NT - 03.05.1985, Síða 20
tæ
Föstudagur 3. maí 1985 28
ökukennsla
Ökukennsla
og æfingatímar
Kenni á Audi ’82. Nýir nemendur geta byrjað
strax og greiða aðeins tekna tíma.
Æfingatímar fyrir þá sem hafa misst réttindi.
Æfing í borgarakstri. Greiðslukjör.
Lærið þar sem reynslan er mest.
Símar 27716 og 74923.
Ökuskóli Guðjóns Ó. Hanssonar.
tilkynningar
Málflutningsskrifstofa
Málflutningsskrifstofa Ragnars Aðalsteinssonar,
hæstaréttarlögmanns, sem verið hefur í Austur-
stræti 17, er flutt í Borgartún 24, 3. hæð.
Símanúmer er óbreytt 27611. Jafnframt hefur sú
breyting orðið á eignar- og rekstraraðild skrifstof-
unar, sem lýst er hér að neðan.
Frá og meö 2. maí 1985 rekum við sameigin-
lega málflutningsskrifstofu að Borgartúni 24, 3.
hæð, og annast skrifstofan öll almenn lögfræði-
störf.
Málflutningsskrifstofa
Ragnar Aðalsteinsson hrl.
Lilja Ólafsdóttir lögfr.
Sigurður Helgi Guðjónsson hdl.
Viðar Már Matthíasson hdl.
Borgartún 24 - Pósthólf 399 - 121 Reykjavík.
Sími27611
IV1
Félagsstarf aldraðra Reykjavík
Yfirlits og sölusýningar
Eins og undanfarin ár verða yfirlits og
sölusýningar á þeim handavinnumunum
sem unnir hafa verið í félagsstarfinu í vetur.
Sýningarnar verða nú að Norðurbrún 1 og
Lönguhlíð 3 laugardaginn 11. maí, sunnu-
daginn 12. maí og mánudaginn 13. maí frá
kl. 13-18 alla dagana.
Félagsmálastofnun Reykjavíkurborgar.
Ef þú ætlar að selja
eða kaupa fasteign,
þá auglýsir þú auðvitað
í Fasteignamarkaði NT.
Auglýsingasími
fasteigna
mt300
Kínverjar óttast
of öran hagvöxt
■ Kínverskir leiðtogar hafa að
undanförnu lýst yfir áhyggjum
yfir því hvað hagvöxtur í Kína
er ör um þessar mundir. Hag-
vöxturinn hefur orðið allt að því
þrefalt meiri en stjórnvöld
stefndu að.
Á seinasta ári stefndu Kín-
verjar að því að auka iðnaðar-
framleiðslu sína um 5% og
landbúnaðarframleiðsluna um
4%. En þegar til kom jókst
iðnaðarframleiðslan árið 1984
um hvorki meira né minna en
14,5% og landbúnaðarfram-
leiðslan um 14% að verðmæti
til á föstu verðlagi.
Forsætisráðherra Kína, Zhao
Ziyang, sagði á fundi kínverska
alþýðuþingsins fyrir skömmu að
þótt það væru vissulega góðar
fréttir hvað hagvöxturinn væri
ör en á sumum sviðum væri
hagvöxturinn samt í rauninni
allt of hraður og óskipulegur
sem aftur skapaði misræmi í
hagkerfinu. Mikill orkuskortur
væri á sumum stöðum þannig að
ekki væri hægt að fullnýta fram-
leiðslutæki og bæta þyrfti flutn-
ingakerfi landsins. Mörg dæmi
væru um óþarfa sóun sem yrði
að leiðrétta.
Kínversk stjórnvöld hafa
ákveðið að stefna að um 8%
aukningu iðnaðarframleiðsl-
Franskir grafarræningjar:
Sögðu
líkin
sýna
skilning
París-Reutcr
■ Franskir lögreglu-
menn urðu meira en lítið
undrandi þegar þeir komu
í eftirlitsferð í kirkjugarð
Pere I.achaise í París nótt
eina fyrir skömmu. Til
eyrna þeirra bárust dular-
fuli högg og dægurlaga-
tónlist úr einu fjölskyldu-
grafhýsinu.
Við nánari athugun
fundu þeir tvo bræður inni
í grafhýsinu þar sem þeir
voru að reyna að brjótast
inn í grafhvelfingu sem
þar var undir. Piltar þessir
höfðu með sér rafljós,
áfengi og útvarpstæki til
að lífga upp á andrúms-
loftið.
Bræðurnir Patrice og
Alain Coppet viðurkenndu
að hafa ætlað að losa hina
látnu við skartgripi og
gullfyllingar sem þeir ætl-
uðu að selja.
Þetta mun ekki hafa
verið í fyrsta skipti sern
bræðurnir heimsóttu
kirkjugarða í þessum til-
gangi. Þegar mál þeirra
kom fyrir rétt nú fyrir
helgi viðurkenndu þeir að
hafa samtals haft um 3000
franka (tæpl. 15 þús.
ísl.kr.) upp úr krafsinu.
Patrice bar fyrir réttin-
um að það væri ekki eins
slæmt að stela frá hinum
dauðu eins og að stela frá
þeim sem væru lifandi.
Peir dauðu þjáðust minna
vegna þjófnaðarins.
Alain bróðir hans hélt
því meira að segja fram að
hann hefði talað við hina
framliðnu sem hefðu svar-
að honum og sýnt honum
skilning á sama hátt og
hann skildi þá.
