NT - 03.05.1985, Síða 12
Föstudagur 3. maí 1985 12
Aumingja Anna prinsessa
■ Aumingja Anna Breta-
prinsessa fær yfirleitt heldur
óblíða meðhöndlun í fjölmiðl-
um. Þar er sífellt klifað á því,
sem miður þykir fara í fari
hennar, en vinir hennar segja
hana hina Ijúfustu manneskju
sem sinni skyldum sínum óað-
finnanlega og af miklum
áhuga. Þar á meðal eigi mann-
úðarmál margs konar athygli
hennar óskipta. En á góð störf
prinsessunnar sé aldrei minnst
opinberlega.
Meðal annarrarógæfu prins-
essunnar sem fjölmiðlar velta
sér upp úr er hjónabandsgæfu-
leysi hennar, að þeirra sögn.
Alltaf öðru hverju gjósa upp
raddir sem fullyrða að nú sé úti
um hjónaband Önnu og Marks
Phillips, það sé eiginlega bara
fyrir orð Elísabetar drottning-
ar að þau hangi enn saman, en
drottning er búin að fá nóg af
hneykslum í fjölskyldunni.
Til sönnunar því að eitthvað
sé ekki í lagi í hjónabandinu er
það nefnt að iðulega fari Anna
einsömul í opinberar ferðir.
að fá fyrir
ósmekkiegan klæða-
burð og þá gjama borin
saman við mágkonuna,
Diönu. En Anna hefur
margoft sýnt að hún get-
ur líka borið glæsilegan
fatnað vel.
■ Eins og kemur fyrir marga góða
átti Art Malik erfitt með að lc
hlutverki sem hann hafði lifað sig sv
inn í, enda var margt líkt með hoi
persónunni Hari Kumar, sem hann
leika.
Art Mali
inn í hlu
- að lokum gat ha
■ Þegar leikarinn Art Malik lék
Indverjann Hari Kumar í sjón-
varpsþáttunum „Dýrasta djásnið“
varð hann með það sama stór-
stjarna í Englandi, þar sem hann
bjó, og síðan frægur í hverju því
landi sem Dýrasta djásnið var sýnt
í.
í fimm ár lifði hann sig svo inn í
hlutverkið Hari Kumar, að hann
■ Aðalsögusugnirnar
snúast um Önnu og
Anthony Andrews.
Mark stendur á milli
þeirra og satt er það að
hann er ekkert sérlega
glaðlegur á svipinn.
sem hún verður stöðu sinnar
vegna að fara í. Mark er þá
heima til að gæta bús og barn-
anna Peterog Zara. Ensumum
finnst þetta ekki fullnægjandi
skýring og þá er leitað annað
eftir einhverju meira krass-
andi. Hvað eftir annað hcfur
komið upp kvittur um að bæði
séu þau hjónin farin að leita út
fyrir hjónabandið eftir félags-
skap. Hvað Önnu varðar er þá
hvað oftast tilnefndur leikar-
inn Anthony Andrews, þeirn
sem lék hinn veiklundaða Se-
bastian í bresku framhalds-
myndaþáttunum Ættaróðalið
(Brideshead Revisited), sem
sýndir voru í sjónvarpinu fyrir
u.þ.b. 2 árum. Þá vill gleymast
að Anthony er þegar giftur en
kona hans, Georgia, er mikil
vinkona Önnu!
Og áfram er haldið. Því er
haldið fram að Mark sé mjög
óánægður með framferði konu
sinnar og hafi gefið henni ofaní-
gjöf, en þá hafi hún svarað
honum fullum hálsi og minnt
hann á að til sé kona að nafni
Linda Cooper og hann muni
kannast eitthvað við!
Það er sem sagt ekkert lát á
sögusögnunum, enda geta
meðlimir konungsfjölskyld-
unnar í Bretlandi ekki svarað
fyrir sig, það leyfir prótókoll-
urinn ekki.
■ Anna prinsessa var
ein á ferð í Þýskalandi
fyrir skemmstu og er
heldur umkomulaus
þarna í rigningunni.
Hvar er Mark, spyrja
fjölmiðlarnir.