NT - 06.07.1985, Qupperneq 4
f w 6. júlí 1985 4
L il ■nnanhúss< og utara
■ Við höfum flutt inn flísar og
hreinlætistæki frá Ítalíu í tvö ár, og á
þessum tíma hefur eftirspurnin eftir
þessari vöru aukist gífurlega,“ sagði
Sigurður Hermannsson, verslunar-
stjóri hjá Húsasmiðjunni. „Það eru
ákveðnar tegundir til á lager, annars
sérpöntum við eftir óskum við-
skiptavina." Að sögn Sigurðar hefur
fyrirtækið lagt áherslu á að flytja inn
flísar og hreinlætistæki í stórum förm-
um þ.e. í gámum. Síðastnefnda varan
er t.d. seld eftir vigt og því er hægt að
semja um verulegan magnafslátt við
verksmiðjurnar, sem skilar sér svo
aftur til viðskiptavina. Hvað varðar
sérpantanir, þá má geta þess að ef
þær fylgja stóru pöntununum þá mun-
ar oft engu í verði á hinum einstöku
hlutum, en ef um sérflutning er að
ræða þá hefur það áhrif á verðið. Á
sama hátt er afgreiðslutími á sér-
pöntunum háður því hvort varan
fylgir stærri förmum eða ekki. í fyrra
tilfellinu getur afgreiðslutími komist
niður í 13 daga, en yfirleitt er hann
4-6 vikur.
Samræmt litróf
Hreinlætistækin sem Húsasmiðjan
selur eru framleidd af Ceramice Dola-
mite, og fást í miklu úrvali tegunda
og lita. Sú tegund sem notið hefur
mestra vinsælda, og er iafnframt sú
ódýrasta, nefnist perla. I þeirri sam-
stæðu kostar salerni m. viðarsetu kr.
8.128 (m. plastsetu kr. 6.720), baðkar
kr. 6.540, handlaug kr. 1.930 (fótur-
inn kr. 1.285), og sturtukar kr. 2.544.
Húsasmiðjan býður viðskiptavinum
sínum svipuð greiðslukjör og viðgang-
ast hjá hliðstæðum fyrirtækjum
þ.e. 25% útborgun og afgangurinn
greiddur á 3-5 mánuðum með víxlum,
annars á lengri tíma með skuldabréfi.
■ Nú er hægt að raða flísum í myndir eða mynstur á marga vegu, á þessari
mynd sést ein útfærslan á veggflísum frá PIEMME.
■ Húsasmiðjan hefur nýlega hafið innflutning á tvflitum hreinlætistækjum, á
þessari mynd sést EXTRA-samstæða, svartlit með gulllitri rönd.
Ný ítölsk lína
í flísum,
hreinlætis- og
blöndunartækjum
Á þessum ítölsku hreinlætistækjum
er hefðbundin eins árs ábyrgð, en á
tveggja ára tímabili hafa verið fluttar
inn á annað þúsund samstæður án
þess að vart hafi orðið alvariegra
galla. Sigurður lagði áherslu á að
Húsasmiðjan hefði reynt af fremsta
megni að fylgjast vel með nýjungum
og breyttum viðhorfum, framboð
hreinlætistækja endurspeglaði það.
Hvað varðar nýjustu vöruna, má
nefna tvílitar einingar sem eru hann-
aðar með tilliti til framboðs á flísum
og hjálpargögnum í baðherbergi.
Hinar ýmsu ítölsku verksmiðjur hafa
samræmt litróf í framleiðslu sinni, og
þetta veitir viðskiptavinum mögu-
leika á því að raða saman, á skemmti-
legan hátt, hinum ýmsu þáttum í
baðherbergisinnréttingu.
Blðndunartæki með gullhúð
Hreinlætistækjasamstæður eru til lít-
ils nýtar ef blöndunartæki vantar.
Sigurður sagði að Húsasmiðjan seldi
aðallega ítölsk blöndunartæki af Pa-
ini-gerð, lituð jafnt sem ólituð. Sem
dæmi um verð á slíku má nefna að
handlaugartæki kostar ódýrast kr.
1.083, en með 14 karata gullhúð kr.
3.151. Þótt ótrúlegt megi virðast, þá
selst töluvert af síðastnefndu vörunni,
og kvaðst Sigurður álíta að þar réði
fremur útlit en ending. Pað má ítreka
að ýmsir fylgihlutir, svo sem krókar,
hillur, speglar, hringir, burstar,
o.s.frv., eru felldir að lit og lögun
blöndunartækjanna. Svokölluð
„gamaldags" tæki eru mjög vinsæl um
þessar mundir þ.e. blöndunartæki:
sem eru svipuð þeim er þekktust fyrir
nokkrum áratugum.
■ Perla-hreinlætistækin eru ódýrasta og vinsælasta samstæðan sem
Húsasmiðjan selur.
Stærsti flísalager
á landinu
„Við flytjum einnig inn flísar í
gámum, sem hefur aftur áhrif á verðið
til viðskiptavina,“ sagði Sigurður.
„Reyndar má fullyrða að fyrrnefndur
magnafsláttur geri það að verkum, að
Húsasmiðjan hefur á boðstólum
gæðavöru á verði sem er ekki sam-
bærilegt við annað hér á landi.“
Sigurður bætti því við að fyrirtækið á
nú stærsta flísalager á landinu. Það
eru einkum tveir aðilar á Ítalíu sem
selja þangað umræddar flísar, Flor-
gress og Piemme. Sem dæmi um verð
á veggflísum má nefna að þær ódýr-
ustu kosta um kr. 600 ferm., en þær
dýrustu kr. 1.800 ferm. Odýrustu
gólfflísarnar kosta kr. 859 ferm., en
þær dýrustu kr. 1.850 ferm. Úrvalið
■ „Gamaldags“ blöndunartæki af
LIBERTY-gerð frá PAINI.
af flísum er mjög margbreytilegt, og
þær eru flestar framleiddar í fyrr-
nefndu, samræmdu litrófi. Að sögn
Sigurðar eru svo nánast ótæmandi
möguleikar á röðun flísanna t.d. í
mynstur eða myndir. „Núna á kom-
andi hausti fáum við 12 nýjar tegundir
af flísum hingað sem lagervöru, þar
fyrir utan munum við þá bjóða sér-
pöntunarþjónustu upp á fjórða
hundrað tegunda, á sama verði og
gildir hér í versluninni þ.e. ef pöntun
stangast ekki algerlega á við flutning-
ana hjá okkur,“ sagði Sigurður.
Pess má geta að lokum að Húsa-
smiðjan hefur þegar farið að laga
innkaup sín, á ýmsum vörutegund-
um, að breyttum horfum í húsnæðis-
málum þ.e. að aukinni áherslu á
nýtingu eldra íbúðarhúsnæðis. Pessi
áherslubreyting endurspeglar hvernig
fyrirtæki verða að sjá fyrir breyttar
markaðsaðstæður á vettvangi þar sem
samkeppnin er hörð, eins og t.d. í
sambandi við byggingavörur. Pað er
vonandi að forsjálni af því tagi verði
neytendum til hagsbóta.