NT - 03.05.1985, Qupperneq 1
4 Stungumaðurinn:
Gæslu-
varð-
haldið
framlengt
■ Sakadómur hefur
framlengt til 1. júní gæslu-
varðhaldsvist yfir unga
manninum, sem stakk pilt
í magann með hnífi fyrir
utan skemmtistaðinn
Traffic fyrir skömmu.
Helgin
framundan
bls. 13-16
Dagblaðið hf.:____________
Þarf að borga umboðs-
manni sínum skaðabætur
vegna fyrirvaralausrar uppsagnar þegar DV varð til
■ Þó þrjú og hálft áru séu liðin
síðan Dagblaðið og Vísir sam-
einuðust, er eftirmálum ekki
lokið, og nú í vikunni féll dómur
í Hæstarétti þar sem Dagblað-
inu hf. var gert að greiða um-
boðsmanni sínum á Selfossi
j skaðabætur, en honum var sagt
uppfyrirvaralaust, þegarblöðin
tvö sameinuðust, eins og raunar
mun hafa gerst víðast sem blöð-
in höfðu sitt hvorn umboðs-
manninn.
Umboðsmaðurinn vann mál-
ið í undirrétti en Dagblaðið hf.
áfrýjaði til Hæstaréttar og
krafðist sýknu af kröfum eða að
kröfurnar yrðu lækkaðar veru-
lega. Umboðsmaðurinnkrafðist
þess að hinn áfrýjaði dómur
yrði staðfestur með þeirri breyt-
ingu að bætur yrðu hækkaðar.
í dómi Hæstaréttar segir að
við sameiningu Dagblaðsins og
Vísis hafi umboðsmanninum
vcrið fyrirvaralaust sagt upp
umboðsstarfinu og við þá upp-
sögn hefði hann, sem ráðinn var
ótímabundið til umboðs-
mennskustarfsins, orðið fyrir
tjóni sem sé skaðabótaskylt.
Við ákvörðun bótanna var
miðað við hvað umboðsmaður-
inn hefði samkvæmt fyrri
reynslu borið úr býtum næstu
þrjá heilu mánuðina eftir
uppsögn, og nema þær að rnati
Hæstaréttar 30.000 krónum auk
vaxta. Dagblaðinu hf. vareinnig
gert að greiða málskostnað í
héraði og fyrir Hæstarétti kr.
21.000.
■ Eðlilegt að Steingrímur
brosi breitt þar sem hann er
að sigra stórknattspyrnu-
kempuna Albert 1-0 í fyrsta
leik Islandsmeistaramótsins í
tölvuknattspyrnu sem fram
mun fara á Borgarnesdögum
’85 í Laugardalshöllinni nú
um hclgina. Meðal fjölda
brosandi áhorfenda er fylgd-
ust spenntir með viðureign
ráðherranna sjáum við hér
forseta okkar, Vigdísi Finn-
bogadóttur.
NT-mynd Ari
Eftir samráðsf undi formanna stjórnarf lokkanna:
Útvarpslögin til
umræðu eftir helgi
Smygl á Neskaupstað:
Kjúklingar
og bjór-
kassar
■ Níu af tólf manna
áhöfn togarans Beitis frá
Neskaupstað hafa viður-
kennt að eiga smyglvarn-
ing, sem tollverðir frá
Reykjavík fundu þar um
borð síðastliðinn mánu-
dag, þegar skipið kom til
heimahafnar úr söluferð
til Grimsby.
Tollverðirnir fundu 35
kassa af bjór, 55 kg af
skinku, 140 kg af kjúk-
lingakjöti, 50 kg afnauta-
kjöti og 8 myndbandsspól-
Myrti kýr með vír í fóðrinu
Strasbourg-Reuter
■ Franskur bóndi var í gær
dæmdur til hálfs árs fangelsis
fyrir að drepa hundrað kýr með
því að blanda stuttum vírspott-
um saman við fóður þeirra
þannig að innyfli þeirra
sprungu.
Bændur í nágrenni við
frönsku borgina Strasbourg ótt-
uðust að Kúaveikifaraldur hefði
brotist út 1983 þegar kýr þeirra
létust skyndilega hver á fætur
annarri. Eftir að orsök kúa-
dauðans kom í Ijós gripu bænd-
ur til þess ráðs að gefa kúnum
segulstál með fóðrinu til að
reyna að safna vírspottunum
saman í innyflum þeirra og
koma þeim í gegnum melting-
arveginn.
