NT - 05.07.1985, Blaðsíða 13
Föstudagur 5. júlí 1985 13
LlL Útvarp > — sjónvarp
Sjónvarp laugardag kl. 19.50:
Flytur fréttir á táknmáli:
Kennir heyr-
andi táknmál
■ í apríl 1984 kom Sigurlín
Margrét Sigurðardóttir til
starfa í sjónvarpinu við flutn-
ing frétta á táknmáli. í fyrstu
hljóp hún í skarðið vegna veik-
inda táknmálsþuls, en hún hef-
ur verið fastráðin síðan í febrú-
ar’85.
Sigurlín Margrét Sigurðar-
dóttir er fædd á Akranesi 23.
apríl 1964. Hún gekk í barna-
skóla á Akranesi, en þegar
Margrét var 8 ára missti hún
heyrn. Hún hefurstundaðnám
í Heyrnleysingjaskólanum frá
10 ára aldri.
Síðastliðinn vetur stundaði
hún framhaldsnám í Heyrn-
leysingjaskólanum, þar sem
notað var námsefni í félags-
fræðibraut frá Fjölbrauta-
skólanum í Ármúla.
Sigurlín Margrét hefur starf-
að mikið að félagsmálum og er
nú varaformaður Félags heyrn-
arlausra. Einnig er hún ritari í
Æskulýðsnefnd heyrnarlausra.
Þá hefur Sigurlfn Margrét gert
Italsvert að því að kenna heyr-
andi fólki táknmál heyrnar-
lausra á kvöldnámskeiðum.
Áhugamál Margrétar eru
■ Sigurlín Margrét Sigurðar-
dóttir á vinnustað sínum í
Landsbankanum í Austur-
stræti.
félagsmál, ferðalög, utan og
innanlands o.m.fl. Hún vinnur
hjá Landsbanka íslands í Aust-
urstræti við gagnaskráningu.
Iás2 kl. 11.
32S03E
,16.
Gllænýjar og glóð-
/olgar fréttir
starfsfélagana að þeir láti okk-
ur vita um þau mál sem þeir
eru að vinna í, svo að við
getum tekið forskot á sæluna
og komið með eitthvað
glóðvolgt, sem kemur svo nán-
ar í hádegisfréttunum eða
kvöldfréttum eftir því sem
verkast vill,“ segir Sigríður.
Fréttirnar eru unnar á frétta-
stofunni og útvarpað þaðan,
enda væru það hlaup upp á 10
km að hendast upp á Háaleiti.
Og fréttirnar eru oft ekki til-
búnar fyrr en á síðustu stundu.
Kl. 4 er samtengd útsending
í 3 mín., en að þeim loknum
heldur Sigríður áfram að flytja
fréttir á Rás 1, en músíkþáttur
sá sem þá er á dagskrá Rásar 2
hefst.
Þessir tíðu fréttatímar á Rás
2 gera það að verkum að
merkilegar fréttir eru sagðar
næstum því um leið og atburð-
irnir gerast, eða a.m.k. því
sem næst um leið og fréttastof-
an hefur spurnir af þeim.
menn útvarpsins sem hafa veg
og vanda af þessum fréttum og
flutningi þeirra.
Hver fréttamaður annast
flutninginn í einn mánuð í
senn. A vaðið reið Atli Rúnar
Halldórsson, þá tók Forgrímur
Gestsson við og nú er það
Sigríður Árnadóttir sem flytur
fréttirnar.
„Við sem erum í þessu mæt-
umkl. 8ámorgnanaogbyrjum
að undirbúa daginn. í>að er
víða leitað fanga, m.a. í
erlendum og innlendum
blöðum, og svo treystum við á
r sem annast fréttaflutning á Rás 2 í júlímánuði.
(NT-mynd: Sverrir)
■ Núerurúmirtveirmánuðir
liðnir síðan hafinn var frétta-
flutningur á Rás 2 og eru 4
fréttatímar daglega, kl. 11,15,
16 og 17, þriggja mínútna lang-
ur hvert sinn. Það eru frétta-
■ Einar Thoroddsen læknir,
ferðaðist á mótorhjóli í Banda-
ríkjunum og segir ferðasöguna í
þættinum Ut og suður.
Amótorhjóli
í U.S.A.
