NT - 06.07.1985, Page 2

NT - 06.07.1985, Page 2
■ Eins og flestum mun kunnugt, þá var aðdragandi þess að íslendingar eignuðust þjóðfána all langur og strangur, óþarft er að rekja þá sögu. En allt frá því að núverandi krossfáni var tekinn í notkun, hefur hann notið verðskuldaðrar virðingar og vinsxlda. Mörgum húseigendum hefur þótt prýði að því að draga fána að hún á tyllidögum, ef ekki í bæ eða borg þá t.d. við sumarbústað. Til þcss að fáni sé til prýði, þarf hann að blakta á reisulegri fánastöng, og gæta þarf samræmis í stærð þessara tveggja hluta. Einnig skiptir miklu hvar fánastöngin er reist. Bæði fánar og fánastengur eru til sölu hérlendis sem innflutt vara, eða sem innlcnd framlciðsla, og það er vonandi að áhugi á notkun fánans fari vaxandi. Fánastengur úr áli „Við byrjuöum innflutning á fána- stöngum árið 1973, en þá var þjóðhá- tíðin í uppsiglingu, eins og kunnugt er,“ sagði Ölafur Kr. Sigurðsson, framkvæmdastjóri samnefnds fyrir- tækis að Suðurlandsbraut 6. „Þá var salan töluverð, en annars hefur hún verið mjög jöfn og þétt.“ Sænsku SAPA-fánastengurnar eru úr hvít- lökkuðu áli og eru seldar rneð öllum útbúnaði, jarðfestingu, línu, nál og hún. Pær eru til í ýntsum lengdum (6-8-10-12-14-16 m) og fyrirtækið leiðbeinir um samræmi milli lengdar og húshæðar, svo ekki sé minnst á staðsetningu stangarinnar. „Það er nokkuð athyglisvert aö fólk á lands- byggðinni hefur yfirleitt verið áhuga- samara unt kaup á fánum og fána- stöngum, heldur en íbúar höfuðborg- arsvæðisins," sagði Ólafur. „En nú er 200 ára afmæli Reykjavíkurborgar í uppsiglingu þannig að þetta getur allt breyst.“ Ólafur sagði ennfremur að fyrirtækið hefði einbeitt sér að inn- ■ Slippstöðin hf. hefur framleitt fánastengur um árabil úr oregon pine, en litur þcirra og stærð fer eftir óskum viðskiptavina. NT-mynd: Svcrrir flutningi á álstöngum vegna góðrar reynslu af notkun þeirra hérlendis, og vegna þess hversu auðvelt væri að setja þær upp. Þess má geta að Ólafur Kr. Sigurðsson lætur sauma íslenska fána erlendis úr völdu efni, og er sérstaklega gætt að góðum lit og endingu í þeirri framleiðslu. Sem dæmi um verð á ofangreindu, þá kostar 6 m fánastöng kr. 10.450 og samsvarandi fáni kr. 1.980. fánann vera uppi meðan samkoman varir og bjart er, þó ekki lengur en til miðnættis. Ef draga á fána í hálfa stöng, er hann fyrst dreginn að hún, en síðan felldur, svo að V5 stangarinn- ar sé fyrir ofan efri jaðar fánans. Við jarðarfarir á að draga fánann að hún, þegar greftrun er lokið og skal hann blakta þar til kvölds, til virðingar við hinn látna. Svo má ekki gleyma hinum lögskipuðu fánadögum, en Fánastengur úr oregon pine „Petta byrjaði fyrst fyrir alvöru lýðveldisárið 1944, síðan hefur eftir- spurnin eftir okkar framleiðslu verið nokkuð jöfn,“ sagði Jóhann Jóna- tansson, afgreiðslumaður hjá Slipp- stöðinni hf. Starfsmenn fyrirtækisins framleiða fánastengur úr oregon pine í ýmsum stærðum, allt frá 3 m og upp í 12 m. Þessar stenguy eru unnar eftir óskum viðskiptavina, þ.e. hvítlakk- aðar, viðarlitar, o.s.frv. Slippstöðin hf. selur einnig festingar og fána. Ef dæmi er tekið um verð á þessari vöru, þá kostar 6 m fánastöng kr. 11.190, festing kr. 3.600, og fáni í samsvar- andi stærð kr. 1.780. Fánarnir eru saumaðir hér á landi, nánar tiltekið á Akureyri, og sagði Jóhann þctta vera gæðaframleiðslu.

x

NT

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: NT
https://timarit.is/publication/305

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.