NT - 29.06.1985, Blaðsíða 6
29. júní 1985 6
Húsgögn
utan
dyra
■ Eins og flestum mun kunnugt, er
hvers konar útivist talin andlega og
líkamlega heilsubætandi, og mun
öndun á fersku lofti skipta þar miklu.
Peir sem ekki hafa vilja eða getu til
þess að hlaupa á fjöll í leit að þess
konar elexír, geta makindalega feng-
ið sér sæti úti í garði og dregið andann
djúpt. Fyrir sakir veðurs og fegurðar-
skyns eru hefðbundin húsgögn illa
nothæf til þeirra hluta, en öðru máli
gegnir um svokölluð garðhúsgögn. f
flestum tilvikum eru þau meðfærileg,
endingargóð og litrík, enda gert ráð
fyrir því að slík húsgögn sé hægt að
flytja og geyma á auðveldan hátt, að
þau geti staðið utandyra í öllum
■
■ Bambushúsgögn af CEYLON-gerð fást í Bústofni.
veðrum, og að þau endurvarpi sólar-
Ijósi sumarsins á upplífgandi hátt.
Hér á eftir fylgir kynning á þeim
tegundum garðhúsgagna sem 4 fyrir-
tæki selja viðskiptavinum sínum.
Bústofn
„Við höfum ekki mjög langa reynslu
af því að selja húsgögn af þessu tagi,
og því er erfitt að bera eftirspurnina
um þessar mundir saman við fyrri
tíma, en það er augljóst að um leið og
sól skín í heiði, þá rýkur salan upp,“
sagði Guðrún Jacobsen, fram-
kvæmdastjóri. Bústofn var stofnað
árið 1973, en innflutningur fyrirtækis-
ins á húsgögnum hófst árið 1984.
Hvað varðar garðhúsgögn, þá sagði
Guðrún að þau væru flutt inn frá
Svíþjóð, af svokallaðri BN-gerð.
Annars vegar eru þetta húsgögn úr
gegnvarinni furu sem geta staðið
utanhúss allt sumarið, og hins vegar
bambushúsgögn ætluð til nota í sól-
stofum og á veröndum. Lausir púðar
eru í öllum sætum, og auðvelt er að
þrífa áklæði. Sem dæmi um verð á
garðhúsgögnum má nefna PION-
samstæðuna frá BN, tvö sæti, borð og
skemill kosta kr. 10.495. „Pó að
furuhúsgögnin séu gegnvarin, þá
þorna þau oft og springa í sól og
vindi, þess vegna er ráðlegt að bera á
þau viðarolíu svona tvisvar á ári,“
sagði Guðrún. „Ef það er gert þá
þjóna þessi húsgögn hlutverki sínu í
langan tíma.“
■ Guðrún Jacobsen situr við PION-samstæðu sem fvrirtækið Bústofn seiur
Slík samstæða kostar kr. 10.495.
■ Lítill hiuti af úrvali garðhúsgagna er fæst í versluninni Geysi. Konráð Kristjánsson, afgreiðslumaður, styður sig við stól.