NT - 29.06.1985, Blaðsíða 7
A\\- 29. júní 1985 7
liL Innanhús g utan
■ Kjartan Kjartansson við sænsk KWA-furuhúsgögn, sem fást í Bláskógum.
Geysir
„Við leggjum áherslu á að fylgjast
vel með öllum nýjungum í framleiðslu
garðhúsgagna, og reynum að velja
einungis mjög vandaða vöru,“ sagði
Haraldur Theódórsson, verslunar-
stjóri. „Eftirspurnin er nokkuð jöfn,
en þó má segja að fyrri hluti sumars
sé mesti annatíminn hvað þetta
varðar." Geysir flytur inn v-þýsk
garðhúsgögn af KETTLER-gerð,
ýmist úr plasthúðuðu stáli, eða plasti,
öll sæti eru búin svamppúðum. Pessi
innflutningur hefur staðið í fjölda-
mörg ár, og að sögn Haraldar hefur
þannig fengist góð reynsla á þessa
vöru. Hann sagði ennfremur að það
væri erfitt að nefna dæmi um meðal-
verð á garðhúsgögnum, þar sem þau
væru svo óiík að gerð og gæðum, en
stakur stóll getur kostað allt frá kr.
700 og upp í kr. 5000. Fyrir skömmu
fékk Geysir nýja tegund úr plasti, af
RONDA-gerð, en það má stafla þeim
upp á þægilegan máta.
Haraldur benti áhugasömum við-
skiptavinum á að hafa samband við
verslunina, hann og aðrir starfsmenn
veita fúslega upplýsingar og ráðgjöf
er varða hina einstöku hluti, notkun
þeirra og geymslu. „Það er mikilvægt
að g.arðhúsgögn séu þurr og hrein
þegar þau eru sett í geymslu á haustin,
þannig verða þau til prýði svo árum
skiptir," sagði Haraldur. Að lokum
gat hann þess að fyrirtækið seldi
einnig grasdregla og mottur, gervi-
efni, til nota á svölum, veröndum,
eða gangstéttum, en þetta er hægt að
nota lengi ef rétt er með farið.
Bláskógar
„Eftirspurn eftir garðhúsgögnum
er yfirleitt jöfn og þétt, en er þó mest
þegar sólskinsdagar koma, og minnst
um rigningasumur eins og t.d. 1983
þegar hvorki rak né gekk,“ sagði
Kjartan Kjartansson, verslunarstjóri.
Bláskógar byrjuðu að flytja inn garð-
húsgögn árið 1978, og það er aðallega
sænsk húsgögn af KWA-gerð sem um
er að ræða. Þetta eru hvort tveggja
stál- og furuhúsgögn, en þau síðar-
nefndu eru gegnvarin með þrýstingi,
og voru Bláskógar fyrsta fyrirtækið
sem meðhöndlaði garðhúsgögn á
þann hátt hér á landi. Kjartan gat
þess að fyrir utan verð, þá gæta flestir
kaupendur garðhúsgagna vel að
hönnun þeirra, og að litavali í áklæði.
Sem dæmi um verð á þessari vöru hjá
Bláskógum, má nefna LAGHOLM-
furusófasettið þ.e. 2 stólar, borð og
sófi. Þessi samstæða kostar stgr. kr.
7.860, en með afb. kr. 8.274. Hægt er
að fá staka stóla frá kr. 695. Rólusóf-
ar, svokallaðir, sem njóta nú mikilla
vinsælda, kosta stgr. kr. 8.530, en
með afb. kr. 8.980. „Hvað varðar
viðhald á garðhúsgögnum, þá vil ég
minna fólk á að bera viðarolíu á
furuna a.m.k. tvisvar á ári,“ sagði
Kjartan að lokum. „Ef áklæði á
púðum skemmist eða slitnar, þá er
hægt að kaupa nýja púða hér í
Bláskógum, þannig að sá þáttur ætti
ekki að vera til trafala.“