NT - 03.05.1985, Blaðsíða 19

NT - 03.05.1985, Blaðsíða 19
 Föstudagur 3. maí 1985 27 Radaug lýsingar til sölu Bændur - Sumar- bústaðaeigendur Getum boðið mikið magn af girðingarstaur- um, úr trönuefni, á mjög hagstæðu verði. Kr. 67,- stk. með söluskatti. Lengd: 1.80 m íslenzka Umboðssalan hf. Klapparstíg 29, Reykjavík. Sími26488. Aligæsir Höfum til sölu daggamla ungaaf hreinræktuð- um hvítum ítölskum aiigæsastofni. Hagstætt verð. Upplýsingar í síma 93-5185 eftir kl. 7.00 á kvöldin. Veiðifélag Elliðavatns Stangveiði á vatnasvæði Elliðavatns hefst 1. maí. Veiðileyfi eru seld á Vatnsenda, Elliða- vatni og Gunnarshólma. Á sömu stöðum geta unglingar (12-16 ára) og ellilífeyrisþegar úr Reykjavík og Kópavogi fengið afhent veiði- leyfi án greiðslu. Veiðifélag Elliðavatns Jörð til sölu í Skagafirði. Upplýsingar í síma 95-6042 atvinna í boði Frá menntamálaráðuneytinu Laus staða Laus er til umsóknar kennarastaða í viðskiptagreinum við Fjölbrautaskólann á Akranesi. Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf sendist menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, fyrir 25. maí. Menntamálaráðuneytið Fjórðungssjúkra- húsið á Akureyri Stöður yfirfélagsráðgjafa og deildarfé- lagsráðgjafa við Geðdeild og aðrar deildir Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri eru laus- ar til umsóknar. Umsóknir með upplýsingum um menntun og fyrri störf sendist framkvæmdastjóra sjúkrahússins. Umsóknum sé skilað inn fyrir 31.05.1985. Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri Laus staða Bændaskólinn á Hólum óskar að ráða kennara í almennum búfræðigreinum. Umsóknir, ásamt upplýsingum um mennt- un og fyrri störf, sendist landbúnaðarráðu- neytinu fyrir 25. maí n.k. Landbúnaðarráðuneytið, 30. apríl 1985. atvinna óskast Húsasmiðir Ungan trésmíðanema vantar sumarvinnu. Stundvís og reglu- samur. Uppl. í síma 41340. tilboð - útboð Útboð Tilboö óskast í aö grafa og fjarlægja jaröveg á lóð Seljahlíðar við Hjallasel í Reykjavík fyrir byggingadeild. Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri Fríkirkjuvegi 3, Reykjavík gegn kr. 1.000,00 skilatryggingu. Tilboðin verða opnuð á sama stað 7. maf 1985 kl. 15.00 e.h. INNKAUPASTOFNUN REYKIAVlKURBORGAR Fríkirkjuv#gi 3 — Simi 2S800 Tilboð óskast í eftirtaldar bifreiöir, sem skemmst hafa í umferðar- óhöppum. Á Akureyri Lada 1500 st. árg 1980 Subaru 4x4 st. árg 1982 Mazda 323 1500 árg 1981 Austin Alegro árg 1977 Toyota Carina st. árg 1981 Datsun King-cap árg 1982 Bifreiðirnar verða sýndar í húsnæði Iðnaðardeildar, mánudaginn 6. maí 1985 kl. 13-17. Á Húsavík á sama tima: N.U.A. 492 árg. 1981 Toyota Corolla st. árg. 1980 Bifreiðirnar verða sýndr í húsnæði Bílaleigu Húsavíkur. I Borgarnesi á sama tíma: Galant 1600 árg. 1979. Bifreiðin verður til sýnis að Sólbakka 5, Borgarnesi. Tilboðum sé skilað til umboðsmanna á stöðunum, fyrir kl. 13, þriðjudaginn 7. maí 1985. SAMVINNU TRYGGINGAR ÁRMULA3 SIMI 81411 flokksstarf Framsóknarvist Framsóknarfélag Reykjavíkur heldur framsóknarvist aö Hótel Hofi sunnudaginn 5. maí n.k. kl. 14. Veitt verða þrenn verðlaun karla og kvenna. Jónas Guðmundsson rithöfundur flytur stutt ávarp í kaffihléi. Verð aðgöngumiða er kr. 150 (veitingar innifaldar). Stjórnandi er Baldur Hólmgeirsson. Stjórn Fr. Akranes - Framsóknarvist F.U.F. Akranesi heldur framsóknarvist að Sunnubraut 21 Akranesi, sunnudaginn 5. maí n.k. og hefst hún kl. 4.00 síðdegis. Góð verðlaun, allir velkomnir. Keflavík fulltrúaráð Aðalfundur fulltrúaráðs Framsóknarfélaganna i Keflavík verð- ur haldinn miðvikudaginn 8. maí n.k. kl. 20.30 í Framsóknar- húsinu