52 ára gamall bóndi, Eugene
Schönfelder, var handtekinn
eftir að menn tóku eftir því að
gripir hans voru þeir einu sem
sluppu við banvænan vírinn.
Hrekur Reagan Nicaragua
til Sovétblokkarinnar?
-samkomulagum
au9lýsingar
segir Þorsteinn;
ekkert
samkomu/ag
segir
Steingrímur
- sjá erlendar fréttir bls. 29
■ Útvarpslagafrumvarpið
verður tekið til þriðju umræðu
og atkvæðagreiðslu í neðri deild
Alþingis strax eftir helgina, en
það hefur að undanförnu verið
til umfjöllunar á samráðsfund-
um formanna stjórnarflokk-
anna, Steingríms Hermanns-
sonar og Þorsteins Pálssonar,
nú síðast í gær, án þess að neitt
nýtt hafl komið út úr þeim
viðræðum. Upplýstu þeir í sam-
tali við NT í gær að málið kæmi
fyrir Alþingi eftir helgi.
Steingrímur Hermannsson
neitaði því að hafa gert sérstakt
samkomulag við Ragnhildi
Helgadóttur menntamálaráð-
herra um að þingmenn flokk-
anna stæðu frjálsir í afstöðu
sinni hvað varðaði auglýsinga-
þáttinn og sagði að það væri
mikil áhersla lögð á það hjá
framsóknarmönnum að greinin
um auglýsingar stæði eins og um
var samið í upphafi, þ.e. að
auglýsingar verði því aðeins
frjálsar að útvarps- og sjón-
varpsstöðvar geti ekki innheimt
afnotagjöld, eins og lagt er til í
frumvarpinu og samningar voru
um milli flokkanna. Sagði
Steingrímur að það væri einhver
misskilningur að samkomulag
hefði orðið um þetta atriði milli
hans og Ragnhildar og það hefði
aldrei verið rætt um það hjá
framsóknarmönnum að láta það
afskiptalaust ef auglýsingar
yrðu leyfðar algerlega frjálsar. ■
Sagði hann enn fremur að ef
breytingartillaga Friðriks
Sophussonar um frjálsar auglýs-
ingar yrði lögð fram og næði
fram að ganga þá myndi það
breyta afstöðu margra fram-
sóknarmanna til frumvarpsins.
Þorsteinn Pálsson formaður
Sjálfstæðisflokksins sagðist eiga
von á því að frumvarpið kæmi
til afgreiðslu eftir helgi og þá
yrði látið reyna á samkomulag
Ragnhildar og Steingríms um
auglýsingaþáttinn. Kvaðst hann
eiga von á því að málið færi í
gegn á þessu vori og hann tryði
því ekki að Framsóknarflokkur-
inn eða aðrir flokkar létu það um
sig spyrjast að þeir hindruðu
framgang málsins. Sagði Þor-
steinn enn fremur að það væri í
þessu frumvarpi atriði sem væru
þeim sjálfstæðismönnum óskap-
felld, Menningarsjóðurinn þar
á meðal, sem þeir hefðu haft á
annan veg ef þeir hefðu ráðið
gerð þess einir, en hins vegar
teldu þeir svo brýnt að útvarps-
lagafrumvarpið næði fram að
ganga á þessu þingi að þeir væru
tilbúnir að standa að samkomu-
lagi um málið.
Skákmótið í Borgamesi:
Hansen
og Jansa
berjast um
efsta sætið
■ Úrslit fengust aðeins
úr tveimur skákum í fyrstu
setu í 9. umferð alþjóðlega
skákmótsins í Borgarnesi
sem tefld var í gær. Guð-
mundur Sigurjónsson
gerði jafntefli við Magnús
Sólmundarson og Karl
Þorsteins gerði jafntefli
við Jansa. Karl þarf því
aðeins Vi vinning til við-
bótar til þess að ná áfanga
að alþjóðlegum meistara-
titli.
Skákir Margeirs og
Sævars, Hansen og Lein,
Mokry og Hauks og
Lombardys og Dan fóru
allar í bið. Úrslit lágu ekki
fyrir um miðnætti í gær.
Að óloknum biðskákum
er Jansa einn efstur með
6V5 vinning en á hæla hon-
um kemur Kurt Hansen
með 6 vinninga og hag-
stæðari biðskák gegn
Lein. Karl Þorsteins og
Guðmundur Sigurjónsson
voru báðir með 5V5
vinning.
10. umferð mótsins
verður tefld í dag en mót-
inu lýkur á morgun.