- í þættinum Út og suður
■ Mttur Friðriks Páls Jónsson-
ar, Út og suður, er á dagskrá
útvarps á sunnudaginn kl. 10.25
að venju. Athygli hlustenda skal
vakin á því að hann er jafnan
endurtekinn á þriðjudögum kl.
15.15.
1 þæltinum nú á sunnudaginn
segir Einar Thoroddsen læknir
frá ferð sem hann fór á mótor-
hjóli í vesturríkjum Bandaríkj-
anna í ágúst og september 1984.
Þetta er fyrri hluti frásagnar
hans, en sá síðari verður fluttur
sunnudaginn 14. júlí.
Útvarp sunnudag kl. 13.30:
■ Lilja Þórísdóttir leikkona er meðal lesara í dagskrá um
Martin A. Hansen.
Dagskrá um Mart
in A. Hansen
■ List og kristindómur nefn-
ist dagskrá um Martin A.
Hansen, ævi hans og verk í
samantekt Kelds. Jörgensen,
sem er á dagskrá útvarps á
sunnudag kl. 13.30.
í kynningu á dagskránni
segir:
„Martin A. Hansen (1909-
1955) lifði tíma tveggja heims-
styrjalda. Flest verka hans eru
samin í Ijósi þeirrar kreppu
nútímamannsins sem heims-
styrjaldirnar ollu. Hansen hóf
feril sinn á fjórða áratug aldar-
innar með tveimur skáldsög-
um, sem voru skrifaðar í anda
þjóðfélagslegs raunsæis. Því
næst komu ævintýraskáldsagan
Langferð Jónatans (Jonatans
rejse), sem nú er verið að lesa
í útvarpinu, og sögulega skáld-
sagan Lykkelige Kristoffer.
Eftir langa innri baráttu hætti
hann að skrifa og eftir að hann
sendi frá sér Lögneren (1950),
sneri hann sér að sagnfræði og
birti greinar og ritgerðir, ásamt
sögulegri skáldsögu er nefnist
Orm og Tyr (1952).
I smásagnasöfnum Martins A.
Hansen, Tornebusken (1946)
og Agerhönen (1947) kemur
fram hörð togstreita milli listar
og kristindóms og er listin
hugsuð sem flótti frá veru-
leikanum og ragmennska.
Þessara viðhorfa gætti í öllum
verkum hans eftir þetta. Á ís-
lensku hefur Lögneren komið
út í þýðingu séra Sveins Víkings
undir nafninu Ojákninn í
Sandey, ennfremur smásagna-
safnið Syndin f þýðingu Sig-
urðar Guðmundssonar. í fyrra
kom út Á ferð um ísland þýdd
af Hirti Pálssyni.“
Þýðandi dagskrárinnar er
Árni Sigurjónsson og lesarar
eru Kristján Frankltn Magnús-
son, Árni Blandon og Lilja
Þórisdóttir.
Rúnar Hafdal Halldórsson.
„Að kveðja
eraðdeyja
agnarögn“
■ Á sunnudagskvöld kl. 22.50
verður í útvarpi þáttur, sem
nefndur hefur verið Að kveðja er
að deyja agnarögn. Þátturinn er
um Ijóðskáldið Rúnar Hafdal
Halldórsson og er í umsjá Símon-
ar Jóns Jóhannssonar. Ljóð
skáldsins verða lesin og leikin lög
sem samin hafa vcrið við þau.
Rúnar lést árið 1971, rúmlega
tvítugur að aldri og vinir hans
gáfu út ljóðakver eftir hann að
honum látnum.
Lesari með Símoni er Þórdís
Mósesdóttir.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvölds-
ins
19.00 Kvöldfréttlr 19.30 Tilkynning-
ar
19.35 Það var og Þráinn Bertelsson
rabbar við hlustendur
20.00 Sumarutvarp unga fólksins
Blandaður þáttur I umsjón Jóns
Gústafssonarog Ernu Arnardóttur.
21.00 fslensklr einsöngvarar og
kórar syngja
21.30 Útvarpssagan: „Leigjand-
inn“ eftlr Svövu Jakobsdóttur
Höfundur les (2).
22.00 Að vera tré Norska skáldkon-
an Halldis Moren Vesaas les úr
Ijóðum sínum. Jóhann Hjálmars-
son flytur formálsorð.