■ Framleiðsla ýmissa neysluvara hefur margfaldast á undanförn-
um árum í Kína. Stór hluti borgarbúa hefur nú þegar keypt sér
sjónvarpstæki og margir bændur geta nú líka leyft sér þann munað
sem fólginn er í sjónvarpsglápi. Þessi mynd er af samsetningarverk-
stæði fyrir sjónvarpstæki í kínversku þorpi.
unnar á þessu ári og um 6%
aukningu í landbúnaði. Af
reynslu undanfarinna ára er hins
vegar ómögulegt að spá fyrir
um það að hvað miklu leyti
Kínverjum tekst að standa við
þessi framleiðslumarkmið.
Yao Yilin varaforsætisráð-
herra Kínverja segir að þeir
muni stefna að því að halda um
sjö prósent stöðugum hagvexti
út þessa öld. Slíkur hagvöxtur
væri ekki of ör og myndi tryggja
stöðugleika í efnahagslífinu.
Verðlækk-
un á tei
London-Reutcr
■ Heimsmarkaösverö á
tei hefur lækkaðtnikið að
undanförnu. Á teuppboð-
um í London nú í síðustu
viku fengust aðeins 170,84
pence fyrir kílóið sem er
lægsta verð frá því í okt-
óber 1983.
Þetta er mikil lækkun
frá því fyrir hálfum mán-
uði, þegar te seldist á
193,44 pence kílóið. Al-
mennt er búist við því að
te haldi áfram að lækka í
verði og fari jafnvel niður
í um 1,5 pund kílóið (um
75 ísl.kr.).
Verðlækkunin núna
stafar af auknu framboði
tes en á síðasta ári fékkst
tiltölulega hátt verð fyrir
það á alþjóðantörkuðum.
Þrátt fyrir verðlækkunina
á alþjóðamörkuðum nú
nrunu stærstu bresku te-
framleiðendurnir ekki
hafa neinar áætlanir um
að lækka útsöluverð á te-
pökkum til almennings.
Verðlækkun tes kemur
sér iila fyrir þróunarlönd
sem byggja tekjursínarað
miklu leyti á teútflutningi.
Sérstaklega kemur hún sér
illa fyrir íbúa á Sri Lanka
og Indlandi og gerir það að
verkum að teræktun er á
mörkum þess að borga sig.
Vinnum of mikið
- japanskir launþegar óánægðir með fríin sín
Tokyo-Reuter
■ Japanskir hvítflibha klæddir
verkamenn - sem þekktir eru
fyrir það að una sér lengi dags á
skrifstofunum - gengu ineð
kröfuspjöld og kröfðust styttri
vinnuviku og fleiri frídaga í 1.
maí göngunum um gjörvallt
Japan.
Þrír fjórðu þeirra 880 manna
sem tóku þátt í könnun á vegum
ríkisstjórnarinnar sögðu að Jap-
anir ynnu of rnargar klukku-
stundir á ári og 82% sögðust
vilja fá lengri samfelld leyfi.
Nýlegar tölur vinnumála-
ráðuneytisins sýna að japanskir
verkamenn tóku að meðaltali
éinungis 8,7 af hinum 15,1 laun-
aða frídegi sem þeir öðluðust
árið 1982.
París:
Slegist um aðild að
frönsku kapalkerfi
París-Reuter
■ Um 45 fyrirtæki hafa sótt
um aðild að nýju sjónvarpskup-
alkerfí sem verður tekið í notk-
un í París í október næstkoin-
andi. Til að byrja með verður
sjónvarpað á 15 rásum í einu en
flestar geta rásirnar orðið 30.
Borgarstjóri Parísar. Jacques
Chirac, segir að búist sé við því
að um 1,2 milljón heimili hafi
tengst kapalkerfinu árið 1992.
Askriftargjald fyrir hvert heim-
ili er 120 frankar (rúml. 500
ísl.kr.).__________________
Ljógrisdýr
étur mann
Jóhannesarborg-Reuter
■ Suður-afrísk sjónvarpsstöð
segir að starfsmaður dýragarðs
nokkurs í Suður-Afríku hafí lát-
ið lífíð þegar „Ijógrisdýr“ réðst
á hann.
Ljógrisdýr er afkvæmi ljóns
og kventígurs. Dýragarðurinn,
þar sem þetta Ieiða atvik átti sér
stað er í Blömfontein um 400
kílómetra fyrir sunnan
Jóhannesarborg.
Fyrirtækin sem hafa sótt um
aðild að kerfinu eru meðal ann-
ars dagblöð, einkaútvarpsstöðv-
ar og auglýsingafyrirtæki.
Breskar. svissneskar og brasil-
ískar sjónvarpsstöðvar hafa
einnig boðið frarn efni fyrir
kapalkerfið.
Tyrkland:
8 ára fangelsi
fyrir maoista
Ankuru-Rcutcr
■ Fyrrverandi leiðtogi
tyrkncskra maoista, Dogu
Perincek, og 14 félagar í
Flokki tyrkneskra verka-
manna og bænda (TIKP)
voru nú í vikunni dæmdir í
allt að átta ára fangelsi fyrir
að reka áróður fyrir
kommúnisma.
Flestir hinna dæmdu losna
samt við frekari fangelsisvist
þar sem þeir hafa þegar verið
árum saman í gæsluvarðhaldi
í tyrkneskum fangelsum.
Aðeins þrír verða áfram í
fangelsi. Perincek var dæmd-
ur í átta ára fangelsi, þar af á
hann eftir að afplána átta
mánuði. En hann hefur áfrýj-
að dómnum og fær því að
ganga laus a.m.k. í einhvern
tíma.
Með réttarhöldunum var
eldri dómum yfir maoistun-
um hnekkt en þá voru þeir
dæmdir í allt að 12 ára fang-
elsi.