á einu af botnliðunum
Rouen, 2-0. Þar með komst
hann á strik en Chalana hefur
verið meiddur mest allan tím-
ann síðan hann kom til Borde-
aux síðastliðið haust.
Markaskorarinn Bernard
Galatasaray
bikarmeistari
■ Galatasaray frá Ist-
anbúl varð tyrkneskur
meistari um síðustu helgi.
Liðið vann sigur á Tra-
bzonspor á heimavelli 2-1
eftir að hafa gert jafntefli
á útivelli 0-0. Galatasaray
er liðið sem Jupp
Derwall, fyrrum lands-
liðsþjálfari Þjóðverja
hefur verið að þjálfa.
Lacombe skoraði annað mark
Bordeaux sem nú er langefst í
frönsku 1. deildinni. Liðið í
öðru sæti Nantes vann einnig
sigur um helgina. Þeir lögðu
Laval 2-0 og eru nú 5 stigum á
eftir Bordeaux. Bordeaux á að
leika síðari leik sinn gegn ítalska
liðinu Juventus nú á morgun og
var því sigurinn á laugardaginn
góður fyrir andann í liðinu. Það
verður þó erfitt fyrir Bordeaux
að komast í úrslit Evrópu-
keppninnar þar sem Juventus
vann fyrri leik liðanna 3-0.
ÚrslitíFrakklandiálaugardag. ■
Bordeaux-Rouen ................ 2-0
Nantes-Laval ................... 2-0
Auxerre-Metz................... 2-0
Toulon-Monaco ................. 0-1
Tours-Lens ..................... 1-1
Bastia-Sochaux.................. 1-1
Brest-Strasbourg................ 1-1
Paris S.G.-Racing Paris......... 2-2
Lille-Toulouse.................. 0-0
Nancy-Marseilles............... 3-1
Staða efstu liða:
Bordeaux...... 33 23 7 3 64 23 53
Nantes....... 33 21 6 6 54 27 48
Auxerre....... 33 16 9 8 49 36 41
Monaco ....... 33 17 5 11 39 31 39
Metz.......... 33 16 8 10 41 42 38
■ Chalana skoraði.
■ Enska 1. deildar félagið
Chelsea hefur ákveðið að láta
setja upp rafmagnsgirðingu í
um þriggja metra hæð á milli
áhorfenda og leikvallarins til að
koma í veg fyrir að áhorfendur
ryðjist inná leikvöllinn. Girð-
ingin, sem reyndar verður að-
eins einn vír, verður fyrir ofan
girðinguna sem nú er á vellinum
og á aðeins að tryggja að áhorf-
endur haldi sér á mottunni - eða
fái smástraum um kroppinn
ella.
■ Nokkuð margir leikir fóru
fram um helgina í undankeppni
HM í knattspyrnu. Leikið var
Að sögn Ken Bates stjórnar-
formanns Chelsea þá er þetta
gert í hálfgerðri neyð. Chelsea
fékk viðvörun frá KSÍ þeirra
Englendinga vegna óláta er
brutust út er liðið tapaði fyrir
Sunderland í mjólkurbikarnum.
„Þetta dugar vonandi," segir
Bates.
Fyrsti „rafmagnsleikurinn" á
Stamford Bridge verður senni-
lega þann 27. apríl er nágranna-
liðið Tottenham kemur í heim-
sókn.
víðsvegar um heiminn og úrslit
hin fjölbreytilegustu.
Nígeríumenn unnu sigur á
Kenýamönnum á sínum heima-
velli í Lagos. Leikurinn endaði
3-1 og meðal markaskorara
voru þeir Yekini og Sofoluwe
fyrir Nígeríu og Masiga skoraði
mark Kenýabúa. Þetta erseinni
leikur liðanna og Nígeríumenn
unnu samanlagt 6-1.
1 Damascus í Sýrlandi áttust
heimamenn og Norður-Jemen-
ar við. Sýrlendingar sigruðu og
hafa þar með tryggt sér sigur í
riðlinum en þar eru einnig Kú-
waitbúar. Leikurinn endaði 3-0
ogskoraðimarkamaskínan Al-
Sayyed tvö markanna en
Sheikhhassan eitt.
Alsírbúar sigruðu Angóla í
einum af Afríkuriðlunum með
3 mörkum gegn 2 og eru komnir
áfram í milli-Afríkuriðil.
Kanadamenn kunna ýmislegt
fyrir sér í knattspyrnu og það
sýndu þeir er þeir sigruðu Gu-
atemala 2-1 í undankeppni HM
um helgina. Leikurinn fór fram
í Vancouver og skoraði Dale
Mitchell bæði mörk heima-
manna. Hann gat tekið þátt í
þessum leik þar sem lið hans,
Tacoma Stars, komst ekki í
úrslit í innanhússknattspyrn-
unni í N-Ameríku.
Þá spiluðu einnig Malasíubú-
ar og Marókkóbúar í Afríku-
riðli. Leikurinn endaði 0-0 en
það dugir Marókkóbúum því
þeir unnu fyrri leik liðanna 2-0
og fara í milli-Afríkuriðii.
Þá ber að geta þess að Tékkar
og Möltubúar gerðu markalaust
jafntefli í öðrum riðli Evrópu,
0-0. Leikurinn var á Möltu og
var leiðinlegur. Staðan í öðrum
riðli er nú þessi:
V-Þýskaland...........4400 13 38
Portúgal .......... 5302 8 7 6
Svíþjóð............4202 7 44
Tékkóslóvakía .....3111 5 23
Malta.............. 60 1 5 3 20 1
England:
RafmagnhjáChelsea