NT - 06.07.1985, Blaðsíða 10
Innanhuss og utan
6. júlí 1985 10
■ Gólfhitakerfi hafa átt öröugt upp-
dráttar hérlendis, þess má þó sjá
merki að þetta er að breytast. Það er
í samræmi við þróunina í þcim lönd-
um sem við tökum aðallega mið af í
hitatækni, svo sem Þýskalandi og
Skandinavíu. f þessum löndum eru
gólfhitakerfi það hitunarform sem
eykur hlut sinn jafnt og þétt.
Öll gólfhitakerfi byggjast á notkun
plaströra, og þau hljóta að hafa
nokkra sérstöðu hérlendis vegna jarð-
hitans. Þess vegna er ekki óeðlilegt
að spurt sé hvort slík kerfi henti við
íslenskar aðstæður. í mörgum tilfell-
um henta þau betur og í öðrum
tilfellum síður. Það er mikilvægt að
fólk leggi ekki að jöfnu gólfhitakerfi
og geislahitun, hin fyrrnefndu liita
ekki nema að hluta með geislun. Rétt
hannað og stillt gólfhitakerfi gefur af
sér mjög jafnan og góðan hita, en
yfirboröshiti gólfsins má þó ekki fara
yfir 27° C, of heit gólf eru engu síður
óþægilegen þau köldu. Gólfhitakerf-
um má stýra á sama hátt og ofnakerf-
um, með sjálfvirkum ofnaventlum
eða hitanema í hverju herbergi sent
stýrir mótorloka í hitaklefa.
2,7 m ■
1,7 m----------
0,1 m ■
Óskahiti
Gólfhiti
Geislahiti
Ofnar
v. útvegg
Ofnar
v. innvegg
Blásturshiti
(Heitt loft)
■ Hitastig í hverju herbergi getur
verið mjög mismunandi frá gólfí til
lofts, eftir því hvers konar hitakerfi er
notað, en sú krafa er yfírleitt gerð í
dag að mismunur hitastigs frá gólfí í
höfuðhxð sé ekki meiri en 5°C.
Helsti kosturinn við gólfhitakerfí er
einmitt þessi jafni hiti.
GiHhitakerfin
auka hlutsinn
jafnt og þétt
P ÞjT] £1
10+7; * . , i . / ■ 'v ; • * / • * * . ■ ; o . \ . i * *
Þverskurður sýnir dýpt á rörum í steinsteypu.
Hámark 80 mm
Lágmark 30 mm
Undir hellum séu rörin efst í sandi.
Ef hitakerfið er byggt upp ein-
göngu sem gólfhiti er mikilvægt að
plaströrin séu ekki of dj úpt, þá veröur
kerfið of „tregt“. Ef plaströrin eru
innsteypt er ákjósanlegt að lágmarks-
dýpt á rör sé 30 mm, en hámarksdýpt
80 mm. Blönduð hitakerfi (ofnar-r
gólfhiti eða hitablásarar+gólfhiti) er
sú útfærsla sem fleiri og fleiri nota t.d.
í hvers konar iðnaðarhúsnæði. Slík
kerfi eru ekki síður hagkvæm í íbúð-
arhúsnæði, enga sérstaka stýringu
þarf á gólfhitakerfið sem er í raun
ekki annað en að afrennslið frá hverj-
um ofni er lagt í gólfið í viðkomandi
herbergi. Þó að reglan um 27° C
hámarkshita yfirborðs á gólfi eigi að
gilda, þá má hann vera hærri á 500
mm breiðri spildu meðfram veggjum,
slíka útfærslu ætti að nota þegar
gólfliiti er lagður í íbúðarhúsnæði.
Leggja skal afrennslið fyrst meðfram
veggjum, síðan yfir gólfið í heild.
Hitastig í hverju herbergi getur verið
mjög mismunandi frá gólfi til lofts,
eftir því hvers konar hitakerfi er
notað, en sú krafa er yfirleitt gerð í
dag að mismunur hitastigs frá gólfi í
höfuðhæð sé ekki meiri en 5° C.
Helsti kosturinn við gólfhitakerfið er
einmitt þessi jafni hiti.
■ Gólfhiti í garðstofu eða öðru
íveruhúsnæði.
■ Blandað hitakerfí, ofnar og gólfhiti. Þegar um stórt kerfi er að ræða
t.d. í iðnaðar- eða verslunarhúsnæði, þá er dæla á gólfhitakerfínu. Ef hún
stöðvast t.d. við rafmagnstruflun, rennur vatnið óhindrað út af