22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá
morgundagsins Orð kvöldsins
22.35 Iþróttaþáttur Umsjón: Ingólfur
Hannesson
22.50 „Að kveðja er að deyja agnar-
ögn" Þáttur um Ijóðskáldið Rúnar
Hafdal Halldórsson í umsjá Símon-
ar jons Jonannssonar. Lesari með
honum: Þórdís Mósesdóttir.
23.10 Djassþáttur - Tómas R. Ein-
arsson
23.50 Fréttir. Dagskrárlok.
j|?
Föstudagur
5. júlí
10:00-12:00 Morgunþáttur Stjórn-
endur: Páll Þorsteinsson og Ásgeir
Tómasson.
14:00-16:00 Pósthólfið Stjórnandi:
Valdís Gunnarsdóttir.
16:00-18:00 Léttlr sprettir Stjórn-
andi: Jón Ólafsson.
Þriggja minútna fréttir sagðar
klukkan: 11:00, 15:00, 16:00 og
17:00.
HLÉ
20:00-21:00 Lög og lausnlr Spurn-
ingaþáttur um tónlist. Stjórnandi:
Adolf H. Emilsson.
21:00-22:00 Bergmál Stjórnandi:
Sigurður Gröndal.
22:00-23:00 Á svörtu nótunum
Stjórnandi: Pétur Steinn Guð-
mundsson.
23:00-03:00 Næturvaktin Stjórnend-
ur: Vignir Sveinsson og Þorgeir
Ástvaldsson.
Rásirnar samtengdar að lokinni
dagskrá rásar 1.
Laugardagur
6. júlí
10:00-12:00 Morgunþáttur
14:00-16:00 Við rásmarkið Stjórn-
andi: Jón Ólafsson ásamt Ingólfi
Hannessyni og Samúel Erni Er-
lingssyni iþróttafréttamönnum.
16:00-17:00 Llstapopp Stjórnandi:
Gunnar Salvarsson.
17:00-18:00 Hringborðið Stjórnandi:
Árni Þórarinsson.
HLÉ
20:00-21:00 Innsýn Stjórnendur:
Heiðbjört Jóhannsdóttir og Sigrið-
ur Gunnarsdóttir.
21:00-22:00 Stund mllll striða
Stjórnandi: Jón Gröndal.
22.00-23.00 Bárujárn: Stjórnandi:
Sig urður Sverrisson.
23:00-24:00 Svlfflugur Stjórnandi:
Hákon Sigurjónsson.
24:00-03:00 Næturvaktin Stjórnandi:
Kristín Björg Þorsteinsdóttir.
Rásirnar samtengdar að lokinni
dagskrá rásar 1.
Sunnudagur
7. júlí
13:30-15:00 Krydd I tilveruna
Stjórnandi: Helgi Már Barðason.
15:00-16:00 Dæmalaus veröld Þátt-
ur um dæmalausa viðburði liöinnar
viku. Stjórnendur: Þórir Guð-
mundsson og Eiríkur Jónsson.
16:00-18:00 Vinsældalisti hlust-
enda Rásar 2 20 vinsælustu lögin
leikin. Stjórnandi: Gunnlaugur
Helgason.
Föstudagur
5. júlí
19.25 Bjargið Endursýning.
19.40 Sögur og draumar Finnsk
barnamynd (Nordvision - Finnska
sjónvarpið)
19.50 Fréttaágrip á táknmáli
20.00 Fréttir og veður
20.30 Auglýsingar og dagskrá
20.40 Skonrokk Umsjónarmenn Har-
aldur Þorsteinsson og Tómas
Bjarnason.
21.15 Drengskaparmenn Bresk
heimildamynd um starfsemi maf-
íunnar á Sikiley, Italíu og í Banda-
rikjunum. Lögreglu bæði vestan-
hafs og austan hefur orðið vel
ágengt undanfarið i baráttu sinni
gegn þessum voldugu glæpasam-
tökum og er það mest þakkað
uppljóstrunum mafiuforingjans
Tommaso Buscetta sem fjallað er
um í myndinni. Þýðandi Björn
Baldursson.
22.00 Konuraunir (Poor Gow) Bresk
bíómynd frá 1967. Leikstjóri Ken
Loach. AOalhlutverk: Carol White,
Terence Stamp, John Bindon og
Kate Williams. Söguhetjan er gift
atvinnuglæpamanni og stendur
uppi ein með ungan son þeirra
þegar maðurinn er dæmdur til
fangelsisvistar. Hún reynir að
bjarga sér meö ýmsu móti og
kynnist mörgu misjöfnu í því baslí.
