NT - 06.07.1985, Side 11
Margir hafa ruglað saman gólfhitakerfi og
geislahitun, en þetta er alls ekki það sama
- segir Sigurður G. Guðmundsson, pípulagninga-
meistari hjá Pípulögnum hf.
■ „Fyrirmyndin að þeim snjó-
bræðslu- og gólfhitakerfum, sem við
framleiðum, er frá Svíþjóð, en við
byggjum að mestu leyti á eigin reynslu
hérlendis,“ sagði Sigurður G. Guð-
mundsson, pípulagningameistari.
„Hér eru allt aðrar aðstæður t.d.
jarðvarminn, og því óhugsandi að
tága ekki tæknina að þeim“. Fyrir-
tækið Pípulagnir hf., Skemmuvegi
26, var stofnað árið 1970, og þremur
árum síðar hófst framleiðsla á
KÓBRA snjóbræðslu- og gólfhita-
kerfum. Sigurður sagði að hið fyrr-
nefnda hefði þegar náð umtalsverð-
um vinsældum, en hið síðarnefnda
hefur verið háð meiri fordómum.
„Margir hafa ruglað saman gólfhita-
kerfi og geislahitun, en þetta er alls
ekki sami hluturinn," sagði Sigurður
„Eins og við höfum þróað gólfhitun í
íbúðarhúsnæði, þá byggist hún á
notkun ofna og gólfröra. Þar sem
heita vatnið á Islandi er of heitt fyrir
beina gólfhitun a.m.k. í venjulegu
íbúðarhúsnæði, þá felst besta nýting-
in í því að láta það renna úr ofnunum
í gólf“. Reyndar kvað Sigurður það
svo vera, víða um land, að vatn næði
aldrei miklum hita t.d. á Tálknafirði,
en á slíkum stöðum er gólfhiti án ofna
mjög ákjósanlegur. Petta á einnig við
um stærra húsnæði, þar má nefna
íbúðarhúsnæði, íþróttahús, fjós,
kjúklingabú, o.s.frv. Tvö síðast-
nefndu dæmin eru sérlega athygl-
isverð, fyrir þá sök að oft hafa
bændur orðið fyrir ýmiskonar búsifj-
um vegna hitasveiflna í húsum. Ali-
fuglabændur geta auðveldlega komið
í veg fyrir algengan kjúklingadauða
með því að nota gólfhita, en hefð-
bundin upphitun nær oft illa að yfir-
borði gólfs, þar sem fuglarnir eru
yfirleitt aldir. „Pað er rétt að taka það
fram, að gólfhiti kemur að fullu gagni
þó að það sé parket eða teppi á
gólfum,“ sagði Sigurður. „Þetta hita-
kerfi hentar einnig vel í nýjum og
gömlum timburhúsum, reyndar er
gólfhiti besta vörnin gegn raka og fúa
sem völ er á“.
Að sögn Sigurðar er kostnaður
nýbyggjanda við lagningu gólfhita-
kerfis ekki meiri en við lagningu
hefðbundins hitakerfis, og í sumum
tilvikum er gólfhitinn ódýrari. Endur-
bætur á gömlu kerfi verður auðvitað
að meta eftir aðstæðum hverju sinni,
það borgar sig t.d. ekki hvað kostnað
varðar að brjóta upp steingólf, ein-
ungis í þeim tilgangi að setja þar
niður gólfhita. Sigurður benti á að
Pípulagnir hf. veita fúslega tækniráð-
gjöf, gera kostnaðaráætlun, selja
efni, og annast framkvæmd, allt eftir
óskum viðskiptavinarins. Sumarið er
tilvalið til framkvæmda, bæði hvað
varðar snjóbræðslukerfi og gólfhita,
þar sem helsti annatíminn er síðla
hausts og vegna veðurs. Aðspurður
sagði Sigurður að enn sem komið er
væri algengasta tegundin af gólfhita í
íbúðarhúsnæði hérlendis fólgin í væg-
um hita í baðherbergis-, forstofu- og
garðstofugólfum. Mörgum finnst t.d.
þægilegt að stíga inn á volgt baðher-
bergisgólf að morgni. „Ég vil leggja
áherslu á það að við erum ekki að tala
um aukna notkun á heitu vatni í
þessum gólfhitakerfum, heldur betri
nýtingu á því vatni sem rennur um
ofnana, og þá um leið betri hitun
húsnæðisins," sagði Sigurður að
lokum. Pess má geta að verulegur
hluti af starfi Pípulagna hf. felst í
framleiðslu plaströra í fyrrnefnd
kerfi, og Sigurður hefur látið útbúa
greinargóða handbók þar sem upp-
bygging þeirra er skýrð í myndum og
máli.
■ Sigurður G. Guðmundsson um-
vafínn rörum af þeirri tegund sem
mynda KÓBRA snjóbræðslu- og
gólfílitakerfí. Mynd - Ari.
*n0Zó*taií'9,! u^sjón«
oKkur
////
V >
*CP
v\