Austurgötu 26, Keflavík. Stjórnin tilkynningar Ráðherranefnd Norðurlanda Norræna menningarmálaskrifstofan í Kaupmannahöfn Norræna menningarmálaskrifstofan í Kaupmannahöfn (Sekr- etariatet for nordisk kulturelt samarbejde) er stjórnsýslustofn- un fyrir samstarf ríkisstjórna Norðurlanda (Ráðherranefnd Norðurlanda) á sviði fræðslumála, vísinda og almennra menningarmála. Menningarmálaskrifstofan, sem nú telur um 50 starfsmenn, hefur umsjón með framkvæmd samnorrænnar fjárhagsáætlunar, árið 1985 að fjárhæð um 150 millj. danskra króna, sem skiptast í fjárveitingartil um 40 norrænna stofnana og samstarfsverkefna. Um samstarf á öðrum sviðum er fjallað í skrifstofu Ráðherranefndar Norðurlanda í Osló, sem mun verða flutt til Kaupmannahafnar 1986 og sameinað Menning- armálaskrifstofunni. í Menningarmálaskrifstofunni eru lausar til umsóknar tvær stöður fulltrúa á einhverjum eftirtalinna sviða: Fræðslumál, vísindamál eða almenn menningarmál. Gert er ráð fyrir að fulltrúarnir hafi reynslu í opinberri stjórnsýslu og framkvæmd könnunarverkefna og hafi góöa þekkingu á þeim málefnum sem eru á döfinni á viðkomandi sviði. Þekking á skipulagi norræns samstarfs er æskileg, en ekki nauðsynleg. Auk þess er ætlast til að viðkomandi eigi auðvelt með að fást við breytileg viðfangsefni og geti auðveldlega tjáð sig í riti á einu af þeim tungumálum sem notuð eru í starfi á skrifstofunni, þ.e. dönsku, norsku eða sænsku. Ráðningartíminn er 2-4 ár. Ríkisstarfsmenn eiga skv. gildandi reglum rétt á leyfi úr stöðu sinni um allt að fjögurra ára skeið, ef þeir ráðast til starfa í Menningarmálaskrifstofunni. Laun miðast við launakjör opinberra starfsmanna í Danmörku. Þar við bætast tilteknar álagsgreiðslur. Ráðherranefndin áskilur sér rétt til að takmarka ekki ráðningu eingöngu við þær umsóknir er berast. Samnorrænar stofnanir leggja áherslu á jafna skiptingu starfa milli kynja, og hvetja bæði karla og konur til að senda umsóknir. Umsóknir skulu berast Nordisk Ministerrád, Sekretariatet for nordisk kulturelt samarbejde, Snare- jgade 10, DK-1205 Köbenhavn fyrir 20. maí n.k. Störf þurfa að geta hafist í síðasta lagi 1. október n.k. Nánari upplýsingar veitir Mette Vestergaard, fulltrúi, í síma +90 45 1 114711, Kaupmannahöfn. IV1 ijf Félagsstarf aldraðra Reykjavík Orlofsdvöl sumarið 1985 Eins og undanfarin sumur efnir Félagsmála- stofnun Reykjavíkur í samstarfi viö íslensku Þjóökirkjuna til orlofsdvalar að Löngumýri í Skagafiröi. I sumar hafa eftirtalin tímabil verið ákveðin. 1. 28. maí til 8. júní. 2. 24. júní til 5. júlí. 3. 8. júlí til 19. júlí. 4. 22. júlí til 2. ágúst. 5. 19. ágúst til 30. ágúst. 6. 3. september til 14. september. Innritun og allar upplýsingar veittar á skrif- stofu félagsstarfs aldraöra, Norðurbrún 1, sími686960 Félagsmáföstofnun Reykjavíkurborgar til Laxveiðiá til leigu Áin Skrauma í Hörðudal í Dalásýslu er leigu. Tilboð merkt „Skrauma" sendist Guð- mundi Jónssyni, bónda, Ketilsstöðum í Hörðudal. Hann veitir einnig frekari upplýs- ingarfyrir 17. maí 1985. Forval - Ljósaperur I samvinnu við „Innkaupanefnd sjúkrastofnana" hefur verið ákveðið að láta fara fram forval á flúr og glóperum til notkunar I sjúkrastofnunum. Þeir sem hafa áhuga skulu senda Innkaupastofnun ríkisins, eigi síðar en 20. maí n.k., nöfn sín ásamt tæknilegum upplýsingum um perurnar og annað sem æskilegt er, merkt: „Forval hr. 3125/85“. Á grundvelli þessara upplýsinga mun síðar fara fram lokað útboð á perunum, í samræmi við niðurstöður forvals. INNKAUFASTOFNUN RIKISINS BOROARTÚNI 7 SÍMI 26844

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.