NT - 14.06.1985, Blaðsíða 1
NEWS SUMMARYIN ENGUSH tSEEP.29nm
■ Sambandið telur sig hafa
sýnt fram á það, að öllum kaffi-
bónusum hafi verið skilað til
íslenskra gjaldeyrisbanka og
grein fyrir þeim gerð, svo fljótt
sem efni stóðu til. Ennfremur,
að allar tekjur vegna þessara
viðskipta hafi verið bókfærðar
og taldar fram með öðrum skatt-
skyldum tekjum, ýmist hjá Sam-
bandinu eða Kaffibrennslu
Akureyrar.
Þetta kom fram á aðalfundi
Sambandsins í gær. Það kom
einnig fram, að Sambandið leggi
áherslu á, að þessum málum
Ijúki sem fyrst og á eðlilegan
hátt.
Ný útvarpslög af-
greidd frá Alþingi
- allar breytingartillögur felldar við þriðju umræðu
■ „Þetta var úrslitatilraun
okkar framsóknarmanna til
að breyta frumvarpinu í
betra horf,“ sagði Davíð
Aðalsteinsson alþingismað-
ur, eftir að breytingartillögur
hans við útvarpslagafrum-
varpið höfðu verið felldar
með jöfnurn atkvæðum við
lokaumræðu í efri deild í
gær. „Afgreiðsla þessa frum-
varps verður áreiðanlega
lengi í minnum höfð, þetta
er dæmi um hvernig á að
afgreiða mál þannig að þau
valdi sem mestum glund-
roða,“ sagði Eiður Guðna-
son, eftir að breytingartillög-
ur hans við bráðabirgða
ákvæði frumvarpsins höfðu
hlotið sömu örlög. Enginn
sjálfstæðismaður tók til máls
við lokaumræðuna, en frum-
varpið var að lokum sam-
þykkt með 13 atkvæðum
gegn 5, sem lög frá Alþingi.
Frá næstu áramótum verð-
ur því útvarpsrekstur frjáls á
íslandi, leyfi til útvarps-
reksturs verður háð sam-
þykki sérstakrar útvarpsrétt-
arnefndar og útvarpsstöðv-
um er heimilt að afla sér
tekna með afnotagjöldum og
auglýsingum, en síðarnefnda
atriðið hefur verið mesta
deiluefnið í meðförum
þingsins.
Sja bls. 3
Aðalfundur SÍS:
Kaffimálinu
Ijúki
sem fyrst
Slæmt frumvarp
segir Björn á Löngumýri í landbúnaðarblaði NT
A
I Þingslit á
§ fimmtudag?
I ■ „Ég hef tjáð stjórnar-
E andstööunni, að ríkis-
II stjórnin væri reiðubúin til
að stefna að þingslitum í
þessari viku, og ég er
þeirrar skoðunar að það
hefði verið unnt. Ég hef
hins vegar ætíð sagt, að ég
myndi ekki ákveða einn
dag, ef það þýddi að þing-
menn teldu sig ekki fá
þann tíma sem þeir þyrftu
til að fjalla um mál,“ sagði
Steingrímur Hermannsson
forsætisráðhcrra í samtali
við NT í gær.
Forsaúisráðherra var
spurður hvort stjórnin
hefði verið tilbúin að
fresta einhverju af þeim
málum sem hún hefur lagt
áherslu á að koma í gegn
fyrir þinglok, og kvaðst
hann hafa rætt óformlega
að hún gæti fallist á að
fresta sjóðamálinu, en
hins vegar hefðu engar
samningaviðræður farið
fram, enda ekki sýnilegur
vilji til að ljúka þingstörf-
um, ntenn töluðu lengi,
t.d. hefði Steingrímur J.
Sigfússon taiað í þrjá tíma
um eitt mál og aðrir litlu
skemur.
En hvenær lýkur þing-
inu? Þingmenn gera ráð
fyrir að þing sitji til loka
næstu viku. „Ég get hugs-
að mér að þingslit verði
n.k. fimmtudag,“ sagði
forsætisráðherra.
■ Björn Pálsson fyrrverandi
bóndi og alþingismaður er harð-
orður um frumvarp til laga um
framleiðslu, verðlagningu og
sölu á búvörum í viðtali við
landbúnaðarblað NT. Hann tel-
ur frumvarpið vera „beinlínis
stórhættulegt.“
saman að mati Björns. Að-
skilnaður þessa stuðli að efna-
legu sjálfstæði bænda.
Björn Pálsson ræðir þessi mál
ásamt mörgum öðrum í land-
búnaðarábót NT í dag.
NT-nynd AH
„Hugsanlegt er að Hrafna-
gilshreppur verði að yfirtaka
allan virkjunarkostnað Hita-
veitu Akureyrar,“ sagði Hreinn
Pálsson, bæjarlögmaður á
Akureyri, í samtali við NT í
gærkvöld.