Þýðandi Kristmann Eiðsson.
23.40 Fréttir í dagskrárlok
Laugardagur
6. júlí
16.00 Iþróttir Umsjónarmaður Bjarni
Felixson.
19.25 Kalli og sælgætisgerðin Sjötti
þáttur. Sænsk teiknimyndasaga í
tíu þáttum gerð eftir samnefndri
barnabók eftir Roald Dahl. Þýðandi
Jóhanna Jóhannsdóttir. Sögu-
maður Karl Ágúst Úlfsson. (Nord-
vision - Sænska sjónvarpið)
19.50 Fréttaágrip á táknmáli
20.00 Fréttir og veður
20.25 Auglýsingar og dagskrá
20.35 Sambýlingar Sjötti þáttur.
Breskurgamanmyndaflokkur (sex
þáttum. Þýðandi Guðni Kolbeins-
son.
21.05 Allt í pati í paradís (There's
Something Wrong in Paradise)
Bresk dans- og söngvamynd gerð
fyrir sjónvarp. Sönglög eftir August
Darnell. Leikstjóri David Liddi-
ment. Helstu skemmtikraftar: Kid
Creole og The Coconuts, The
Three Degrees, Karen og Pauline
Black. Kiddi kreóli og kókoshnetur
hans verða innlyksa á eyju í Karíba-
hafi. Þar tekur hópurinn þátt í
hljómsveitakeppni, bakar sér óvild
einræðisherrans og fer ekki var-
hluta af valdabaráttu i þessari
suðrænu paradís. Þýðandi Óskar
Ingimarsson.
22.30 La Paloma Svissnesk-frönsk
bíómynd frá 1974. Leikstjóri Daniel
Schmid. Aðalhlutverk: Ingrid
Caven, Peter Kern, Peter Chatel
og Bulle Ogier. Óásjálegur aðals-
maður fellir hug til fagurrar söng-
konu sem er tæringarveik. Að
endingu lætur hún tilleiðast að
eiga hann en geymir ást sína
öðrum. Þýðandi Sonja Diego.
00.25 Dagskrárlok
Sunnudagur
7. júlí
18.00 Sunnudagshugvekja Séra
Guðni Þór Ólafsson flytur.
18.10 Ferðin til tunglsins Bandarísk
teiknimynd gerö eftir sígildri sögu
eftir Jules Verne. Þýðandi Eva
Hallvarðsdóttir.
19.00 Hlé
19.50 Fréttaágrip á táknmáli
20.00 Fréttir og veður
20.25 Auglýsingar og dagskrá
20.40 Sjónvarp næstu vlku Umsjón-
armaður Magnús Bjarnfreðsson.
20.55 Saga og samtfð Hús og
heimilisfólk 11 þessum þætti verð-
ur fjallað um húsakost Islendinga
fyrr á tímum og þær aðstæður sem
fólk bjó við. Rætt er við Hörð
Ágústsson, listmálara og forn-
húsafræðing, um þróun islenska
torfbæjarins, allt frá eldaskála
landnámsaldar til burstabæjanna
sem allir kannast við. Einnig er
rætt við Jón Steffensen, prófessor
i liffærafræði um heilsufar og lík-
amsbyggingu Islendinga fyrr á
tímum. Umsjónarmaður Hörður
Erlingsson. Klipping: Isidór Her-
mannsson. Stjórn upptöku: Óli Örn
Andreasen. I næsta þætti að viku
liðinni verður fjallað um mót gamla
og nýja tímans, komið er við i
Öræfasveit og rætt verður um
skipulag i þéttbýli samtíðarinnar.
21.40 Til þjónustu reiðubúlnn Loka-
þáttur. Breskur framhaldsmynda-
flokkur í þrettán þáttum. Þýðandi
Kristmann Eiðsson.
22.30 Blúsinn, það er ég Bandarísk-
ur djassþáttur tileinkaður tón-
smiðnum og blússöngvaranum
Willie Dixon og verkum hans. Þátt-
urinn var tekinn upp á tónleikum í
Denver á þessu ári. Þar komu fram
Willie Dixon sjálfur, Baby Doo
Caston og Chicago Blues All-Stars
hljómsveitin.
23.35 Dagskrárlok