Forsaga málsins er að Hjalti
Jósepsson, bóndi á Hrafnagili
og Hitaveitan gerðu með sér
samning fyrir 4 árunt þar sem
Hitaveitan leigði vatnsréttindi í
Hæstiréttur ógildir samning:
Tapar Hitaveita Akur
eyrar „happaholunni“?
- fjárfestingar fyrir á annað hundrað milljónir í óvissu
■ Dómur sem Hæstíréttur
felldi í fyrradag veldur því
að óvissa ríkir nú um fram-
tíð mannvirkja og fram-
kvæmda Hitaveitu Akur-
eyrar í landi Hrafnagils í
Eyjafirði. Fjárfestingar
Hitaveitunar munu vera
hátt á annað hundrað milljón
króna.
landi Hjalta til 99 ára fyrir 12
milljónir króna, sem greiddar
voru við undirritun samnings-
ins.
Hrafnagilshreppur lítur hins
vegar á samninginn sem sölu-
samning, ekki leigusamning, og
hefði sem slíkan átt að bera
undir Jarðanefnd Eyjafjarðar
en það gerði Hjalti ekki.
Nú hefur Hæstiréttur dæmt
samninginn ógildan og Hjalla
og Akureyrarbæ til að greiða
40.000 kr.- málskostnað og er
því framtíð fjárfestinga Hita-
veitunnar í nokkurri óvissu, en
holan cr „ein af fáunt happahol-
um Hitaveilunnar,“ sagði Wil-
helnt Steindórsson, Hitaveitu-
stjóri á Akureyri, í samtali við
NT.
Sambandið
ræðir
útvarpsmál
■ Valur Arnþórsson stjórnarfor-
maður Sambandsins tilkynnti á
aðalfundi SÍS í gær, að rétt væri að
fundurinn gerði ályktun um út-
varpsmál hreyfingarinnar. I>að
mál er ekki á dagskrá fundarins,
en verður tekið fyrir undir liðnum
„önnur mál“ í dag.
Útvarpsmálin voru mikið rædd
manna á meðal á fundinum í gær,
og hafa komið upp hugmyndir um
samstarf NT, Dags á Akureyri og
landsmálablaða og útvarpsstöðva
víða um landið. Búast má við, að
málinu verði sýndur mikill áhugi á
fundinum í dag, nú þegar Alþingi
hefur samþykkt lög um afnám
einkaréttar ríkisútvarpsins.
Sjá nánar af aðalfundi SIS á bak-
síðu.
■ Allliarðiir árekstur
varð áliorni (írensáss eg-
ar og Biistaðas egar seint
í gærksöld. I’r M fór i
prentun \ ar ekki knnniigt
ii ni niciösli okiiniann-
Lækkun á 10% útflutnings-
bótum til bænda telur hann vera
af hinu illa. Ráðamenn séu að
afnema það sem þeir áður hafa
talið nauðsynlega og viturlega
ráðstöfun.
Hann bendir á að það hafi
lengi átt að tryggja bændum
svipuð kjör og öðrum stéttum í
landinu og hann dregur í efa að
þetta verði framkvæmt nú. Pað
vanti alla tryggingu fyrir því í
frumvarpið.
Afurðasölu og vörudreifingu
á öðrum vörum á ekki að rugla
Tvisvar i elds-
voða á sjónum!
- en ætlar aftur út, stýrimaðurinn af Sjóla
■ Hann hafði vakað í þrjátíu tíma.
Hann var á vakt í brúnni og tók
fyrstur eftir eldinum. Fyrir þremur
árum fékk hann reykeitrun við Skot-
landsstrendur, þegar Guðfinnur frá
Grindavík brann. Pá var hann þrjá
sólarhringa í öndunarvél. „Mér varð
flökurt og ég varð máttlítill. Að
endingu féll ég hálf meðvitundarlítill
á dekkið. Síðan var ég fluttur með
varðskipi til Patreksfjarðar, þar sem
þyrla frá landhelgisgæslunni flutti mig
á Borgarspítalann. Ég var með alvar-
lega reykeitrun'
Sjá nánari frásögn stýrimannsins á
bls. 8.
ASÍogVCÍ:
ur afftur í haust
■ Alþýðusambandið og Vinnuveit-
endasambandið áforma að taka upp
þráðinn að nýju í byrjun ágúst, eftir
að upp úr samningaviðræðum þeirra
slitnaði snemma í gærmorgun. Samn-
ingamenn höfðu þá setið næturiangan
fund, án þess að koma sér saman um
nýjan kjarasamning.
Fulltrúar ASÍ og VSÍ voru horfnir
frá samningi til langs tíma og farnir
að ræða framlengingu núgildandi
kjarasamninga til áramóta, þegar upp
úr slitnaði.
Sjá viðtöl við Magnús Gunnarsson
og Asmund Stefánsson á bls. 2.